Morgunblaðið - 07.11.1999, Síða 27
r
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999 B 2^
DÆGURTÓNLIST
bara varð að taka þetta pakk
aðeins í gegn.“
No One To Love „Bjarki Jónsson
og ég breyttum lagi sem átti
upphaflega að vera fyndin Stock-
Atkien-Waterman blaðra í þessa
hádramatísku rafmagns-ballöðu -
með því að breyta einum hljóm úr
dúr í moll! Þá allt í einu tók lagið á
sig allt aðra mynd, sem heimtaði
allt öðruvísi andrúmsloft og alls
enga stæla, takk fyrir. Laglínan og
textinn kom eiginlega samstundis,
á ca. 10-20 mínútum, með smá
lagfæringum þegar í hljóðver var
komið. Ég gi’ét svo mikið að ég
ætlaði aldrei að ná að taka upp
sönginn í stúdíóinu í Englandi. Ég
hélt bara að ég væri orðinn
aðframkominn af þreytu. A
endanum söng ég lagið hérna á
íslandi - en ég fæ ennþá kökk í
hálsinn þegar ég heyri
upphafshljómana."
Then Came You „Sem betur fer
kemur „Then Came You“ á eftir
„No One To Love“ og bjargar
okkur öllum frá því að breytast í
Lúlla lauk! Viddi kom með þetta
lag sem hálfgert spiladósa-demó,
og sagði bara að hann hefði gert
þetta fyrir tveimur árum. Þetta
fannst mér bara of heillandi laglína
til að láta framhjá mér fara, gegn
því skilyrði að diskóið mætti sko
ekki vera langt undan við
upptökur þess! Og það stóð.“
Enter Me „Klámlagið á plötunni.
Þetta er dónalega útgáfan af
„Deep Inside" laginu sem platan
byi'jar á. Þetta lag mun verða
notað í ákveðnu atriði í
bíómyndinni „Fíaskó“. Og þetta er
allt Barða að kenna. Ég firri mig
allri ábyrgð á þessum subbuskap
og soragangi... ja, nema ef vera
skyldi textanum og stununum í
laginu sem heyrast ef vel er að
gáð. Þær eru eftir ... mig.“
Round ‘N’ Round „Sauðmeinlaust
húslag með heimspekiívafi. Barði
vildi prófa að gera hús - og þetta
fær tærnar til að hreyfast innan í
skónum mínum, þannig að það er
hér með samþykkt af minni
hálfu.“
I Was Born This Way! „Með texta
sem segir: „I’m happy, I’m
carefree, I’m gay -1 was born this
way!“ klára ég plötuna, og lengra
er ekki hægt að komast í
yfirlýsingunum.“
Þess má svo geta að Páll Óskar
heldur tvenna útgáfutónleika á
næstu dögum; treður upp í
Spotlight næstkomandi
föstudagskvöld og heldur síðan
aðra útgáfutónleika í Sjallanum á
Akureyri laugardagskvöld.
Manu Chao
MARGIR muna eftir
hljómsveitinni Mano Negi-a
sem var í fararbroddi
hljómsveita sem bræddu
saman vestur-evrópska
þjóðlagahefð, suður-am-
eríska hi-ynskipan, ai'-
abísk stef og grúa hug-
mynda úr ólíkum átt-
um. í skipulega óreið-
una bættu Mano Negra-
liðar síðan hápólitísk-
um og háðskum
textum sem
gerði blönd-
una enn
áhugaverð-
ari. Söngv-
ari Mano
Negra
var
sitt besta undir lok níunda
áratugarins. Sveitin sendi
frá sér síðustu skífuna, tón-
leikaplötu, 1992 og í kjölfar
hennar lagði hún
upp í langt og mik-
ið báts- og lestar-
ferðalag um Suð-
ur-Ameríku. Það
ferðalag var full-
mikið ævintýri
fyrir sveitar-
menn því
svo var
af
þeim
al annars til Frakklands,
þar sem hann tók þátt í að
koma upp miklu sjónvarps-
tjaldi fyrir auralausa inn-
flytjendur þegar heims-
meistarakeppnin í knatt-
spyrnu fór þar fram.
Manu Chao er alinn upp í
Frakklandi, þó foreldrar
hans séu spænskir, og
fyrstu sólóskífuna, Cland-
estino, gaf hann einmitt út í
Frakklandi á síðasta ári.
Á Clandestino er Manu
Chao á svipuðum slóðum og
í Mano Negra forðum í því
að hann hrærir saman ótrú-
legustu hugmyndum og
stefnum. Hann heldur sig
þó að miklu leyti frá raf-
magninu, leggur meiri
áherslu á þjóðleg hljóðfæri
Manu Chao sem sendi frá
sér sólóskífu fyrir nokkru.
Sólóplata Manu Chao
heitir Clandestino og
vakti mikla hrifningu í
Frakklandi þegar hún kom
út, hreppti fjölda verðlauna
og komst hátt á sölulista. I
kjölfarið barst hún til ann-
arra landa og einnig hingað
til lands.
Mano Negra var upp á
dregið að hljómsveitin lagði
upp Iaupana skömmu síðar.
Manu Chao var þó ekki á
því að segja skilið við tón-
listina, hélt aftur til Suður-
Ameríku og næstu árin var
hann á ferðinni þar einn
síns liðs. Þá lá leiðin til
Spánar og í tvö ár var hann
búsettur í Madríd þar sem
hann setti saman hljóm-
sveit og ferðaðist með
henni um nálæg lönd, með-
og órafmögnuð, aukinheld-
ur sem útsetningar byggj-
ast á eins konar þjóðlegi'i
naumhyggju. Textamir eru
ekki síður ruglingslegir en
forðum, þó innri gerð þeirra
sé býsna rökrétt þegar rýnt
er í brotnai' textalínurnar
og lyklaðar tilvísanimar.
Chao syngur jöfnum hönd-
um á spænsku og frönsku
og bregður fyrir sig ensk-
unni þegar mikið liggur við.
Safn
af því
besta
ÞAÐ ÞÓTTI flestum óðs
manns æði þegar Vince
Clark sagði skilið við fé-
laga sína í Depeche Mode
til að helga sig léttri
popptónlist. Ekki verður
þó á móti því mælt að
ákvörðunin hafi verið
skynsamleg þegar upp
var staðið; Depeche Mode
varð með vinsælustu
hljómsveitum seinni tíma,
og Clarke ávaxtaði pund
sitt vel, eins og heyra má
á nýrri safnskífu Yazoo-
laga.
Clarke átti þátt í að
stofna Depeche Mode en
sagði skilið við sveitina
vegna ágreinings um tón-
listarstefnu. Fyrst eftir
samstarfsslitin fór lítið
fyrir honum, en síðan
rakst hann á auglýsingu í
poppblaði þar sem óskað
var eftir blústónlistar-
manni til að vinna með
söngkonu.
Með vinsælustu tónlistar-
mönnum Bretlands
Söngkonan var Alison
Moyet og þó að Clarke
hefði lítinn áhuga á blús
voru þau Moyet og Clar-
ke með vinsælustu tón-
listarmönnum Bretlands
næstu ár, en nafnið var
það eina blúskennda við
samstarf þeirra. Fyrstu
lögin sem þau sendu frá
sér slógu í gegn og ekki
síður fyrsta breiðskífan,
Upstairs at Eric’s, en um
það leyti að önnur skífa
kom út ákváðu þau að
slíta samstarfinu. Moyet
hóf sólóferil sem lokið er
fyrir löngu, en Clarke
stofnaði Erasure, sem var
um tíma vinsælasta
hljómsveit Bretlands og
er enn að.
Á nýrri safnskífu, Only
Yazoo, er safnað saman
helstu lögum Yazoo, sem
eru flest lög sveitarinnar
reyndar, en einnig eru á
plötunni endurgerðir
þriggja laga.
íjjí,
agar
I vetur verða
um 60 verslanir
og veitingastaðir me6
opiö á sunnudögum.
VERSLANIR
frá kl. 13.00 - 17.00
STJÖRNUTORG
frá kl. 11.00 > 21.00
VEITINGASTAÐIR OG KRINGLUBÍÓ
eru meö opið fram eftir kvöldi.
Sími skriftstofu: 568 - 9200
Upplýsingasími: 588 - 7788
KriKaU
Þ R R 5 E
AA
J fl R T n Ð 5 L lf R