Morgunblaðið - 28.08.1999, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ
j,44 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999
Hveravellir
ATHYGLISVERT er
og jafnframt minnis-
vert, að fyrsti þáttur
hinnar miklu og sívax-
andi samfélagsumræðu,
sem verið hefur hin síð-
ustu ár um nauðsyn
raunhæfrar og öflugrar
umhverfisverndar, m.a.
á hálendi Islands, fólst í
ítarlegri fjölmiðlaum-
fjöllun um fyrirhugaðar
stórframkvæmdir for-
- ^ svarsmanna Svína-
vatnshrepps í Austur-
Húnavatnssýslu á þjóð-
lendunni á Hveravöll-
um. Má fullyrða, að
„Hveravallamálið" hafi
hrundið af stað þeirri
þungu skriðu skoðanaskipta um um-
hverfismál, sem segja má að hvert
mannsbarn þekki. Á þessari stundu
er að vísu hvað mest rætt um, meðal
alls almennings, hvernig bregðast
megi við hugmyndum ráðamanna um
stórvirkjanir norð-austan Vatnajök-
uls, sem leiða munu til óbætanlegra
umhverfisspjalla, ef reistar verða. En
þótt hljóðara hafi verið um Hvera-
velli um sinn skyldi enginn umhverf-
-> isverndarmaður gleyma því, að fyrir-
huguð spjöll þar - sem unnin verða af
einsýni og hörku ef þau ná fram að
ganga - eru liður í kerfisbundinni að-
för að náttúru landsins, á sama hátt
og er um óþarfar stórvirkjanir ásamt
tilheyrandi safnþróm, sem „drekkja"
munu sumum fegurstu og sérstæð-
ustu svæðum öræfanna. Horfi menn
yfir sviðið af nægilega háum sjónar-
hóli fær engum dulist, að Hveravellir
þarfnast verndunar gegn bráðræðis-
ákvörðunum - er stjómast m.a. af lítt
dulinni fégimd og óraunhæfum
| hagnaðarvonum - á sambærilegan
hátt og náttúruundrin á
Austurlandi. Allt Kjal-
arsvæðið, ásamt Hvera-
völlum, er vissulega
meðal fegurstu hálend-
issvæða á íslandi, þar
sem rík þörf er fyrir
vemdun umhverfis og
varlega umgengni
manna. Allir sannir
vökumenn og unnendur
náttúra landsins þurfa
að beita hverjum þeim
lýðræðislegu úrræðum,
sem tiltæk era, í nauð-
vörn sinni gegn þeim, er
fara fram með vígvélum
og bryntólum gegn nátt>
úranni. Sú barátta er
engan veginn vonlaus
þótt þunglega horfi nú um sinn. Telja
má, að veralegur hluti þjóðarinnar
hafi nú þegar - með hraðvaxandi
skilningi á kalli tímans - skipað sér í
hóp umhverfisvemdarmanna og í
vöxt færist, að djarfhuga menn sýni
þrótt og þor til að láta í ljósi skoðanir
sínar í þá vera, óheftir af þvingunar-
tilraunum annarra og þvert á hefð-
bundnar stjórnmálastefnur og
flokkslegar viðjar.
í fyrstu tiilögu Svínvetninga að
deiliskipulagi fyrir Hveravelli, þar
sem þeim heíur nú, illu heilli, verið
úthlutað skipulagsvaldi, mældu þeir
hreppnum sjálfum byggingarreit, allt
að 2.400 fermetram (900 fermetram
til bráðanota og 1.500 fermetram
sem viðbótarreit til síðari nota), og
má heita að reist^ skyldi á rústum
skála Ferðafélags Islands, sem hlutu
að víkja eða verða ónothæfír sam-
kvæmt tillögunum. Líklega var þó
fremur gert ráð fyrir einnar hæðar
byggingu eða byggingum Svínvetn-
inga heldur en tveggja eða þriggja
Páll
Sigurðsson
UMRÆÐAN_______
- Eyjabakkar
Hálendið
Hveravellir, segir Páll
Signrðsson, þarfnast
verndunar gegn bráð-
ræðisákvörðunum.
hæða mannvirkjum! Vora og era
þessar hugmyndir að sjálfsögðu í
andstöðu við allar viðurkenndar
stefnur í náttúraverndarmálum og
ferðamálum, enda sættu þær kröft-
ugum mótmælum Náttúruvemdar-
ráðs (á Hveravöllum er friðland eins
og kunnugt er), Ferðamálaráðs og
fjölmargra samtaka útivistar- og
ferðamanna. Þau mótmæli hafa þó í
reynd lítil áhrif haft til þessa, og í
grandvallaratriðum situr allt við hið
sama: Svínvetningar sækja hratt
fram gegn mönnum og umhverfi í
skjóli þeirrar brynvarnar er felst í
skipulagsvaldinu. Hér þarf almenn-
ingur að bregðast við með eftirminni-
legum hætti, í vörn fyrir þjóðarhags-
muni og landið sjálft, sem við berum
ábyrgð á.
Svínavatnshreppur, sem að líkind-
um er nú eitt nafnkunnasta fámennis-
sveitarfélag á landinu, stendur reynd-
ar nú þegar fyrir rekstri „óbyggða-
miðstöðvar" í grónu (uppgræddu en
ekki sjálfbæru) umhverfi við Áfanga-
fell nálægt Blöndulónum, í prýðilegu
húsnæði sem Landsvirkjun byggði
handa hreppnum. Er sannarlega von-
andi að sú starfsemi fái blómgast á
komandi áram, þótt ekki fari sögum
af arðsemi hennar enn sem komið er
- enda er ekki mjög fjarri lagi að hún
samrýmist stefnu ferðamálayfirvalda
um ,jaðarstöðvar“ á hálendinu, er
þjóni ferðamönnum. En „Blöndubæt-
urnar“, sem hreppnum vora greiddar
af almannafé, þ.e. úr sjóðum Lands-
virkjunar, era enn ekki uppurnar og
hafa ráðamenn Svínavatnshrepps
ekki séð betri leið til að ráðstafa því
fé, sem enn er geymt tryggilega á
sparisjóðsbók, en byggja stórbrotin
mannvirki á Hveravöllum - á þjóð-
lendunni norðan Kjalhrauns. Mun þó
a.m.k. sumum hreppsbúum virðast
sem það fé væri betur nýtt á heima-
slóðum, til margvíslegra nytjafram-
kvæmda og mannhjálpar í sveitinni,
þar sem lífskjöram íbúanna er mjög
misjafnlega háttað - en í því efni sýn-
ist engu verða um haggað, enda er -við
blind öfl að eiga.
Ráðamenn hreppsins hafa stund-
um látið í veðri vaka, að þeir leiti eft-
ir samstarfsaðila eða -aðilum um
stórreksturinn á Hveravöllum, en
ekki er vitað til þess að neinn hafí
enn bitið á agnið, enda væri vafalaust
óviturlegt fyrir sómakæra stjórnend-
m- fyrirtækja í ferðaþjónustu, að
leggja að svo búnu máli nafn sitt við
jafn fráleitar og óvinsælar hugmynd-
ir sem hér um ræðir. Meira að segja
er alls ekki víst, að Kaupfélagið á
Blönduósi myndi vilja setja upp
verslunarútibú á Hveravöllum, þótt
leitað væri eftir því og húsakynni
væra að sjálfsögðu meira en nóg til
þeirra þarfa, ef byggingarhugmynd-
irnar komast til framkvæmda.
Heitið „Svínvetningabúð", á fyrir-
huguðu stórhýsi á Hveravöllum, mun
líklega hafa unnið sér nokkuð fastan
sess manna á meðal. Nafnið er sann-
aralega þjóðlegt og samræmist
einnig lögmálum fagurfræðinnar.
Nærsveitungi Svínvetninga, íbúi í
Torfalækjarhreppi, sem þar gegnir
ábyrgðarstöðu, hefur reyndar haft
uppi þau orð á opinberam vettvangi,
að hér sé í „sjálfu sér um mjög gott
nafn“ að ræða, en óvíst er þó um hug
Svínvetninga sjálfra í því máli. Hins
vegar hefur sami maður sýnt Svín-
vetningum þá umhyggju að hafna
nafngiftinni „Stóra hryllingsbúðin",
sem flogið hefur fyrir meðal um-
hverfísverndarmanna, og má eftir at-
vikum taka undir þá skoðun hér enda
þótt rök mætti vissulega bera fram
með jafnt sem á móti því heiti!
Nú líður senn að því, að Svínvetn-
ingar sæki inn á öræfin í leit að fé
sínu (þ.e. því fé, sem ekki er geymt á
sparisjóðsbókinni góðu). Þá munu
þeir enn einu sinni njóta fegurðar og
friðsældar óbyggðanna í skála
Ferðafélags Islands á Hveravöllum,
þar sem þeir hafa verið kærkomnú,
góðir og prúðir gestir á sjöunda tug
ára, allt frá því að eldri skáli félags-
ins var reistur. Þar munu þeir una
sér dável nokkur kvöld og nætur,
þreyttir af daglöngu reiki um heiðina
en ölvaðir af fjallaloftinu einu og
gleðinni af samneyti við góða félaga.
Ekki spillir að nokkiir prýðilegir
söngmenn era þar í hópi, óvefengj-
anlega, þótt hins vegar sé ekki full-
ljóst um raddgæði allra gangna-
mannanna. Þeim núlifandi Ferðafé-
lagsmönnum, sem byggðu skálana í
sjálfboðavinnu, og öðrum þeim, er
hafa leitast við að stuðla að verndun
og viðgangi friðlandsins á Hveravöll-
um, er tvímælalaust heiður og
ánægja að geta ennþá hýst þessa
þreyttu en góðglöðu byggðamenn,
sem sækja sér hugsvölun inn á há-
lendið - eins og tugþúsundir annarra
íslendinga hafa gert eftir að Ferða-
félag íslands opnaði alþjóð öræfa-
heiminn.
Höfundur er prófessor í lögfræði
við Háskóla Jsiands.
Mennt
Förðun er nám án landamæra
ÞEGAR menntamálaráðherra, hr.
Björn Bjarnason, heimsótti Förðun-
arskóla íslands við vorútskrift ‘99
sagði hann að ánægjulegt væri að sjá
einkaskóla fara þá braut sem Förð-
unarskóli íslands er að fara og und-
irbúa nemendur fyrir störf úti á
vinnumarkaðnum. Þetta var okkur
gott veganesti til að gera enn betur í
förðunarnáminu.
Förðun hefur verið snar þáttur í
.. lífi kvenna um aldaraðir. Förðunar-
' skólar hafa verið starfandi í tugi ára
en komu hingað til lands um 1990.
Þá varð sprenging á íslenskum förð-
unarmarkaði. Enska heitið „Make
up artist“ sem notað er um þá sem
lokið hafa námi í fórðun er afar erfitt
að þýða á íslensku svo sambærileg
merking haldist. Hingað til hefur tit-
illinn fórðunarfræðingur eða förðun-
armeistari verið notað en í báðum
þessum tilfellum er um hreint rang-
nefni að ræða, því þrátt fyrir að
veraleg aukning sé í fræðilega hluta
námsins, er erfitt að tala um „fræði“
sem byggist upp á sýnikennslum og
æfingum og að vera „meistari" í ein-
hverju fagi kallar á nám í meistara-
skólanum skv. íslensku menntakerfi.
Förðunarskóli íslands benti á orð-
ið farðari fyi’ir tveimur áram og er
það sífellt að ryðja sér betur til
rúms. Þetta er þjált orð sem fellur
vel að íslensku málfari og málfræði
sbr. leikari og málari.
Förðun er ekki lögvemdað nám en
gefur fólki starfsmöguleika um allan
heim. Förðunamámið er margskipt.
Þannig er grannnám a.m.k. þrír mán-
uðir þar sem kennd er öll granntækni
og undirstöðuatriði fórðunar. Fyrsti
hluti grunnnámsins er ljósmynda- og
tískuforðun þar sem kennd era mis-
munandi gerðir fórðunar fyrir lit- eða
svarthvítar myndir, fyrir svið og
hvernig tengja má tísku fyrri ára
(fortíðarförðun) þeim tískustraumum
sem era ríkjandi í dag. Að
loknu þessu námi er leik-
húsförðun og kvikmynda-
forðun. Þar er um a.m.k
þriggja mánaða nám í
hvorri grein að ræða, allt
annað er skemmri skfm á
viðamiklu efni. í leikhús-
förðun læra nemendur að
gera gervi, hanna per-
sónu, læra að nota þau
efni sem notuð era í leik-
húsunum og að námi
loknu að vera vel undir-
búinn til að geta hafið
störf við atvinnuleikhús.
Sömu kröfur era gerðar
um nám í kvikmyndaförð-
un. Að námi loknu á nem-
andinn að hafa innsýn í gerð kvik-
myndar, auglýsingar fyrir sjónvarp
og geta búið til ýmis gervi sem nauð-
synleg era í heimi kvikmyndarinnar.
Eins og sjá má hér að framan er
námið að mestu leyti byggt á verk-
legri kennslu og meðferð ýmissa
efna sem nauðsynlegt er að kunna
skil á. Kennslubækur hafa til þessa
verið af skornum skammti en hjá
Förðunarskóla íslands er kennslu-
bók í ljósmynda- og tískuförðun í
vinnslu. Hún verður notuð við
kennslu í grannnámi skólans.
I Förðunarskóla Islands er lögð
rík áhersla á að gera nemandann
hæfan til að takast á við þau verkefni
sem bíða hans að námi loknu. Þá er
ekki einungis verið að tala um fjölda
farðana, heldur líka um markaðs- og
sölumál, hvernig nem-
andinn getm- komið
sér á framfæri, hvaða
tæki og tól þarf til og
hvert hægt sé að leita.
Skattamál era orðin
stór þáttur í daglegu
lífi okkar. Oft gera
nemendur sér ekki
grein fyrir hvaða
ábyrgð það er að starfa
sem sjálfstæður at-
vinnurekandi þegar
komið er út á vinnu-
markaðinn. Hvernig
standa skuli skil á virð-
isaukaskatti, tekju-
skatti og einföldustu
hugmyndir um bók-
hald eru nauðsynleg fræðsla í starfs-
námi sem fórðun er. Þá era lífeyris-
sjóðsmál orðin skylda hjá hverjum
þeim einstaklingi sem hefur sjálfstæð
störf á markaðnum. Með því að kenna
þessa hluti í skólanum er komið í veg
fyrir að nemendur fari blint út á
markaðinn til að vinna. Litafræði, liL
greining, heitir litir, kaldir litir og
svona mætti lengi telja er grandvöll-
ur fyrir árangri í námi sem förðun er.
Þessi þáttur í náminu hefur vaxið
sexfalt á undanfömum misserum og
gerir nemendurna hæfari til að veita
ráðgjöf til þeirra viðskiptavina.
Allt frá því Förðunarskóli íslands
hóf kennslu hefur metnaður skólans
verið að bjóða nám sem stenst full-
komlega sambærilega erlenda skóla.
Þannig hefur umfang námsins aukist
Förðun, segir Pétur
Steinn Guðmundsson,
er ekki lögverndað nám.
á 5 árum úr 264 kennslustundum í
455 kennslustundir. Þetta er yfir
72% aukning og þrátt fyrir þetta er
skólinn ódýrasti skólirm á markaðn-
um. Förðunarskóli íslands kennir
alla virka daga.
Framboð í leikhús- og kvikmynda-
förðun hefur verið af skornum
skammti undanfarin ár. Förðunar-
skóli Islands býður, einn íslenskra
fórðunarskóla, samfellt 6 mánaða
nám í leikhús- og kvikmyndaförðun.
Við uppsetningu þessa náms hefur
skólinn notið^ aðstoðar færastu ein-
staklinga á Islandi sem starfa við
leikhúsin og kvikmyndir. Með þeirri
reynslu og aðgangi í leikhús og sjón-
varp býður skólinn nám sem er í
hæsta gæðaflokki. Þegar verið er að
bjóða nám í þessum greinum sem
eru helmingi styttri, er það ekki
sambærilegt.
Þegar þeirri spumingu er velt upp
hvort mai’kaðurinn sé mettur, segi ég
hiklaust nei. Tækifærin era á hverju
strái. Þeir sem læra förðun hafa margt
umfram aðrar starfstéttir. T.d er förð-
un ekki lögvemduð, hvorki hérlendis
né erlendis. Þannig hefur förðun engin
landamæri. Farðarinn getm- unnið
hvar sem er í heiminum, ef hann kann
til verka fær hann vinnu. Þannig höf-
um við sögu af fyrrverandi nemanda
Förðunarskóla Islands sem um þessar
mundir er að aðstoða við uppsetningu
nýrrar verslunarkeðju í Noregi þar
sem þekking nemandans á förðun, út-
liti og litasamsetningum nýtist full-
komlega. Þá hefur undanfarin misseri
verið að ryðja sér til rúms ný gerð
sölumanna og ráðgjafa, sem stunda
heimakynningar. Samkvæmt þróun
erlendis hefur þessi gerð þjónustu
færst í vöxt og þeir sem hafa lært
förðun og geta veitt ráðgjöf um liti og
útlit hafa þar ákveðið forskot. Förð-
unarmarkaðurinn er því langt frá því
að vera mettur.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Förðunarskóla fslands.
Glæsilegir amerískir rafmagnsnuddpottar
Acrylpottur í rauðviöargrind.
» « *• "" «j Innb. hitunar- og hreinsikerfi.
Vatns- og loftnudd. Engar leiðslur
nema rafm. 16 amp.
Einangrunarlok með læsingum.
Sjálfv. hitastillir.
Tilbúnir til afhendingar.
Wokkrir pottar á ótrúlegu uerði kr. 410.000 staðgr.
VESTAIM ehf., Auðbrekku 23, 200 Kópavogur,
s. 554 6171, fars. 898 4154
Ég þakka hjúkrunarkonunum og öllu starfs-
fólkinu á Heilsugœslustöð Bolungarvíkur fyr-
ir þá hjálp sem það veitti mér, einnig öllum
Isfirðingum sem ég hitti.
Kœrar kveðjur til systkina minna, barna og
annarra og þakka fyrir allt.
Jóhanna Vilhjálmsdóttir,
Austurbrún 4,
Reykjavík.
Frá Tónskóla þjóðkirkjunnar
Kennsla hefst mánudaginn 6. september. Væntanlegir nemendur eru
beðnir að hafa samband við skrifstofu skólans í síma 552 2770.
Umsóknareyðublöð eru á skrifstofu skólans Sölvhólsgötu 13.
Inntökuskilyrði eru þau, að hafa lokið a.m.k. 3. stigi í píanóleik. í
skólanum eru kenndar 10-14 námsgreinar og þurfa nemendur því að
geta verið óskiptir við námið.
Markmið námsins er kirkjutónlistarmenntun, þar sem höfuðáherslan
er lögð á orgelleik, söngstjórn og litúrgfsk fög, með væntanleg
kirkjutónlistarstörf í huga.
Umsóknarfrestur er til 1. september.
Skólastiórl.
Pétur Steinn
Guðmundsson