Morgunblaðið - 28.08.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 43
MARGMIÐLUN
Vefur vikunnar
Kirkjunetið
VEFUR vikunnar á Vef-
skinnu Morgunblaðsins
er Kirkjunetið sem þeir
Hannes Bjömsson og
Valdimar Hreiðarsson
stýra.
Hannes Bjömsson
segir að Kirkjunetið
eigi sér langa sögu,
þeir Valdimar hafi
hrint því af stað í
október 1997.
Mikið safn upplýs-
inga er komið á vef-
inn og skipta síður
hundmðum, auk
þess sem tenglar em
í fróðleik og upplýs-
ingar víða um heim.
Hannes segir að að vísu hafi
honum ekki gefíst nógu góður
tími til að sinna vefnum undan-
farið ár vegna anna við blaðaút-
gáfu, en hann sé með talsverðar
viðbætur í undirbúningi og með-
al annars mikið myndasafn, um
1.000 myndir af íslenskum kirkj-
um.
Einskonar safn
Hannes segist ekki sjá fyrir
sér að þeir Valdimar eigi eftir
að telja vefinn fullkláraðan, „ég
sé vefinn fyrir mér eins og eins-
konar safn sem sífellt verður
bætt á. Myndasafnið er gott
dæmi um það og það á eflaust
mikið eftir að bætast við.“
Hannes segir að mikill tími
fari í að sinna vefnum og tím-
arnir sem þeir Valdimar hafí
lagt í hann skipti þúsundum.
Ekki er það þó stöðug vinna á
hverjum degi, frekar að menn
taki skorpur eftir því sem liggur
fyrir.
Front Page helsta verkfærið
Hannes sér um allan vefnað
og hannaði útlit veíjarins líka.
Hann segist ekkert hafa lært í
vefsmíðum, en eigi góða að, en
helsta verkfæri hans við smíðina
er Microsoft Front Page, sem
hann gefur góða einkunn.
Sem stendur er vefurinn
vistaður á léni útgáfufélagsins
fyrir héraðsfréttablaðið Vestrið,
en Hannes segist líklega þurfa
að finna því annan stað fljótlega,
enda tekur til að mynda kirkju-
myndasafnið eitt um 200 MB
pláss.
Kirkjunetið er vefur vikunnar
á Vefskinnu Morgunblaðsins,
www.mbl.is/vefskinna.
Of margir mínusar
Missiun Impossible
Ocean gaf nýlega út Mission Impossi-
ble fyrir Nintendo 64. Leikurinn var
hannaður af Infogrames og er
njósna/hasarleikur í anda Goldeneye.
AÐALPERSÓNA Mission
Impossible og sú sem spilendur
stjóma er Ethan Hunt, sérstakur
njósnari fyrir bandarísku ríkis-
stjömina og sá allra besti sem völ er
á. Hlutverk hans er
að glíma við sérstök
verkefni sem enginn
annar getur gert,
ekki einu sinni spi-
lendur.
í Mission
Impossible þarf
spilandinn að leysa
fimm stór verkefni,
hvert um sig með
3-4 borðum. 2-3
borð í leiknum eru
virkilega góð og
gefa spilandanum
tilfinningu fyrir því
að vera njósnari að
leysa spennandi og
erfitt verkefni. Hin
borðin em aðeins
erfið og leiðigjörn
þar sem spilandinn getur búist við
að deyja 4-5 sinnum í hverju ein-
asta borði.
Dæmi: Spilandinn gengur inn í
herbergi með einum verði, vörður-
inn styður á viðvömnarbjöllu og
spilandinn deyr, gengið er inn í
sama herbergi aftur og í þetta
skiptið er vörðurinn drepinn áður
en hann nær að gera nokkuð.
Spilandinn gengur inn í næsta her-
bergi þar sem eldri maður situr,
maðurinn lítur út fyrir að vera
mikilvægur svo spilandinn hikar
við að skjóta hann, maðurinn lyftir
höndunum, styður á viðvörunar-
kerfið og spilandinn er dauður.
Svona gengur þetta koll af kolli í
gegnum nokkur herbergi. Þetta
neyðir spilandann til að gera sömu
hlutina aftur og aftur og aftur
vegna óvissunnar um hvað á að
gera í hverju herbergi.
Áður en borðin byrja kemur listi
r
með því sem spilandinn á að afreka
í borðinu sem fylgir. Þessi listi er
oftast afar knappur og gefur engar
leiðbeiningar. Sem dæmi má nefni
að í einu borðinu á Ethan að setja
sprengju á bát svo að hann og fé-
lagar hans komist í burtu. Gleymd-
ist þá að nefna hvernig ætti að nota
sprengjurnar og að báturinn væri
fullur af náungum með byssur.
Stjórn leiksins er afar ábótavant,
spilandinn getur ýtt á sérstakan
takka til að miða en lítil nákvæmni
veldur því að spilandinn hefur
svona 20% líkur á að hitta í fyrstu
3-4 borðunum þar til hann lærir al-
mennilega að miða. Aukast þá lík-
umaar í 50-60%. Stjórnin er einnig
afar breytileg milli borða og í stað
þess að bjóða upp á nýja möguleika
veldur það spilandanum aðeins erf-
iðleikum.
Grafík leiksins er ágæt, en eins
og stjórnunin er hún afar breytileg
milli borða. In-
fogrames hefur not-
að afar mikið af
þoku í bakgrunnin-
um tO að hægja ekki
á leiknum og gengur
það stundum út í
öfgar.
Vopn leiksins eru
flott, spilandinn get-
ur valið vopn úr
vopnabúri sem slær
jafnvel Goldeneye
við, því málið er að
þegar Ethan hefur
byssu sem skýtur
150 skotum á 10 sek-
úndum skiptir ekki
máli þótt erfitt sé að
miða. Því miður er
þessi plús ekki nógu
stór til þess að bæta upp alla
mínusa leiksins.
Mission Impossible var flottur
leikur alveg þangað til að hann
kom út. Kannski voru væntingar
fólks til leiksins of miklar, en
einnig er mögulegt að Infogames
hafi miðað of hátt og haft leikinn of
flókinn.
Ingvi Matthías Árnason ^
ESJUíi
999
dagnrinn
sunnudaginn 29. ágúst!
Esjjudagur Hjálparsveitar skáta í Reykjavík er á surmudaginn.
Þetta er í áttunda skipti sem HSSR stendur fyrir Esjudegi og hafa
þúsundir íslendinga tekið þátt frá upphafi.
• Lagt upp frá bílastæðinu við Mógilsá kl. 10 í samfylgd
félaga úr hjálparsveitinni.
• Sól-Víking sér göngumönnum fyrir hressingu á uppleið.
• Póstaleikur fyrir yngstu börnin.
• Esjuhlaupið hefst kl. 13. Keppt verður í tveimur aldursflokkum
karla og kvenna. Þátttökugjald er 500 kr.
• Félagar í HSSR stjórna aðgerðum á svæðinu til kl. 16.
— Hittumst hress í Esjuhlíðum sunnudaginn 29. ágúst
og munið að hver og einn ræður sínum hraða.
Tökum
Esjuna
með
áhlaupi!
IÞROITIR FVRIR IILl.fl