Morgunblaðið - 28.08.1999, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 28.08.1999, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ LAU GARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 27 Pakistön- um sleppt INDVERJAR slepptu í gær úr haldi átta pakistönskum stríðs- föngum, en tvær vikur eru síð- an þeir fyrst buðust til að láta þá lausa sem „góðvildarvott". Pakistönsk stjórnvöld höfðu hins vegar fram að þessu tregð- ast við að taka við föngunum því Indverjar héldu því statt og stöðugt fram að þeir hefðu ver- ið teknir höndum eftir bardaga indverska hersins við skæruliða í fjöllum Kasmír í vor. Þar sem Pakistanar neituðu algerlega að hafa stutt við bak skærulið- anna óttuðust þeir að með því að taka við föngunum væru þeir að viðurkenna stuðning sinn við skæruliðana. + Irakar biðla til öryggisráðs ÍRAKAR fóru enn einu sinni fram á það við öryggisráð Sa- meinuðu þjóðanna í gær að það stöðvaði frekari árásir breskra og bandarískra flugsveita á skotmörk í Irak, en slíkar árás- ir hafa verið tíðar frá miðjum mánuði yfir flugbannssvæðinu í Norður- og Suður-írak. Jafn- framt sögðust írösk stjórnvöld mótfallin hverjum þeim hug- myndum SÞ sem gerðu aðeins ráð fyrir að lyfta viðskipta- þvingunum á Irak að hluta til. Irakar segja 25 óbreytta borg- ara hafa fallið í árásum Breta og Bandaríkjamanna undan- farnar tvær vikur og áskilja sér rétt til að leita bóta. Bandaríkin harðneita hins vegar að hafa gert árásir á borgaraleg mann- virki. Uosukainen ekki í framboð HINN umdeildi forseti finnska þingsins, Riitta Uosukainen, til- kynnti í gær að hún sæktist ekki lengur eftir útnefningu Hægriflokksins fyrir væntan- legar forsetakosningar. Skv. skoðanakönnunum naut Uosukainen umtalsverðs fylgis meðal almennings en svo virtist hins vegar sem flokkur hennar væri ekki mjög áhugasamur um að hún yrði frambjóðandi hans. Uosukainen skaust upp á stjörnuhimininn í Finnlandi fyrir þremur árum þegar hún ritaði bók, sem var að hluta til skáldskapur, þar sem hún lýsti skilmerkilega ástarleikjum hennar og bónda síns. Nýr E1 Nino? SÉRFRÆÐINGAR á vegum Sameinuðu þjóðanna segja þó nokkra hættu á að veðurundur í líkingu við E1 Niiio, sem olli uppnámi á hagkerfi nokkurra landa í fyrra og hittifyrra, end- urtaki sig. E1 Nino olli því að hiti sjávar í Kyrrahafinu hækk- aði mjög, með þeim afleiðingum að lönd í einum heimshluta þurftu að eiga við mikla þurrka, á meðan önnur áttu í höggi við mikil flóð. Sjálfsmorð í páfagarði TALSMENN páfagarðs sögðu í gær enga nauðsyn á því að „endurhelga“ basilíku heilags Péturs þótt sextugur ítali hefði vanhelgað kirkjuna með því að fremja þar sjálfsmorð á fimmtudag. Fjölmiðlar á Ítalíu höfðu leitt að því líkur að skv. kirkjulögum þyrfti að „endur- helga“ bygginguna eftir sjálfs- morð. ERLENT Umfang peninga- þvættishneyksl- isins eykst BANDARÍSKIR rannsakendur efnahagsafbrota hyggjast færa rann- sókn sína á peningaþvætti rúss- neskra glæpahópa í bandarískum og evrópskum bönkum út til hinna ýmsu áætlana um bandaríska efna- hagsaðstoð við Rússland. Dagblaðið USA Today greindi frá þessu í gær. „Eftir því sem við gröfum meira kemur meira í ljós,“ hefur blaðið eft- ir háttsettum bandarískum embætt- ismanni, sem er í rannsóknarnefnd- inni. Tjáði hann USA Today að um- fang peningaþvættisins gæti farið yf- ir 15 milljarða bandaríkjadala, and- virði um 1.100 milljarða króna, og náð til mun fleiri bankareikninga en þeirra fimm sem rannsóknin hefur fram að þessu aðallega beinzt að. Að sögn embættismannsins og fleiri manna sem að rannsókninni koma mun tuga milljóna dala einnig vera saknað af sérstökum banka- reikningi sem stofnaður var af rúss- neskum stjórnvöldum til að geyma afrakstur sölunnar á bandarísku korni í Rússlandi. Eftir mjög slæma uppskeru í Rússlandi í fyrra og gengisfellingu rúblunnar tókst milli Bandaríkjanna og Rússlands í lok síðasta árs sam- komulag um að Bandaríkjamenn létu Rússum hvort tveggja í té, korn og langtímalán, til að fjármagna kaupin á korninu og öðrum vörum. Hljóðaði þessi samningur upp á nærri einn milljarð dala. Hina bandarísku framleiðslu átti síðan að selja á markaðsverði í Rússlandi og það sem kæmi í kassann af þeirri sölu skyldi leggjast inn á hinn sér- staka bankareikning sem áður er nefndur. Rannsakendur telja nú, að sögn USA Today, að þessu fé hafi með ólögmætum hætti verið skotið undan og lagt inn á leynireikninga í „skattaparadísum“. Hinir ábyrgu fyrir þessum fjársvikum væru bæði núverandi og fyrrverandi meðlimir rússnesku stjórnarinnar. IMF-fé komið undan Auk þessa hefur USA Today eftir ónafngreindum rannsóknarmönnum í Bandaríkjunum og Bretlandi að þá gruni að hið minnsta tólf háttsettir menn í rússneska stjórnkerfinu hafi komið að minnsta kosti 15 milljörð- um dala undan, þar á meðal nokkrum milljörðum af lánsfé Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF), í gegnum tvo banka í New York. Mik- hail Kajanov, fjármálaráðherra Rússlands, hefur vísað því á bug sem rógi að rússnesk stjórnvöld hafi átt nokkurn þátt í svikum með alþjóð- legt lánsfé. Samlæsingar með þjófavöm og rafmagn I rúöum að framan. Utað gler. Bensínlok opnanlegt innan frá. Tvöfaldir styrktarbitar í hurðum. Vökva- og veltistýri. 1500 cc 90 hö vól. SOHC tötvustýrð innspýting. Eyösla aðeins 8,41/100 km. Þokuljós og samlitir stuðarar. Hljómflutningstæki með 4 hátölunjm og rafdrifnu loftneti. Faileg innrótting. 4 dyra Hyundai Accent í sérstakri afmælisútgáfu með aukabúnaði að verðmæti 154.990 kr. í kaupbæti. Accentðdyra í afmælisútgáfu: 1.199.000 kr. ssari 3tdtr i Þe®f, gtæsiteg'J ":'th o o»°1 Grjótháls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1280 I 4 dyra Accent afmælisútgáfunni færðu aukalega: • Álfelgur • Vindskeið með bremsuljósi • Geislaspilari . Mottur • Fjarstýrð samlæsing • Vetrardekk á stálfelgum , I I RMKVJb -•Oaakoðun J B&L ** -ly**™* , > Olðtnéts 4'.^ ■ hátot ;i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.