Morgunblaðið - 28.08.1999, Síða 42
42 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999
MARGMIÐLUN
MORGUNBLAÐIÐ
Hjátrú og
knattspyrna
KR-ingar eiga besta knattspyrnulið lands-
ins í sumar en það eitt tryggir þeim ekki
Islandsmeistaratitilinn. Svo heppilega vill
þó til að það er stutt afíslenskum fótbolta-
völlum út á bílastæði...
Ai
uðvelt er að fá það á
tilfinninguna að eig-
inlega sé það ekki
nema eitt sem beðið
r eftir þegar íþrótt-
ir á íslandi ber á góma - að ekk-
ert annað skipti máli. Sem sagt,
hvort og þá hvenær KR-ingar
verði aftur Islandsmeistarar í
knattspyrnu. Stuðningsmenn fé-
lagsins hafa trúað því á hverju
vori í mörg ár að nú sé þeirra
tími kominn, en þegar keppnis-
tímabili lýkur hefur bros þeirra
fölnað eins og haustlaufið. Þá
virðast allir aðrir en KR-ingar
hins vegar taka gleði sína;
einmitt vegna þess að KR vann
ekki.
Það hafa verið nokkurs konar
einkunnarorð
VIÐHORF KR-inga síð-
Eftir Skapta ™tu árin að
Hallgrímsson þoimmæðl sé
dyggð. Þeir
hafa beðið lengi eftir því að
karlalið félagsins í knattspyrnu
verði Islandsmeistari - í 31 ár -
en mér kæmi ekki á óvart þótt
þeirri bið lyki um miðjan sept-
ember. Auðvitað er það ekki ör-
uggt en líkurnar eru meiri nú en
oftast áður á þessum þremur
áratugum. KR-ingar voru að
vísu aðeins hársbreidd frá
meistaratitli 1990, þegar
Framarar urðu meistarar og
Vesturbæjarliðið átti einnig
möguleika fyrir síðustu umferð-
ina 1996 - en laut þá í lægra
haldi gegn íA á Akranesi og
Skagamenn urðu meistarar.
Leikur KR-inga og ÍBV í
Frostaskjólinu á morgun skiptir
miklu máli í baráttunni; með
sigri nær KR fimm stiga forystu
á Islandsmeistarana úr Eyjum
en hrósi Eyjamenn sigri komast
þeir aftur á móti einu stigi upp
fyrir KR-inga, en eftir leiki
helgarinnar eiga liðin aðeins
þremur leikjum ólokið. Því er
mikið í húfi og ljóst að fjölmenni
verður á KR-vellinum, eins og
þegar þessi sömu lið mættust á
sama stað í úrslitaleik íslands-
mótsins í síðustu umferð deild-
arkeppninnar í fyrrasumar.
Akurnesingar áttu besta lið
landsins fyrri helming þessa
áratugar, Vestmannaeyingar
hafa verið bestir síðustu tvö ár
en KR-ingar eru bestir í ár. Á
því leikur enginn vafi; KR leikur
bestu knattspyrnuna en þótt það
sé fullyrt er ekki þar með sagt
að félagið verði íslandsmeistari.
Eyjamenn gætu allt eins fagnað
þriðja meistaratitlinum í röð því
lítið má út af bregða til að
breyta gangi mála. KR-ingar
eru hins vegar með það í hendi
sér hvort þeir fagna langþráðum
sigi'i eður ei: eru efstir og þurfa
ekki að treysta á aðra. Nú veltur
það á andlegum styrk þeirra
hver niðurstaðan verður.
Hjátrú tengist ýmsu í daglegu
lífi, ekki síst íþróttum þar sem
frést hefur af mönnum sem fara
alltaf í vinstri skóinn á undan
þeim hægri, áður en þeir hefja
keppni, einhver þarf alltaf að
vera síðastur í röðinni þegar
hlaupið er út á völl og svo mætti
áfram telja.
Sjómaður sem ég hitti í út-
löndum fyrir skömmu sagði mér
frá skipstjóra sínum, en sá er
alltaf í sömu peysunni þegar lið-
ið hans er að keppa. Hann áttaði
sig á mikilvægi þess einhvem
tíma, þegar liðið tapaði og peys-
an var í þvotti. Það hefur ekki
brugðist síðan að hann er alltaf í
peysunni á leikdegi og liðið tap-
ar aldrei. Hann man að minnsta
kosti ekki eftir tapleikjunum (og
hefur heldur ekki þorað að láta
þvo peysuna).
Það nýjasta og frumlegasta
sem ég hef heyrt tengist KR-
liðinu. Hjón, miklir stuðnings-
menn félgsins, voru á vellinum í
sumar og þannig vildi til að
hvorki gekk né rak hjá liðinu
þeirra að skora. Veður var ekki
sérlega gott, frúin ekki vel búin
og orðið hálfkalt þegar stundar-
fjórðungur var eftir og ákvað
því að rölta út í bíl og hlusta á
lýsingu á síðustu mínútunum í
útvarpinu. Það var auðvitað eins
og við manninn mælt; um leið
og hún hafði kveikt á útvarpinu
í bflnum skoruðu KR-ingar!
Næst þegar hjónin fóru saman
á völlinn fannst þeim þeirra
menn líka heldur seinheppnir
upp við markið og því var auð-
vitað gripið til þessa sama ráðs.
Konan labbaði út í bíl og KR
skoraði.
Svo bar við á Evrópuleiknum
gegn Kilmarnock í Laugardaln-
um fyrir hálfum mánuði að um-
ræddur KR-ingur fór á völlinn
án eiginkonunnar. Þegar fimm
mínútur voru eftir og staðan enn
0:0 leit hann á klukkuna og kvað
upp úrskurð sinn: Konan er ekki
með og ég ekki á bfl - það verð-
ur einhver annar að fórna sér!
Góðhjartaður vinur hans, einnig
KR-ingur, hló innra með sér en
gat ekki annað en svarað kall-
inu. Þurfti reyndar að fara en
upplýsti það auðvitað ekki.
Kvaðst myndu leggja sitt af
mörkum til að KR sigraði í
leiknum og kvaddi. Þegar hann
settist upp í bifreið sína og
kveikti á útvarpinu var Þórhall-
ur Hinriksson að skora sigur-
mark KR!
Vilji KR-ingar trúa því að
þeirra tími sé kominn er
kannski ekki úr vegi að minna
þá á að Barcelona varð spænsk-
ur meistari í vor, á 100 ára af-
mæli félagsins og AC Milan
fagnaði meistaratign á Italíu á
sama tíma. Mílanófélagið hélt
einnig upp á aldarafmæli sitt á
þessu ári. Knattspyrnufélag
Reykjavíkur var stofnað 1899 og
er 100 ára á þessu ári og gæti
því fetað í fótspor þessara stór-
liða sunnar í álfunni.
Ekki skal ég fullyrða neitt um
hjátrú stuðningsmanna knatt-
spyrnuunnenda á Spáni og ítal-
íu. Vera má að einhver
Mflanómaðurinn eða Barcelona-
búinn hafi haft til siðs að hlaupa
út í bfl á síðasta vetri, þegar illa
gekk hjá liðum þeirra. Ég hef
reyndar fylgst með leikjum bæði
á San Siro leikvanginum í
Mflanó og Camp Nou í
Barcelona og það er satt að
segja ekki hlaupið að því að
bregða sér út á bflastæði í miðj-
um leik því bflarnir eru í óra-
fjarlægð. KR-ingurinn umræddi
stendur í það minnsta vel að vígi
að því leyti, ef hans menn verða
í erfiðleikum á morgun.
Slegist um tíberíum
Stríðsleikurinn Comm-
and & Conquer er með
vinsælustu leikjum
----------------3------
seinni tíma. Arni
Matthfasson kynnti sér
nýjasta kaflann í fram-
haldssögunni um
baráttu NOD og GDI.
skriðum, en
einnig skiptir veðurfar verulegu
máli fyrir orrustu, getur reyndar
skipt höfuðmáli. Það fer einnig eftir
hvar menn eru að berjast, því þar
sem ís er yfir öllu til að mynda er
eins gott að gæta að því að hann er
síbreytilegur og getur komið í koll
þeim sem ekki fylgjast með.
Strax í fyrstu borðunum verða
leikendur varir við breytingar því
vinsæl herbrögð eins og að taka
byggingaræði eða treysta á Pyr-
rosarsigra; mestu skiptir að skipu-
leggja varnir vel og ana ekki út í
óvissuna. Þannig reynir leikurinn
meira á hugsun en viðbragðsflýti og
verður skemmtilegri fyrir vikið.
Hreyfingar eru allar og verulega
endurbættar, sérstaklega er betra
að stýra hinum ýmsu farartækjum,
en einnig hefur ýmislegt í stjórn
leiksins verið einfaldað.
Meðal nýjunga er að herlið safn-
ar stigum eftir því hvernig því geng-
ur og hægt að taka menn með sér á
milli bardaga og þannig koma sér
upp harðsnúnu liði atvinnuher-
manna.
Barátta NOD og GDI
Saga leiksins snýst um baráttu
NOD og GDI og líkt og forðum er
hægt að velja í hvoru liðinu
maðrn- vill vera. NOD eru al-
þjóðleg samtök hryðju-
verkamanna og illvirkja,
en GDI samtök stofnuð
af Sameinuðu þjóðunum
meðal annars til að
berjast við NOD. Þar
sem sagan hefst hefur
GDI borið sigur úr být-
um, en á enn eftir að
ganga á milli bols og höf-
uðs á brjálæðingnum
valdasjúka, Kane, sem fer
fyrir liði þeirra NOD-manna.
Borðin eru á sjötta tug og
skiptir verulegu máli hvernig þau
eru leyst, því útkoman úr einu borði
hefur áhrif í því næsta og svo koll af
kolli.
Leikurinn gerir ekki ýkja miklar
kröfur til vélbúnaðar, vill helst 166
MHz Pentium örgjörva, 64 MB
minni, tíu hraða geisladrif, 4 MB
skjákort og 200 MB rými vill hann á
hörðum disk viðkomandi.
Command & Conquer var bylting-
arkenndur leikur á sinni tíð og fram-
hald hans eða forleikur, Red Alert,
afbragðs þó ekki hafi hann verið eins
magnaður og fyrirrennarinn, sem
vonlegt er. Grafík er verulega endur-
bætt og leikurinn augnayndi á köfl-
um, en sumum mun eflaust finnast
Command & Conquer: Tiberian Sun
vera meira af því sama. Án þess að
hafa þó lokið við leikinn er óhætt að
segja að hann sé framúrskarandi og
verður eflaust talinn með bestu leikj-
um ársins.
EINN MEST seldi leikur sögunnar
hér á landi er Command & Conquer,
og nær kannski að vera sá mest
seldi ef öll afbrigði hans eru talin
saman. Nokkuð langt er síðan
upprunalegi leikurinn kom út og
gat af sé óteljandi eftirhermur,
en í gær kom svo út hér á
landi framhald leiksins sem
lengi hefur verið beðið.
Command & Conquer
byggðist í grófu máli á því að
leikandi byggði sér bækistöðv-
ar sem hann síðan varði sem
mest hann mátti fyrir ásókn
keppinauta sem ásældust land-
svæði hans og tíberíumnámur. Til að
ná árangri í þeirri baráttu þurfti leik-
andinn að vera fljótur að hugsa, en
einnig gæddm- iTkulegri skipiflags-
gáfu, enda enginn leikur að henda
reiður á tugum hermanna, tryggja að
iðnframleiðsla standi með blóma og
fylgja ákveðinni útþenslustefnu á
sama tíma með tilheyrandi bygging-
arframkvæmdum og námavinnslu.
Framhald af Command &
Conquer kom út fyrir nokkru, kall-
aðist Red Alert og gerðist áður en
upprunalegi leikurinn sé litið til sög-
unnar. Red Alert naut mikillar hylli
og þykir enn fyrirtaks leikur þó
hann sé kominn nokkuð til ára sinna.
Síðustu tvö ái- hafa menn svo beðið
þriðja hluta sögunnar um baráttu
NOD og GDI, sem kom út í gær,
eins og getið er, og kallast Command
& Conquer: Tiberian Sun.
Mjög endurbætt grafík
Þeir Westwood-menn hafa endur-
bætt grafíkina í leiknum mikið, sem
vonlegt er, en gleyma sér ekki í
smáatriðunum; menn og byggingar
eru hvort eð er svo lítil á skjánum að
úr litlu er að spila. Það hefði þó
óneitanlega verið gaman ef kostur
hefði verið á að bregða sér í leikinn
með því að verða einn af þátttakend-
um, líkt og er til að mynda hægt í
Dungeon Keeper II.
í stað þess að leggja höfuðáherslu
á útlit leiksins hafa forritarar
Westwood einbeitt sér að því að
gera allar aðstæður á vígvellinum
sem eðlilegastar og þannig geta
menn fallið fyrir björg og lent í
Varasamur vafri
EKKI LINNIR fregnum af göllum og vanköntum á
Explorer-vafra Microsoft. Varla líður sú vika að
ekki komi í ljós að betur hefði mátt um hnútana búa,
ekki síst sé litið til öryggisatriða.
í vikunni upplýsti búlgarskur vafra-
fræðingur, Georgi Guninski, að hann
hefði komist á snoðir um alvarlegan
öryggisbögg í Explorer 5, nýjustu
gerð vafrans. Sá böggur gerir
óprúttnum kleift að koma fyrir á
tölvu hrekklauss notanda hugbúnaði sem gert getur
ýmsan óskunda.
Guninski hefur illan bifur á ActiveX, skriftumál-
inu sem Microsoft kynnti með miklum hamagangi
fyrir tveimur árum en gárungar kalla nú InActiveX,
enda tókt fyrirtækinu ekki að telja vefforritara á að
nýta það. ActiveX er þó enn notað að nokkru marki
á vegum Microsoft og vafrar fyrirtækisins taka við
slíkum skriftum án þess að velta uppruna
þeirra um of fyrir sér. Það sem helst var vef-
smíðum þymir í auga var hversu öflugar skriftur
mátti skrifa með ActiveX og nánast engin takmörk á
hvað mátti gera. Með því að nýta samþættingu Ex-
plorer 5 við ActiveX má því láta vafrann ræsa forrit-
ling sem kemur sér fyrir á rót viðkomandi tölvu og
fer siðan í gang næst þegar tölvan er ræst.
Ekkert hefur enn heyrst frá Microsoft varðandi
þetta mál, en áhugasamir geta kynnt sér um hvað
það snýst og nálgast upplýsingar um á hvern veg
þeir eiga að bregðast við með því að fara á vefsetur
Guninskis, www.nat.bg/~joro/. Það er meðal
annars að finna dæmi um skriftur sem lesið geta
autoexec.bat skrár á tölvu viðkomandi eða þá sett
inn í ræsimöppu á Windows4öIvum hugbúnað
sem gert getur sitthvað misjafnt.
Að sögn Guninskis geta illvirkjar einnig hægt
'c& beitt fyrir sig póstforritinu Outlook 98, því það
’’ tekur við ActiveX skriftum þegjandi og hljóða-
laust.