Morgunblaðið - 28.09.1999, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samskip fliuga að hætta strandsiglingum og efla landflutninga
Ákvörðun um strand-
sig’ling’ar fyrir áramót
SAMSKIP hafa til skoðunar að
hætta strandsiglingum og efla frekar
landflutninga á vegum fyrirtækisins,
en þeir hafa á seinustu árum orðið
stöðugt umfangsmeiri þáttur í starf-
semi þess. Kristinn Þór Geirsson,
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
innlendrar starfsemi Samskipa, seg-
ir þann valkost hafa verið til athug-
unar um eins árs skeið, enda hafl
strandsiglingar ákveðið óhagræði í
för með sér.
„Bæði landflutningar og strand-
flutningar hafa hins vegar ýmislegt
sér til ágætis, þannig að við höfum
ekki enn tekið endanlega ákvörðun í
málinu,“ segir hann.
Kröfur um hraðari þjónustu
Samskip hafa Mælifell á þurr-
leigusamningi og hefur skipið sinnt
þessum flutningum fyrir fyrirtækið.
Að sögn Kristins Þórs vinna á milli
16 og 20 starfsmenn fyrirtækisins
við strandsiglingar. „Seinustu miss-
eri höfum við velt vöngum yfir því
hvenær yrði hagkvæmt að hætta
strandsiglingum, enda krefst mark-
aðurinn stöðugt hraðari þjónustu.
Fyrir rúmu ári tókum við að íhuga
þennan möguleika af enn meiri al-
vöru en áður,“ segir hann.
Ólafur Ólafsson forstjóri Samskipa
segir að strandsiglingakerfið hafi
verið til skoðunar um nokkurt skeið
og samnýting þess á sjó og landi ver-
ið tekin til gagngerrar skoðunar.
„Við höfum víðfeðmasta landflutn-
ingakerfi sem til er hérlendis og höf-
um verið að skoða möguleika á hag-
ræðingu og betri þjónustu í þessu
kerfí að undanfömu. Niðurstaða ligg-
ur hins vegar ekki fyrir,“ segii- Ólaf-
ur. „Þarna kemur svo margt til skoð-
unar, rekstraröryggi, þróun skatt-
lagningar, starfsmannamál, vega-
kerfíð, veðurfar o.s.frv. Við viljum
hins vegar kanna þessi mál til hlítar."
Hann kveðst gera ráð fyrir að
ákvörðun í málinu muni liggja fyrir á
næstu mánuðum, sennilega fyi’ir
áramót. Hins vegar geti ákvörðun
fallið á hvorn veginn sem er, þ.e. að
hætta strandsiglingum eða halda
þeim áfram.
Áhrif skattlagningar mikil
Kinstinn Þór tekur undir að skoða
þurfí fjölmarga þætti í þessu sam-
bandi, ekki síst þarfír viðskiptavina
og pólitískt umhverfi þessara flutn-
inga. „Það er mikil pólitík í flutning-
um hvað skattlagningu varðar og
það skiptir gríðarlegu máli varðandi
ákvarðanir, enda em skattarnir
stærsti þáttur í kostnaði við land-
flutninga. Ríkið hefur hringlað með
þungaskattinn og er líklegt til að
halda því áfram, þannig að ákvörðun
okkar ræðst mikið af því sem gerist
á þeim vettvangi," segir hann.
Fyrh' um fjórum árum fengust
Samskip ekki við landflutninga en að
sögn Ólafs er fyrirtækið nú orðið
einn umfangsmesti aðili í landflutn-
ingum hérlendis, með sennilega um
helmings markaðshlutdeild, þó svo
að nákvæmar tölur liggi ekki fyi-ir.
Kristinn Þór segir að sending sem
fari landleiðina til Austfjarða, svo
dæmi sé tekið, eigi að skila sér dag-
inn efth' að hún er send af stað en
væri 4-5 daga að fara sjóleiðina.
„Strandsiglingar era töluvert hag-
kvæmari hvað ákveðna þætti varðar,
ekki síst þungavöru, sérstaklega ef
hægt er að taka hana í gáma. En ef
miðað er við hraða og annað slíkt
verða kostir landflutninga yfirgnæf-
andi. Spurningin er einfaldlega hvað
menn vilja helst leggja áherslu á,“
segir hann.
Gestur Jonsson, lögmaður Orca SA
Höfum veitt Fjármála-
eftirlitinu upplýsingar
GESTUR Jónsson, lögmaður Orca
SA, segir að Orca hafi leitast við að
gefa Fjármálaeftirlitinu allar upp-
lýsingar sem fyrirtækið hafi talið
nauðsynlegar varðandi kaup sín á
hlut Kaupþings og sparisjóðanna í
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins.
Hann neitar hins vegar að tjá sig um
einstök atriði í samskiptum Orca og
Fjármálaeftirlitsins enda sé slíkt
ekki heimilt samkvæmt lögum.
„Orca SA hefur átt mikil sam-
skipti við Fjármálaeftirlitið frá því
þetta kom upp. Við höfum reynt að
gefa því allar þær upplýsingar sem
við höfum talið að væm nauðsynleg-
ai'. Við tjáum okkur hins vegar ekki
um einstök samskipti," sagði Gestur
Jónsson þegar hann var spurður
hvort hann gæti staðfest að Fjár-
málaeftirlitið hefði sent Orca bréf
þar sem óskað væri upplýsinga um
svokallaðan „leynisamning“, en for-
sætisráðherra fullyrti í samtali við
Morgunblaðið að slíkur samningur
hefði verið gerður í tengslum við
kaup Orca á hlut Kaupþings og
sparisjóðanna í FBA.
Páll Gunnar Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Fjármálaeftirlitsins,
var spurður hvort Fjármálaeftirlitið
hefði sent Orca bréf þar sem óskað
væri eftir upplýsingum um „leyni-
samninginn". Páll Gunnar sagðist
ekki geta staðfest að Fjármálaeftir-
litið hefði sent slíkt bréf.
Árni Þór Sigurðsson
Ihugar hvort hann verði
áfram í pólitík og þá hvar
ARNI Þór Sigurðsson, varaþing-
maður Samfylkingarinnar og for-
maður Alþýðubandalagsins í
Reykjavík, segir í grein, sem birt-
ist í Morgunblaðinu í dag að í ljósi
þess hvernig málum sé komið inn-
an Samfylkingarinnar og Alþýðu-
bandalagsins íhugi hann og félag-
ar hans hvort þeir eigi að halda
áfram á hinu pólitíska sviði og þá
hvar.
Árni Þór, sem einnig hefur gegnt
stöðu aðstoðarmanns borgarstjóra,
talar í greininni um vanmátt Alþýðu-
bandalagsins og veika stöðu þess
innan Samfylkingarinnar. Forastu-
menn flokksins hafi hins vegar ekki
umboð til að leggja niður Alþýðu-
bandalagið í því skyni að ganga inn í
Samfylkinguna. Á aukalandsfundi
Alþýðubandalagsins í júlí 1998 hafí
aðeins verið veitt umboð til að gera
tilraun um kosningabandalag til
fjöguma ára og yrði framhaldið
ákveðið að þeim liðnum. Það verði
aðeins gert á landsfundi.
Ámi segir að sér virðist Ijóst að
Samfylkingin geti ekki orðið sam-
nefnari vinstri manna um stefnuna í
utanríkismálum, umhverfismálum og
afstöðuna til einkavæðingar opin-
berrar þjónustu og fyrirtækja.
■ Hvert stefnir/42
Morgnnblaðið/Kristinn
Lítil virðing er borin fyrir gróðri í borginni eins og skemmdarverk
helgarinnar vitna um.
Tveir
handtekn-
ir í Dan-
mörku
ÍSLENDINGARNIR tveir,
sem eftirlýstir voru í Evrópu í
gegnum Interpol vegna rann-
sóknar á stóra fíkniefnamál-
inu, voru handteknir af
dönsku lögreglunni síðdegis á
sunnudag. Þeir voru hand-
teknir saman í miðborg Kaup-
mannahafnar og úrskurðaðir í
ellefu daga gæsluvarðhald þai'
í gær.
Samkvæmt upplýsingum
frá alþjóðadefld ríkislögreglu-
stjóra verður næsta skref að
flytja fangana til íslands.
Morgunblaðið hefur upplýs-
ingar um að það verði gert í
dag.
Islendingarnir, sem eru 27
og 36 ára, höfðu verið eftirlýst-
ir í á aðra viku áður en þeir
náðust. Upplýst hefur verið að
annar þeirra er starfsmaður
Samskipa í Danmörku. Sex
karlmenn á þrítugsaldri sitja í
gæsluvarðhaldi hérlendis í
þágu rannsóknar málsins og
eru því gæsluvarðhaldsfang-
amir samtals orðnh' átta.
Rannsókn málsins stendur
yfir af fullum þunga hjá lög-
reglunni í Reykjavík og hjá
efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra.
Skemmdar-
vargar
mölva stór
blómaker
SKEMMDARVERK hafa verið
unnin á stórum blómakerum á
Skólavörðustíg síðastliðnar tvær
helgar. Snemma á sunnudags-
morguninn var leirker á horni
Skólavörðustígs og Baldursgötu
mölvað svo mold, sumarblóm og
leirbrot dreifðust um gangstétt-
ina.
Þar sem kerið vegur hátt á
annað hundrað kíló þarf veru-
lega að hafa fyrir því að vinna á
því. Svo virðist sem skemmdar-
vargarnir hafi velt því um koll og
brotið það.
Starfsmenn Reykjavíkurborg-
ar komu kerinu fyrir í sumar til
að fegra umhverfíð , sem og öðru
keri á horni Týsgötu og Skóla-
vörðustígs. Það var mölvað á
sama hátt fyrir rúmri viku.
Samkvæmt upplýsingum frá
Skrúðgörðum Reykjavíkur er al-
gengt að skemmdarverk séu unn-
in á niunum sem komið er fyrir í
fegrunarskyni og er áberandi
hversu lítil virðing er borin fyrir
gróðri í borginni. Þannig eru
lauftré oft brotin og blóm í beð-
um rifin upp, svo dæmi séu tekin.
Sérblöð í dag
^tsb)n
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Heimili
l\SIII(,\ll{
Lillestrom gerir Grétari
Hjartarsyni tilboð / B1
Bjarni Jóhannsson næsti
þjálfari nýliða Fylkis / B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is