Morgunblaðið - 05.09.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 23
áhrifafólk í helstu ráðuneytum og
stofnunum. Auk þess reynum við að
koma menningararfínum, og því
sem er að gerast heima, á framfæri.
Núna höfum við getað komið því til
leiðar að virt forlag ætlar að gefa út
helstu Islendingasögurnar í kín-
verskri þýðingu á næsta ári. Þrír
þýðendur vinna að því verkefni. Við
höfum einnig beitt okkur fyrir því að
tónlistarmenn gætu komið hingað,
Kammersveit Reykjavíkur og Rut
Ingólfsdóttir eru væntanleg hingað í
október. Myndlist er rækilega
kynnt. Við reynum líka að koma til
hjálpar ef upp kemur misskilningur
vegna þess sem er ólíkt í háttum og
menningu landanna. Það er nú út á
þetta sem starfíð gengur helst; út-
flutningur á vörum og þjónustu
ásamt landkynningu m.a. til að
fjölga ferðamönnum, efst á blaði.“
Svo er líka venja hjá þjóðum að
hafa móttökur á vegum sendiráðanna
og bjóða þá sæg af fólki. Kveikjan að
samskiptum stórfyrirtækisins, sem
Náttúrufélagsmennirnir vora í sam-
ræðum við, varð einmitt til í slíkri
móttöku. Eg hitti fulltrúa frá fyrir-
tækinu og kom ábendingu áleiðis
heim. En þetta er alltaf spuming um
að nýta tækifærin, og ef þau liggja
ekki í augum uppi þá að búa þau tfl.
Þar skiptir máli að vera hugmynda-
ríkur og brjóta hlutina til mergjar.
Það sem kannski virðist neikvætt í
íyrstu getur boðið uppá marga
möguleika ef betur er að gáð.
Við eigum að leita eftir samskipt-
um við þjóðir á þeim sviðum sem
þær eru sterkastar og skara fram úr
á því þannig nálgumst við íslending-
ar það besta sem völ er á. Og sjálfír
hljótum við helst að halda að öðrum
þjóðum því besta sem við búum yfir.
Mega þá báðir vel við una og árang-
ur vísastur í samskiptunum. Mörg-
um finnst Kína fjarlægt - en það er
nær en flestir halda.“
Höfundur er sjálfstætt starfandi
blaðamaður.
Nýi og gamli tíminn mætast víða á götum Peking.
stunda verk með þessum hætti. En
vinnusemi Kínverja er mikil, það er
unnið allan sólarhringinn við hús-
byggingar í grennd við sendiherra-
bústaðinn. Stundum sjást þó að deg-
inum til áhrif hins lamandi hita t.d. á
fólk í garðvinnu.“
Hvar hefurðu áður verið sendi-
herra?
„Eg hef verið sendiherra í London,
Moskvu og Kaupmannahöfn. Síðan
var ég heima í tvö ár og var þá, m.a. í
málum sem snerta samstarf á norð-
urslóðum. Þ.á.m. var undirbúningur
að stofnun Norðurskautsráðs, þátt-
taka okkar í Barentsráði og fleira.
Ég var í Moskvu frá 1990-94. Það
voru söguleg ár, þegar Sovétríkin
liðu undir lok.“
Hvernig var að verða vitni að því?
„Það var auðvitað einstakt. Ég var
t.d. einn þeirra sendiherra sem fóru
til fundar við Jeltsín, að hans beiðni,
morguninn eftir valdaránstilraunina
1991 þegar Gorbatsjov var hnepptur
í stofufangelsi. Jeltsín ávarpaði okk-
ur og bað okkur svo að hraða okkur
til sendiráðanna að koma boðskapn-
um áfram. Hann sagði þetta vera
einu tryggu leiðina sem hann hefði
og átti von á aðför að sér á hverri
stundu. Það var þá sem hann svo
klifraði upp á skriðdrekann og
ávarpaði nærstadda þaðan. Það er til
fræg ljósmynd af því. Þessir dagar
voru náttúrlega mjög viðburðaríkir."
Geturðu borið saman, að einhverju
leyti, starf þitt sem sendiherra í
þessum ólíku löndum?
„Nei, þetta er allt mjög ólíkt, hef-
ur allt sína kosti og er allt mjög
áhugavert, hvert með sínum hætti.
Ég átti þó ef til vill von á að aðstæð-
ur hérna væru hvað líkastar því sem
ég hafði kynnst í Rússlandi en það er
auðvitað mjög sláandi hvað er miklu
meiri festa í stjórnarfarinu hér held-
ur en þar var. Það hefur vakið aðdá-
un hvað Kínverjar hafa af mikilli
markvísi brugðist við erfiðleikum
sem leiða af efnahagshruninu í
grannríkjunum. Sama máli gegndi
þegar hin gífurlegu flóð skullu á í
ágúst í fyrra. Þá tóku stjórnvöld
strax, að manni fannst, mjög skyn-
samlega á vandamálinu. Leiðtogar
landsins aflýstu utanferðum og fóru
hver á eftir öðrum til flóðasvæðanna
til að kynna sér ástandið og stappa
stálinu í fólk. Hernum var strax beitt
til að hjálpa fólki að mæta erfiðleik-
unum. Eins þetta hvað þeim hefur
tekist vel að vernda efnahagslífið,
með því að standa dyggan vörð um
gjaldmiðilinn. Sú ákvörðun hefur
komið öðrum þjóðum til góða líka.
Mönnum ber saman um að áhrif
kreppunnar hefðu orðið miklu geig-
vænlegri ef Kínverjar hefðu farið að
hrófla við gjaldmiðli sínum. Miklar
breytingar hafa verið gerðar á sviði
mannréttinda og í löggjöf. Kínverjar
hafa skrifað undir um 18 alþjóða-
samninga á sviði mannréttinda og
hafa með lagasetningum breytt lög-
gjöf sinni í þá átt að þeir geti fullgilt
þá samninga.
Sumir eru, jú, gagnrýnir á t.d. tak-
mörkunina sem hér tíðkast á barn-
eignum og það er auðvitað sárt þeg-
ar þarf að grípa til örþrifaráða til að
framfylgja slíkum reglum. En maður
getur líka ímyndað sér þann ugg
sem myndi ríkja með öðrum þjóðum
ef hér væru engar slíkar takmarkan-
ir.“
Eru Kínverjar ekki frekar hlynnt-
ir þessum takmörkunum heldur en
hitt?
„Það virðist vera fullur skilningur
á því að þetta sé nauðsynlegt. Ef
ekki kæmu til reglur af þessu tagi þá
er hin hættan að takmörkunin ætti
sér stað frá náttúrunnar hendi, með
hungursneyð og slíku.“
Menningararfurinn
á kínversku
Að lokum létt klassísk spurning:
Hvernig er dæmigerður dagur í lífi
sendiherrans í Peking?
„Dagurinn mótast svolítið af því
að við erum átta klukkutímum á
undan klukkunni á Islandi. Um okk-
ur gildir því það sem hermt var að
séra Bjarni, sá mæti vígslubiskup,
hefði sagt þegar hann jarðsöng
munaðarlausa þjófinn: „Hann vakti
þegar aðrir sváfu (- það sem aðra
vantaði það fannst hjá honum)!“
Stundum fer töluverð vinna fram
eftir venjulegan skrifstofutíma, þeg-
ar ná þarf talsambandi heim. Ann-
ars er starfið í sendiráðinu hér svip-
að og í sendiráðum almennt. Hún
felst í að svara erindum bæði að
heiman og hérna. Eins að vera til
milligöngu við stjórnvöld. Við erum
núna að þrýsta á að tollar á sjávaraf-
urðum verði lækkaðir úr 25 til 30%.
Framundan eru viðskiptaviðræður í
Reykjavík. Við reynum að styi-kja
tengslin við stjórnvöld og hitta
jSöuiuv
Oæti það verið betra?
Sönsiið í hljóðnema undir leið.sö«n
i'aonienntaðra kcnnara.
Mikil áher.sla lö«ð á söngtaekni os* túlkiin.
ErlaRuth Ingrid Linda Ragnheidur
Harðardóttir Jónsdóttir Asgeirsdóttir Hall
Byrjenaa- og framhaldsnámskeið fyrir:
io-ii ára 17-19 ára
12-13 ára 20 ára og eldri
14-16 ára EINKATÍMAR
Tónleikar ílok hvers námskeiðs.
Geisladiskur með afrakstri hvers hóps!
Kennsla Kefst 13. september.
on« o£ leikli.star.skóli
Innritun í síma 861-6722
Iþróttamiðstödinnni Laugardal
Engjavegi 6, 105 Reykjavi'k.
Sólrílk!;
liaust
Kanaríeyjar i™™
Fyrir 4ra mamma fjölskyidul
38.375 J
á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
I Innifalið: Flug, gisting á Aloe 1. des., ferðir til
I og frá flugvelli og flugvallarskattar.
Glæsileg verslumar-
og skemmtiferð til
Mallorca
29 sept. 6 og 13. okt.
33.845
m v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára í íbúð.
Ef 2ferðastsaman, 39.980 kr. á mann, gisting í stúdíói.
Innifalið er flug, gisting á Pil Lari Playa í 1 viku,
ferðirtil og frá flugvelli erlendis og alllr flugvallarskattar.
úfoaMsg w-9rslu@i2j/
.ÍDrt&til (jlljEjsgow
4 nætur/5 dagar- 27.-31. október
B&.9009T
Innifalið: Flug, gisting í 4 nætur á glænýju glæsilegu hóteli
í hjarta Glasgowborgar, Holiday Inn Express, morgunverður,
ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar.
Ferðatilboð
Plúsferða
tll kortlnafa
VISA
29 sept.
Pl©rl,Égii!l
38.9 íDJDE
m.v. að 2 ferðist saman í stúdíóíbúð á Sol Doiro innifalið.
Flug, ferðir til og frá flugvelli erlendis, gisting í 7nætur,
íslensk fararstjórn og allir flugvallaskattar
Faxafeni 5 « 108 Reykjavik • Sími 568 2277 • Fax 568 2274
Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is
Stjörnuspá á Netinu
S' mbl.is
_ALLTa/= EITTHtSAÐ tJÝTT
Fasteignir á Netinu
% mbl.is
_ALLTAf= £n~THWA£> NYTT