Alþýðublaðið - 06.01.1921, Blaðsíða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
að sæta frá heildsölunum, ef lands-
verzlunin hefði engan sykur haft.
En hvers vegna viil Vísir láts.
stjórninni hafa komið þetta til,
sem hann segir um sykurskömt-
unina? Orsökiu getur ekki verið
önnur en sú, að Vísir er að
reyna að bera í bœtijláha fyrir
stjórnina, með því að kenna
landsverzlunni um.
Þó Jakob Möller sé öðru hvoru
að smá narta f stjórnina, þá er
slíkt sýnilega látalæti, og enginn
vafi er á því, að hann reynir að
styðja hana samt, eftir því sem
hann þorir fyrir almenniagsálitinu.
Einn ráðherrann, Magnús Guð-
mundison, er með beinum stuðn-
ingi þingm&nnsins Jakobs Möllers
kominn upp í ráðherrasætið, og
það má sjá, að það er ekki eins
grunt á því góða milli Jakobs og
Jóns Magnússonar nú eins og var
í fyrra, því Jakob styður nú til
þingmensku tvo ákveðnustu ýylgis•
menn Jóns Magnússonar, þá Jón
Ólafsson og Þórð Bjarnason.
Það er bara leitt fyrir Jakob
hvað þessi tilraun hans til þess
að verja stjórnina verður gersam-
lega að engu, af því almenningur
þekkir alla málavexti.
€rl»l sinskeyil
Khöfn, 5. jan.
Kanada og Sretlanð.
Símað er frá London, að stjórn-
in í Kanada andmæli því, að ensk-
japanski samningurinn verði end-
urnýjaður. Fari Bretland ekki að
4sk Kanada, stofnar Kanada ræð
ismannsembætti í Washington.
Blöðin ræða um frjálsara utanrik-
issamband innan Bretaveldis.
Með góðn eða illn,
Símað er frá Köningsberg, að
borgaravarðliðið í Austur Prúss-
landi rísi gegn afvopnuninni, og
mun væntanlega verjast með vopn-
um.
Blóðhnndar anðvaldsins.
Símað er frá Flensborg, að eít-
ir jarðarför kommúnista eins hafi
lýðurinn safnast saman fyrir fram-
an hermannabúðirnar. Skyndilega
gerðu hermennirnir útrás, skutu á
lýðinn hvað eftir annað, drápu 15
manns og særðu marga. Og tvfstr-
aðist Jýðurinn þegar.
Om daginn og vegin.
Bióin. Nýja bió sýnir: íslenzk-
ar kvikmyndir, III, katía, mjög
fagrar myndir og vel teknar; og
„Hraustur drengur”. Gamla bió
synir: „Sólskinsstúlkan“ leikin af
Mary P.ckford.
Kanpfél Bvíknr. hefir lækkað
verðið á sykri, lauk og dósamjólk
sbr. augl. á öðrum stað.
„Bláa Mðin“ heitir ný tóbaks
verzlun, sem opnuð hefir verið á
Laugavegi. Hún er auðþekt á
bláa litnum.
Litla Sjálfstjórn. Vísir hefir
nú birt lista Litlu-Sjálfstjórnar og
eru á honum séra Magnús Jónsson,
Jón Óíafsson framkvæmdastjóri og
Þórður Bjarnason framkvæmdastj.
Er varla hægt að segja að listi
þessi villi á sér heimildir, hvað
viðvíkur tveimur mönnunum. Þeir
eru báðir margreyndir og viður-
kendir fylgismenn Jóns Magnus-
sonar. Og Jón Ólafsson var helsti
meðmælandi nafna síns í fyrra,
þegar Jakob 'Möller réðist mest
að honum. Helstu meðmælin, sem
Visir getur flutt fram með fyrsta
manninum eru þau, að hann
studdi Jakob Möller til þings í
íyrral
Frá embætti. Sigurjón Mark-
ússon sýslumaður í Suður-Múla-
sýslu hefir sagt af sér embætti frá
áramótum.
Frá Englandi komu með Gull-
fossi þeir Þorlákur Ófeigsson
byggingarmeistari og Jón Kjart-
ansson kaupfélagsstjóri.
Bæjarstjórnarfnndnr er í dag
kl. 5.
Vanilledropar. Að því er fregn
frá Eskifirði hermir, hefir maður
þar verið kærður fyrir að hafa
selt 90 flöskur af vanilledropum,
og látið fylgja með forskrift til
þess að gera úr þeim áfengt vín.
92818 Mafins voru hér á Iandi
eftir manntalinu 1919 og hafði
þvf fjölgað í landinu um 906
manns á árinu. í Reykjavík bjuggu
J/6 alíra landsmanna og f kaup-
stöðum með yfir 100 íbúa 40111
manns eða 43% allra landsmanna.
Sennilega eru íbúar landsins þó
nokkuð tíeiri, því árlega manntalið
er ekki nákvæmt.
Yeðrið í morgan.
Stöð Loítvog m. m. Yindur Loft HitusUg
Átt Magn
Rv. 7346 A 4 5 0,1
Vm. 7338 SV 2,5
Stm 7351 A 3 2 -r-2,0
ísf. 7370 NA 0 5 -5-2.5
Ak. 7360 logn 6 3 ■+■3.0
Gst. 7457 N 2 4 ~í"5>5
Rh. 7364 3 S -+■4,4
Sf. 7355 V 8 1 -4-2,0
Þ F 7407 loErn 6 3 4,0
Loftvægislægð um Reykjanes og
önnur fyrir austan land, loítvog
stígandi, vindstaða breytileg. Út-
lit: Norðlæg átt.
D ranraur.
Nóttina noilli 2. og 3. janúar
dreymdi mig að tveir öldugar
væru að skamta graut mörgu
fólki. Þeir, sem neyta áttu, kváðu
matinn hráan og ausuna skörðótta
og íoruga. Þótti veitendum sér
óvirðing ger og greip þá svo mik-
ill móðgunarhiti að ausan skalf
svo í hendi þess, sem á henni
héit, að hún datt á pottbarminn
svo kvað við hátt. Og í því vakn-
aði eg. En í dvalanum milli
svefnsins og vökunnar þótti mér
einhver rödd, hvell og há, kveða
þessa vísu ;
Léttur pausinn varnar var,
vizkuraus ei kendi.
Skörðótt ausa skömtunar
skalf þeim laus í hendi.
Vill nokkur geta til um þýðing-
una? Ætli hún geti verið f sam-
bandi við óframkomið tíðarfar?
Fjalar.
K aupid
A1 þ ýðublaðið
94