Morgunblaðið - 17.11.1999, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1999 C 7
FRÉTTIR
FFSI vill lafffærina-u á
göllum kvótakerfisins
ÞING Farmanna- og fískimanna-
sambands íslands, sem var haldið
á Grand Hótel Reykjavík, sam-
þykkti margar ályktanir um ör-
yggismál, mennta- og atvinnurétt-
indamál, kjara- og atvinnumál,
stjórn fiskveiða, sjávarútvegsmál
og fjarskiptamál auk þess sem það
sendi Kolbrúnu Sverrisdóttur ár-
naðaróskir vegna niðurstöðu Hér-
aðsdóms ísafjarðar og innilegar
þakkir fyrir baráttu hennar í rétt-
indamálum sjómanna.
Þingið ályktaði að þróuninni sem
nú á sér stað í íslenskri kaupskipa-
útgerð þurfí að snúa við, „en mest-
ur hluti þeirra kaupskipa sem ann-
ast flutninga á vörum og farþegum
til og frá landinu eru undir erlend-
um fána. Því fagnar þingið að lög-
um um stimpilgjald vegna skrán-
ingar kaupskipa hefur verið breytt
þannig að sá kostnaður á ekki að
hamla skráningu kaupskipa undir
íslenskum fána. Hins vegar skorar
þingið á ríkisstjórn og Alþingi að
fylgja fordæmi annarra Norður-
landa og gera frekari breytingar á
lögum til að íslensk kaupskipaút-
gerð verði samkeppnisfær á þeim
alþjóðamarkaði sem hún keppir á.“
Þingið beinir því til samningan-
efndar fískimanna í komandi
kjaraviðræðum við útvegsmenn að
lögð verði áhersla á kröfu um allan
fisk á markað eða á markaðs-
tengdu verði.
Það leggur líka til að í komandi
kjaraviðræðum verði ein af kröfum
sambandsins að útgerðin hækki
framlag sitt til lífeyrissjóða sjó-
manna úr 6% í 8% af launum.
FFSI hefur sett fram fyrirvara
og leiðbeiningar og lagfæringu á
göllum, sem eru á útfærslu kvóta-
kerfsins og þingið ítrekaði á ný áð-
ur framsetta fyrirvara og leiðbein-
ingar.
FFSÍ vill afnema svokallaða teg-
undafærslu og auka veiðiskyldu úr
50% í 90% af úthlutuðu aflamarki í
þorskígildum talið á hvert físki-
skip, sbr. ákvæði 4. mgr. 9. gr.
reglugerðar nr. 516/1999 um veið-
ar í atvinnuskyni byggð á lögum
um stjórn fiskveiða nr. 38/1990
með síðari breytingum.
Þingið vill að frekari flutningar á
kvóta frá bátum til annarra flokka
fiskiskipa verði stöðvaðir og settar
verði reglur um útgerðarflokkun
flotans^
FFSÍ vill leggja af kvótasetn-
ingu fisktegunda sem að stórum
hluta hafa á undanförnum árum
verið notaðar í svokallaða tegunda-
tilfærslu.
„Sjómenn töldu að með laga-
setningu stjórnvalda í mars 1998 á
kjaradeilu sjómanna og útvegs-
manna hafi þau ætlað að koma
fram með lausn sem sátt gæti orðið
um og tryggt eðlilega verðmyndun
sjávarafla og stöðvun á kvóta-
braskinu. Það hefur því miður ekki
tekist nú frekar en áður á eins árs
reynslutíma Verðlagsstofu skipta-
verðs. Það fiskverð sem er í beinni
sölu hefur fjarlægst raunverð á
uppboðsmörkuðum sem gengur
þvert á allar væntingar. FFSÍ lýsir
sig enn á ný reiðubúið til þess að
vinna með stjórnvöldum að lagfær-
ingum á göllum kvótakerfisins og
verðmyndunar sem bráðnauðsyn-
legt er að gera strax.“
Þingið skorar á sjávarútvegs-
ráðherra að beita sér fyrir stofnun
fiskveiðiráðs samanber erindi
FFSÍ frá 20. júlí 1999. í greinar-
gerð er vitnað í tilgreint erindi til
sjávarútvegsráðherra.
„Komið verði á fót formlegu
fiskveiðiráði fiskifræðinga og full-
trúum frá Farmanna- og fiski-
mannasambandi íslands til dæmis
5 frá hvorum, þar sem fjallað verði
um niðurstöður úr rannsóknar-
verkefnum og drög að tillögum um
leyfilegan hámarksafla hlutaðeig-
andi fisktegunda. Þetta fiskveiðir-
áð verði ávallt notað til þess að
vera faglegur vettvangur skoðana-
skipta og til þess að fara yfir helstu
forsendur og gögn áður en Haf-
rannsóknastofnun leggur fram lög-
um samkvæmt tillögur um leyfi-
legan heildarafla fyrir næstu ár
eða vertíð.
Með þessari tillögu vill Far-
manna- og fiskimannasamband ís-
lands treysta betur samráðsvettv-
ang milli vísindamanna og
starfandi skipstjórnarmanna á
fiskiskipum. Hingað til hafa fyrst'
og fremst farið fram lauslegar
samræður milli aðila sem eru allra
góðra gjalda verðar. Hins vegar
telja samtökin að tími sé kominn til
að víkka samstarfið og gera það
markvissara þar sem tekið verði í
ríkara mæli mið af fagþekkingu og
reynslu skipstjórnarmanna við
fiskveiðar."
Ákvörðun ráðherra fagnað
Þingið fagnar ákvörðun sjávar-
útvegsráðherra um að afnema í
áföngum kvótaálag á ferskum fiski.
sem vigtaður er hérlendis og síðan
seldur erlendis. „Þingið ályktar að
afnema eigi allar hindranir á út-
flutningi á ferskum fiski frá ísl-
andi.“
Þá varar þing Farmanna- og
fiskimannasambands „við hug-
myndum um tviskráningu fiski-
skipa sem stjórnvöld eru að kanna
möguleika á að beiðni samtaka út-
vegsmanna," og ítrekar áskorun til
stjórnvalda þess efnis að heimilt
verði að hefja hvalveiðar nú þegar.
AUGLÝSINGA
ATVIIMISIA
Vélgæslumaður
Hraðfrystistöð Þórshafnar óskar eftir að ráða
vélgæslu- og viðhaldsmann í landvinnsludeild
fyrirtækisins, sem samanstendur af frystihúsi
og kúfiskverksmiðju.
Fjölbreytt og spennandi starf fyrir hæfileika-
ríkan mann.
Saltfiskverkun
Til sölu eða leigu saltfiskverkun á einum besta
stað í Hafnarfirði. Fullbúin með öllum tækjum
og áhöldum, þ. á m. flatningsvél, hausara,
fésara, lyftara, vigtum o.fl., m.a. körum. Hús-
næðið, sem er nýlegt, er u.þ.b. 200 m2 og í
mjög góðu ástandi. Til greina kemur hvort sem
er sala húsnæðisins eða langtímaleiga.
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofunni.
Eignanaust ehf.,
Vitastíg 13, Reykjavík,
sími 551 8000.
Nánari upplýsingar veitir Jón H. Haraldsson,
rekstrarstjóri, í vs. 460 8130, gsm 898 3336 eða
hs. 468 1113, fax 460 8160. "
Umsóknir um starfið sendist Hraðfifystistöð
Þórshafnar hf., Eyrarvegi 16,680 Þórshöfn, co.
Jón H. Haraldsson, fyrir 24. nóvember nk.
S
• Sigurnaglalína — ábót — beita •
Sími 551 1747.
Ráðningarþjónusta sjávarútvegsins
Menn strax!
Sérhæfð ráðningarþjónusta fyrir sjávarútveginn.
SÚtvegum gott starfsfólktil sjós og lands.
Símar 562 3518 og 898 3518 (Fridjón).
Til sölu á tilboðsverði
eftirtaldar fiskvinnsluvélar:
★ Baader 440 flatningsvél &Oddgeirshausari
með slítara. Mjög góð eintök. Seljast saman
eða hvort í sínu lagi.
★ Baader 153 karfaflökunarvél í toppstandi.
★ Baader 424 hausari í góðu ástandi.
★ Baader 426 fiskhausari í mjög góðu ástandi.
★ Baader 47 roðflettivélar á góðu verði.
jjj ★ Mikið af vélum og tækjum á söluskrá.
Vélasalan Hafís ehf., Hringbraut 121,
(JL-húsið, 3. h.), símar 551 9500/898 1791.
Til sölu frysti- og kæliklefi
ÍCa 80—90 m3 frystiklefi og ca 40 m3
kæliklefi til sölu með vélum.
Upplýsingar hjá Friðrik í síma 564 1155
eða 892 0063.
Ryðfríir tankar
Til sölu tveir 35 rúmmetra ryðfríir tankar.
Þvermál 3,40 metrar, hæð 4 metrar, flatbotna.
Stál AISI 316.
Upplýsingar í síma 694 8212.
Vantar þorskaflahlutdeild
Sími 565 6412, fax 565 6372, Jón Karlsson.
Tryggvi Sigurðsson.
Til sölu vélbáturinn Sæljón RE-19 (sknr.
1499). Báturinn er mjög vel búinn á dragnót.
Netabúnaðurfylgir. Vel tækjum búinn og í
mjög góðu ástandi. Selst án aflahlutdeildar
og án aflamarks.
Skipasalan Eignahöllin,
Hverfisgötu 76,101 Reykjavík,
sími 552 8850, fax 552 7533.
Þessi bátur er til sölu:
>< c 4 ■
J
-J3 MJ ^ w V v . X
ÉEfar *
51. brúttótonna Eikarbátur, útbúinn á línu,net
og troll. Smíðaður í Stikkishólmi árið. 1970,
lengd 18,4m. vél 408 hp. Caterpillar, árg. 1985.
Báturinn selst kvótalaus en með veiðileyfi.
Þessi bátur er til sölu:
Nóta- og togveiðiskip, 384 brt. lengd 39,91 m.
Smíðaður í þýskalandi árið. 1967. Vél 1160 hp.
Alpha Diesel, árg. 1977. Báturinn selst kvóta-
laus en með veiðileyfi.
Skipasalan Bátar og búnaður,
Barónsstíg 5,
sími 562 2554, fax 552 6726.
KENNSLA
- ^ Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Netagerðarnemar!
Hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja verða kenndar
sérgreinar netagerðar á netagerðarbraut
á vorönn árið 2000. Kennsla hefst 6. janúar.
Umsóknir þurfa að berast skólanum fyrir
30. nóvember 1999.
Hægt er að senda umsóknir í faxi, 421 3107,
eða í tölvupósti fss@fss.is
Fjölbrautaskóli Suðurnesja.
Fréttir á Netinu Hmb l.is
| ALLTAf= GITTHXSAÐ NÝTT