Morgunblaðið - 05.09.1999, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 47%
FRÉTTIR
Ræða lýð-
ræði og
rafræn
viðskipti
RÁÐHERRAR Norðurlanda á
sviði upplýsingatækni (UT) hittast
í fyrsta sinn opinberlega mánudag-
inn 25. október á Islandi. Fyrir
fundinn fjölluðu embættismenn
hinna norrænu ráðherra á sviði UT
um upplýsingatækni, lýðræði og
rafræn viðskipti á ráðstefnu í
Reykjavík í júnímánuði.
„Þátttakendurnir á ráðstefn-
unni bentu á allnokkrar nýjar vís-
bendingar í þróun upplýsinga-
tækni,“ segir í fréttatilkynningu
frá Norrænu ráðherranefndinni.
„Fyrri áhyggjur manna vegna
skiptingar upplýsingatæknisamfé-
lagsins í A- og B-lið eiga tæpast
við rök að styðjast vegna þess að
ný tækni er nú almennt aðgengi-
leg á Norðurlöndum - á heimilum,
á vinnustöðum, í skólum og á
bókasöfnum.
Efasemdir eru uppi um hvort hið
opinbera geti styrkt lýðræðið fyrir
tilstilli upplýsingatækni, en upplýs-
ingatækni bætir ugglaust mögu-
leika almennings til að afla sér
upplýsinga og rækja samskipti við
yfirvöld. Slíkt breytir í sjálfu sér
forsendum íyi-ir framkvæmd lýð-
ræðis.
Opinberar stofnanir á Norður-
löndum líta orðið á það sem sjálf-
sagðan hlut að kynna sig á Netinu.
Upplýsingarnar eru enn að tak-
mörkuðu leyti lagaðar að þörfum
almennings og aðeins í óverulegum
mæli er hvatt til gagnkvæmra sam-
skipta milli almennings og yfir-
valda.
Einungis fá fyrirtæki í heimin-
um hafa hagnað af því, eins og er,
að stunda viðskipti á Netinu en líkt
og annars staðar í heiminum eru
væntingar manna á Norðurlöndum
miklar varðandi þennan viðskipta-
máta. Forsendurnar á Norður-
löndum eru hagstæðar vegna þess
að aðgangur að Netinu er almenn-
ur. Fyrirtækin hafa hins vegar
verið of treg til að nota Netið á
þessu sviði með skilvii-kum hætti.
Skýringin á takmörkuðum rafræn-
um viðskiptum á Norðurlöndum
getur verið sú að mönnum þyki
áhættusamt að stunda viðskipti á
Netinu.
Almennt var á embættismanna-
ráðstefnunni lögð áhersla á að
tækniþróun sé svo hröð að skipu-
lagning til langs tíma á vegum hins
opinbera sé erfiðleikum háð.“
--------------------
GSM á Filipps-
eyjum
VIÐSKIPTAVINIR Landssímans
hafa frá og með 1. september getað
nýtt sér GSM-þjónustu farsímafyr-
irtækisins Smart á Filippseyjum.
Þar með bætist við 56. landið, þar
sem viðskiptavinir Símans GSM
geta notað símakortið sitt. Smart
rekur GSM 1800-kerfi í höfuðborg-
inni Manila en GSM 900 kerfi víð-
ast út um eyjarnar.
Frá og með 2. september geta
viðskiptavinir Landssímans jafn-
framt notfært sér GSM-þjónustu
Celcom í grannlandi FUippseyja,
Malasíu. Þetta er þriðji reikisamn-
ingurinn sem Landssíminn gerir í
Malasíu. Virkir reikisamningar
Landssímans við erlend farsímafé-
lög eru nú orðnir 111 talsins.
--------------------
LEIÐRÉTT
Kristján en
ekki Kjartan
Nafn Kristjáns M. Ólafssonar
misritaðist í blaðinu í gær og er
beðist velvirðingar á því.
Skaftahlíð 9 — opið hús
5 herb. 127,3 fm gullfalleg hæð í fjórbýlishúsi. íbúðin sem er á 2.
hæð skiptist í 2 mjög fallegar stofur, gott forstofuherb. (sem getur
tengst stofu), 2 svefnherb., eldhús, rúmgott hol og baðherb. Ný-
legt parket og gler. Bílskúr. Mjög góð hæð á þessum frábæra
stað. Verð 14,2 millj. Einkasala.
Eignin verður sýnd í dag frá kl. 14—16.
Fasteignasalan Garður, sími 562 1200.
Opið hús — opið hús
Fýlshólar 5 n.li.
í dag frá kl. 14-16
Neðri sérhæð með
aukaíbúð.
Frábær staðsetning.
Stórkostlegt útsýni.
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA ehf
Sími 5624250 Borgartúni 31
Sími 588 0150 - Fax 588 0140 - eignaval@eignaval.is
Sigurður Óskarsson, lögg. fasteignasali
BÁRUGATA 12 - OPIÐ HÚS Vorum að fá (einkasölu f þessu gamla og
sjarmerandi húsi stórglæsilega 92 fm hæð (3 herb.) og um 102 fm kjallara með
aukaíbúð. Auðvelt er að sameina þær sem eina heild. Húsið hefur mikið verið end-
umýjað, t.d. ný rafmagnstafla og nýr stofn inn í húsið, hitakerfið nýtt, nýjar rennur
og niðurföll. Nýir gluggar og karmar á hæðinni. Innihurðir nýlakkaðar, nýtt eldhús og
bað endumýjað. Sjón er sögu ríkari! Áhv. 6 m. V. 18,2 m. 1778. Þau Ásgeir og Aðal-
heiður bjóða ykkur velkomin til sln á sunnudaginn milli kl. 16 og 18.
Flókalundur - Hótel Höfum fengið i einkasölu þetta landsþekkta hótel sem
býður upp á mikla möguleika. Hótelið og veitingastaðurinn standa í afar faliegu um-
hverfi. Áhv. 9 m. í góðum lánum. V. TILBOÐ 1821
Fasteignir á Netinu & mbl.is
ALL.TA/= e/TTH\SA£} A/ÝT7
Sumarbústaðarland óskast
innan 30 km radíuss frá Reykjavík.
Staðgreiðsla í boði.
Upplýsingar í s. 0044 171 5116543,
^ netfang: manjunair@mailexcite.com
Opið hús sunnudag kl. 14.00-16.00
KEILUGRANDI
I einkasölu mjög falleg og rúmgóð
íbúð með stæði í bílgeymslu. íbúðin
er hæð og ris í vesturbæ Reykjavíkur.
íbúðin er alls 106 fm. Rúmgott eld-
hús, parket á gólfúm og frábært
útsýni. Verð 12,2 millj. Sjón er sögu
ríkari. Björgvin tekur á móti með
ykkur heitt á könnunni
ATVINNUHÚSNÆÐI
LYNGÁS Til sölu/leigu í Garðabænum mjög gott atvinnu-
húsnæði ca 1.335 fm. Húsnæðið býður upp á mikla mögu
leika, góð skrifsatofuaðstaða og starfsmannaaðstaða með sturt-
um. Tveir stórir vinnusalir með hlaupaköttum sem geta fylgt
með. Þrennar innkeyrsludyr. Góð loftræsting. Allar nánari
upplýsingar veitir Guðmundur f sfma 899 7673_____________________
‘0*533 4800
Suðurlandsbraut 4a ♦ 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Opið virka daga frá kl. 9-18
Malarhöfði 2 - til leigu
Glæsilegt rúmlega 320 fm atvinnuhúsnæði í góðu húsi. Hentar
vel undir margvíslega starfsemi, gott aðgengi og öll aðstaða til
fyrirmyndar. Tilboð óskast. 2356
Smiðjustígur - miðbær
Vorum að fá nýstandsett
155 fm atvinnupláss á jarð-
hæð á þessum frábæra
stað. Eignin hentar vel fyrir
t.a.m. arkitekta, hönnuði
eða listamenn. Glæsileg
hönnun. V. 10,8 m. 2439
Kleifarás. Vandað og gott einbýli meö
möguleika á tveimur (búðum á frábærum út-
sýnisstað. Á efri hæð er u.þ.b. 188 fm íbúð m.
glæsil. stofum og 4 svefnherb. Neðri hæðin er
í dag tengd efri hæöinni en þar er m.a. mögul.
á að útbúa 100 fm aukaíb. Góður u.þ.b. 40 fm
bflskúr. V. 23 m. 2271
Barðastaðir - Glæsieign. Glæsileg
115,8 fm endaíbúð með sérinngangi og sér-
garði á jarðhæð í litlu fjölbýli, auk u.þ.b. 30 fm
bílskúrs. Vandaðar innréttingar. Glæsilegar
stofur og þrjú stór svefnberbergi. Samelgh er
öll fullfrágengin. Stutt (golf. Áhv. húsbréf 7,6
millj. V. 12,8 m. 2398
Tjarnarból. Vorum að fá í sölu mjög góða
4ra herb. u.þ.b. 75 fm íbúð á þessum vibsæla
stað í vesturbænum. Parket á stofum og holi.
Svalir í suður. V. 7,9 m. 2426
Við Vatnsstíg. Um150 fm einbýli á góöum
stað í miðbænum. Fjögur svefnherbergi. Húsið
er að hluta til endurnýjað, m.a. nýtt lagnakerfi
og rafmagnstafla, gólfefni o.fl. Utleigumögu-
leiki á jarðhæð. V. 13,9 m. 2064
Sigluvogur. Höfum fengið í sölu u.þ.b. 115
fm efri sérhæð á þessum eftirsótta stað. Þrjú
herbergi og tvær saml. stofur, svalir. Sérinn-
gangur og sérgarður. V. 11,9 m. 2411
SkaftahKð - Glæsiíbúð. Vorum að fá j
sölu 112 fm glæsiíbúð ( litlu fjölbýli við
Skaftahlið. íbúðin er endaíbúð á 1. hæð. Hún er
öll endurnýjuð, t.d. ný mahóní-eldhúsinnr.,
nýjar mahóní-hurðir, nýir mahónf-fataskápar,
ný gólfefni, raflagnir og þjófavarnakerfi. Sjón
er sögu ríkari. Ábv. 6,0 millj. jafngreiðslulán til
25 ára. V. 12,5 m. 241