Morgunblaðið - 05.09.1999, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 25
. . . og eru frelsinu fegnar.
séu einstaklingarnir jafn misjafnir í
þeim efnum og þeir eru margir.
Ymsar tegundir eru þó sýnu úr-
ræðabetri eða „greindari", allt eftir
því hvaða orð fólk vill nota, en aðr-
ar. Má þar nefna hrafna, starra og
fleiri. A mælikvarða fugla almennt
eru svokallaðar „gráar gæsir“, en til
þeirra telst heiðagæsin, vel ofan
meðallínunnar. Aðrar gæsir virðast
ekki „hugsa“ á jafn skýrum línum.
Skotveiðimenn þekkja þetta vel og
ekki að ástæðulausu að þeir kunna
margar sögur um kiæki og kænsku
grágæsa og heiðagæsa, en kalla
helsingja sín á milli „heimskingja“.
Grágæsir, náfrænkur heiðagæsa
og miklu mun þekktari fuglar á Is-
landi, eru uppátækjasamar. Dæmi
eru um að grágæsir hafi verið vand-
ar að mannabústöðum til sveita með
matargjöfum og almennri nær-
gætni. Gæsimar hafi í kjölfarið sýnt
á sér óþekktar hliðar.
Á einum sveitabæ urðu menn þess
varir, að gæsimar söfnuðust saman
undir glugga á sunnudagsmorgnum
og hlýddu á útvarpsmessu. Pað var
einkum kórsöngurinn sem heillaði
gæsimai-, en er presturinn tónaði,
tók allur skarinn undir.
Yfirgassinn í hópnum vann það
hetjuvirki dag einn, að knýja dyra á
bænum með nefinu og lokka hús-
freyju út í móa með furðulegum
fettum, brettum og óstöðvandi
Freðmýri og varpsvæði
heiðagæsa í Nautaölduveri í
Þjórsárverum.
skvaldri, að djúpri holu þar sem lít-
ill gæsamngi lá og komst hvergi.
Fleiri sögm- era til af uppátækja-
semi gæsa, en þetta verður látið
nægja.
Fellistöðvarnar „sérstakar"
Þegar komið er fram í júlí, taka
sig upp geldgæsir og gæsir sem
hafa misst egg sín eða unga og
fljúga til fellistöðva. Ein mikflvæg-
asta fellistöðin eru margumtalaðfl'
Eyjabakkar. Að sögn Amórs Sig-
fússonar eru fellistöðvar gæsa ekki
valdar af handahófi. „Það er tvennt
sem skiptir sköpum. í fyrsta lagi
leita gæsirnar að svæði sem þær
hafa næði. Þær era ófleygar á þess-
um tíma og afar styggar. Þær reyna
að forðast rándýr eins og refi og
verða að hafa vatn, s.s. tjarnir, tfl að
geta flúið út á. í öðru lagi verða
gæsimar að hafa aðgang að mjög
próteinríkri fæðu. sem þarf til að
mynda nýju fjaðrimar.
Gæsimar sýna okkur sjálfar hvar
heppflegar fellistöðvar era, því við
vitum af svæðum sem við gætum
vel ímyndað okkur að væru heppi-
leg svæði, en þar eru engar gæsir.
Það er því óvarlegt að skemma
þekktar fellistöðvar. Við höfum ver-
Vísindamenn að störfum í Þjórsárverum á nýliðnu sumri.
Það þarf að hafa fyrir því að
komast í gæsaverin.
ið að merkja gæsarunga og felli-
fugla á varpsvæðum í fjögur ár og
náðum rúmlega þúsund fuglum í
Þjórsárveram í sumar. Okkur dytti
hins vegar ekki til hugar að smala
ófleygum gæsum á þennan hátt t.d.
í Eyjabökkum, gæsimar gætu ein-
faldlega flæmst burt. Tryggðin við
varpsvæði er miklu meiri og of mik-
ið ónæði, t.d. vegna merkinga gæti
flæmt hluta gæsanna burt.“
Eru einhver fordæmi fyrir því
hvað gæsir gera ef fellisvæði eru
eyðilögð?
„Nei, við getum ekkert sagt um
það, t.d. hvað varðar gæsimar sem
leita í Eyjabakka. Það hafa ýmsar
hugmyndir verið á kreiki, m.a. að
rækta upp einhver önnur svæði í
stað þeirra sem fara undir vatn, rétt
eins og gæsirnar þurfi aðeins gras
til að bíta. Það er ekki góð hug-
mynd. Flest bendir til að Eyjabakk-
ar yrðu úr sögunni sem fellisvæði,
því forsendur sem gæsimar gefa
sér sjálfar yrðu brostnar, votlendis-
gróðurinn sem þær éta hyrfi að
mestu og friðurinn á svæðinu væri
úti, enda fylgir virkjunarfram-
kvæmdum mjög aukin umferð með
batnandi vegakerfi.“
Hvað segja fuglafræðingar um
hugmyndir formanns Skotveiðifé-
lagsins um að eyðilegging fellisvæð-
is á borð við Eyjabakka gæti orðið
til þess að allur gæsaskarinn þyrpt-
ist til baka á varpsvæðin sem aftur
gæti haft slæm áhríf á vöxt og við-
gang unga?
„Vissulega gæti það gerst að
geldfuglinn færi þannig í keppni við
varpfuglinn og það gæti haft slæm
áhrif, það er rétt. Beitarþunginn er
þegar mikill á varpsvæðum á borð
við Þjórsárver og sitthvað bendir tfl
þess að það svæði sé þegar fullsetið.
Það sést til dæmis á því, að um leið
og ungar era farnir að fljúga hafa
gæsirnar enga viðdvöl á svæðinu og
leita betri bithaga," segir Amór
Sigfússon.