Morgunblaðið - 28.08.1999, Qupperneq 32
32 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999
LISTMUNIR Á LAUGARDEGI
Með stjómarbyltingunni
í Frakklandi jókst aðdáun
á fornum listum og náði
hámarki í valdatíð Napóle-
ons keisara. Sigríður
Ingvarsdóttir fjallar hér
um keisarastílinn í hús-
gagnagerð, frá hrein-klass-
íska stílnum til borgara-
legra makinda.
Rúm í keisarastíl sem er úr mahóni og Iagið minnir á bát.
Svefnherbergi Josephine, eiginkonu Napóleons, í Malmaison-kastalan-
um. Rúmið er smíðað af Francois Honoró-George Jacob-Demalter. Má
vera að það hafl verið hannað af Bernhault sem hannaði rúm Juliette
Récamier. En á því rúmi er einnig að finna gyllta svani. Gólfteppið er í
Savonnerie-stflnum og var framleitt í Beauvais-verksmiðjunni.
gömlu hirðinni. Engu að síður voru ungsdæmið, eins og Georges Jacob,
húsgagnasmiðir sem höfðu gert sem héldu áfram að smíða húsgögn í
bestu húsgögnin fyrir gamla kon- einfaldari stíl en áður hafði tíðkast.
Keisarastíllinn
FRANSKA stjórnarbylting-
in árið 1789 hafði víðtæk
áhrif á allar listgreinar, þar
á meðal húsgagnagerð. Að-
dáunin á fomum listum jókst til mik-
illa muna og náði hámarki um það
leyti, sem Napóleon gerðist keisari.
Oft var um að ræða beinar stælingar
eftir fomum fyrirmyndum. Þetta olli
því, að nýr stíll skapaðist sem fékk
nafnið keisarastíll (empire). Grikk-
land og Róm hin forna verða bylting-
armönnunum fyrirmyndir karl-
mennsku og hörku. Byltingartíminn
leitaði til fornaldarinnar, til þess að
túlka og ítreka þjóðfélagsstefhu sína.
Ekkert var til sparað af táknrænum
gervum, grímum, ölturum, tröppum
og tjöldum.
Með frönsku byltingunni má segja
að blómatímabilinu í franskri hús-
gagnagerð hafi lokið. Lítil eftirspum
var eftir nýjum húsgögnum og nýju
stjórninni var mikið í mun að fjar-
lægja húsgögn sem höfðu tilheyrt
fyrri einvaldskonungum. Þegar bylt-
ingin skall á neyddust margir listiðn-
aðarmenn sem höfðu starfað við kon-
ungshirðina til að flýja Frakkland.
Misstu Frakkar þá álitlegan hluta
sinna hæfustu handverksmanna.
Engu að síður vom nokkrir listiðn-
aðarmenn sem héldu áfram að starfa
í Frakklandi. Húsgagnasmiðurinn
Riesener hélt áfram störfum sínum
hjá nýju stjóminni, en starf hans
fólst fyrst og fremst í því að fjar-
lægja konungleg merki og stimpla af
húsgögnum sem höfðu tilheyrt
Svefnherbergi frú Recamier, í hreinræktuðum keisarastfl.
Skrifborð úr mahóní í keisarastflnum frá byijun
19. aldarinnar, merkt Youf.
Draumalandið
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
Og leyf mér þig að leiða
til landsins fjalia heiða
í ljóði Guðmundar Magnússonar birtist sú
innri fegurð sem kviknar í hjarta þess sem
ann landi sínu af einlægni, án hroka eigin-
girni og þjóðrembu. Þegar undurblítt lag
Sigfúsar Einarssonar hljómar við það fyrir
hádegisfréttir, opnast land draumsins fyrir
hugskotssjónum og um mann hríslast
furðuleg firn. Landið sem svo vel er kveðið
um og tónað er Draumaland þeirra sem á
drauminn trúa, þeirra sem skynja eðli
steinsins og form þúfunnar, grósku þess
smágera, eitt titrandi strá. Hið smáa sem
þenur sig út og yfir mann hvelfast hrikaleg
fjöll, þrumandi fossar og jöklar á þönum
um niðdimma nótt. ísland er draumi líkast
og draumurinn er sem spegilmynd af þessu
landi elds og ísa. Draumalandið sem birtist
í hugskoti svefnsins brýnir mann að fanga
hið smáa, finna mátt þess og skynja megin
þau sem í dimmum gljúfrum dvelja, þekkja
öflin sem í hásölum kyrja og skilja þá huldu
krafta sem á við heiðavötnin blá. I þessum
ranni draums og veruleika má finna sér-
stæða vin, aldingarð þess tíma þegar þús-
und árin eru fullnuð og fugl eilífðarinnar
brýnir gogg sinn enn einu sinni á fjalli
draumsins. Þá er það augnablik runnið upp
Þar er mitt Draumaland. MyndÆristján Kristjánsson
að draumurinn verður sem vaka og raun-
veruleiki þessa lands sem draumur þess
draums er hvatti menn forðum að þenja
draumaseglin.
Draumur „Glóu“
Mig dreymdi að mikil tíðindi voru í upp-
siglingu hjá mannkyninu. Það var mjög sér-
stakt andrúmsloft í þjóðfélaginu, menn vissu
að eitthvað mikið var að fara að gerast. Lit-
irnir hér á jörð voru eins og mynstur, það
sveif dulúð yfir vötnum. Timinn virtist eins
og hafa hægt á sér, menn væntu einhvers í
þögulla umhverfi en við eigum að venjast. Ég
var hér líka og ákvað að sjá Atburðinn nær
og með berum augum. Það var einhver með
mér, líklega maðurinn minn. Við ákváðum að
fara á þann stað þar sem við sæjum Atburð-
inn vel. Það er möguleiki að við höfum farið
af jörðinni til að sjá betur og nær. Við stóðum
ein í auðn og Atburðurinn sem við sáum var
vægast sagt stórkostlegur. Við sáum mörg
tungl mjög nálægt okkur raða sér upp af
stærðfræðilegri nákvæmni. Mér fannst þessi
tungl tengjast Júpíter, þau voru á litinn eins
og myndir þær sem ég hef séð af Júpíter.
Þetta voru mjög fallegar plánetur. Þessi
tungl fluttu sig úr stað á miklum hraða og
röðuðu sér upp nálægt okkur (sjá mynd).
Mér var sagt að þetta gerðist á vissu árabili
og væri mjög sérstakt þó ekki sé meira sagt
að verða vitni að þessu. Mér varð á orði
hversu undursamlegt væri að búið væri að
reikna Atburðinn út, að mér fannst af ná-
kvæmni. í því lít ég á klukkuna og sé að það
skeikar um það bil þrem mínútum. Mér
fannst það ekki mikið og hugsaði að klukkur
væru ekki svo nákvæmar en þessi atburður
var alveg nákvæmur.
Ráðning
Nokkuð hefur verið hér um drauma sem
boða miklar breytingar, drauma um trúar-
legt ívaf eða röskun á náttúru. Þessi draum-
ur þinn virðist af sama toga en er þó veru-
lega frábrugðinn fyrri draumum því hann er
1