Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 47
sín. Þar áttum við ógleymanlegar
stundir. Við þökkum Ingvari fyrir
einlæga vináttu og tryggð. Minning-
in um góðan dreng lifir. Við vottum
Sigríði, börnum og fjölskyldum
þen-ra okkar innilegustu samúð.
Jóhann, Lárus, Sigurður
og eiginkonur.
Einn góðvinur minn frá unga
aldri er fallinn í valinn og í huga
margra er sem dregið hafi fyrir
sólu. Fyrst af öllu er mér hugsað til
fjölskyldunnar, til Sigríðar og til
sona þeirra og dætra og barna
þeirra.
Þegar ættarhöfðinginn Ingvar
Helgason hverfur af sviðinu verða
kaflaskipti í lífi þessarar fjölskyldu,
með nýtt óskrifað blað til að skrá
áfram lífssöguna; þannig er lífið.
Sumir menn eru þeirrar náttúru
að þeir auðga líf annarra með til-
vei-u sinni og gefa frá sér lífsorku
sem endist og endist. Þannig maður
var Ingvai- Helgason.
Ingvar var gæddur miklum per-
sónutöfrum og frásagnarmáti hans
var ógleymanlegur þeim sem
kynntust honum náið. Hann var
hugljúfur en jafnframt fyrirferðar-
mikill í bestu merkingu þess orðs,
hógvær og hjálpsamur þeim sem
voru þurfandi, umburðarlyndur og
skilningsríkur gagnvart misbrest-
um annarra, en gat verið skemmti-
lega þvermóðskufullur í kappræð-
um um viss dægurmál.
Ingvar var mikill kaupsýslumað-
ur og starfið veitti honum lífsfyll-
ingu. Gamlir bílar tóku á sig töfra-
blæ þegar hann sagði frá liðnum at-
burðum. Og þegar hann talaði um
sveitakallana úti á Skógarströnd
var eins og hann ætti í þeim hvert
bein, þekkti þá alla með nafni og
vissi upp á hár hvernig búskapurinn
hjá þeim gekk og hvernig þeir væru
til heilsunnar.
Hann stjórnaði fyrirtæki sínu af
röggsemi og eins og gerist á stór-
skipum hafði hann sér við hlið og
til fulltingis traustan lífsförunaut
sinn, Sigríði konu sína, og trausta
og samhenta áhöfn, sem öll naut
þess að hafa valist í svo gott skips-
rúm sem raun var á. Hann naut
virðingar allra sem hjá honum
störfuðu, og hann var mikill ham-
ingjumaður.
Einu sinni fyrir óskaplega mörg-
um árum gengum við Ingvar saman
frá Reykjavík og alla leið upp að
Vífilsstöðum; vorum að koma af
balli og áttum ekki krónu og komið
fram undir morgun. I leiðinni rædd-
um við um pólitík og ég hef aldrei
skilið hvernig okkur tókst að halda
þessum umræðum gangandi þessa
löngu leið, en áður en við vissum af
vorum við komnir á leiðarenda.
Þær eru margar endunninning-
arnar sem ég geymi um þennan
hugljúfa vin minn, sem ekki verða
rifjaðai' upp hér. Til hans var gott
að leita til að hlaða sálarorkuna;
alltaf til staðar sami sterki og
ósvikni straumurinn; lífskraftur
sem hann miðlaði öðnjm ómeðvitað.
Eg sakna þín, kæri vinur. Þakka
þér samfylgdina.
Bragi Jósepsson.
Vinur minn og starfsfélagi til
margi'a ára er fallinn frá. Mér er
efst í huga söknuður, en jafnframt
þakklæti, fyrir ógleymanleg kynni.
Ingvar Helgason var stórbrotinn og
sérstakur persónuleiki, sem fáum er
til jafnað. Hann var gæfumaður í
sínu lífi og umsvifamiklum viðskipt-
um, enda var hans einkunnarorð,
heiðarleiki.
í viðskiptum, sagði hann, þarf oft
að vera ákveðinn og harður, en um-
fram allt verður heiðarleiki og sann-
girni að vera í fyrirrúmi, allt annað
er blindófæi't. Ég er sannfærður
um að slíkt viðhorf hefur gert gæfu-
dísirnar honum hliðhollai'.
Saga hans er ótrúlegt ævintýri.
Saga manns sem með dugnaði og
útsjónarsemi vinnur sig upp úr
engu, í allt.
Snemma mun hafa vaknað hjá
honum áhugi á verzlun, því af því
sem móðir hans sagði mér, þá ætl-
aði hann sér strax á barnsaldri að
verða stærsti heildsali á landinu.
Það sýnist mér hafi ræst.
Þegar ég réðst í vinnu hjá honum
í byrjun janúar 1960, sem fyrsti
starfsmaður, þá voru umsvifin
fjarska lítil. Skrifstofan var eitt her-
bergi á Ránargötu 18 í kjallara.
Ingvar var þá í vinnu hjá Innkaupa-
stofnuninni. Síminn var 19655 með
millisambandi heim til hans á Lyng-
hagann. Lítið var hann notaður og
þá sjaldan er hringt var, var það
Sigríður að athuga hvernig gengi,
en þau hjón voru alltaf einstaklega
samhent.
Fyrsta daginn gerði ég ekkert
nema að ná í póstinn í box 27 og
flokka bréf. Var það mest frá Junior
Chamber, en Ingvar var þá formað-
ur þeii’ra samtaka og sá fyrsti í röð-
inni.
Ingvar sá fljótt að ekki varð við
það unað að fá ekki póst. Hann
kom því með nokkur erlend tímarit
og sagði: „Hér er fullt af allskonar
auglýsingum, nú skaltu skrifa
þeim öllum, kæri minn, og biðja
um verð og vörulista," hvað ég
gerði og hafði þá fullt að gera, því
ekki var ég flinkur á ritvélina. í
þessum auglýsingum var ein frá
Japan um Datsun Bluebird-bíla,
sem voru farnir að vekja athygli.
Þeim var líka skrifað, meir í gríni
en alvöru, því verðið á þeim hingað
komnum var allt of hátt á þeim
tíma, og engin leið að selja svo
dýra. En það átti eftir að breytast
verulega. En þessar skriftir báru
árangur og nú barst bráðlega fullt
af pósti. Milli bréfaskrifta var
starfið m.a. fólgið í að selja pípu-
hreinsara, sandfötur og skóflur
o.fl. í verzlanh. Gekk það upp og
ofan, því að ég var óvanur sölu-
mennsku. Ef tókst að selja nokkur
dúsin, þá var allt talið í dúsinum,
af hvoru, þá var deginum bjargað.
Það er hreyfing á þessu hjá okkur,
sagði Ingvar.
I mars, er hann fór utan á kaup-
stefnu, þá var skrifstofunni lokað og
ég fékk mér vinnu annars staðar á
meðan.
Hjá sumum sem skrifað var, var
pantað, en aðallega pantaði hann
vörur á vörusýningum erlendis,
mest frá austantjaldslöndum, en
þar var hægt að ná góðum kaupum,
ef lipurð vai' beitt í samningum og
hana skorti ekki.
I september 1963 gerir hann á
kaupstefnu í Leipzig glannaleg
kaup, að flestra áliti, með kaupum á
nokkur hundruð, að mig minnh' 400,
Trabant-bílum. Austur-þýskir bílai'
höfðu verið fluttir inn nokkrum ár-
um áður og ekki reynst vel og taldir
alveg vonlaush'. Ekki bætti það úr,
að þessi var sagður úr plasti.
Þriggja bíla sýnishorn kom fyrir jól.
A Þorláksmessu sótti Ingvar einn
þeirra í afgi'eiðslu Eimskips í
Óskjuhlíð. Enginn kunni neitt á
þessa bíla, en það var þó vitað, að
olíu varð að setja í bensínið. Hve
mikið var óráðið og í alfall sett nóg,
sem varð allt of mikið. Bíllinn
brældi og reykti svo mikið að allt
hvarf í reyk og gekk auk þess illa,
því olían bleytti kertin.
Eftir Miklubrautinni heim í Von-
arland hafðist það í reykjarskýi.
Eftir því sem Ingvar sagði síðar, þá
voru þetta ekki bjartsýnisjól. Hann
sagði við Sigríði. „Kona, nú er ég
kominn á hausinn og það eru 400
svona á leiðinni.“
En þetta fór allt á bezta veg.
Trabantinn reyndist mjög vel, var
afai' ódýi' og seldist vel. I samvinnu
við bílasöluna Bílaval seldust tíu bíl-
ar á dag, sem var rífandi gangur og
talið á þeim tíma nærri ómögulegt.
Þetta var upphafið á bílaveldi Ingv-
ars.
Síðar bættist Datsun við, svo Su-
baru og margar fleiri tegundir.
Hvernig umboðið fyi’ir Datsun
kom til, er löng saga og verður ekki
sögð hér. Margir voru um boðið, en
Japanir og umboðsmaður þeirra í
Evrópu vildu Ingvar sem umboðs-
mann og engan annan. Ég er sann-
færður um, að bréfið frá 1960, svo
og ævintýralegur gangur með
Trabantinn, hefur vakið athygli
þeirra, og þar reyndust þeh' hafa
valið réttan mann.
Húsnæði starfseminnar hefur
verið á nokkium stöðum og jafnan
orðið að flytja í annað stærra, er
umfang óx. Alltaf var þess gætt að
hafa það ekki stærra en viðráðan-
legt var.
Fyrst var skrifstofan á Ránar-
götu 18, sem fyrr segir, með
vörulager í kjallara á Vífilsstöðum,
sem síðar var í Vonarlandi. Af Rán-
argötunni var flutt á Tryggvagötu 4
á efri hæð hjá Allianee, þá að
Tryggvagötu 8, HB-húsið gengið
inn frá Vesturgötu, þaðan í Vonar-
land. Síðan var bíladeildin flutt í
Rauðagerðið, en leikföng og gjafa-
vörur voru áfram í Vonarlandi.
Loks var öll starfsemin flutt í nýtt
glæsihúsnæði við Sævarhöfðann.
Verzlunarsaga Ingvars Helga-
sonai' er engu lík, hún er íslenzki
draumurinn sem færður er til raun-
veruleikans. Þar sem upphafið í
kjallarakompu við Ránargötu er
orðið að stórveldi í nokkur þúsund
fermetra salarkynnum við Sævar-
höfðann. Þar hefur gæfa hans og
dugnaður ráðið miklu, en mestu
óbilandi trú og samstaða eiginkonu
hans, sem stóð við hlið hans og
studdi; jafnt í velgengni sem mót-
byr. An hennar hefði draumurinn
ekki ræst.
Góðar og fjölmargar minningar
frá samstarfi við þau hjón eru ótelj-
andi og of langt hér upp að telja.
Ég og kona mín þökkum fyrir
vináttu þeirra beggja um langa
liðna tíð og vottum henni, börnum
og afkomendum okkar innilegustu
samúð við andlát Ingvars.
Agnar J. Levy.
Að Ingvari Helgasyni gengnum
hefur myndast vandfyllt skarð í
þann hóp manna sem byggt hafa
upp það umhverfi sem við þekkjum
í íslenska bílaheiminum í dag. Það
er ekki hallað á neinn þótt því sé
haldið fram að þetta umhverfi væri
allt annað en það er ef Ingvars
Helgasonar hefði ekki notið við.
Hann átti sinn þátt í að móta þetta
umhverfi með innflutningi ódýrra
bíla þegar íslenskt viðskiptalíf var
að losna úr viðjum hafta og bíllinn
varð æ ríkari þáttur í daglegu lífi
fólks.
Við áttum samleið í rúma tvo
áratugi. Hann tók mér ákaflega
ljúflega þegar ég var að byrja að
skrifa um bíla, og það var oftar en
ekki, sem góðlátleg athugasemd
um eitthvað sem ég hafði skrifað,
varð tilefni til lengri viðræðna um
daginn og veginn. Þetta samband
þróaðist í áranna rás og nú hin síð-
ari ár, þegar hann hafði dregið sig
að hluta úr daglegri stjórn fyrir-
tækja sinna, þá var meiri tími til
slíkra viðræðna og það voru góðar
stundir sem við áttum saman á
þægilegri skrifstofu hans við Sæv-
arhöfðann, hann tróð sér í pípu og
rifjaðar voru upp sögur frá liðnum
tíma. Svo hafði um mælst að við
myndum í sameiningu í sumar
setja á blað nokkur slík minningar-
brot, og vorum byrjaðir að leggja
grunninn að því þegar þrekið fór
að þverra og þessu varð að slá á
frest. Við komumst þó það langt að
fastsetja hvaða kafla við myndum
byi'ja á, en það var frásögn af því
þegar þau hjónin fóru fyrstu ferðir
sínar til þáverandi Austur-Þýska-
lands og upphaf bílainnflutnings
þaðan. Þetta voru ógleymanlegar
lýsingar, sem ekki verða sagðar á
þessum vettvangi og verða eflaust
aldrei sagðar. Eftir standa minn-
ingar um þennan ljósklædda og
vingjarnlega mann með sitt glettna
bros og þægilegt viðmót, mann
sem lagði sín lóð á vogarskálarnar
til að gera bílinn að raunverulegri
almenningseign hér á landi.
En nafn Ingvars Helgasonai'
stendur eftir í glæsilegu fyrirtæki
þar sem fjölskyldan stendur sam-
huga um reksturinn, en fátt var
honum hugleiknara en þáttur fjöl-
skyldunnar í rekstrinum og það var
honum mikið ánægjuefni að fylgj-
ast með því þegar barnabörnin
voru einnig farin að leggja þar
hönd á plóginn. Bílgi'einin á Islandi
hefur misst góðan liðsmann þar
sem Ingvar Helgason var, en meiri
er missirinn fyrir Sigriði og börnin
og sendi ég þeim hugheilar samúð-
arkveðjur.
Jóhannes Reykdal.
Ég minnist þess, einn sólskinsdag
fyrir mörgum árum, að ung og
glæsileg hjón komu gangandi með
dálítinn drenghnokka á milli sín.
Þau voru að kaupa sér hús við Soga-
veginn. Það var mikið happ fyrir
smáíbúðahverfið og íbúa þess. Þessi
hjón með stóra barnahópinn sinn
hafa síðan þetta gerðist sett svip á
umhverfið í Sogamýrinni. Börnin
átta uxu öll úr grasi og urðu nýtir
borgarar þjóðfélagsins, hvert á sínu
sviði. Böiti nágrannanna uxu einnig
úr grasi og nutu oft velvilja og gest-
risni fólksins á Vonarlandi. Húsið
þeirra sem svo nefndist, var upphaf-
íega byggt á grýttum harðbala. En
fljótlega var hafist handa við að
rækta skóg og skrautblóm sem
prýða og skýla umhverfinu. í dag
kveðjum við Ingvar Helgason,
þennan ágæta höfðingja sem á sinn
hógværa hátt lét margt gott af sér
leiða og reyndist ætíð nágrönnum
sínum vel. Við sem nutum örlætis
hans og góðvildar, viljum þakka fyr-
ir samfylgdina á liðnum árum. Frú
Sigríði og afkomendum vottum við
samúð okkai'.
Oddrún og fjölskyldan
á Sogavegi 78.
armálum. það kom mér hins vegar á
óvart hversu vel hann var að sér í
skógræktarfræðunum og vissi hvað
hann vildi í þeim efnum. Ekkert var
til spai'að í skógræktinni eins og ár-^t
angurinn sannar.
Helgi sagði mér eitt sinn að bíll
hefði í-unnið af efra planinu og niður
brekkuna og pabbi sinn hefði ekki
spurt um skemmdir á bílnum held-
ur hvort trén hefðu skemmst. Fleiri
sögur eru til af svipuðum toga.
Þrátt fyi’ir stutt kynni af Ingvari
Helgasyni, er erfitt að sætta sig við
lát hans. Þegar góðu samstarfi lýk-
ur og aðeins minningin um ánægju-
legt samstarf lifir, við elskulegan
mann sem í raun var fj'rirmyndin,
faðirinn sem ekkert aumt mátti sjá, f
faðir góðra verka, faðir elskunnar,
kærleikans, heiðarleikans, dugnað-
arins, þrautseigjunnar, fjölskyld-
unnar, vinanna og samstarfsmann-
anna.
Hann var fyrirmynd okkar í dag-
legu lífi. Þökk fyrir það. Ég votta
Sigríði, fjölskyldunni og öðrum ætt-
ingjum mína dýpstu samúð.
F. h. starfsmanna Skógræktar rík-
isins,
Ólafur Oddsson.
Kveðja frá Starfsmannafélagi
I.H., B.H. & Bjarkey
Það er sorg í hjörtum okkar,
Ingvar Helgason, forstjóri okkar, er
látinn. Það er mikil eftirsjá að slík-
um manni sem Ingvar var og tel ég
það hafa verið forréttindi í lífinu að
hafa kynnst honum. Þær eru marg-
ar góðar stundirnar sem við starfs-
fólkið höfum átt með Ingvari og
konu hans, frú Sigríði. Jólaböllin
voru hápunktur alls, bæði hjá þeim
hjónum og fjölskyldum okkar þar
sem allir komu og skemmtu sér vel.
Hún var mikil tilhlökkunin hjá
börnunum þegar vai- farið að líða að
jólaballinu og einmitt þama leið
Ingvari best með allan hópinn í
kringum sig glaðan og ánægðan.
Með þessum fátæklegu orðum
viljum við þakka fyrir það sem hann
gerði með okkur og fyrir okkur. Við
biðjum algóðan Guð að taka vel á
móti honum og styrkja eiginkonu
hans, sem og aðra ættingja og
aðstendur í þeirra miklu sorg.
Guðmundur Símonarson.
Kveðja frá Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur
I dag kveðjum við góðan velunn--^
ara okkar hjá Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Ingvar og kona hans,
Sigríður, og sonur þeirra Júlíus Víf-
ill hafa í mörg ár styrkt nefndina
með því að færa okkur stórgjafir
fyrir hver jól. Það má segja að
koma þeirra fyrir jólin hafi táknað
upphaf jólahátíðarinnar hjá nefnd-
inni og skjólstæðingum hennar.
Gjafir þeirra voru ómetanlegar fyr-
ir nefndina. Mörg hundruð fjöl-
skyldur í Reykjavík nutu stórhugar
og velvilja þeirra um jólahátíðina.
Það er mikill sjónarsviptir að if
Ingvari Helgasyni. Við vottum eig-
inkonu hans, bömum og fjölskyld-
um þeirra innilega samúð því miss-
irinn er mikill.
F.h. Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur,
Ásgerður J. Flosadóttir
formaður,
Unnur Jónasdóttir,
fráfarandi formaður.
Sumt finnst manni ekki geta
gerst. Það á við um andlát þess
merka manns sem við nú kveðjum. I
daglegu amstri snýst allt um að
leysa viðfangsefnin á sem skjótast-
an hátt og bestan máta, þá hugsar
maður ekki um mikilvægi stundar-
innar sem þó er það sem eftir stend-
ur, þegar upp er staðið.
Leiðir okkar Ingvars Helgasonar
lágu saman fyrir nokkrum ámm,
með samstarfi sem byggðist á gagn-
kvæmum skilningi á mikilvægi
skógræktar.
Frá fyrstu tíð vakti það aðdáun
mína og virðingu hversu orð, at-
hafnir, traust og virðing voru í há-
vegum höfð í mannlegum samskipt-
um hjá Ingvari Helgasyni og fjöl-
skyldu. Framkoma og persónutöfr-
ar Ingvars einkenndust af ást,
hlýju, ákveðni og athafnagleði. Ég
kunni því afar vel hversu skýr og af-
dráttarlaus samskiptin voru. Ekki
þurfti ég að velkjast í vafa um hvert
hugur Ingvars stefndi í skógrækt-
Blómastofa
Friðftnns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
%
c-
LEGSTEINAR
I rúmgóðum sýningarsölum okkar
eigum við ávallt fyrirliggjandi margar
gerðir legsteina og minnisvarða.
Hvergi meira úrval. Yfir 45 ára
Verið velkomin til okkar,
eða fáið myndalista.
jj S.HELGASON HF
STEINSMIDJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP. SÍMI 557 6677 / FAX 557 8410