Morgunblaðið - 18.11.1999, Page 40

Morgunblaðið - 18.11.1999, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 41 PltrgiDjinMiíMI* STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. AÐBUNAÐUR FRÆÐIMANNA MENNTUNARSTIG þjóðarinnar er sífellt að hækka. Aldrei hafa fleiri útskrifast úr menntaskóla en nú og aldrei hafa fleiri sótt um nám við Háskóla Islands en nú. Að auki er þeim sem ljúka framhaldsnámi í háskóla, meistaraprófí eða doktorsprófi, alltaf að fjölga. Þessi þró- un er einn jákvæðasti þátturinn í þjóðlífi Islendinga nú um stundir og merki þess að þjóðin sé á réttri leið. Ef nýta á til fullnustu þá þekkingu sem menntunin er að skila okkur þá þarf hins vegar að huga vel að því hvernig búið er að því fólki sem hefur aflað hennar. Fjölgun fræðimanna á ýmsum sviðum hefur skapað óvæntan vanda sem brýnt er að leysa úr. Háskóli Islands og aðrar háskólastofnanir í landinu rúma ekki lengur alla þá fræðimenn sem gætu miðlað þekkingu sinni og lagt til rannsóknir eins og fram kom í viðtali við Sigurð Gylfa Magnússon, formann Sagnfræðingafélags íslands, í blað- inu í fyrradag. Hætt er við að verðmætri þekkingu og kunnáttu sé því kastað á glæ ef ekkert er aðhafst. Fræði- menn hafa sjálfir sýnt frumkvæði, meðal annars með stofnun Reykjavíkur akademíunnar sem er félag sjálf- stætt starfandi fræðimanna og hefur það að markmiði að virkja fræðimenn til samstarfs, skapa þeim starfsaðstöðu og ný tækifæri til rannsókna. Skynsamlegt væri að ís- lenska ríkið hefði frumkvæði að því að auka enn frekar styrki til rannsókna og hvetja þannig atvinnulífið til hins sama en nokkuð skortir á að við stöndum nágranna- og samkeppnisþjóðum okkar jafnfætis hvað framlög til rann- sókna snertir. A allra síðustu árum hefur atvinnutækifærum fyrir fræðimenn með æðri menntun fjölgað, einkum þó á sviði raunvísinda. Staða menntamanna á sviði hugvísinda er hins vegar ekki jafn góð. Eins og fram kom í viðtalinu við Sigurð Gylfa þekkist það meira að segja enn að fræðimenn gefi vinnu sína til þess að koma þekkingu sinni á framfæri, ýmist í rituðu máli eða fyrirlestrum. Hefur sú forvitnilega tillaga því verið borin upp að stofna sjóð sem greiði þeim sem flytja fyrirlestra á opinberum vettvangi styrki fyrir framlag þeirra. Þó að slíkur sjóður myndi sennilega seint geta greitt viðunandi laun þá myndi hann að minnsta kosti vera til þess fallinn að vekja athygli á hversu þýðingar- mikið það er að meta menntun og fræðistörf að verðleik- um. KÍNVERJAR f WTO MEÐ samkomulagi Bandaríkjanna og Kína um við- skiptamál hefur helstu hindruninni fyrir aðild Kín- verja að Heimsviðskiptastofnuninni verið rutt úr vegi. Það bendir því flest til að á næsta ári muni Kínverjar fá aðild að WTO. Þar með myndu Kínverjar opna markaði sína fyrir erlendum varningi í auknum mæli og gangast undir þær reglur og skyldur sem felast í aðild að WTO. Það aukna frelsi í milliríkjaviðskiptum Kína, sem er óhjákvæmileg afleiðing aðildarinnar, á eftir að hafa mikil áhrif á kínverskt efnahagslíf. Breytingarnar munu koma einkafyrirtækjum til góða en vafalítið reynast ríkisstyrkt- um þungaiðnaði og frumstæðum landbúnaði þungbærar. Jafnframt binda menn vonir við að réttaröryggi er- lendra fyrirtækja, er reka starfsemi í Kína, muni aukast þar sem nauðsynlegt verður að færa lagasetningu og lagakerfi í nútímalegt horf. Forsenda þess er hins vegar að Kínverjar virði þær skuldbindingar sem þeir gangast undir. Verði sú raunin gæti aðildin orðið eitthvert stærsta skref er Kína hefur tekið í átt frá hinu miðstýrða hagkerfí kommúnistatímans yfír í nútímalegt markaðs- samfélag. Ahrif á lífskjör og lífsviðhorf í Kína gætu orðið gífurleg. Ekki síður skiptir það miklu máli fyrir stöðu Kínverja í heiminum að þeir taki þátt í alþjóðlegu viðskiptasamstarfi. Kína er fjölmennasta ríki veraldar og hagkerfi landsins hefur vaxið ört á undanförnum árum. Það er hagur jafnt Kína sem umheimsins að Kínverjar séu innan þess ramma er mótast af reglum Heimsviðskiptastofnunarinnar. Þar með minnka líkurnar á því að til árekstra komi á við- skiptasviðinu er leitt gætu til alvarlegra milliríkjadeilna. Aðild útilokar ekki árekstra, líkt og deilur Bandaríkjanna og Evrópusambandsins sýna. Hún veitir þeim hins vegar í fastmótaðan farveg þar sem hægt er að útkljá þær á grundvelli fyrirfram ákveðinna reglna. Rætt um hlutverk ríkisins og einkavæðingu í fluffl á flugþingi í gær Ný flugstöð er for- senda þróunar á Reykjavíkurflugvelli / Abyrgð og hlutverk ríkisins í flugsamgöngumálum var inntak flugþings, sem haldið var í Reykjavík í gær. Þar kom fram að samgönguráðherra vill kanna möguleika á að fela einkaaðilum að reisa og fjármagna byggingu nýrrar flugstöðvar í Reykjavík. Morgunblaðið/Ásdís Flutt voru allmörg erindi á flugþingi í gær þar sem meðal annars var fjallað um einkava'ðingu ýmissa þátta flugrekstursins. STURLA Böðvarsson sam- gönguráðherra sagði á flug- þinginu, að verið væri að undir- búa og skoða möguleika á byggingu nýrrar flugstöðvar á Reykja- víkurflugvelli í nágrenni við flugskýli Landhelgisgæslunnar og ættu fram- kvæmdir að geta hafist á árinu 2001. Oumdeilt er að ný flugstöð er forsenda frekari þróunar á flugvallarsvæðinu. I dag eru starfræktar 3^á flugstöðvar á Reykjavíkurflugvelli og bjóða vel flest- ar ef ekki allar upp á algjörlega óviðun- andi aðstöðu bæði fyrir fyrirtækin sem í þeim starfa og farþegana sem um þær fara,“ sagði ráðheira. Sturla Böðvarsson sagði að kanna þyrfti vel möguleika þess að fela einkaaðilum byggingu nýrrar flug- stöðvar í stað hefðbundinnar fjár- mögnunar með fjárlögum. Yrði þá gert ráð fyrir að flugstöðvarhúsið yrði fjölnotahús sem gæti hýst ýmsa tengda starfsemi aðra en eingöngu af- greiðslu fyrir farþega og farangur þeirra. Hinn eiginlegi flugstöðvarhluti yrði því aðeins einn af mörgum þátt- um í starfsemi hússins. Reikna má með að undirbúningur útboðs af því tagi sem hér um ræðir geti tekið allt að einu ári þannig að ef vel er staðið að málum og pólitískur vilji er fyrir hendi ættu framkvæmdir við nýja flugstöð við Reykjavíkurflug- völl að geta hafíst á árinu 2001,“ sagði ráðherra. Hann kvaðst myndu á næst- unni skipa vinnuhóp sem fengi það verkefni að undirbúa málið frekar og næðist samkomulag með fjárfestum ætti ný flugstöð við Reykjavíkurflug- völl að geta risið á skömmum tíma. Fram kom í ræðu samgönguráð- herra að gerð fyrstu samræmdrar samgönguáætlunar fyrir Island hefur verið í undirbúningi í samgönguráðu- neytinu frá í vor og sagðist Sturla Böðvarsson leggja mikla áherslu á að hún yrði að veruleika á næsta ári. Á hún að ná til allra þátta samgöngu- kerfísins, þ.e. vega, hafna og flugs. Rökin fyrir samræmingu áætlana sagði hann m.a. þau að með því að vinna vega-, hafna- og flugáætlun saman væri þess að vænta að fjár- munir nýttust betur. Væri það skoðun sín að með því næðist það markmið að uppbygging samgöngukerfísins í land- inu í heild sinni yrði betur tengd byggðaþróuninni og gæti þar með orðið öflugt vopn í þeirri baráttu sem sífellt þyrfti að heyja svo vinna mætti gegn röskun byggðar. Sturla sagði að öflugar og góðar flugsamgöngur og traust innanlands- flug skiptu miklu máli í þessu sam- bandi. Hvað varðaði flug til jaðarbyggða væri staða innanlandsflugsins í mikilli óvissu og afkoma flugrek- enda vart viðunandi á sum- um flugleiðum. Leita þyrfti leiða til að auka og efla flugið og um leið ferðaþjónustuna. Margsinnis hefði verið bent á að Reykjavíkurflug- völlur væri ein grundvallarforsenda þess að innanlandsflug gæti staðið undir nafni og jafnvel náð að vaxa og dafna. Sagðist Sturla Böðvarsson þeirrar skoðunar að innanlandsflugið, eins og menn þekktu það í dag, stæði og félli með Reykjavíkurflugvelli. Betur undir samkeppni búin sem hlutafélag Hilmar Baldursson, formaður flug- ráðs, lýsti þeirri skoðun sinni á flug- þinginu að íslenska flugstjórnarmið- stöðin í Reykjavík yrði í formi hlutafé- lags mun betur í stakk búin en sem ríkisstofnun að fást við yfirvofandi samkeppni við aðrar miðstöðvar um flugleiðsöguþjónustu á Norður-Atl- antshafi. Hilmar sagði starfsemi flugstjórn- armiðstöðvarinnar vera útflutningsat- vinnuveg sem aflaði þjóðarbúinu gjaldeyristekna sem svöruðu 1,5 millj- örðum króna á ári og skapaði 150 há- tæknistörf. Hann sagði að miðað við þá tækni sem til staðar væri og þar sem sjá mætti fram á að flugstjórnar- miðstöðin gæti lent í samkeppni við aðrar flugstjórnarmiðstöðvar um veit- ingu þeirrar þjónustu sem hún stæði fyrir væri eðlilegt að spyija hvort hún væri í stakk búin að fást við slíka sam- keppni. Kvaðst hann þeirrar skoðunar að vegna óhjákvæmilegra breytinga sem samkeppninni fylgdu væri flug- stjórnarmiðstöðin betur undir hana búin í formi hlutafélags heldur en sem ríkisstofnun. Hilmar sagði ennfremur að stofnun eins og flugmálastjórn starfaði í sí- breytilegu umhverfi og þyrfti að laga sig að því en ekki öfugt. Sem dæmi um mikilvæga breytingu vegna er- lendra skuldbindinga væri kæra eftir- litsstofnunar EFTA vegna mismun- andi flugvallarskatts í innanlands- og millilandaflugi. Flugvallarskattur myndaði grunn að tekjum flugmálaá- ætlunar en þær tekjur sköpuðust að langmestu leyti á Keflavíkurflugvelli. Hann sagðist andvígur því að sett yrðu sérstök lög um gjaldtöku flug- málastjórnar, með því yrði stefnt í þveröfuga átt miðað við þá þróun sem ætti sér stað í nágrannalöndunum. I stað þess að auka sveigjanleika stofn- unarinnar yrði hann minnkaður og í stað þess að auka sjálfstæði stofnun- arinnar yrði það skert. Gjaldskrár Flugmálastjórnar ti! cndurskoðunar Hilmar sagðist telja að stjórnvöld væru ekki endanlega búin að ákveða hvernig þau myndu bregðast við en ekki væri ólíklegt að til þess kæmi í nánustu framtíð að endurskoða þurfi gjaldstofna Flugmálastjórnar og flug- málaáætlunar. Hann sagði eðlilegt að allar gjaldskrár Flugmálastjórnar yrðu endurskoðaðar og farið yrði í auknum mæli að innheimta gjöld mið- að við raunkostnað þeirrar þjónustu sem veitt væri. Undirbúningsvinna að því væri hafín en slík innheimta yrði aldrei möguleg nema að vissu marki varðandi flugleiðir og mannvirki sem þjónuðu tiltölulega fáum. Gunnar Finnsson, deildarstjóri stjórnunarsviðs flugvalla- og flugumferðarþjónustu hjá Alþjóðaflugmálastofn- uninni (ICAO), velti fyrir sér ábyrgð ríkisins í flug- samgöngum og sagði hlut- verk þeirra fyrst og fremst vera að setja reglur til að tryggja að öryggi yrði í hávegum haft. Einnig að tryggja að gjaldtaka rekstraraðila flugvalla og flugumferðarþjónustu, hvert svo sem rekstrarformið væri, hefði hvorki nei- kvæð þjóðhagsleg áhrif né bryti í bága við alþjóðlegar skuldbindingar. Gunnar fjallaði um rekstrarform í flugvalla- og flugumferðarþjónustu og sagði dæmið ekki endilega snúast um einkarekstur eða ríkisrekstur starf- semi heldur formið. Reynsla Islend- inga af einkaeinokun væri afar slæm og vitnaði hann í því sambandi til íýr- irkomulags verslunar á árunum 1602-1788. Einkarekstur væri mun betri kostur í umhverfi þar sem sam- keppni ríkti. Hreinn Loftsson, formaður fram- kvæmdanefndar um einkavæðingu, sagði að menn hefðu áttað sig á því að undanförnu að komið væri að enda- mörkum ríkisafskipta á fleiri og fleiri sviðum og nú virtist sem menn teldu þörf nýrrar hugsunar í flugmálum, þ.e. að fráhvarf þyrfti að eiga sér stað frá forsjárhyggju og ríkisafskiptum. Sagðist hann aðhyllast að leiða frum- kvæði einstaklinga og frjálsa mark- aðshætti inn í opinberan rekstur og þá einnig flugmálin. Varðandi breytt rekstrarform í flugsamgöngumálum sagði Hreinn að til að byrja með mætti hugsa sér að bjóða út þætti í starfsemi flugvalla, svo sem ræstingu, tölvuþjónustu og snjómokstur. Með því móti mætti ef- laust ná fram aukinni hagkvæmni í rekstri. Önnur leið gæti falist í því að leita tilboða hjá einkaaðilum vegna húsnæðis til verslunarreksturs líkt og gert var í Leifsstöð. Þá væri einkafram- kvæmd tilvalin leið við rekstur flug- valla, t.d. með því að gera langtíma- samninga við einkaaðila um allan rekst- ur og uppbyggingu valla á ákveðnum stöðum. Reykjavíkurflugvöllur hefði verið nefndur sem gott dæmi um rekst- ur þar sem einkaframkvæmd myndi skila ái’angri en sama gæti átt við um fleiri flugvelli. Einkavæðing væri sú leið er skila myndi mestum ávinningi a.m.k. til neytenda og svara myndi þörfum markaðarins best. Andvígur því að einkaaðilar byggi mannvirkin Steingrímur Sigfússon alþingis- maður sagðist fylgjandi því að í aðal- atriðum yrði yfirstjórn og ábyrgð á öryggismálum og uppbyggingu og yf- irumsjón með rekstri grundvallar- mannvirkja í flugsamgöngukerfinu í höndum hins opinbera allavega næstu 15 árin eða svo. Þótt rök væru fyrir því að einkaaðilar gætu með ágætum hætti annast viðkomandi rekstur gæti verið rétt að ríkið eða opinberir aðilar héldu honum áfram til að tryggja önnur markmið sín, þ.á m. til að hafa forræði á viðkomandi rekstri og geta komið fram stefnu, breytingu og öðrum slíkum þáttum. Þar sem ríkti hins vegar venjulegt samkeppnisumhverfi, þar sem ekki væri um að ræða fákeppnis- eða ein- okunarstarfsemi, væri hann ekki andvígur einkarekstri. Steingrímur kvaðst andvígur því að einkaaðilar byggðu flugsamgöngu- mannvirki þar sem hann sagðist halda að ódýrara væri að ríkið byggði og ætti þau. Einkaframkvæmdin reyndist dýrari því lánsfé sem einka- aðilar tækju væri yfirleitt dýrara. Einnig vegna þess að einkaaðilinn drægi sér arð út úr rekstrinum. Ut- gjöldin hyrfu ekki ef þjónustan yrði jafn góð og í höndum ríkisins. Var- hugaverðasta sagði hann vera einka- framkvæmd á grundvelli langtíma þjónustusamnings því hún myndi binda hendur ríkisins til langs tima þannig að það kæmi ekki fram stefnubreytingum sem það vildi gera. Sagði Steingrímur einkavæðingu í flugsamgöngukerfinu í aðalatriðum til þess fallna að færa útgjöld endan- lega yfír á neytendur. Steingrímur sagði það hið brýnasta og þarfasta mál að drífa upp nýja flug- stöð í Reykjavík, öllu heldur sam- göngu- eða umferðarmiðstöð. Ha- græði væri af því að sameina á einum stað tengipunktinn í samgöngum við flugvöllinn, þ.e.a.s. áætlunarflugið innanlands, sérleyfisbílana á suðvest- urhorni landsins, flugrútuna til Kefla- víkur og almenningssamgöngurnar á Reykjavíkursvæðinu. Hann kvaðst telja að ríkið og sveitarfélögin á höf- uðborgarsvæðinu ættu að byggja hana og eiga, þótt ýmislegt kæmi til greina varðandi rekstrarfyrirkomulag hennar. „Breytingar á opinberri þjónustu við flugsamgöngur“ var yfirskrift seinni hluta flugþings og fjölluðu fimm fýrirlesarar um kosti og galla ríkisrekstrar, hlutafélagavæðingu og einkavæðingu. Brian McDonnel, for- stjóri Irsku flugmálastjórnarinnar, skýrði frá breytingu á flugmálastjórn úr ríkisrekstri yfir í hlutafélag sem byrjaði árið 1986 í kjölfar heildarút- tektar á flugmálastjórn sem lá fyrir í skýrsluformi 1984. Að sögn McDonnell kom fram í könnuninni að ríkisrekstur og opinber þjónusta hafi ekki þótt henta. Stjórn- un reyndist ómarkviss, ábyrgð hvers sviðs um sig óljós og þar að auki voru fjárfestingar í lágmarki. Vegna þessa og annarra annmarka hafi verið ákveðið að ráðast í að stokka stjórn flugmála upp og hlutafélagavæða hana og var í framhaldi ráðist í 35 milljóna sterlingspunda fjárfestingar, undir hans stjórn. McDonnell lagði þunga áherslu á öryggisþætti í allri flugmálastjórn, á því sviði mætti aldrei slaka á kröfum. Mikil áhersla var lögð á samkomulag við starfsmenn og samtök þeirra í breytingunum, að sögn McDonnells. Gengið var frá öllum óuppgerðum málum. Þjálfun var endurskipulögð og gert samkomulag við verkalýðsfélög sem allir aðilar hafi sætt sig við enda hafi ekki orðið verkföll frá því að það var gert 1986. Flugumferðarstjórn mikilvægur öryggisþáttur Bob Macleod, forstjóri Highlands and Islands-flugvallanna í Skotlandi, lýsti rekstri flugvalla félagsins í Skotlandi. HIAL var stofnað 1986 en stjórn flugvallanna og flugumferðar heyrir undir skoska ríkið og hefur gert það frá 1995. Um er að ræða 10 flugvelli sem hver hefur sína sérstöðu og að stjórn þeirra koma umdæmis- og ferðamála- ráð á hverjum stað. Vellirnir eru mis- jafnlega hagkvæmir og eru miklar breytingar varðandi flugumferð að ræða. í erindi Tryggva Þórs Herbertsson- ar, forstöðumanns hjá Hagfræðistofnun Háskóla íslands, kom fram að not- endagjöld þyrftu að vera talsvert há í innanlands- flugi til að endurheimta að fullu kostnað ríkisins vegna þess, eða að meðaltali 2.200 krónur á hvern fluglegg á fullorðinn og 1.100 krónur á barn. Væru tekjur af Keflavíkurflug- velli hins vegar teknai' með í reikning- inn þyrfti einungis að leggja 314 króna gjald á hvern flugfarþega til að standa undir kostnaði ríkisins við flugrekstrarþjónustuna. Einnig kom fram hjá Tryggva Þór að tekjur Flugmálastjórnar vegna loft- hæfísskírteina, flugi'ekstrarleyfa, lend- ingargjalda og farþegagjalds næmi rúmum 600 milljónum króna á ári. Kostnaður stofnunarinnai' vegna flugs- ins næmi hins vegar 940 milljónum. Út frá þessum upplýsingum yrðu + því notendagjöldin talsverð eins og fram kemui- að ofan en ef heildar- myndin væri skoðuð og tekjum af Keflavíkurflugvelli bætt við yrði nið- urstaðan önnur, að sögn Tryggva Þórs. Hann vitnaði til reglna Alþjóða- flugmálastofnunarinnar (ICAO) um að skoða bæri allar tekjur sem yrðu til á flugvöllum eða kringum þá. Án frí- hafnartekna yrði notendagjaldið á hverjum fluglegg tæpar 1.000 krónur á hvern farþega til að endurheimta kostnað ríkisins af flugi. En teknar með, svo sem bæri að gera samkvæmt reglum ICAO, þyrfti flugvallarskatt- urinn ekki að vera nema 314 krónur. Einkarekstur Reykjavíkurflugvallar Gylfi Magnússon, dósent hjá Hag- fræðistofnun Háskóla Islands, fjall- aði um einkafjármögnun flugstöðvar á Reykjavíkurflugvelli. Það væri um- deilt hvar einkavæðing ætti við og um væri að ræða pólitíska ákvörðun, sérstaklega þar sem um „samgæði" væri að ræða. Reynslan sýni þó að sums staðar geti einkarekstur skilað ágætum árangri. Hann sagðist telja að einkarekstur gæti vel hentað á flugstöð Reykjavíkur en það þyrfti þó að kanna nánar. Hann væri ekki skyndilausn og fara þyrfti varlega í sakirnar. Að mati Gylfa gæti verið hentugast ef bygging, hönnun og rekstur á mannvirki væri í höndum sama einka- aðila, þannig að ábyrgðin væri á einni og sömu hendinni. En í því tilviki þar sem ríki afhenti einkaaðiia stofnun til reksturs yrði að semja nákvæmlega um hvaða þjónustu ætti að veita. Hann benti á að í einkarekstri hafi eigendur ríkra hagsmuna að gæta til að halda kostnaði í lágmarki og tekj- um í hámarki. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri var síðastur á mælendaskrá en í erindi sínu fjallaði hann um hlutverk Flug- málastjórnar í nútíð og framtíð. Hann líkti þinginu við ferðalag og sagði að stundum hefði virst sem menn væru ekki staddir í sömu flugvélinni og ekki í sama flugrými. Hann kvaðst þó von- ast eftir góðri lendingu, að þvi hljóti allir að stefna þótt ferðin hafi hrist upp í mönnum. Þorgeir fjallaði síðan um hlutverk stofnunar sinnar og sagði frá skipu- lagi flugmálastjórnar annars staðar í heiminum. Hann benti á að breyting- ar væru fram undan í alþjóðlegu um- hverfí. Stofnanir sem fara með stjórn flugmála fengju stöðugt aukið sjálf- stæði og stefndi í að eftirlit og þjón- usta yrði aðskilin. Þá væri að vænta aukinnar sam- keppni um flugstjórn yfir Norður-Atlantshafi, t.d. frá NAV Canada, kanadísku flugmálstofnun- inni sem væri að einhverju leyti einkavædd. Þá sagði Þorgeir að þörf væri á breytingum á skipulagi flugstjórnar- mála á Islandi þar sem þörf væri á sveigjanlegra rekstrarformi, ekki síst til að standast samkeppni til að gera stjórn flugmála samkeppnis- hæfari, sneggri til að svara þörf fyr- ir þjónustu og viðskiptavænni. Þor- geir taldi að framtíðarhlutverk Flugumferðarstjórnar yrði óbreytt hvað stjórnsýslu varðaði en þjónust- an yrði færð yfir hlutafélagarekstur. Mikilvægt væri að brjóta ekki upp þann kjarna þekkingar sem til stað- ar væri í stofnuninni. Þörf á sveigjanlegra rekstrarformi Flugvallar- skatturinn 314 krónur Aukin eftirspurn eftir atvinnulóðum á höfuðborgarsvæðinu Útboð í stað úthlutunar? Eftirspurn eftir lóðum undir atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist mikið. Því er spurt hvort ekki mætti selja atvinnu- lóðir hæstbjóðanda nú þegar ekki skiptir jafn miklu máli fyrir sveitarfélögin hvar fyr- irtækin eru staðsett eftir að aðstöðugjöld voru felld niður. Kristín Gunnarsdóttir kynnti sér viðhorf nokkurra forustumanna sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. ATNAGERÐARGJÖLD S 1 og í einstaka tilvikum ■ “^upptökugjald, þegar sveitarfélög leysa til sín land, eru þær tekjur sem sveitarfé- lög hafa af húsnæði í byggingu en síðan taka við fasteignagjöld og á þetta við bæði um íbúða- og at- vinnulóðir. Bent hefur verið á að út- boð á atvinnulóðum gæti jafnað að- stöðu landsbyggðarinnar í sam- keppni við höfuðborgarsvæðið um að draga til sín fyrirtæki og um leið vinnuafl. I Reykjavík hafa lóðir verið seldar hæstbjóðanda og má þar nefna lóð- irnar, sem seldar voru í Stigahlíð undir íbúðarhús fyrir nokkrum ár- um, sömuleiðis lóðir á íþróttasvæði Þróttar og nú á að bjóða út bygging- arrétt á lóðunum í nýju hverfi í Grafarholti. Sömuleiðis hafa nokkr- ar lóðir undir atvinnustarfsemi verið boðnar út og má þar nefna lóð undir bensínstöð í Húsahverfi, sem seld var því olíufélagi, sem hæst bauð, lóðir undir verslunarhúsnæði við Fákafen og nú síðast seldi borgin með þessu fyrirkomulagi lóð Nýja bíós við Lækjargötu. Skilgreina þarf lóðirnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði að sala á lóðum væri vandmeðfarin nema þar sem lóðir væru vel skilgreindar undir ákveðna atvinnustarfsemi. Það yrði til dæmis ekki einfalt að selja lóðir í Laugardal ef þar yrði byggt. „Stundum vill maður reyna að stýra því hvaða starfsemi fer inn á tiltek- inn stað,“ sagði hún. „í Grafarholt- inu, þar sem ákveðið hefur verið að selja byggingarrétt undir atvinnu- húsnæði, verða lóðir ekki seldar hæstbjóðanda. Þetta eru lóðir í miklu návígi við íbúðabyggð og við viljum geta stýrt því aðeins hvernig fýrirtæki fara þar inn. En ef lóðir eru mjög vel skilgreindar í skipu- lagi, sem skrifstofulóðir til dæmis, þá er hægt að bjóða þær út rétt eins og bensínsölulóðir, en þær eru mjög vel skilgreindar. Þá er hugsanlegt að bjóða þær út undir ákveðna starfsemi og þá fær sá sem býður best. Það finnst mér fyllilega koma til álita.“ Um nýlega stækkun Kringlunnar sagði borgarstjóri að ekki hefði komið til greina að selja lóð undir þá stækkun, þar sem um viðbyggingu á eldra hús- næði hafi verið að ræða. „Þeir borguðu gatnagerðargjöld en það var ekkert umfram það,“ sagði Ingibjörg Sólrún. „Það er erfitt að bjóða út byggingarrétt þegar um viðbyggingu er að ræða og ekki hægt að þvinga neinn til að taka aðra inn með sér. Slíka stækkun er erfitt að verðleggja öðruvísi en sam- kvæmt gjaldskrá sem gildir um gatnagerðargjöld." Borgarstjóri sagði að sama ætti við um sölu á lóðum á hafnarsvæð- um. Þær yrði að skilgreina vel og sjá „Sala á at- vinnulóðum vandmeðfarin“ til þess að engin önnur en bein eða óbein hafnsækin starfsemi væri sett þar niður. „Þar er mjög verðmætt land sem þarf að gæta að,“ sagði Ingibjörg Sólrún. „Við þurfum að hafa stjórn á þróuninni þar þannig að við missum ekki hafnarsvæði. Það gæti kostað mikið ef við yrðum að fara í uppbyggingu annars stað- ar.“ Dýrara í höfuðborgum Ingibjörg Sólrún benti á að í öll- um nágrannalöndum okkar væri þekkt að lóðir og fasteignir væru mun dýrari í höfuðborgum en í dreifðari byggðum. „Við sjáum að landverð hér fer verulega hækkandi og það er eðlilegt, sérstaklega þeg- ar einkaaðilar eru að kaupa land. Þá gera þeir náttúrlega ráð fyi'ir að það verð fáist til baka,“ sagði hún. „Mér finnst óeðlilegt að þá séu sveitarfélögin að halda verðinu niðri og í raun skekkja stöðuna. Það get- ur líka orðið til þess að ýta undir flutninginn frá landsbyggðinni til Reykjavíkur." Vilja eiga lóðirnar „Við höfum ekki selt lóðir undir atvinnuhúsnæði heldur úthlutað þeim og fengið greidd gatnagerðar- gjöld,“ sagði Ingimundur Sigurpáls- son, bæjarstjóri í Garðabæ. „Við viljum eiga lóðirnar sjálfir og geta ráðstafað þeim að vild og án sér- stakra samninga við landeiganda um nýtingu." Sagði hann að framan af áratugnum hafi verið hægt að fá lóð- ir undir atvinnuhúsnæði í Moldu- hrauni en undanfarið hafí ásóknin verið gríðarleg. „Það var nánast engin hreyfing en þær fóru allar út síðastliðið haust á færibandi,“ sagði hann. Bæjarstjórn Garðabæjar hef- ur ákveðið að fara sér hægt í lóðar- úthlutun en um 350 umsóknir bárust nýlega um 50 lóðir undir íbúðarhús. „Á þessum tímapunkti nú eru ákveð- in verðmæti fólgin í úthlutun en fyr- ir 1-2 árum voru þau óveruleg ef nokkur,“ sagði hann. „Spurningin er hver eigi að njóta góðs af því, sá sem fer af stað með byggingu eða bæjar- félagið? Við höfum valið þann kost að láta þann sem fær úthlutað njóta þess.“ Ingimundur sagði að honum fynd- ist eðlilegra að ------- hækka lóðarleigu á atvinnuhúsnæði þannig að hún stæði undir eðli- legu afgjaldi og Mikil eftirspurn er og hefur verið eftír lóðum undir atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. leigu fyrir landið. ,Að selja bygging- arleyfi eða láta lóðarhafa greiða upptökugjald fyrir lóðir orkar tví- mælis að mati lögfræðinga okkar,“ sagði hann. „Því er haldið fram að ekki sé hægt að selja það, sem bær- inn ætlar sér að eiga áfram. Við slík- ar ki’ingumstæður þurfi menn að leigja. Mér finnst eðlilegra að lóðar- leigan sé í takt við verðmæti lands- ins og fasteignaskatturinn einnig því fasteignamat er á allt öðru róli en markaðsverð á landi.“ Sala kemur til greina Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, sagði að vel kæmi til greina að bjóða út eða selja lóðir undir atvinnuhúsnæði í bænum. Verið væri að ljúka við deiliskipulag á rúmlega 300 ha landi í Hellna- hrauni undir atvinnustarfsemi. „Við höfum verið að skoða marga mögu- leika, meðal annars einkafram- kvæmd, þannig að sala á lóðum und- ir atvinnuhúsnæði gæti vel komið til greina,“ sagði hann. „Mér finnst það mildari aðgerð að bjóða út lóðir und- ir atvinnuhúsnæði heldur en íbúðar- húsnæði og það skilar peningum í kassann. Þegar eftirspurn myndast er eðlilegt að sú leið sé farin en þetta hefur enn ekki verið rætt eða tekin um það ákvörðun.“ Sagði Magnús að mun meiri jöfn- uður væri milli sveitarfélaga eftir að aðstöðugjald var lagt niður og ekki skipti eins miklu máli hvar fyrirtæk- in væru staðsett. „Þetta voru hrossakaup," sagði hann. „í dag sitja allir við sama borð. Það eina sem mælir á móti útboði og sölu á atvinnulóðum er vilji sveitarstjórn- armanna til að skapa atvinnu auk þess sem eftirspurn eftir þessum lóðum hefur ekki verið slík. Við gæt- um í stað þess að bjóða upp atvinnu- lóðir boðið mönnum lóðir á okkar verði því við eigum nóg af landi.“ Fyrirtækjum fylgir fólk Gunnar Birgisson, formaður bæj- arráðs Kópavogs, sagði að eina land- ið sem hafi verið selt í Kópavogi væri úr landi Smárahvamms. „Við höfum ekki farið út í lóðarsölu hjá okkur,“ sagði hann. „Við höfum út- hlutað lóðum þó svo það hafi vissu- lega sína galla. Það fá ekki allir sem vilja lóð. Þetta er með erfiðustu verkefnum sem við fáum í bæjar- stjórninni, að úthluta lóðum, en við höfum samt farið þá leið að bjóða ------------------ þær ekki út.“ „Verðmæti eru „Það vilja allir eiga fólgin í lóða- lóðir fyrir fyrh-tækin því úthlutun“ vinnunni fylgir fólk og fólkinu fylgja tekjur," sagði hann. „Það eru mestar líkur á því að þar sem fvrir- tækin eru þar sé fólkið, eins og gerst hefur í Kópavogi. Það vilja allir vera sem næst sínum vinnustað." Gunnar sagði að reynt hafi verið að vega og meta kosti og galla þeirr- ar aðferðar sem viðhöfð væri við lóð- arúthlutun og eins þegar lóðir væru boðnar út. „Við erum ekki mjög hrifnir af útboði en það væri hugsan- legt að bjóða út atvinnulóðir, en alls ekki lóðir undir íbúðarhúsnæði," sagði hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.