Morgunblaðið - 05.09.1999, Page 4
4 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 26/8 - 4/9
Þorskstofninn
réttir úr kútnum
►EITT öflugasta sjávarút-
vegsfyrirtæki landsins verð-
ur til með sameiningu Isfé-
lags Vestmannaeyja hf.,
Vinnslustöðvarinnar hf.,
Krossaness hf. og Óslands
ehf, en félögin sem undirrit-
að hafa viljayfirlýsingu um
sameiningu í eitt félag, ráða
yfír 20 þúsund þorskígildsi-
tonna kvóta.
►VERÐBÓLGUHRAÐINN
siðustu tólf mánuði nemur
4,2% og hefur ekki verið
jafnmikill í meira en fímm
ár eða frá þvi í desember ár-
ið 1993 þegar hann var
4,7%. Hækkun á húsnæðis-
verði hefur mest áhrif á
verðbólguna, en að auki
vegur hækkun á verði elds-
neytis, matvöru og þjónustu
þungt.
►FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ
hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að ekki sé ástæða til
að véfengja það mat á áhrif-
um breytinga á skaðabóta-
lögum sem lá að baki stærst-
um hluta hækkunar á ið-
gjöldum bifreiðatrygginga,
sem tóku gildi i vor. Eftirlit-
ið telur brýnt að trygginga-
félögin taki forsendur
hækkananna til endurskoð-
unar um leið og reynsla er
fengin af lagabreytingunum.
►TÆKNIVAL hf., Skýrr hf.
og Opin kerfí hf. hafa stofn-
að nýtt hugbúnaðarfyrir-
tæki, AX-hugbúnaðarhús
hf., sem taka mun yfir starf-
semi hugbúnaðarsviðs
Tæknivals og Agresso-sviðs
Skýrr.
SEIÐAVÍSITALA þorsks hér við land
er sú langhæsta sem mælst hefur frá
því mælingar hófust árið 1970. Sam-
kvæmt mælingum Hafrannsóknastofn-
unar er árgangurinn nú meira en
þrefalt stærri en árgangurinn í fyrra,
sem þó var metárgangur. Utbreiðsla
þorskseiða er ennfremur mjög mikil og
ljóst að hér er á ferðinni efniviður í
sterkan þorskárgang. Þetta er þriðja
góða seiðaárið í röð, en næstu ellefu ár-
in þar á undan voru mjög léleg.
Bensínverð hefur
hækkað um 25%
BENSÍNVERÐ hefur hækkað um 25%
frá áramótum, en síðasta hækkun var 1.
september er bensínverð hækkaði 5,30
krónur lítrinn. Lítrinn af 95 oktana
bensíni kostar nú 87,70 kr. og hefur
verðið aldrei verið hærra. Hækkunin
hefur þau áhrif á vísitölu neysluverðs að
skuldir heimilanna hækka um 4,3 millj-
arða. Hækkanirnar leiða til þess að
tekjur ríkissjóðs af bensínsölu aukast
verulega vegna gjalda sem hann leggur
á bensínið og þá fá bankamir einnig
verulegan tekjuauka vegna vísitölu-
tengingar lána heimilanna. Vörubíl-
stjórar lokuðu annarri akrein Reykja-
nesbrautar í Hafnafirði í eina klukku-
stund á miðvikudaginn til að mótmæla
hækkununum.
Bygging álvers á
Reyðarfirði undirbúin
FIMM íslensk fjármálafyrirtæki hafa
ásamt Norsk Hydro ákveðið að stofna
undirbúningsfélag sem hefur það hlut-
verk að fjármagna og undirbúa bygg-
inug álvers á Reyðarfirði. Fyrirtækin
leggja fram 200 milljónir króna til þessa
verkefnis, en þar af kemur helmingur-
inn frá Norsk Hydro. Stefnt er að því
að ljúka undirbúningsvinnunni eftir 8 til
10 mánuði.
fbúar Austur-Tímor
kjósa sjálfstæði
YFIRGNÆFANDI meirihluti íbúa
Austur-Tímor kaus sjálfstæði frá
Indónesíu í þjóðaratkvæðagreiðslu sem
fór fram á mánudag. 78,5% kjósenda
greiddu sjálfstæði atkvæði sitt, en talið
er að meira en 99% skráðra kosninga-
bærra manna hafi mætt á kjörstað.
Nokkurs óróa gætti á A-Tímor í kjölfar
atkvæðagreiðslunnar, og voru fjórir eft-
irlitsmenn Sameinuðu þjóðanna myrtir,
en andstæðingar sjálfstæðis hafa sakað
starfsmenn SÞ um að hafa stutt við bak-
ið á sjálfstæðissinnum. Stjómvöldum í
Indónesíu ber nú skylda til að gera til-
lögu að stjómarskrárbreytingu þess
efnis að Austur-Tímor hljóti sjálfstæði,
og leggja hana fyrir indónesíska þingið.
ísraelar og Palestínu-
menn ná samkomulagi
FULLTRÚAR ísraela og Palestínu-
manna áttu í samningaviðræðum í Jer-
úsalem í vikunni um hvemig hægt væri
að hefja aftur fram-
kvæmd á ákvæðum
Wye-friðarsamkomu-
lagsins. Tókst Ehud
Barak, forsætisráð-
herra ísraels, og
Yasser Arafat, leið-
toga Palestínumanna,
á föstudagskvöld að
komast að samkomu-
lagi um brotthvarf
ísraelskra hersveita
frá Vesturbakkanum og lausn 350
palestínskra fanga úr ísraelskum fang-
elsum, gegn öryggisráðstöfunum af
hálfu Palestínumanna. Viðræðurnar
voru tvísýnar, og hafði verið ákveðið að
undirrita samning í Alexandríu í Eg-
yptalandi á fimmtudag, en ekki varð af
því. Meginásteytingarsteinninn á loka-
spretti samningaviðræðnanna mun hafa
verið hve margir palestínskir fangar
skyldu látnir lausir úr ísraelskum fang-
elsum.
►AÐ minnsta kosti sjötíu
manns týndu lifí er Boeing
737-farþegaflugvél argent-
ínska flugfélagsins LAPA
fórst í flugtaki í Buenos
Aires á miðvikudag. Þar af
létust tíu menn á jörðu niðri,
ökumenn sem áttu leið um
veg, er flugvélin rann yfir
áður en hún brotnaði alelda
skammt frá flugvellinum.
►BORIS Jeltsín Rússlands-
forseti hét Alexander
Lúkasjenkó, forseta Hvíta-
Rússlands, því á mánudag að
áfram yrði starfað að fullri
sameiningu Rússlands og
Hvíta-Rússlands. Árið 1996
undirrituðu forsetarnir tveir
sáttmála þar sem nánum póli-
tískum, hernaðarlegum og
efnahagslegum tengslum
ríkjanna er heitið.
►STJÓRNARSKRÁRSAMK
UNDA Venesúela svipti þing
landsins nær öllum völdum á
þriðjudag, og fullyrðir
sljórnarandstaðan að tilskip-
unin geri það að verkum að
forsetinn Hugo Chavez sé nú
í raun einráður í sljórnmál-
um landsins. f þarsíðustu
viku voru völd þingsins skert
verulega og sögðust stjórn-
völd hafa gripið til þeirra að-
gerða til að stemma stigu við
útbreiddri spillingu innan
stjórnkerfisins.
►PAUL Nyrup Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerk-
ur, bað á fimmtudag íbúa
Thule á Grænlandi afsökunar
á nauðungarflutningunum
árið 1953. Þeir þurftu þá með
fárra daga fyrirvara að yfir-
gefa heimili sín, sökum hern-
aðarframkvæmda Banda-
ríkjamanna á Grænlandi.
*
RKI og dómsmálaráðuneyti undirrita samkomulag um flóttamenn
Mannúðleg meðferð
flóttamanna tryggð
títlendingalög
komin til ára sinna „ /mm
Morgunblaðið/Ásdís
Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Sigrún Árna-
dóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross fslands, undirrita samning um
aðstoð RKÍ við fólk sem leitar hælis á íslandi sem flóttamenn.
DÓMSMÁLARÁÐHERRA segir að
lög um útlendinga séu komin til ára
sinna og í burðarliðnum sé frumvarp
til nýrra útlendingalaga sem væntan-
lega verði lagt fram á komandi þingi.
Þetta kom fram í máli Sólveigar Pét-
ursdóttir, dóms- og kirkjumálaráð-
herra, þegar hún undirritaði samning
við Rauða kross Islands um aðstoð
við hælisleitendur hér á landi í gær.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið og
Rauði kross íslands hafa gert með
sér samkomulag um aðstoð RKI við
fólk sem leitar hælis á Islandi sem
flóttamenn. Sólveig Pétursdóttir og
Sigrún Amadóttir, framkvæmda-
stjóri Rauða krossins, undirrituðu
samning þar að lútandi í gær. Með
samningnum mun RKI annast að-
hlynningu og fyrirgreiðslu við hælis-
leitendur og standa straum af kostn-
aði við það í allt að þrjá mánuði.
V erkaskiptingin
skilgreind
Útlendingaeftirlitið mun sam:
kvæmt samningnum tilkynna RKI
um hvem þann sem leitar hælis á
íslandi og fulltrúa hans verður
ávallt veitt færi á að vera við fyrstu
skýrslutöku hælisleitanda. Samn-
ingurinn gildir til ársloka 2003 en
framlengist óbreyttur um eitt ár í
senn, sé honum ekki sagt upp með
sex mánaða fyrirvara.
„Rauði krossinn hefur á liðnum
áram aðstoðað stjómvöld á marg-
víslegan hátt í sambandi við flótta-
mannamál, en þetta er í fyrsta sinn
sem við setjum verkaskiptingu okk-
ar í milli niður á blað, þar sem
skuldbindingar era ákveðnar á báða
bóga,“ sagði dómsmálaráðherra við
undirritun samningsins í gær.
Hún sagði að breytingar væra í
vændum í meðferð flóttamannamála.
I fyrsta lagi vegna þess að útlend-
ingaeftirlitið yrði sjálfstæð stofnun
frá næstu mánaðamótum og tæki
upp nafnið Útlendingastofa. í öðra
lagi vegna nýrra útlendingalaga sem
lögð verða fram á komandi þingi.
Sagði hún að í drögum að útlend-
ingalögum sem lægju fyrir væri
tekið mið af löggjöf nágrannaríkja
okkar og alþjóðlegum skuldbinding-
um sem við höfum að gegna gagn-
vart flóttmönnum. Þar væri að finna
heildarreglur um réttarstöðu út-
lendinga hér á landi, komu þeirra,
dvöl og brottför. Þá væra þar sér-
stakar reglur um rétt flóttamanna
til að fá hér hæli og um vernd gegn
ofsóknum. í fyrra vora hælisleit-
endur samtals 24 og það sem af er
þessu ári hafa sex manns sótt um
hæli sem flóttamenn af stjómmála-
ástæðum.
Máiþing um skipulag ferðamannastaða
Fjöldi ferðamanna ekki
mælikvarði á velgengni
ERLENDIR fyrirlesarar á mál-
þingi um ferðamannastaða, sem
haldið var í gær, lögðu áherslu á
„vistvæna ferðaþjónustu“, að ekki
væri einblínt á magn, þ.e. fjölda
ferðamanna, heldur reynt að höfða
til „áhugasamra“ ferðamanna sem
hefðu áhuga á náttúra. Þingið fór
fram í fyrirlestrasal Endurmennt-
unarstofnunar Háskóla íslands og
sal í Háskólanum á Akureyri en
staðimir höfðu „fjarfund" sín á
milli.
Prófessor Gerda Priestley, sér-
fræðingur í ferðamálum frá Bar-
selónaháskóla, lagði í máli sínu
áherslu á að aldrei mætti meta vel-
gengni í ferðamálum út frá fjölda
ferðamanna. Gæði ferðaþjónustunn-
ar og umhverfisins skiptu höfuð-
máli. Reyna ætti að laða að „góða
ferðamenn", sem kunna að meta
það sem þeir upplifa og dvelja þar
með lengur.
Páll Skúlason, rektor Háskóla ís-
lands sagði í setningarávarpi sínu
tímabært fyrir aðila ferðamála að
mynda heildarstefnu í skipulags-
málum sínum. Hann lagði sérstaka
áherslu á að vemdun náttúrannar
yrði að vera þáttur í ferðaþjónustu.
Benedikt Karl Valdimarsson,
talsmaður Landsvirkjunar, benti á
að virkjanaframkvæmdir, með til-
heyrandi vegalagningu, hefðu aukið
aðgengi almennings að áður lokuð-
um svæðum. Aðeins takmarkaður
hópur hætti að sækja svæðin en
fjöldi ferðamanna hefði aukist til
muna og það „samrýmdist hug-
myndum ferðaþjónustunnar hér á
landi en ekki hugmyndum úr nýju
skipulagi miðhálendisins sem beinir
þjónustunni frá hálendinu."
Prófessor Valene L. Smith frá
Ríkisháskóla Kalifomíu í Chieo, tók
ýmis dæmi um „slæma“ og „góða“
ferðaþjónstu á alþjóðavettvangi.
Hún benti á að góð ferðaþjónusta
væri sjálfbær og þar yrði að koma
til heildarskipulag og framtíðarsýn.
Nauðsynlegt væri að vernda náttúr-
una tO þess að hún héldi áfram að
vera auðlind.
Eyjabakki í
Grindavík
BREYTINGAR á innsiglingunni til
Grindavíkur og dýpkun hafnarinnar
era nú á lokastigi og verður höfnin
opnuð formlega næstkomandi mið-
vikudag. Þrjár bryggjur eru í Gr-
indavíkurhöfn, Svíragarður, Mið-
garður og Eyjabakki.
í frétt frá bæjaryfirvöldum er
vakin athygli á því í ljósi umræðu
síðustu missera að hægt sé „að aka
að Eyjabakka allan ársins hring og
litlar líkur á að hann fari undir vatn
nema í stórflóði, ef svo fer er um-
hverfismat óþarfi". Hafnarhátíð Gr-
indvíkinga hefst klukkan 16 miðviku-
daginn 8. september með því að
björgunarskipið Oddur V. Gíslason
siglir inn ósinn, en ásamt áhöfn
verða um borð samgönguráðherra,
sóknarprestur, fulltrúar Skanska
Dredging, sem unnið hefur við verk-
ið, hafnarstjórn og hafnarstjóri.