Morgunblaðið - 16.10.1999, Side 18

Morgunblaðið - 16.10.1999, Side 18
18 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Ahrif stórframkvæmda á þenslu og verðbólgu Hefja verður framkvæmdir í réttu efnahagsástandi Hvaða áhrif munu fyrirhugaðar stórfram- kvæmdir á Austurlandi, bygging álvers á Reyðarfírði og Fljótsdalsvirkjun hafa á þjóðhagsspá, þar sem gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist við virkjunina á miðju næsta ári? Morgunblaðið leitaði svara við þeirri spurningu hjá forstjóra Þjóðhagsstofnunar og aðalhagfræðingi Seðlabanka Islands. ÞJÓÐHAGSSPÁ gerir ráð fyrir 2,7% hagvexti á næsta ári og um 2% hagvexti að jafnaði á árunum 2001-2004. Spáin miðar við „mjúk- lendingu" hagkerfisins miðað við þá þenslu sem einkennir hagkerfíð í dag. Ein af meginforsendum þessar- ar spár er að ekki verði ráðist í aðr- ar stóriðjuframkvæmdir á tímabil- inu en þær sem þegar hefur verið samið um, þ.e. stækkun Norðuráls um 30 þúsund tonn og framkvæmdir henni tengdar, t.d. Vatnsfellsvirkj- un. Að sögn Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóðhagsstofnunar og for- manns samráðsnefndar íslenskra stjómvalda, íslenskra fjárfesta, Landsvirkjunar og Hydro Alumini- um, verður tekin ákvörðun í byrjun júní á næsta ári hvort ráðist verður í framkvæmdir álvers á Reyðarfirði og Fljótsdalsvirkjun. Hafa veruleg þjóðhagsleg áhrif á framkvæmdatíma Ef af framkvæmdunum verður munu þær hefjast skömmu síðar, eða þá um sumarið, sem er forsenda fyr- ir því að virkjunin geti verið tilbúin fyrir lok árs 2003 þegar álverið á að hefja rekstur. Árið 2000 hefjast íramkvæmdir fyrst og fremst við jarðgöng virkjunarinnar, sem eiga að vera um rúmlega 30 km löng en reiknað er með að framkvæmdir hefjist að fullu bæði við virkjunina og álverið árið 2001. „Fljótsdalsvirkjun og álver á Reyð- arfírði eru ekki inni í þjóðhagsáætlun vegna þess að það hefur ekki verið tekin ákvörðun um byggingu álvers- ins á Reyðarfirði og ekki er ætlunin að undirrita samning þess efnis fyrr en í byrjun júní á næsta ári. Fram- kvæmdimar skipta hins vegar mjög litlu máli fyrir árið 2000 vegna þess að þær hefjast ekki nema að mjög litlu leyti á því ári og kostnaður við þær verða innan við milljarð króna svo það hefur mjög lítil áhrif í þjóð- hagslegu samhengi,“ segir Þórður. Arið 2001 má hins vegar búast við verulegum þjóðhagslegum áhrifum af framkvæmdunum, verði af þeim, segir Þórður. Hann segir að standist þjóðhagsáætlun, en hún gerir ráð fyrir 2% hagvexti á framkvæmda- tímanum, árin 2001-2004, muni framkvæmdirnar væntanlega auka hagvöxt um 1% á þeim árum. „3% hagvöxtur er líklega nálægt því að vera jafnvægishagvöxtur í ís- lenska hagkerfinu þannig að það ætti að vera svigrúm fyrir slíkan hagvöxt og slíkar framkvæmdir mið- að við að þjóðhagsáætlun standist. Þensluhættan ætti að vera liðin hjá á þeim tíma ef þjóðhagsspá gengur eftir,“ segir Þórður. Aðspurður segir hann að gangi þjóðhagsspá ekki eftir og meiri þensla verði í þjóðfélaginu en spáin geri ráð fyrir, sé mikilvægt að hafa efnahagsástandið í huga þegar ákvörðun verður tekin um fram- kvæmdirnar í júní á næsta ári. Best að hefja fram- kvæmdir í slaka Már Guðmundsson, aðalhagfræð- ingur Seðlabanka Islands, segir að tímasetning jafnstórra framkvæmda og um ræðir skipti verulegu máli. „Við vitum ekki hvert ástandið í ís- lenskum efnahagsmálum verður árið 2001. Auðvitað hafa menn efasemdir um að það hægi jafnmikið á hagvext- inum árið 2000 og Þjóðhagsstofnun er að spá, en við vonum að það hægi eitt> hvað á honum. Það er verið að herða að hér í peningamálum og í ríkisfjár- málum og það getur smám saman farið að skila sér í minni hagvexti sér- staklega á árinu 2001. Þá þarf það ekki að vera slæmur tími til að fara út í svona framkvæmd,“ segir Már. Hann segir að besti tíminn til að hefja svo miklar framkvæmdir sé þeg- ar slaki er á hagkerfinu. „Það er alls ekki slaki í ár, ólíklegt að svo verði á næsta ári nema miklar breytingar verði á ástandinu á næstu vikum eða mánuðum, og við vitum ekld hvemig ástandið mun verða árið 2001.“ Már segir að verst sé að hefja slíkar fram- kvæmdir þegar mikil þensla sé í þjóð- félaginu og skortur á vinnuafli. ■Œuai Doktor í eðlisfræði •RAGNAR K. Ásmundsson varði doktorsritgerð sína í yfirborðseðlis- fræði við Háskólann í Lundi 10. september sl. Ritgerðin ber titilinn „Vibrational Spectroscopy of Surface Adsorbates on Metal Surfaces" og byggist á fjórum grein- um sem allar fjalla um innrautt titr- ingsróf smárra sameinda á yfir- borði tveggja málma, kopars og wolfram. Sýnt er fram á hvemig nýta megi hliðrun gleypnitoppa í títringsrófum alkoxíðs til þess að greina samhverfu alkoxíð- sameindanna á vel skilgreindu málm- yfirborði. Hliðrunin var fengin með því að skipta út kol-12 með kol-13 frumeindasamsætum, sem leyfir ná- kvæma greiningu á mældum títrings- rófum svo framarlega sem nægilegri litrófsupplausn er beitt. Ab initio raf- eindareikningum var beitt til þess að líkja eftir mæliniðurstöðum, en þó með talsverðum einfoldunum. TÍl við- bótar vom Fermi-hermur í metoxíð- laginu rannsakaðar og líkt eftír í ein- földu reiknilíkani. Leiðbeinandi Ragnars var dr. Per Uvdal, dósent við Lundarháskóla, en andmælandi við vörnina var dr. Cynthia M. Friend, prófessor við Harvard-háskóla í Cambridge, Massachusetts, Bandaríkjunum. Ragnar K. Ásmundsson fæddist á Akureyri 31. mars 1970, sonur hjón- anna Ásraundar Jónssonar mennta- skólakennara og Ragnheiðar Kjæmesteti bókasafns- og upplýs- ingafræðings. Hann lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum á Akur- eyri 1990 og BS-prófi í tæknilegri eðlisfræði frá Háskóla íslands árið 1993. Hann hóf framhaldsnám við Chalmers-háskólann í Gautaborg árið 1994 og síðan við Háskólann í Lundi ári síðar og er þar enn við rannsókn- arstörf. Eiginkona Ragnars er Guð- rún Rósa Þórsteindóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur, doktors- nemi við Háskólann í Borás og eiga þau einn son, Ásmund Smára. Kvennamiðstöðin í Sarajevó er ætluð fyrir bæði námskeið og áfallahjálp. KVENNAMIÐSTÖÐ var opnuð í Sarajevó í síðasta mánuði en meðal þeirra sem lögðu sitt af mörkum til að miðstöðin yrði að veruleika er dr. Vilborg Áuður Isleifsdóttir sagnfræðingur, sem búsett er í Þýskalandi. Bosniska kvenfélagið BISER í Sarajevo rekur kvennamiðstöð- ina og verða í húsinu reknir námsflokkar, þar sem m.a. verður boðið upp á lestrar- og enskukennslu, en í Bosníu er töluvert um ólæsi á meðal kvcnna. Einnig mun heilsu- gæslu og áfallahjálp verða sinnt í miðstöð- inni og konum boðið upp á viðtöl við bæði lækna og sálfræðinga. Islenska rikið og ís- lensk kvenfélög voru meðal þeirra sem lögðu fram fé til kaupa á húsinu og nauðsyn- legra viðgerða á því og var framlag íslands um tvær milijónir kr. Þá lögðu landstjórn- in í Hessen og kvenfélög í Þýska- landi og Sviss einnig sitt af mörkum, en það er Evrópusam- eldhús. Á annarri hæð er siðan stór setustofa, fyrirlestraher- bergi, leikstofa og skrifstofa. Ekki hefur enn verið gengið frá þriðju hæðinni vegna íjárskorts, en gert er ráð fyrir að þar verði fundarsalur, kennslustofa og litið eldhús. Þá er áætlað að bóka- safni verði komið fyrir á lofti hússins. Fjölmenni var við formlega opnun mið- stöðvarinnar og var Vilborg þar viðstödd ásamt Snorra Magnús- syni Iögregluþjóni, sem starfar nú í Sarajevó á vegum utanríkisráðu- neytisins. Auk félags- kvenna og almennra gesta mættu fulltrúar hessnesku landstjórn- arinnar í Wiesbaden og sarnbandstjórnar- innar í Berlín ásamt sendiherrum erlendra ríkja í Sarajevo. BISER er með bankareikning í Landsbankanum og geta þeir sem vilja styrkja fé- lagið við að Ijúka endurbótum á húsinu lagt inn á reikning nr. 0111-26-2000. Kvenna- miðstöð í Sarajevó bandið sem veitir rekstrarfé til starfseminnar. Kvennamiðstöðin er um 460 fm að stærð. Á jarðhæð eru þrjár skólastofur, viðtalsherbergi og Ríkissjóður getur ekki krafíst greiðslu Sjálfskuld- arábyrgð Arborgar ekki gild HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og hafnað kröfu ríkisins um staðfest- ingu sjálfskuldarábyrgðar sveitarfé- lagsins Árborgar vegna láns til Hraðfrystistöðvar Eyrarbakka árið 1983. Skilmálum lánsins var breytt eftir að ný og breytt sveitarstjórnar- lög tóku gildi og taldi Hæstiréttur að sjálfskuldarábyrgð hafi ekki tekið gildi þar sem afgreiðsla málsins var ekki í samræmi við nýju lögin. Sveitarfélagið Eyrarbakki sam- þykkti að takast á hendur sjálfskuld- arábyrð á veðtryggðu láni Hrað- frystihúss Eyrarbakka hjá ríkissjóði, þá að fjárhæð tæpar 3 milljónir króna. Til tryggingar greiðslu láns- ins setti félagið fasteign sína á Eyr- arbakka, með 33. veðrétti á eftir skuldum að fjárhæð tæpar 19 millj- ónir. Ekki var greitt af láninu á fyrsta gjalddaga árið 1984 né öðrum árið 1985. Árið 1987 féllst ríkissjóður á breytta greiðsluskilmála skulda- bréfsins. Nýr höfuðstóll skuldarinn- ar, með gjaldfóllnum afborgunum og eftirstöðvum, nam þá rúmum 7 millj- ónum. Hreppsnefnd Eyrarbakka staðfesti breytta skilmála með áritun á skuldabréfið í lok janúar 1987. Illa gekk að innheimta skuldina, sem safnaði vöxtum, og var Eyrar- bakkahreppur krafinn um greiðslu í febrúar 1992. Oddviti undirritaði þá réttarsátt um greiðslu hreppsins á skuldinni, en ritaði forsætisráðherra síðar bréf og bað um niðurfellingu skuldarinnar. í september sama ár, þegar engin viðbrögð höfðu orðið af hálfu ráðherra, borgaði skuldarinn, sem nú hét Bakkafiskur, tæplega 6,5 milljónir inn á skuldina. Ekki var um frekari greiðslur að ræða, félagið var tekið til gjaldþrotaskipta árið 1993 og lýstar kröfur í þrotabúið námu rúmum 156 milljónum króna. Ráðuneytið samdi um lækkun Hreppurinn reyndi enn að semja við ríkið um greiðslur. I október 1996 samþykkti fjármálaráðuneytið skuldbreytingu á þann veg, að miðað skyldi við samningsvexti, en ekki dráttarvexti, af skuldinni. Hún nam tæpum 39 milljónum með dráttar- vöxtum, en með þessari breytingu fór sú upphæð niður í rúmar 25 millj- ónir. Hreppsnefndin vildi hins vegar aðeins greiða höfuðstólinn, rúmar 7 milljónir, og hélt því fram að vafi léki á réttmæti greiðsluskyldu hreppsins, sem á þessum tíma var að vísu runn- inn inn í sameinaða sveitarfélagið Árborg. Málið kom því til kasta dóm- stóla. Hæstiréttur komst að þeirri niður- stöðu, að sjálfskuldarábyrgðin hefði aldrei öðlast gildi. Þegar gengið hafi verið frá henni upphaflega, árið 1983, hafi hún ekki verið lögð fýrir sýslunefnd Árnessýslu til samþykkis og því ekki öðlast samþykki sam- kvæmt þágildandi sveitarstjórnar- lögum, 58/1961. Ábyrgðai-yfirlýsing- in við skilmálabreytingu skulda- bréfsins árið 1987 hafi orðið að full- nægja skilmálum nýrra sveitar- stjórnarlaga, 8/1986, en samkvæmt 4. mgr. 89. greinar þeirra hafi sjálf- skuldarábyrgð sveitarfélags við þessar aðstæður ekki verið heimil. „I málinu hafa ekki verið leiddar líkur að því að ábyrgð gagnáfrýjanda [Ái'- borgar] vegna breytingarinnar á skilmálum skuldabréfsins hafi verið veitt gegn tryggingu, sem metin var gild,“ segir Hæstiréttur. „Fullnægði yfirlýsingin því heldur ekki skiiyrð- um 5. mgr. 89. gr. um veitingu ein- faldrar ábyrgðar og getur hún ekki bundið gagnáfrýjanda," segir Hæsti- réttur, sem dæmdi ríkið til að greiða sveitarfélaginu Árborg 200 þúsund krónur í málskostnað fyrir Hæsta- rétti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.