Morgunblaðið - 28.09.1999, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Góður árangur fslendinga í samkeppni ungra evrópskra vísindamanna
Vetrarbrautar-
þyrping verðlaunuð
Páll Marvin Jónsson fararstjóri hópsins, Páll Melsted og Sverrir
Guðmundsson, en þeir hlutu fyrstu verðlaun í keppni ungra evr-
ópskra vísindamanna ásamt Tryggva Þorgeirssyni, sem stundar
nám í Þýskalandi og kom ekki heim á sunnudaginn með félög-
um si'num.
UNGUM íslenskum vísinda-
mönnum voru á sunnudag af-
hent fyrstu verðlaun í sam-
keppni ungra evrópskra vís-
indamanna, sem fram fór í
Þessalóníku á Grikklandi.
Keppnin er haldin á vegum
mannauðsáætlunar ESB og
voru lögð fram 57 verkefni frá
meira en 30 löndum.
Þeir sem kepptu fyrir íslands
hönd voru Páll Melsted, Sverrir
Guðmundsson og Tryggvi Þor-
geirsson, en Páll er nemandi í 6.
bekk í Menntaskóianum í
Reykjavík og Sverrir og
Tryggvi eru stúdentar þaðan
frá því í vor. Verkefnið var unn-
ið undir handleiðslu stjörnu- og
eðlisfræðikennara þeirra þaðan,
Vilhelms Sigfúsar Sigmunds-
sonar. Þeir tóku þátt í keppn-
inni í kjölfar sigurs í Hugvísis-
keppninni í vor, en það er
keppni ungra vísindamanna á
íslandi.
Sýna hvemig hægt er að nýta
fyrirliggjandi upplýsingar
Verkefni þeirra nefnist „The
Galaxy Cluster MS1621 +2640“
og fjallar um vetrarbrautar-
þyrpinguna MS1621 +2640.
„Islenskir stjörnufræðingar,
þeirra á meðal Vilhelm leiðbein-
andinn okkar, höfðu verið að
skoða þessa vetrarbrautarþyrp-
ingu með Norræna stjörnu-
sjónaukanum á Kanaríeyjum,"
sagði Páll Melsted í samtali við
Morgunblaðið.
„Kanadískir vísindamenn
höfðu verið að skoða sömu
þyrpingu og við fundum gögn
frá þeim á Netinu og notuðum
þau ásamt þeim gögnum sem
Einar H. Guðmundsson prófess-
or og forsvarsmaður íslenska
hópsins hafði látið okkur fá.
Stjörnufræðingar safna gífur-
lega miklum upplýsingum við
rannsóknir með stjörnukíkjum,
sem þeir nota svo ekki allar.
Þessar upplýsingar eru samt
fyrir hendi og verkefnið okkar
sýndi hvernig hægt er að nýta
þær. Þær er að finna á Netinu
og er mjög áhugavert fyrir
nemendur eða þá sem hafa
stjörnufræði að áhugamáli að fá
að komast inn í ferli þar sem
hægt er að vinna með gögn úr
stórum sjónaukum án þess að
þurfa að komast sjálfír í slíkan
sjónauka, því það er bæði dýrt
og fíókið að fá aðgang að
þeim.“
I niðurstöðu dómnefndar um
verkefnið segir meðal annars:
„Hópurinn sýndi frábæran
skilning á stjarneðlisfræðileg-
um gögnum og greiningarað-
ferðum þeirra auk hinna grund-
vallandi stjarneðlisfræðilegu
spurninga sem þeir varpa fram.
Vinna þéirra sýnir hina miklu
möguleika nýjustu gagna-
vinnsluaðferða og Netsins.“
Páll segir keppnina og ferð-
ina í heild hafa verið stór-
skemmtilega. „Við erum mjög
ánægðir með ferðina og það er
mikill heiður að fá þessi verð-
laun. Þetta er góð hvatning og
kemur sér örugglega vel fyrir
okkur, til dæmis þegar við för-
um að sækja um háskóla erlend-
is.“
Sigríður Dúna hitti Hillary Clinton í Washington
Strobe Talbott kem-
ur í stað Albright
Aðstoðarutanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, Strobe Talbott, kemur
hingað til lands á ráðstefnuna um
konur og lýðræði við árþúsunda-
mót sem haldin verður í Borgar-
leikhúsinu í Reykjavík hinn 8. til
10. október nk. að sögn Sigríðar
Dúnu Kristmundsdóttur, formanns
framkvæmdanefndar ráðstefnunn-
ar. Mun Talbott flytja ávarp í upp-
hafi ráðstefnunnar á föstudeginum
í stað Madeleine Albright, utanrík-
isráðherra Bandai-íkjanna.
„Ég fékk skilaboð um það að Al-
bright þætti ákafiega leiðinlegt að
geta ekki komið á ráðstefnuna en
að hún hefði mikinn áhuga á henni
og þeim málefnum sem hún ætti að
fjalla um,“ segir Sigríður Dúna, en
Albright verður á ferðalagi með
Bill Clinton, forseta Bandaríkj-
anna, á meðan ráðstefnan stendur
yfir í Reykjavík.
Stuðningur við kvennabaráttu
Hillary Rodham Clinton, for-
setafrú Bandaríkjanna, tilkynnti
hins vegar komu sína til Islands í
ræðu á samkomu The National
Democratic Institute, frjálsra fé-
lagasamtaka sem tengjast
Demókrataflokknum og fjalla um
mannréttindi og lýðræði, á fimmtu-
dagskvöld í Washington.
„Á samkomunni tók hún við við-
urkenningu samtakanna fyrir
framlag sitt til kvennabaráttu og
notaði tækifærið í leiðinni til að
segja frá ráðstefnunni í Reykjavík.
Hún sagðist fara til íslands eftir
tvær vikur og tók fram að hún
hlakkaði mjög til.“
ísland kjörinn vettvangur
fyrir ráðstefnuna
Sigríður Dúna kveðst í samtali
við Morgunblaðið hafa talað við
Hillary Clinton dágóða stund á
fimmtudagskvöld og sagði það hafa
verið skemmtilegt að hitta hana.
„Hillaty Clinton taldi að ísland
væri kjörinn vettvangur fyrir ráð-
stefnuna um konur og lýðræði við
árþúsundamót af mörgum ástæð-
um en fyrst og fremst nefndi hún
Madeleine Albright, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Hillary Clinton, forsetafrú.
„Síðan átti ég fund með starfs-
mannastjóra hennar og öðrum sem
koma að skipulagningu ráðstefn-
unnar. Það er ljóst að enn er eftir
að hnýta dálítið af lausum endum
og við sem erum að leggja loka-
hönd á ráðstefnuna á Islandi get-
um búist við breytingum á dagskrá
fram á síðustu stundu.“
Eins og sakir standa er gert ráð
fyrir því að Hillary Clinton komi til
Islands á föstudeginum 8. október
en haldi af stað heim snemma á
sunnudeginum hinn 10. október.
F1 Stækkaft
svæði
Stykkishólmur
Fyrirhuguð leið -
um Vatnaheiði
Strobe Talbott, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna.
að það væri vegna langrar lýðræð-
ishefðar Islendinga, sögu kvenrétt-
inda á íslandi og góðrar stöðu
kvenna í íslensku þjóðfélagi," segir
Sigríður Dúna.
Undirbúningur gengur vel
Sigríður Dúna segir að lokum að
undirbúningur ráðstefnunnar
gangi vel og kveðst vera búin að
fara til allra þeirra landa sem
senda fulltrúa á ráðstefnuna og
tala þar við formenn vinnuhópa,
ráðherra sem koma að ráðstefn-
unni og fleiri.
„Undirbúningsvinna þeirra er í
fullum gangi,“ segir hún. „Við er-
um hins vegar enn að finna fram-
kvæmdaaðila að verkefnum ráð-
stefnunnar, þ.e. aðila sem geta lagt
fram fjármagn og þekkingu til að
fjármagna verkefnin í þátttöku-
löndunum.“
10 km
Fallist á lagn-
ingu vegar yfír
Vatnaheiði
SKIPULAGSSTOFNUN hefur
fallist á gerð nýs vegar yfir Vatna-
heiði og endurbætts vegar yfir
Kerlingaskarð á Snæfellsnesi eftir
að hafa metið umhverfisáhrif þess-
ara fyrirhuguðu framkvæmda. Það
er nú í höndum sveitarstjóma á
svæðinu að velja annan hvom kost-
inn, en vegurinn verður lagður
bundnu slitlagi og er áætlað að
framkvæmdir hefjist fyrri hluta
ársins 2000 og að þeim ljúki árið
2002.
Skipulagsstjóri ríkisins tók málið
fyrst fyrir í vor en úrskurðaði þá að
nauðsynlegt væri að ráðast í
frekara mat á umhverfisáhrifum
þar sem ekki væri ljóst hvor kostur-
inn væri fýsilegri. I niðurstöðu
skipulagsstjóra nú segir að báðir
framkvæmdakostimir, þ.e. nýr 16,5
km vegur yfir Vatnaheiði og endur-
bættur 17,4 km langur vegur yfir
Kerlingaskarð, muni hafa jákvæð
áhrif á samgöngur um norðanvert
Snæfellsnes.
Stofnunin setur hinsvegar þau
skilyrði fyrir framkvæmdunum að
það votlendi sem raskist við fram-
kvæmdimar verði endurheimt og
Iokið verði við fornleifakönnun á
áhrifasvæði Kerlingaskarðsvegar.
Að mati skipulagsstjóra munu
framkvæmdimar ekki hafa í för
með sér umtalsverð áhrif á um-
hverfi, náttúruauðlindir eða samfé-
lag ef farið verður eftir þessu skil-
yrðum og öðrum tilmælum.
Verkið boðið út í lok ársins eða
byrjun næsta árs
Vegurinn yfir Vatnaheiði verður
90 metram neðar miðað við hæð yfir
sjó en endurbættur vegur yfir Kerl-
ingaskarð. í niðurstöðu skipulags-
stjóra segir að vegurinn yfir Vatna-
heiði verði vegtæknilega öraggari
og ódýrari í framkvæmd en vegur
yfir Kerlingaskarð, sem sé hinsveg-
ar betri kostur með tilliti til áhrifa á
náttúrafar. Áætlaður kostnaður við
gerð vegar yfir Vatnaheiði er um
460 milljónir króna, en 525 milljónir
við Kerlingaskarð.
Að sögn Birgis Guðmundssonar,
umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á
Vesturlandi, leggur Vegagerðin til
að leiðin yfir Vatnaheiði verði valin.
Hann sagðist ánægður með að búið
væri að fella úrskurð í málinu og
næsta skref væri að fá framkvæmd-
arleyfi hjá viðkomandi sveitarfélög-
um. Hann sagði að ekki væri búið
að fastsetja hvenær verkið yrði boð-
ið út, en taldi líklegt að það yrði í
lok þessa árs eða byrjun þess
næsta, en ef úrskurðurinn yrði
kærður þyrfti að bíða eftir úrskurði
ráðherra áður en nokkuð yrði gert.
Kærafrestur vegna úrskurðar
skipulagsstjóra rennur út 3. nóvem-
ber nk.