Morgunblaðið - 11.11.1999, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Israelsstjórn heimilar frekari brottflutning herliðs frá Vestúrbakkanum
Landnemar
gyðingabyggða
fluttir á brott
Havat Maon, Jerúsalem. AFP, AP, Reuters.
Reuters
Israelskir lögreglumenn klifra hér upp á húsvagn í einni Iandnema-
byggð gyðinga á Vesturbakkanum.
ÍSRAELSKI herinn flutti í gær
hundruð landnema frá ólöglegum
landnemabyggðum gyðinga á Vest-
urbakkanum. Ríkisstjórn Israels
samjiykkti jafnframt í gær brotthv-
arf Israelshers frá 5% lands til við-
bótar á Vesturbakkanum, sam-
kvæmt samkomulagi við
Palestínumenn sem undirritað var
í september. Fer brottflutningur-
inn fram á mánudag.
Eftir að komist var að samkomu-
laginu við Palestínumenn samdi
ísralesstjórn við samtök landnema
um að tólf landnemabyggðir, sem
settar voru á fót án leyfis stjóm-
valda, skyldu leystar upp. Byggð-
irnar í Havat Maon eru þar á með-
al, en því var ekki leynt er þær
voru settar á fót á þessu ári, að tilg-
angurinn væri að geta gert kröfu
um sem mest land á Vesturbakkan-
um.
Landnemamir í Havat Maon
bragðust ókvæða við skipuninni
um að hafa sig á brott, og köstuðu
eggjum, málningu og hveiti að her-
mönnunum er áttu að flytja þá.
Andstæðingar friðarsamninga við
Palestínumenn mótmæltu brott-
flutningi landnemanna einnig harð-
lega í gær, og sökuðu ríkisstóm
Ehuds Baraks um svik við þjóð
gyðinga.
Prófsteinn á lýðræðið
„Þetta era þjóðemishreinsanir
gyðinga á gyðingum, og við
skömmumst okkur fyrir stjóm-
völd,“ sagði Nadia Matar, leiðtogi
þjóðemissinnaðra kvennasamtaka,
við fréttamenn í Havat Maon í gær.
Mótmælendur hrópuðu vígorð og
slógu til hermannanna sem önnuð-
ust brottflutning landnema. Vora
þeir þá fjarlægðir af lögreglu.
Skrifstofa Baraks gaf út þá yfir-
lýsingu að forsætisráðherrann liti á
aðgerðimar í Havat Maon sem
prófstein á lýðræði í landinu, og
stein í götu stjórnleysis.
Um 170 þúsund gyðingar búa í
yfir 145 landnemabyggðum á Vest-
urbakkanum og Gaza-svæðinu. Pa-
lestínumenn líta á landnemabyggð-
imar sem ólöglegar, og segja þær
stefna friði á svæðunum í hættu.
Benjamin Netanyahu, forveri Bar-
aks, gerði enga tilraun til að leysa
upp ólöglegar landnemabyggðir,
en Barak hefur heitið því að koma í
veg fyrir að fleiri byggðir verði
settar á fót.
Marív skýrði frá því í gær að
Israelar og Sýrlendingar myndu
senn hefja friðarviðræður á ný. I
frétt blaðsins segir að samningan-
efndir landanna séu næm því að
komast að samkomulagi um grund-
völl viðræðnanna, eftir að hafa átt
fundi í París nýlega.
Ehud Barak hefur ítrekað lýst
því yfir síðan hann tók við embætti
í júlí að hann stefndi að því að sam-
komulag muni hafa náðst við Sýr-
lendinga fyrir lok næsta árs.
Vonbiðlimim var
vísað á bug
Skaut sjö
til bana
Bielefeld. Reuters.
TYRKNESKUR maður, líklega
Kúrdi, skaut fjórar konur og þrjá
karlmenn til bana í þýska bænum
Bielefeld í fyrrakvöld. Talið er, að
ástæðan hafi verið sú, að einn
mannanna neitaði honum um hönd
dóttur sinnar. Maðurinn fannst síð-
ar látinn og hefur líklega stytt sér
aldur.
Maðurinn flýði burt og fannst
hann síðar látinn á heimili sínu í
Tiibingen en þangað er fimm
klukkustunda akstur frá Bielefeld.
Talið var víst, að hinir látnu væru
Tyrkir eða Kúrdar en í Þýskalandi
búa um tvær milljónir manna með
tyrkneskt ríkisfang. Þar af eru um
500.000 af kúrdískum ættum.
Ovenjumikið hefur verið um of-
beldisverk í Þýskalandi að undan-
fömu en í síðustu viku skaut 16 ára
gamall unglingur þrjár manneskj-
ur, fólk, sem átti leið framhjá heim-
ili hans, og særði nokkra. Hann og
systir hans fundust síðar látin. I
íýrradag varð svo 15 ára gamall
drengur til þess að stinga kennara
sinn, konu, til bana. Hafði hann áð-
ur skýrt frá því, að hann hataði
hana.
51/M/K ERU SÍFELLT MEÐ NÁUNGANN
MILLI TANNANNA
Fási i byggingavörmerslunum um land allt \
Stílhrein
Glæsileg hreinlætistæki Ifö Cera.
Innbyggt frárennsli auðveldar þrif.
Tvívirkur skolhnappur, hægt er
að velja um 3ja eða 6 lítra skol.
Ifö - Sænsk gæðavara
TCflGI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1088 • Fax: 564 1089
Morðárásin í armenska þinghúsinu
Þingmaður grun-
aður um aðild
Jerevan. AP, AFP.
ARMENSKUR þingmaður hefur
verið handtekinn og sakaður um að
hafa átt þátt í að skipuleggja ár-
ásina í þinghúsinu fyrir skömmu en
þá féll forsætisráðherra Armeníu
og sjö aðrir frammámenn á þingi.
Þingmaðurinn, Musheg
Movsesian, var handtekinn sl.
föstudag en fluttur í járnum í þing-
húsið í gær þar sem þingheimur
samþykkti að svipta hann þing-
helgi. Saksóknarinn Agvan Ovsepi-
an sagði þingmönnum, að Movsesi-
an hefði lagt á ráðin um árásina en
mennimir fimm, sem tóku þátt í
henni, myrtu Vazgen Sarkisian for-
sætisráðherra, Karen Demirchian,
forseta þingsins, og sex menn aðra.
Níu menn særðust.
Arásarmennirnir gáfust upp
daginn eftir og slepptu gíslum sín-
um, 40 að tölu. Þá hafði þeim verið
leyft að skýra sitt mál í sjónvarpi
og verið heitið réttlátri málsmeð-
ferð.
Arásarmennirnir kváðust aðeins
hafa ætlað að drepa Sarkisian en
dauði hinna mannanna hefði verið
mistök. Sögðu þeir ríkisstjórnina
láta sér í léttu rúmi liggja þótt Ar-
menía væri að leysast upp og sök-
uðu spillta embættismenn um efna-
hagserfiðleikana í landinu.
Eina lausnin „að drepa for-
sætisráðherrann"
Ovsepian sagði, að Movsesian,
sem tilheyrir engum flokki, hefði
verið skoðanabróðir árásarmann-
anna. Sagði hann einnig, að foringi
árásarmannanna, Nairi Unanian,
hefði upplýst, að Movsesian hefði
útvegað þeim vopnin og lýst því yf-
ir, að ekki væri unnt að bæta
ástandið í landinu nema með því að
„drepa forsætisráðherrann".
Movsesian viðurkennir kunnings-
skap við Unanian en segist hafa
verið drakkinn er hann sagði þetta.
Að öðru leyti neitar hann allri sök
og krefst þess, að sett verði á lagg-
irnar sérstök nefnd til að kanna
málið.
Armenskir fjölmiðlar sögðu í
gær, að lengi hefði farið vel á með
þeim Movsesian og Vazgen Sark-
isian forsætisráðherra en það hefði
breyst er bróðir hans var handtek-
inn fyrir rán og eiturlyfjasölu.
Fimmtudags Holtakjúklingur
f»'5lWI0' með góðri barbecue lauksósu !
§#
l
l
l
t
l
l
r
Fimmtudagskjúklingur
'"T— "
Einn Holtakjúklingur í bitum u.þ.b. 1 kcj
• 1/2 bolli tómatsósa • 1/4 bolli vatn • 1/4 bolli puöursykur I
• 1 pk. púrrulauksúpa (1 ds sveppasúpa) 1
Hitið ofninn í 175 °C. Raöiö kjúklingabitunum í olíusmurt *
eldfast mót. Blandið saman tómatsósu, sykri, vatni og lauk- %
súpunni. Hellið hrærunni vel yfir bitana, bakið í 50 mín. í
Kryddið örlítið með salti og pipar j
, Rétt meðferö á hráu kjöti
i Fjarlægið umbúðir og gætið þess að blóðvökvi úr kjötinu berist ekki ,
i í önnur matvæli eða áhöld. Notið hrein áhöld svo sem hnífa og
í skurðarbretti við undirbúning matreiðslunnar. Þrífið vandlega öll .
i áhöld og borð, sem komast í snertingu við hrátt kjötið, áður en farið
i er að vinna með annað hráefni til matargerðar. Sápuþvoið hendur !
i eftir að hafa meðhöndlað hrátt kjöt. Hreinlæti er forsenda öruggrar
, matreiðslu á öllu hráu kjöt.
Reykjagarður hf