Morgunblaðið - 07.11.1999, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999 B
7
Ljósmynd Hjálmar R. Bárðarson í bókinni Landið þitt ísland.
Eldborg.
Snorrastaðir
og umhverfi
HAUKUR Sveinbjörnsson er
annar bænda á Snorrastöðum
og hefur hann búið þar alla sína
ævi. Hann er því vel kunnugur
öllu umhverfí þar. Hann er van-
ur að segja ferðamönnum ýmis-
legt um Snorrastaði og sveitina
þar í kring. „Snorrastaðir eru
ekki landnámsjörð og þeirra er
fyrst getið í sögum um siða-
skiptin," sagði Haukur í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins.
„Þá bjó þar maður er Brandur
hét. Hann vann að garðhleðslu
kringum túnið þegar hann sá að
menn komu að bænum til að
veita honum aðför. Hann hafði
snarar hendur og hafði fata-
skipti við vinnumann sinn, sem
líklega hefur verið eitthvað
þroskaheftur, sjálfur hélt hann
áfram að hlaða túngarðinn og
líkti eftir vinnumanninum í
háttum, en sá hleypti á hesti
burt frá bænum í fötum hús-
bóndans. Mennirnir veittu
vinnumanninum eftirför og
náðu honum. Þegar þeir sáu
hvers kyns var sneru þeir til
baka, en þá var Brandur horf-
inn. Eftir þetta gekk hann und-
ir nafninu Moldar-Brandur.
Snorrastaðir liggja í aust-
uijaðri Eldborgarhrauns, um
kílómetra frá sjó. En Land-
námabók segir frá því þegar
Eldborg varð til. Sel-Þórir
nefndist maður sem nam land
og reisti bæ sinn að Rauðamel
hinum ytri. Þegar hann var
orðinn örvasa og blindur gekk
hann út eitt kveld og sá hvar
maður reri inn Kaldárós á járn-
nökkva, leggur skipi sínu og
gengur heim að bæ þeim sem
Hripi hét og borar niður staf
sínum í stöðulhliðið. Þar kom
upp jarðeldur um nóttina og þá
rann Borgarhraun. Þá varð
Eldborg til - og þar stóð bær-
inn sem nú er Borgin. Þetta
sagði Helgi Hjörvar heitinn að
væri besta setning sem skráð
hefur verið á íslenska tungu.“
Löngufjörur liggja fyrir landi
Snorrastaða og eru sögufrægar.
„Þeirra er fyrst getið þegar
Þórður kakali flúði undan Kol-
beini unga. En sjór féll í ála mill-
um þeirra og barg Þórði í það
skipti því torleiði var á landi,“
heldur Haukur áfram frásögn
sinni um umhverfí Snorrastaða.
„f nánd við Snorrastaði eru
margir aðrir sögustaðir. Má þar
nefna Gullborg sem er eldgígur í
Hnappadal. Fyrir fáeinum ára-
tugum fundust hellar þar í
hrauninu sem eru merkilegir. Þá
má nefna Rauðamelsölkeldu,
sem er skráð vatnsmesta ölkelda
í heimi. Gerðuberg er á leið að
ölkeldunni, mjög reglulegt
stuðlaberg. Kolbeinsstaðir eru
kirkjustaður sóknarinnar og þar
er varðveittur 14. aldar gripur
samkvæmt aldursgreiningu,
kaleikur smíðaður handa Kol-
beinsstaðakirkju. Á þeim tíma
héldu Sturlungar Kolbeinsstaði
og Jón skráveifa sem drepinn
var í Grundarbardaga í Eyjafirði
var fluttur alla leið að Kolbeins-
stöðum og grafínn þar. Á Kol-
beinsstöðum bjuggu fyrir 1300
bræður tveir Narfasynir, Þórður
og Þorlákur. Talið er að Þórður
hafí átt mikla aðild að skráningu
Sturlungu, ritað eitthvað og
safnað til. Þorlákur átti son er
Ketill hét og var fyrsti hirðsljór-
inn yfír öllu íslandi samkvæmt
Biskupasögum. Loks má geta
Grettisbælis, móbergsstrýtu í
suðaustur úr Fagraskógafjalli,
en þar hafðist Gretth- Asmund-
arson við í tvo eða þrjá vetur
samkvæmt sögunni. Segja mætti
frá miklu fleiru um þetta svæði
en ég ætla aðeins að geta þess í
viðbót að litadýrð haustsins er
óvíða meiri en hér, þegar skóg-
urinn fellir lauf og Eyjahrepps-
fjöllin skarta sínu fegursta."
að hún fór á hestaleigu til að sjá
hvernig hluthnir gengju fyrir sig
þar,“ segir Kristján og hlær. „Ég
hef aldrei fyrr farið á hestaleigu,
bara rekið hestaleigu sjálf, það var
gaman að prófa hitt hlutverkið,"
segh- Brandís afsakandi. Ég spyr
hvor ekki sé erfítt að fá hæfa hesta á
slíkai' leigur. „Jú, stundum en það er
alveg ótrúlegt samt hvað hestarnir
láta hafa sig út í,“ segir hún. Ekki
kveður hún algengt að hestarnir
kasti fólki af sér, „en það rúllar
stundum af, það er misjafnlega vant
hestum. Það getur komið fyrir aila
að detta af baki, en það hefur aldrei
neinn meitt sig,“ segir hún. Brandís
er alvön hestum frá bai’næsku og
viðurkennh með semingi að henni
líki betur við hestana en kýrnar.
„Ekki myndi ég þó velja hestana ef
ég ætti að lifa af þeim, þá er beljum-
ar drýgri," segh' hún og hlær.
Félagslífið á Snæfellsnesi er að
sögn þeirra Brandísar og Kristjáns
hið fjörugasta. „Við tökum senni-
lega of mikinn þátt í félagslífi ef
eitthvað er,“ segir Ki-istján. Þau eru
í kirkjukórnum og það leiddi til þess
að þau hófu bæði söngnám í Borg-
arnesi í fyrra og halda því áfram í
vetur. „Súzsanna Budai heitir
stjórnandi kirkjukórsins, hún er
ungversk og frábær stjómandi. Við
emm langyngst í khkjukórnum
sem er sameiginlegur fyrh Kol-
beinsstaðahrepp og Eyja- og Mikla-
holtshrepp. Við æfum saman öll og
á jólunum er sungið a.m.k. við tvær
eða þrjár athafnir." Ekki vilja þau
viðurkenna að þau syngi saman arí-
ur við uppvaskið - en kannski
stundum þjóðlög. „Nú sé ég mest
efth því að hafa ekki viljað fara í
tónmenntakennslu þegar ég var
yngi-i, þá væri ég færari í nótna-
lestrinum," segir Kristján. Þau hafa
stundað söngnám með öðrum hjón-
um en nú eru þau bara tvö í tímum.
Þegar söngnum og bústörfunum
slepph er ýmislegt annað sem kall-
ar að, Brandís er I saumaklúbb og
Kristján æfír körfubolta og fótbolta
einu sinni viku með öðram körlum á
svæðinu. Einu sinni í viku hittast
svo konur í sveitinni sem eiga ung
böm. „Við hittumst heima hjá hver
annarri, það eru engir leikskólar
hér, þessum fundum er ætlað að
bæta það upp,“ segir Brandís. Það
er því greinilega nóg við að vera hjá
þessum söngelsku ferðaþjónustu-
hjónum sem lifa á mjólkurfram-
leiðslu og hafa hestana sér mest til
yndis og lífsfyllingar. „Við erum vel
sátt við þetta líf,“ segh Kristján.
„Annars væram við farin héðan fyr-
h löngu.“
Litrík fjölskylduskemmtun
í Elliðaárdal í dag
Orkuveitan, í samvinnu við Reykjavík, menningarborg Evrópu
árið 2000, stendurfyrir kristalsdögum í Elliðaárdal á laugardag
og sunnudag.
MENNINGARBORG
EVRÖPU ÁRIÐ 2000
Mundu ab leggja hönd á töfrakristalinn KIDE og hlusta - og skoöa á töfraskjánum
hvab er ab gerast á sama tíma í hinum menningarborgunum.
Kannski sendir KIDE mynd afþér til framandi staba.
Sunnudagur 7. nóvember kl. 15-18
Á dagskrá veröur meöal annars:
• Flugdrekasýning
• Trúöur meö blöörusýningu
• Uppblásin leiktceki - Candy Floss
• LAND OG SYNIR veröa meö tónleika
• Teiknisamkeppnin heldur áfram
• Bein útsending á Cull 909 og Létt 96,7
• Slysavarnafélagiö Landsbjörg
verður meb ailar græjur í dalnum
- ef félagar verða ekki í útkalli
• Spurningaleikur, Cóu-nammi o.m.fl.
Dagskráin fer fram aö hluta í stóru
upphituöu tjaldi.
%
NEOGEO^OC.KET
$ /*■ C lœsileg
í flugeldasýning
klukkan 18!
BREIÐABLIK
Reykjavíkur
AUK K345-53 aía.is