Morgunblaðið - 18.11.1999, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.11.1999, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ JU«mgnml»líií>ÍÍ BÓKASALA f okt. Röð Tltill/ Hðfundur/ Útgefandi________________ 1 Almanak Háskólans - Árið 2000/ / Háskóii Isiands 2 Geitungurinn 1/ Árni Arnason og Halldór Baldursson/ Æskan 3 Uppvöxtur litla trés/ Forrest Carter/ Mál og menning 4 Heimspekisaga/ Gunnar Skirbekk og Nils Gilje/ Háskólaútgáfan 5 Blikktromman 1/GunterGrass/Vaka-Helgafell 6 Guð hins smáa/ Arundhati Roy/ Forlagið 7 Tarot bókin/ Signý Hafsteinsdóttir/ höfundur 8 Ísland-Landið hlýja í norðri/ Torfi H. Tulinius og Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið 9-11 NÖfn íslendinga/ Guðrún Kvaran/ Heimskringla 9-11 Bangsimon hÍttÍrKanínku/Walt Disney/Vaka-Helgafell 9-11 íslensku dýrin/ Halldór Pétursson/ Setberg Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK 1 Uppvöxtur litla trés/ Forrest Carter/ Mál og menning 2 Blikktromman 1/ Gunter Grass/ Vaka-Helgafell 3 Guð hins smáa/ Arundhati Roy/ Forlagið 4 LíttU ekki um öxl/ Karin Fossum/ íslenski kiljuklúbburinn 5 Úngfrúin góða og húsið/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell 6 Artúr konungur/ Rosalind Ken/in/ Mál og menning 7 Heimsinn/ Gregory Benford/ Hávellir 8 Híbýii vindanna/ Böðvar Guðmundsson/ Mál og menning 9 Meðhægð/ Milan Kundera/ Mál og menning 10 Bjargið barninu/ Margaret Watson/ Ásútgáfan ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÓÐ ~ 1 úr landsuðri og fleiri kvæði/ Jón Helgason/ Mál og menning 2 Gullregn Úr Ijóðum Hallgrims Péturssonar/ Porsteinn frá Hamri tók saman/ Forlagið 3 Hávamál og Völuspá/ Gísli Sigurðsson sá um útgáfuna/ Bjartur 4 Spámaðurinn/ Kahlil Gibran/ íslendingasagnaútáfan 5 Stúlka-Ljóð eftir íslenskar konur/ Ritstj. Helga Kress/ Bókmenntafræðistofnun H.l. ISLENSKARÖG ÞÝPDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR 1 Geitungurinn 1 / Ami Árnason og Halldór Baldursson/ Æskan 2-3 Bangsímon hittir Kaninku/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell 2-3 íslensku dýrin/HalldórPétursson/Setberg 4 Ástarsaga úr fjöllunum/ Guðrún Helgadóttir/ Vaka-Helgafell 5-6 Flikk kemur til bjargar/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell 5-6 Veröld Soffíu/ Jostein Gaarder/ Mál og menning 7 Persivan-Ferðin til Aslor/ Fauche, Leturgie og Luguy/ Skrípamyndir/Nordic Comic 8-9 GÓðan dag BÓbÓ bangsi/ Hildur Hermóðsdóttir þýddi/ Mál og menning 8-9 Kíara og KÓVÚ verða vinir/ Walt Disney/Vaka-Helgafell 10 Stafakarlarnir/ Bergljót Arnalds/ Virago ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR 1 Almanak Háskólans - Árið 2000/ / Háskóii Isiands 2 Heimspekisaga Gunnar Skirbekk og Nils Gilje/ Háskólaútgáfan 3 Tarot bókin/ Signý Hafsteinsdóttir/ höfundur 4 Ísland-Landið hlýja í norðri/ Torfi H. Tulinius og Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið 5 NÖfn íslendinga/ Guðrún Kvaran/ Heimskringla 6 Land/ Páll Stefánsson/ lceland Review 7 Smurbrauðsbókin/ Ida Davidsen/ PP forlag 8 Amazing lceland-Ýmis tungumál/ Sigurgeir Sigurjónsson/ Forlagið 9 Almanak Þjóðvinafélagsins - Árið 2000/ / Hið isienska þjóðvinaféiag 10 íslenska steinabókin/ Kristján Sæmundsson/ Mál og menning Bókabúðir sem tóku þátt f könnuninni Höfuðborgarsvæðið: Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla Eymundsson, Kringlunni Penninn-Eymundsson, Austurstræti Penninn, Kringlunni Penninn, Hafnarfirði Utan höfuðborgarsvæðisins: Bókabúð Keflavikur, Keflavik Bókval, Akureyri KÁ, Selfossi Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka f október 1999 Unniö fyrir Morgunblaöið, Félag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímabili, né kennslubækur. Djasstónleikar á Klaustrinu Djass á Ein- ari Ben. KVARTETT Þóru Grétu leikur djass á Einari Ben. í kvöld, fimmtu- dagskvöld, kl. 22. Kvartettinn skipa Þóra Gréta, söngur, Agnar Már Magnússon á píanó, Páll Pálsson á bassa og Asgeir Oskarsson á trommur. JAZZTRÍÓ Andrésar Þórs Gunn- laugssonar gítarleikara leikur á Klaustrinu, Klapparstíg 26, í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 22.30. Leikin verða ýmis þekkt djasslög í bland við eigið efni. Tríóið skipa ásamt Andrési þeir Gunnar Hrafnsson á kontrabassa og Birgir Baldursson á trommur. Tónleikarnir hefjast kl. 22:30. Fegurð í einfaldleikanum Verk eftir Péteris Vasks, Antonin Dvorák og Béla Bartók eru á efnisskrá tónleika í rauðri röð Sinfóníu- ---------------7-------- hljómsveitar Islands í Háskólabíói í kvöld kl. 20. Margrét Svein- björnsdóttir hitti Sigrúnu Eðvaldsdóttur konsertmeistara, sem leikur einleik í Fiðlu- konsert Dvoráks og fékk að heyra söguna af því hvers vegna henni er konsertinn sá svo kær. SIGRÚN rifjar upp fyrstu kynni sín af Fiðlukonsert Dvoráks. Sum- arið áður en hún útskrifaðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, þar sem hún nam fiðluleik hjá Guðnýju Guðmundsdóttur, var hún á nám- skeiði í Interlochen í Michigan. „Þar er ég að læra þennan konsert Dvoráks, fyrsta þáttinn, hjá ofsa- lega yndislegri konu. Við vorum að tala um framtíð mína, þvi hún vissi að ég væri að fara að útskrifast. Hún sagði við mig: „Heyrðu Sigrún, þú ert að útskrifast í janúar - hvað ætlar þú svo að gera?“ „Ég veit það ekki,“ sagði ég. Þá sagði hún að hún þekkti konu sem væri alveg æðislegur kennari - það var Almita Vamos - og hún væri að koma þangað þennan sama dag til að hlusta á son sinn sem spilar á selló. „Ég ætla að láta þig spila fyr- ir hana, hún er yndisleg kona og kannski getur hún tekið þig í spila- tíma,“ sagði kennarinn minn. Það varð úr að ég spilaði íýrir Almitu og fór svo í einkatíma hjá henni eftir að ég útskrifaðist, bjó í húsinu hennar og var í spilatímum hjá þeim hjónum, henni og Roland, á hverjum einasta degi,“ segir Sig- rún. Haustið eftir fór hún svo í Curtis- tónlistarháskólann, þar sem hún lærði hjá Jascha Brodsky og Jam- iee Laredo. „Síðan fæ ég boð um það að koma fram fyrir hönd Is- lands og Ríkisútvarpsins á hátíð- inni Ungir norrænir einleikarar í Stokkhólmi 1985 - og þar mátti ég velja hvaða konsert sem var. Ég spurði kennarann minn hvaða kon- sert égætti að spila. Þá segir hann: „Þú skalt velja konsert sem sýnir Morgunblaðið/Kristinn Sigrún Eðvaldsdóttir einbeitir sér að Fiðlukonsert Dvoráks. hverskonar tónlistarmaður þú ert, ekki endilega hvaða tækni þú ræð- ur yfir. Og þá velur þú auðvitað Dvorák." Svo ég fór að læra hann og spilaði hann á hátíðinni í Sví- þjóð,“ segir Sigrún, sem gleðst ákaflega yfir endurfundunum, nú fjórtán árum síðar. Hann leyfír manni að músísera „Dvorák er ofsalega einlægur - sumir hafa gagnrýnt hann fyrir að vera svolítið barnalegur eða ein- faldur, en það þarf ekki að vera slæmt, því það er svo mikil fegurð í einfaldleikanum," segir Sigrún og bætir við: „Mér þykir rosalega vænt um þennan konsert." Hann sýnir sem sagt hverskonar tónlist- armaður Sigrún Eðvaldsdóttir er? „Já, hann leyfir manni að músís- era,“ svarar hún ákveðin. í fiðlukonsertinum er sterkur þjóðlagatónn, sérstaklega loka- þættinum, og það er stutt í dansinn. Þetta líkar Sigrúnu vel: „Dvorák notaði mikið þjóðlög, enda var hann maður almúgans." „Þar að auki er hann skinandi fátækur“ Antonin Dvorák samdi Fiðlukon- sert í a-moll op. 53 sumarið 1879 en þá var frægðarferill hans nýhafinn. Hann hafði samið fjöldann allan af tónverkum, þar á meðal sinfóníur og serenöður fyrir hljómsveit, margar óperur, verk fyrir kór og hljómsveit, auk fjölda kammer- verka. Tónverk þessi höfðu ekki vakið neina athygli í heimalandi tónskáldsins og ekki fært honum tekjur að ráði, því enginn fékkst til að gefa þau út. I efnisskrá tónleik- anna segir frá því að á endanum hafi þó einn merkur maður heillast af tónsmíðum Dvoráks, sjálfur Johannes Brahms. Arið 1876 samdi Dvorák Söngva frá Móravíu fyrir sópran, tenór og píanó og ári seinna Slavneska dansa fyrir fjórhent píanó. Brahms skrifaði útgefanda sínum, Simrock, og vakti athygli hans á þessu óþekkta tékkneska tónskáldi. Bréfið til útgefandans endaði hann á þessum orðum: „Dvorák hefur samið margskonar tónlist, óperur, sinfóníur, kvartetta og píanóver. Hann er tvímælalaust óvenjuhæfileikaríkur maður. Þar að auki er hann skínandi fátækur. Vinsamlegast takið þetta til athug- unar.“ Það var eins og við manninn mælt, Simrock brá skjótt við og gaf út móravísku söngvana. Viðbrögðin létu ekki á sér standa, aðrir þýskir útgefendur kepptust við að gefa út verk Dvoráks - hann var kominn á kortið. Verk eftir Vasks og Bartók HLJÓMSVEITARSTJÓRI á tón- leikum Sinfóníuhljómsveitarinn- ar í kvöld er Uriel Segal. Glæst- ur hljómsveitarstjóraferili hans hófst þegar hann hlaut fyrstu verðlaun f hinni alþjóðlegu Mitropoulos-hljómsveitar- stjórakeppni í New York 1969. Ári seinna var hann ráðinn að- stoðarhljómsveitarstjóri Fíl- harmóníuhljómsveitar New York-borgar og hlaut margvís- leg tilboð um að stjórna sem gestastjómandi víða í Evrópu og Bandaríkjunum. Stjórnandinn ekki með öllu ókunnugur hljómsveitinni Á hljómsveitarstjóraferli sín- um hefur Uriel Segal stjómað flestum af þekktustu hljómsveit- um hins vestræna heims. Hann stjómaði sinni fyrstu óperuupp- færslu, Hollendingnum fljúg- andi, í Santa Fe árið 1973 og allt frá því hefur hann verið eftir- sóttur hljómsveitarstjóri við ým- is ópemhús á Ítalíu, í Frakk- landi, Þýskalandi, Japan, Israel og Bandaríkjunum. Hann hefur gert hljóðritanir fyrir útgáfu- fyrirtækin Decca, og EMI með mörgum af þekktustu hljóm- sveitum heims. Segal er ekki með öllu ókunnugur Sinfóníu- hljómsveit íslands, því hann kom hingað til lands og stjórnaði sveitinni á tónleikum Listahátíð- ar í júní 1970 og áþrennum áskriftartónleikum í Háskólabiói áámnum 1970-1973. Auk Fiðlukonserts Dvoráks, sem frá er greint hér á síðunni, em á efnisskrá tónleikanna Mus- ica Dolorosa fyrir strengjasveit eftir lettneska tónskáldið Péter- is Vasks og Konsert fyrir strengi, slagverk og selestu eftir Béla Bartók. Að berjast gegn hinu ljóta í lífínu og listinni Péteris Vasks skrifaði Musica Dolorosa árið 1983. í efnisskrá segir m.a. um hann og verk hans: „Gagnstætt þeirri út- breiddu skoðun sem virðist ríkja í listum í dag að ljótleika lífsins eigi að endurspegla í ljótleik list- arinnar fínnur Vasks hjá sér þörf fyrir að berjast gegn hinu Ijéta f lífinu og listinni. Sannfær- ing hans er, líkt og hjá Dostoj- evskíj, að fegurðin muni sigra heiminn.. Vasks spyr: „Er nokk- ur meining í því að semja tón- verk sem sýnir okkur bara að við séum komin út á heljarþröm út- rýmingar? Að mínu mati á sér- hvert heiðarlegt tónskáld að leita Ieiða út úr öngþveiti nútím- ans, í átt að jákvæðni og trú, - fegurð er tungumáljákvæðni og trúar.“ Lokaverkið á tónleikunum er eftir ungverska tónskáldið Béla Bartók. í efnisskrá segir að hann hafi hvorki kallað verkið sinfón- íu né svítu, þótt það sé í eðli sínu skylt báðum þessum formum. Það er samið fyrir tvær strengjasveitir, selestu, píanó, hörpu og ýmis slagverkshljóð- færi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.