Morgunblaðið - 28.08.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAU GARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 27
Pakistön-
um sleppt
INDVERJAR slepptu í gær úr
haldi átta pakistönskum stríðs-
föngum, en tvær vikur eru síð-
an þeir fyrst buðust til að láta
þá lausa sem „góðvildarvott".
Pakistönsk stjórnvöld höfðu
hins vegar fram að þessu tregð-
ast við að taka við föngunum
því Indverjar héldu því statt og
stöðugt fram að þeir hefðu ver-
ið teknir höndum eftir bardaga
indverska hersins við skæruliða
í fjöllum Kasmír í vor. Þar sem
Pakistanar neituðu algerlega
að hafa stutt við bak skærulið-
anna óttuðust þeir að með því
að taka við föngunum væru þeir
að viðurkenna stuðning sinn við
skæruliðana.
+
Irakar biðla
til öryggisráðs
ÍRAKAR fóru enn einu sinni
fram á það við öryggisráð Sa-
meinuðu þjóðanna í gær að það
stöðvaði frekari árásir breskra
og bandarískra flugsveita á
skotmörk í Irak, en slíkar árás-
ir hafa verið tíðar frá miðjum
mánuði yfir flugbannssvæðinu í
Norður- og Suður-írak. Jafn-
framt sögðust írösk stjórnvöld
mótfallin hverjum þeim hug-
myndum SÞ sem gerðu aðeins
ráð fyrir að lyfta viðskipta-
þvingunum á Irak að hluta til.
Irakar segja 25 óbreytta borg-
ara hafa fallið í árásum Breta
og Bandaríkjamanna undan-
farnar tvær vikur og áskilja sér
rétt til að leita bóta. Bandaríkin
harðneita hins vegar að hafa
gert árásir á borgaraleg mann-
virki.
Uosukainen
ekki í framboð
HINN umdeildi forseti finnska
þingsins, Riitta Uosukainen, til-
kynnti í gær að hún sæktist
ekki lengur eftir útnefningu
Hægriflokksins fyrir væntan-
legar forsetakosningar. Skv.
skoðanakönnunum naut
Uosukainen umtalsverðs fylgis
meðal almennings en svo virtist
hins vegar sem flokkur hennar
væri ekki mjög áhugasamur um
að hún yrði frambjóðandi hans.
Uosukainen skaust upp á
stjörnuhimininn í Finnlandi
fyrir þremur árum þegar hún
ritaði bók, sem var að hluta til
skáldskapur, þar sem hún lýsti
skilmerkilega ástarleikjum
hennar og bónda síns.
Nýr E1 Nino?
SÉRFRÆÐINGAR á vegum
Sameinuðu þjóðanna segja þó
nokkra hættu á að veðurundur í
líkingu við E1 Niiio, sem olli
uppnámi á hagkerfi nokkurra
landa í fyrra og hittifyrra, end-
urtaki sig. E1 Nino olli því að
hiti sjávar í Kyrrahafinu hækk-
aði mjög, með þeim afleiðingum
að lönd í einum heimshluta
þurftu að eiga við mikla þurrka,
á meðan önnur áttu í höggi við
mikil flóð.
Sjálfsmorð
í páfagarði
TALSMENN páfagarðs sögðu
í gær enga nauðsyn á því að
„endurhelga“ basilíku heilags
Péturs þótt sextugur ítali hefði
vanhelgað kirkjuna með því að
fremja þar sjálfsmorð á
fimmtudag. Fjölmiðlar á Ítalíu
höfðu leitt að því líkur að skv.
kirkjulögum þyrfti að „endur-
helga“ bygginguna eftir sjálfs-
morð.
ERLENT
Umfang peninga-
þvættishneyksl-
isins eykst
BANDARÍSKIR rannsakendur
efnahagsafbrota hyggjast færa rann-
sókn sína á peningaþvætti rúss-
neskra glæpahópa í bandarískum og
evrópskum bönkum út til hinna
ýmsu áætlana um bandaríska efna-
hagsaðstoð við Rússland. Dagblaðið
USA Today greindi frá þessu í gær.
„Eftir því sem við gröfum meira
kemur meira í ljós,“ hefur blaðið eft-
ir háttsettum bandarískum embætt-
ismanni, sem er í rannsóknarnefnd-
inni. Tjáði hann USA Today að um-
fang peningaþvættisins gæti farið yf-
ir 15 milljarða bandaríkjadala, and-
virði um 1.100 milljarða króna, og
náð til mun fleiri bankareikninga en
þeirra fimm sem rannsóknin hefur
fram að þessu aðallega beinzt að.
Að sögn embættismannsins og
fleiri manna sem að rannsókninni
koma mun tuga milljóna dala einnig
vera saknað af sérstökum banka-
reikningi sem stofnaður var af rúss-
neskum stjórnvöldum til að geyma
afrakstur sölunnar á bandarísku
korni í Rússlandi.
Eftir mjög slæma uppskeru í
Rússlandi í fyrra og gengisfellingu
rúblunnar tókst milli Bandaríkjanna
og Rússlands í lok síðasta árs sam-
komulag um að Bandaríkjamenn
létu Rússum hvort tveggja í té, korn
og langtímalán, til að fjármagna
kaupin á korninu og öðrum vörum.
Hljóðaði þessi samningur upp á
nærri einn milljarð dala. Hina
bandarísku framleiðslu átti síðan að
selja á markaðsverði í Rússlandi og
það sem kæmi í kassann af þeirri
sölu skyldi leggjast inn á hinn sér-
staka bankareikning sem áður er
nefndur.
Rannsakendur telja nú, að sögn
USA Today, að þessu fé hafi með
ólögmætum hætti verið skotið undan
og lagt inn á leynireikninga í
„skattaparadísum“. Hinir ábyrgu
fyrir þessum fjársvikum væru bæði
núverandi og fyrrverandi meðlimir
rússnesku stjórnarinnar.
IMF-fé komið undan
Auk þessa hefur USA Today eftir
ónafngreindum rannsóknarmönnum
í Bandaríkjunum og Bretlandi að þá
gruni að hið minnsta tólf háttsettir
menn í rússneska stjórnkerfinu hafi
komið að minnsta kosti 15 milljörð-
um dala undan, þar á meðal
nokkrum milljörðum af lánsfé Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF), í
gegnum tvo banka í New York. Mik-
hail Kajanov, fjármálaráðherra
Rússlands, hefur vísað því á bug sem
rógi að rússnesk stjórnvöld hafi átt
nokkurn þátt í svikum með alþjóð-
legt lánsfé.
Samlæsingar með þjófavöm og
rafmagn I rúöum að framan.
Utað gler.
Bensínlok opnanlegt innan frá.
Tvöfaldir styrktarbitar
í hurðum.
Vökva- og veltistýri.
1500 cc 90 hö vól.
SOHC tötvustýrð innspýting.
Eyösla aðeins 8,41/100 km.
Þokuljós og samlitir
stuðarar.
Hljómflutningstæki
með 4 hátölunjm og
rafdrifnu loftneti.
Faileg innrótting.
4 dyra Hyundai Accent
í sérstakri afmælisútgáfu með
aukabúnaði að verðmæti
154.990 kr. í kaupbæti.
Accentðdyra
í afmælisútgáfu:
1.199.000 kr.
ssari
3tdtr i Þe®f,
gtæsiteg'J
":'th o o»°1
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1280
I 4 dyra Accent
afmælisútgáfunni
færðu aukalega:
• Álfelgur
• Vindskeið með
bremsuljósi
• Geislaspilari
. Mottur
• Fjarstýrð samlæsing
• Vetrardekk á stálfelgum
, I
I RMKVJb
-•Oaakoðun J B&L **
-ly**™* , > Olðtnéts
4'.^ ■ hátot ;i