Morgunblaðið - 05.09.1999, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 05.09.1999, Qupperneq 30
30 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ákvörðun og taldi afskaplega lík- legt að svar þeirra yrði jákvætt. Hann sagði okkur hve mikið eigið fé við þyrftum að leggja upp með í áætlunum okkar og þess háttar og segja má að allt sé gert eftir for- skrift hans. Við fórum út í að gera mikla viðskiptaáætlun um þetta, sem Jónatan Svavarsson hjá PriceWaterhouseCoopers vann fyrir okkur, eftir forsendum FBA, og ég mætti svo þangað aftur með áætlunina eftir margra mánaða vinnu, mjög kokhraustur; búinn að eyða í þetta á aðra milljón króna en þá eru viðbrögðin engin! A dauða okkar áttum við von en ekki þessu. Þetta kom okkur gersamlega í opna skjöldu," segir Hafsteinn og bætir við: „Ráðgjafi þeirra stjóra í Fjárfestingarbankanum spurði hvers vegna við vildum byggja geymsluna í Þorlákshöfn. Hann vildi endilega hafa hana í Reykja- vík. Eg sagði að við værum í Þor- lákshöfn en vel gæti verið að byggðum aðra seinna í Reykjavík. En það væri seinni tíma mál. Hann sá sem sagt ekki lengra; ef hún yrði í Reykjavík yrði hægt að setja peninga í þetta sem mér finnst ótrúlegt." Hafsteinn segir að viðbrögð FBA hafi komið ísfélagsmönnum í svolítinn bobba. „Við vorum að veltast í viðskiptabankanum okkar, sem er reyndar ekki enn búinn að svara okkur, en svo komumst við í tæri við unga og hugsandi stráka í Sparisjóði Reykjavíkur og eftir þrjá daga sögðu þeir okkur að við gætum gengið frá samningi við Istak um byggingu hússins. Eftir viku var svo búið að gefa okkur það svar bréflega.“ Portúgalska skipafélagið Port- Line hóf siglingar til Þorlákshafn- ar fyrir tíu mánuðum. Kemur þangað á þriggja vikna fresti og fer síðan til Alasunds í Noregi, þaðan til Vigo á Spáni og Aveira í Portú- gal. „Segja má að tekjur af þessum siglingum séu þær fyrstu vegna geymslunnar okkar vegna þess að þeir hófu siglingar hingað fyrst vegna hennar. Þeir ætluðu sér að byrja á því að sigla til Hafnarfjarð- ar, en við fengum þá ofan af því vegna þess að við töldum að þeir myndu kannski festast þar.“ Hafsteinn segir þann misskiln- ing virðast nokkuð útbreiddan að félagið hyggist fara í stríð við skipafélögin með geymslu sinni. „Það er algjör misskilningur, við eigum samleið með þeim og erum ekki að fara í neina flutninga. Þeir eru með sínar geymslur fyrst og fremst til að draga vörur inn í sínar flutningakeðjur. Þeir vildu helst tæma geymslurnar í hverri viku enda er gjaldskráin þannig að menn geta fengið fría geymslu í nokkra daga en síðan er svo dýrt að geyma hjá þeim að enginn vill borga það. Svoleiðis ýta skiptafé- lögin vörunum úr landi og því er mjög mikið magn óseldrar vöru í geymslum, til dæmis í Bretlandi og Hollandi. Það er þessi vara sem við ætlum að reyna að ná til geymslu." Það eru langmest fiskafurðir sem um ræðir. „Það hefur ekki verið nægt geymslupláss hér á landi. Þess vegna er verið að nota geymslur í stórum stfl erlendis fyr- ir vöru sem er ekki seld. Þannig að jafnvel þótt byggðar væru tíu svona geymslur hér hugsa ég að nægur markaður yrði fyrir þær,“ segir Pétur. „Eg held það sé alveg sama hvar borið er niður, það er alltaf verið að keyra frysta vöru, oft langar vegalengdir, til að koma fyrir í geymslu. A þessu svæði vantar því tilfinnanlega geymslu.“ ísframleiðslan Hafsteinn segir fyrirtækið með fleiri aðgerðir í gangi varðandi ís- inn: „Við erum að byggja flutn- ingagám með rökubúnaði og blást- urskerfi, alveg eins og er í ís- geymslunum hjá okkur, til að geta fært mönnum ísinn hér á höfuð- borgarsvæðið - þá getum við farið að þjónusta stærra svæði og blásið ísnum inn á gólf til manna ef þeir vilja. Við bindum miklar vonir við slíka ísdreifingu. Við vitum að þörf- in er mikil því eftir að Sjólastöðinni var lokað eru stanslaus vandræði á höfuðborgarsvæðinu. Aðeins Morgunblaðið/Ásdís Forsvarsmenn Kuldabola á sjávarútvegssýningunni í Kópavogi í vikunni, en þar var fyrirtækið kynnt á bás Kælismiðjunnar Frosts. Frá vinstri: Haf- steinn Ásgeirsson, stjórnarformaður Isféiags Þorlákshafnar, Pétur Björnsson, varaformaður sljórnar, og Gestur Ámundason framkvæmdastjóri. KULDABOLIKOMINN Á KREIK ÍÞORLÁKSHÖFN VIÐSHPn AIVINNULÍF ÁSUNIMUDEGI ► Hafsteinn Ásgeirsson fæddist á Stokkseyri 1949. Hann tók fiskimannapróf frá Stýrimannaskólanum, var skipstjóri og rak eigið útgerðarfyrirtæki 1973-1990, var einn stofnenda ísfélags Þorlákshafnar 1984 og er þar stjórnarformaður, stofnaði Skipaþjónustu Suðurlands 1988 og er þar framkvæmdastjóri og var einn stofnenda Fiskmarkaðar Þorlákshafnar 1991 og hefur verið í sljórn hans frá stofnun. Hafsteinn er kvæntur Kristínu Árnadóttur og eiga þau þijú börn. ► Gestur Ámundason fæddist á Vatnsenda í Villingaholts- hreppi 1940. Hann hefur fengist við ýmis störf um ævina, bæði sjálfstætt og hjá öðrum; starfaði t.d. lengi hjá Þorlákshafnar- höfn og var m.a. hafnarstjóri í tvö ár. Hann réðst til Isfélags Þorlákshafnar þegar það var stofnað, 1984, og hefur verið framkvæmdastjóri þess frá upphafi. Eiginkona Gests er Isafold Þorsteinsdóttir og eiga þau tvö börn. ► Pétur Björnsson fæddist á Raufarhöfn 1955. Hann varð stúd- ent frá Menntaskólanum á Akureyri 1975, lauk skipsljórnar- prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1976 og prófi í út- gerðartækni frá Tækniskóla íslands 1978. Pétur starfaði hjá Hraðfrystistöð Reykjavíkur frá 1978 til 1981 þegar hann flutt- ist til Englands. Þar starfaði hann fyrst hjá J. Marr í Fleetwood og Hull við innflutning á ísfiski frá fslandi en 1986 stofnaði hann fsberg Ltd. í Hull ásamt Vic Morrow og hefur rekið það síðan. Pétur, sem fluttist heim með fjölskyldu sinni í hittifyrra, varð hluthafi í fsfélagi Þorlákshafnar í sumar og varð þá varaformaður stjórnar fyrirtækisins. Pétur er kvæntur Margréti Þorvaldsdóttur og eiga þau fjögur börn. Eftir Skapta Hallgrímsson ISFÉLAG Þorlákshafnar var stofnað í árslok 1984 um rekstur ísverksmiðju í bæn- um. Um þessar mundir er fyr- irtækið að færa út kvíarnar: tekur fljótlega í notkun stórt frystivöru- hús, sem nefnt hefur verið Kulda- boli og er ætlað að þjóna innlend- um og alþjóðlegum markaði; fyrstu vörur koma inn í húsið upp úr miðj- um þessum mánuði. Þá er ákveðið að Isfélagið og Fiskmarkaður Þor- lákshafnar sameinist og flyst starf- semi fiskmarkaðarins í hið nýja vöruhús. „Við tókum okkur saman nokkrir aðilar og stofnuðum ísfélagið á sín- um tíma af verulega illri nauðsyn. Félagið hefur séð um rekstur ís- verksmiðjunnar allar götur síðan og reksturinn hefur verið nokkuð jafn. Við höfum selt um það til 12 þúsund tonn af ís á ári,“ segir Haf- steinn Ásgeirsson, stjórnarformað- ur ísfélagsins. Gestur Ámundason fram- kvæmdastjóri segir reksturinn hafa byrjað rólega en umsvifin hafi aukist verulega 1988, þegar Meit- illinn fór að skipta við fyrirtækið. „Þarna var engan ís að fá; að- komuskip utan af landi sem voru tímabundið fyrir sunnan land á veiðum gátu ekki komið til Þor- lákshafnar: hvorki var hægt að landa né fá ís. ísverksmiðjan breytti þessi ástandi í raun og veru. Eftir að hún varð að veru- leika gátu skip farið að landa í Þor- lákshöfn og í kjölfar þess varð til löndunarþjónusta, Skipaþjónusta Suðurlands, sem ég er reyndar með, og þá jókst íssala verulega því skip fóru að koma alls staðar að,“ segir Hafsteinn. Gestur bætir við að gámaútflutningur hafi verið í hámarki á þessum tíma og það hafi skipt miklu fyrir viðskipti ísverk- smiðjunnar. Mun minna er nú landað af ís- fiski á svæðinu en þegar mest var. „Segja má að þessi aðgerð okkar núna - bygging frystigeymslunnar - sé í raun og veru viðbrögð við minnkandi löndun ísfisks. En þrátt fyrir hve dregið hefur úr slíkum löndunum hefur íssalan verið til- tölulega jöfn, þar til á síðasta ári, þegar hún minnkaði um 2-3 þús- und tonn, fór niður í 10 þúsund tonn, en aðalástæða þess er að skip Vinnslustöðvarinnar hættu að landa í Þorlákshöfn og fóru þess í stað alltaf til Vestmannaeyja," seg- ir Hafsteinn og bætir við: „Þegar íssalan dróst svona saman fórum við að velta fyrir okkur hvað væri hægt að gera. Hugmynd að bygg- ingu svona frystigeymslu hefur verið í kollinum á okkur í mörg ár - er eiginlega jafngömul fyrirtæk- inu.“ Gestur segir einmitt að í fyrstu samþykktum félagsins sé tekið fram að stefnt skuli að þessu. „En þá var meira verið að hugsa um kæligeymslu,“ segir Hafsteinn. „Þá var mikil framleiðsla á saltfiski á svæðinu og stanslaus vandræði með geymslur. En nú erum við komnir í frystivöruhús, þar sem allir hafa aðgang, hvort sem það eru stórir aðilar eða smáir, svo framarlega sem eitthvert pláss er í geymslunni." Kuldaboli ísfélagið sótti fyrst um lóð fyrir frystigeymslu 1994 en þá var ein- ungis mögulegt að fá lóð fjarri bryggju og ekkert varð úr fram- kvæmdum. „I fyrra opnaðist svo leið fyrir okkur þegar við gátum fengið lóð sem tengist bryggjunni," segir Hafsteinn og segir þá félaga þegar hafa hafist handa við að at- huga með fjármögnun. „Við byrj- uðum á því að fara í Fjárfestingar- banka atvinnulífsins, því þær stofn- anir sem menn í fjárfestingarhug- leiðingum í þessari grein leituðu til, eru nú orðnar hluti hans. Við töluð- um við mann sem var áður hjá Fiskveiðasjóði og honum leist mjög vel á hugmyndina. Hann lagði eig- inlega línurnar fyrir okkur; hvern- ig við ættum að koma hugmyndinni í þann búning að þeir gætu tekið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.