Morgunblaðið - 28.08.1999, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
Ibúi tyrkneska bæjarins Adapazari hjólar framhjá rústum húsa sem eyðilögðust í jarðskjálftanum. Hið
mikla tjón sem varð á mönnum og mannvirkjum er að miklu leyti rakið til fúsks í húsasmíði.
Fúskarar í húsa-
smíði söttir til saka
Ist&nbúl, Adapazari. Reuters, AP.
TYRKNESK stjómvöld hafa verið
beðin að staldra við með að ryðja
rústir húsa sem hrundu í jarð-
skjálftanum í síðustu viku, til að
gefa byggingaeftirlitsmönnum færi
á að safna sönnunargögnum um
fúsk við byggingu húsanna, en sú
skoðun er útbreidd að slíku fúski sé
um að kenna hve tjónið varð mikið á
mönnum og mannvirkjum.
Landssambönd tyrkneskra arki-
tekta og verkfræðinga og lög-
mannafélag Tyrklands hafa farið
fram á það við stjómvöld að þau sjái
til þess að rústir húsanna verði ekki
fjarlægðar fyrr en eftirlitsmönnum
hafi gefízt tækifæri til að leggja mat
á tjónið.
Erol Cakir, héraðsstjóri Istanbúl,
skýrði frá því í gær að hann hefði
fyrirskipað sakarannsókn á meintu
fúski byggingaverktaka, sem era
sagðir hafa í gróðaskyni verið spar-
ir á að nota réttu byggingarefnin.
„Við geram allt sem í okkar valdi
stendur til að réttlætið nái fram að
ganga,“ sagði Cakir á blaðamanna-
fundi.
Borgarstjóri Avcilar-hverfis í Ist-
anbúl, sem varð illa úti í skjálftan-
um, hefur heitið lögsókn á hendur
báðum verktökunum sem byggðu
hinar gölluðu byggingar sem
hrandu, sem og á hendur fyrri
stjóm sveitarfélagsins sem lögðu
blessun sína yfir byggingamar sem
löglegt íbúðarhúsnæði.
I Avcilar, sem og víða annars stað-
ar á jarðskjálftasvæðinu í norðvest-
urhluta landsins, standa hús sem
ekki högguðust í hamfórunum við
hlið rústa annarra húsa sem hrandu
til granna. Þetta hefur ýtt undir
grunsemdir um að ekki væri allt með
felldu í byggingabransanum.
Nornaveiðar gegn
verktökum
Mesta reiði íbúanna beinist nú að
einum manni, sem virðist vera far-
inn í felur. Hann er sagður ábyrgur
fyrir byggingu hundraða íbúða á
hamfarasvæðinu. „Vilji stjórnvöld
endurreisa orðstír sinn í augum al-
mennings verða þau að finna og
grípa þessa skammarlegu verktaka-
nefnu,“ skrifaði dagblaðið Milliyet.
Nomaveiðarnar komust á nýtt stig
þegar dagblöð hófu að birta nöfn
meintra sökudólga. Sum prentuðu
heilu nafnalistana.
Stórblaðið Hurriyet sagði ósvífna
byggingaverktaka nota allt að 40%
minna sement i granna nýbygginga
en lög gerðu ráð fyrir. Fullyrti blað-
ið að niðurstöður eftirlits á vegum
byggingamálaráðuneytisins fyrir
jarðskjálftann hefðu sýnt, að bygg-
ingareglugerðir hefðu verið brotnar
við byggingu 91% af öllu íbúðarhús-
næði í einkaeigu í landinu.
Sérfræðingar í byggingariðnaðin-
um í Tyrklandi segjast sannfærðir
um, að manntjónið í jarðskjálftan-
um hefði orðið miklum mun minna,
hefði betur verið vandað til húsa-
gerðar á liðnum áram.
Tyrkneska byggingamálaráðu-
neytið gerir nú ráð fyrir, að til þess
að koma þaki yfir höfuð allra þeirra
sem urðu heimilislaus í skjálftanum
eða treysta sér ekki til að búa áfram
í húsum sem stóðu skjálftann naum-
lega af sér, þurfi að byggja á bilinu
100.000 til 120.000 nýjar íbúðir. Þar
sem í Tyrklandi er miðað við um
fímm manns á hvert heimili má ætla
að stjórnvöld séu við því búin að
heimilislausir af völdum skjálftans
verði yfir hálf mUljón. Fram að
þessu hefur þó ekki verið gefin upp
hærri opinber tala yfir heimUislausa
en 200.000.
Ný rannsókn á
Waco-umsátrinu
Frakklandsforseti
Vill sam-
ræmda her-
málastefnu
París. Reuters.
JACQUES Chirac Frakk-
landsforseti hvatti til þess á
fimmtudag að ríki Evrópusam-
bandsins (ESB) kæmu sér
saman um sameiginlega stefnu
í her- og vamarmálum í ætt
við stefnumið þau er komu
fram í tengslum við undirbún-
inginn að aðild ríkjanna að
Myntbandalagi Evrópu
(EMU).
Sagði forsetinn að átökin á
Balkanskaga fyrr á þessu ári
hefðu sýnt glögglega fram á
ríka þörf fyrir sameiginlega
vamarmálastefnu ESB og her
Evrópuríkja.
Þykir yfirlýsing Chiracs til
marks um aukna áherslu ríkja
bandalagsins á að formfesta
yfirlýstan vUja tU sameigin-
legrar utanríkis- og vamar-
málastefnu.
BANDARÍSKA alríkislögreglan,
FBI, og dómsmálaráðuneytið
hyggjast hefja nýja rannsókn á um-
sátri lögreglunnar um búgarð Da-
vids Koresh skammt frá Waco í
Texas 1993, sem lauk með því að
eldur kom upp í húsunum og sjötíu
og sex manns létust. Sjónvarpsstöð-
in CNN greindi frá þessu í fyrra-
dag.
Janet Reno, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagðist staðráðin í
að komast að því hvers vegna það
hefði tekið FBI sex ár að viður-
kenna að fulltrúar lögreglunnar
kynnu að hafa skotið táragaskútum,
sem geta verið eldfimir, að megin-
byggingunni á búgarðinum daginn
sem umsátrinu, er stóð í 51 dag,
lauk.
Reno kvaðst ekki telja ástæðu tU
að ætla að FBI bæri ábyrgð á dauða
Koresh og fylgjenda hans en hún
sagði það „mjög mikið áhyggjuefni“
að sex árum eftir að FBI hefði neit-
að afdráttarlaust
væra að koma
fram nýjar upp-
lýsingar um að
eldfim tæki
kynnu að hafa
verið notuð.
Umsátrið um
búgarð Koresh
hófst eftir að fjór-
ir lögreglufulltrú-
ar féllu í skotbardaga við fólk á bú-
garðinum. FBI staðfesti, fyrr í
þessari viku, frétt þess efnis að eld-
fimu gasi kynni að hafa verið skotið
í grennd við búgarðinn. Hins vegar
fullyrti lögreglan að ekkert benti til
þess að þetta hefði orðið kveikjan
að eldinum í byggingunum, sem
vora úr timbri og brunnu hratt.
Sú ákvörðun, að Ijúka umsátrinu
með árás á búgarðinn, hefur verið
umdeUd, og gagnrýnendur hafa
haldið því fram að FBI-liðar hafi
orðið valdir að eldsvoðanum.
Meintar njósnir í höfuðstöðvum NATO
Talsmenn NATO
neita að tjá sig
Brusscl. Reuters.
TALSMENN höfuðstöðva Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) í Brassel
vUdu í gær ekki tjá sig um dagblaðs-
frétt þess efnis, að njósnari í stjóm-
unarstöðu hjá bandalaginu hefði
komið upplýsingum um hemaðará-
ætlanir þess í Kosovo tU Rússlands.
„Við tjáum okkur aldrei um innri
öryggismál. Það er hin opinbera
stefna og við ætlum okkur ekki að
breyta út af henni,“ sagði ónafn-
greindur embættismaður banda-
lagsins um frétt skozka dagblaðsins
The Scotsman.
í fréttinni segist blaðið hafa það
eftir heimildarmönnum innan
NATO að meðal þeima upplýsinga
sem Rússar hefðu fengið í hendum-
ar væri nákvæm lýsing á fyrirhug-
aðri sprengjuárás bandarískra
„Stealth“-orrastuflugvéla, en þess-
ar upplýsingar hefðu komizt beint
áfram í hendur Serba. Þeim hefði
m.a. á grandvelli þessara upplýs-
inga auðnazt að skjóta niður eina
þessara fokdýru þotna bandaríska
flughersins, en þær era þannig
smíðaðar að mjög erfitt á að vera að
greina þær í ratsjá.
Samkvæmt heimildum The
Scotsman kom háttsettur maður úr
her eins NATO-landsins, sem starf-
aði við hernaðaráætlanagerð í höf-
uðstöðvum bandalagsins á meðan á
loftárásunum á Júgóslavíu stóð,
upplýsingum til rússnesku leyni-
þjónustunnar, en hún kom því síðan
til skila til stjómvalda í Belgi’ad
hvert skotmark hinnar áformuðu
loftárásar væri.
Rússneska leyniþjónustan hefur
einnig neitað að tjá sig um málið.
Gore ekki andvígiir
sköpunarsögunni
Washington. AP.
AL GORE, varaforseti Bandaríkj-
anna, segir að hann sé ekki andvíg-
ur því að sköpunarsagan sé kennd í
almenningsskólum sem hluti af trú-
arlegu námsefni, þótt sjálfur að-
hyllist hann að þróunarkenningin
um tilurð lífsins sé kennd.
Talsmaður Gores segir varafor-
setann byggja álit sitt á dómsúr-
skurði um að kenna megi sköpunar-
sögu Biblíunnar sem þátt í trúar-
legu námsefni, en ekki sem vísinda-
lega kenningu. Það ætti að heyra
undir skólastjóm á hverjum stað að
ákveða hvert námsefnið væri.
Fyrr í þessum mánuði ákvað
kennslumálaráð í Kansas-ríki að
taka upp nýjar prófviðmiðanir þar
sem minna er gert úr vísindalegu
mikilvægi þróunar.
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur
bannað að sköpunarsaga Biblíunnar
sé kennd í skólum vegna þess að
grandvöllur hennar sé trúarlegur.
„Yfírheyrslur“ EÞ yfír nýrn fram-
kvæmdastjórn ESB hefjast á mánudag
Lið Prodis þreyt-
ir „inntökupróf ‘
Brussel. Reuters.
VÆNTANLEGIR meðlimir nýrrar
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins (ESB) eru nú að setja sig í
stellingar fyrir „inntökupróf' sín í
þessar mikilvægu stjórnunarstöður,
en í næstu viku hefjast yfirheyrslur
Evrópuþingsins yfir þeim, sem fara
fram með svipuðum hætti og þegar
rannsóknarnefndir öldungadeildar
Bandaríkjaþings kalla menn fyrir.
I yfirheyrslunum, sem standa yfir
í sjö daga og hefjast á mánudaginn,
þurfa hinir væntanlegu fram-
kvæmdastjómarmeðlimir að sann-
færa þingmenn Evrópuþingsins
(EÞ) um að þeir séu færir um að
byggja aftur upp traust á stjórn-
sýslu sambandsins, sem varð fyrir
alvarlegum hnekki er framkvæmda-
stjórn Jacques Santers sá sig knúna
til að segja öll af sér snemma á
þessu ári, eftir að ásakanir - eink-
um af hálfu Evrópuþingsins - um
spillingu og vítavert ábyrgðarleysi
innan framkvæmdastjómarinnar
voru ítrekaðar í skýrslu óháðrar
sérfræðinganefndar.
Engin vettlingatök
Nýkjörnum fulltrúum á Evrópu-
þinginu er nú mikið í mun að sýna
og sanna að þeir hafi raunveraleg
áhrif, eftir mjög lélega kjörsókn í
Evrópuþingkosningunum í júní sl.
Þeir era því staðráðnir í að slá
hvergi af í yfirheyrslunum yfir hin-
um 19 einstaklingum, sem ESB-rík-
in 15 hafa tilnefnt í framkvæmda-
stjóm Romanos Prodis, fyrrverandi
forsætisráðherra Italíu, en útnefn-
ing hans sem forseta næstu fram-
kvæmdastjómar var staðfest af
Evrópuþinginu í maí sl.
*****
EVRÓPA1
Þingið hefur ekki vald til að
„henda út“ stökum fulltrúum sem
tilnefndir hafa verið í framkvæmda-
stjómina, en það getur sett veraleg-
an þrýsting á Prodi að endurskoða
liðsmannaval sitt. Áhrif þingsins á
þetta jukust eftir að Amsterdam-
sáttmálinn, endurbættur stofnsátt-
máli ESB, gekk í gildi í vor.
Á sama tíma og Prodi átti undir-
búningsfund með sínu liði fyrir yfir-
heyrslurnar í gær, föstudag, hétu
Evrópuþingmenn því að láta ekkert
óupplýst sem skipt gæti máli varð-
andi þá einstaklinga sem fara eiga
fyrir Evrópusambandinu við upphaf
nýrrar aldar.
Án þess að búizt sé við því að
Evrópuþingið muni ætla sér að
teygja enn á þeirri stjórnsýslu-
kreppu sem ESB hefur verið í frá
því í marz er fastlega reiknað með
því að Frakkinn Pascal Lamy, sem
fara á með viðskiptamál í nýju
framkvæmdastjóminni, megi eiga
von á einni hvössustu spurninga-
hríðinni er hann er kallaður fyrir yf-
irheyrslunefnd EÞ. Hann var einn
nánasti samstarfsmaður Jacques
Delors, fyrrverandi forseta fram-
kvæmdastjómarinnar, á því tímabili
sem nokkur þungvægustu að-
finnsluatriði „spillingarskýrslu“
sérfræðinganefndarinnar vora
„framin“.