Morgunblaðið - 18.11.1999, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 18.11.1999, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 47 LISTIR Bók- mennta- yakaá ísafírði HIN árlega bókmenntavaka Menningarmiðstöðvarinnar Edinborgar, Opin bók, verður haldin í Edinborgarhúsinu á laugardaginn kl. 16. Rithöf- undar sem lesa úr nýútkomn- um bókum eru Bragi Ólafsson, Finnbogi Hermannsson, Guð- jón Friðriksson, Guðrún Eva Mínervudóttir, Rúnar Helgi Vignisson og Tómas R. Ein- arsson. Eyvindur P.lesí Gerðarsafni EYVINDUR P. Eiríksson rit- höfundur les úr skáldsögu sinni, Þar sem blómið vex og vatnið fellur, í Gerðarsafni í dag, fimmtudag, kl. 17. Dagskráin er á vegum Rit- listarhóps Kópavogs. Lesið á Austurvelli KARL Guðmundsson leikari les ljóð á Austurvelli í dag kl. 13. Það er ljóðahópurinn og áhugafólk um vemdun há- lendisins sem stendur fyrir upplestrinum. Með djassaðri sveiflu TONLIST H1 j«in d i s k a r BLÁFUGLINN / ANNA PÁLÍNA ÁRNADÓTTIR Söngljóð eftir Jónas Árnason. Flytj- endur: Anna Pálína Ámadóttir (söngur), Gunnar Gunnarsson (píanó), Jón Rafnsson (kontrabassi), Pétur Grétarsson (trommur/ slagverk), Sigurður Flosason (alto- og tenórsaxófónn, bassaklarinetta, þverflauta og kongatrommur). Ut- setningar unnar í samvinnu. Blá- fuglinn var hljóðritaður í hljóðveri FÍH í ágúst 1999. Hljóðritun/ hljóðblöndun/klipping: Sveinn Kjartansson. Umsjón með útgáfu: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson. Dimma DIM 06. Dreifíng: JAPIS , SÖNGKONAN Anna Pálína Árnadóttir veitir m.a. eftirfarandi upplýsingar í vönduðu umslagi hljómdisksins (sem ljær honum vissulega fallega umgjörð): Fyrir um það bil fimm árum áttum við Jónas tal saman þar sem ég sagði honum frá löngun minni til að syngja djass á íslensku. Þá bauðst hann til að semja handa mér texta við nokkur af sínum uppáhalds djasslögum. Hann lét ekki sitja við orðin tóm og ekki leið á löngu áður en mér barst í hendur bunki af ljóð- um við ýmis gamalkunn djasslög. Þessi áður óbirtu djassljóð eru uppistaða Bláfuglsins og í þeim birtist okkur enn ein hlið á söngva- skáldinu, Jónasi Árnasyni, örlítið tregaíyllri en við eigum að venjast, en hjartahlýjan og rómantíkin vissulega á sínum stað. Undir þetta má taka, um leið og íifjað er upp hvflíkur afburða texta- höfundur hann var þegar lögin höfðuðu til hans, hvort sem þau voru eftir Jón bróður Múla (eða var það kannski hann sem samdi lögin við textana?) eða alþekkt djasslög og gamlir húsgangar með léttri sveiflu, sem allir þekkja, a.m.k. þeir sem komnir eru til vits og ára („September in the Rain“, „I’m Gettin’ Sentimental Over You“, „These Foolish Things“, „Blue Skies“ o.s.frv.) eða létt og ljúf írsk þjóðlög (eða húsgangar) eða rúss- nesk. Við fáum hér sitthvert sýnis- hornið af þjóðlögunum og eitt (í lok- in) við lag Jóns Múla, Einu sinni á ágústkvöldi. Einnig hefur diskur- inn að geyma indælt lag Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar við texta Jónasar, Labbakútur minn. Allt fal- lega og smekklega framreitt, bæði í söng og hljóðfæraleik. Reyndar gildir það um allan hljómdiskinn, söngurinn e.t.v. svolítið blæbrigða- lítill til lengdar (þó að röddin sé að- laðandi og þægileg) en samt mús- íkalskur og með huggulegri og létt „djassaðri“ sveiflu með „hæfilegum útúrdúrum“. Stuðið kemur þó fremur frá hljóðfæraleikurunum, sem ekki eru af verri endanum, stundum með heilmiklum tilþrifum, sem iðulega hljóma sem „impróvis- eruð“, og fer Sigurður Flosason þar fremstur í flokki jafningja. Sem segir líka að útsetningar, sem unn- ar voru í samvinnu (hljóma líka sem slíkar), eru mjög vel heppnaðar. Hljóðritun fyrsta flokks, sem og hljóðvinnsla öll. M.ö.o.: fallegur hljómdiskur, sem rifjar upp gamla tíma og rómantík - víða með ferskri og fínni sveiflu. Og mjög ánægjulegt að kynnast áð- ur óbirtum söngtextum Jónasar, sem gætu reyndar ekki verið eftir annan höfund. Oddur Björnsson Nýjar bækur Ættjarðarljóð < á atómöld • ÆTTJARÐAR- LJÓÐ á atómöld er eftir Matthías Johannessen. I fréttatilkynningu segir að Matthías Johannessen hafi um áratuga skeið verið í fremstu röð íslenskra skálda og hafa ljóð hans verið þýdd á fjölmörg tungumál. Ljóðin í þessari bók eru mörg með hefð- bundnara sniði en menn eiga að venjast úr smiðju Matthíasar, segir ennfremur, sum eru bundin í rím og ljóðstafi, en bera eigi að síður skýr höfundareinkenni atómskáldsins. Ljóðin eru um sjötíu talsins. í kynningu segir: „Ættjörðin tengist Íífshlaupi mannsins, minningum hans, gleði og sorg, og er stöðugt nálæg. Ljóðin í bókinni eru gáska- full, bjartsýn, hátíð- leg, kaldhæðin og í þeim birtast minning- ar, sumar beiskar, er vaxið hafa úr söltum jarðvegi. Stfll Matt- híasar er sem fyrr af- ar myndrænn og lík- ingar hans beinskeyttar." Utgefandi er Vaka- Helgafell. Bókin 125 bls. Bókarkápu hannaði Ragnar Helgi Ólafsson, Oddi hf. prentaði bókina. Verð 3.680 kr. Matthías Johannessen Ný myndbönd • LEIKRITIÐ Ávaxtakarfan eftir Kristlaugu Maríu Sigurð- ardóttur með tónlist eftir Þor- vald Bjarna Þorvaldsson er komið á myndband. Leikritið gerist í ávaxtakörfu þar sem allir eru kúgaðir af Imma ananas. Mæja jarðarber er minnst og verður því fórnar- lamb eineltis. Þegar gulrót kem- ur í ávaxtakörfuna tekur hún við hlutverki Mæju sem bitbein og verður fyrir barðinu á fordómum þar sem hún er grænmeti og því annarrar ættar en ávextirnir. Leikarar eru Andrea Gylfadótt- ir, Selma Bjömsdóttir, Hinrik Ólafsson, Margrét Kr. Péturs- dóttir, Linda Ásgeirsdóttir, Ólöf Sverrisdóttir, Gunnar Hansson, Sjöfn Evertsdóttir, Kjartan Guðjónsson, Guðmundur I. Þor- valdsson. Leikstjóri er Gunnar Gunnsteinsson. Hátíðarfundur og málþing um Fríkirkjuna á föstudagskvöld Hátíðarfundurferfram í Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 20.00 föstudaginn 19. nóvember nk. í tilefni af aldarafmæli safnaðarins þann dag. Verður hann í formi málþings, þar sem flutt verða 5 stutt framsöguerindi og síðan pallborðsum- ræður á eftir. Erindin munu fjalla um tilurð, hlutverkog markmið Fríkirkjunnar, samfara þeim verður tónlist flutt. Að málþinginu loknu verður boðið upp á kvöldhressingu í safnaðarheimilinu. Erindi á málþinginu flytja: Hjörtur Magni Jóhannsson, fríkirkjuprestur. Sigurður E. Guðmundsson, formaður safnaðarstjórnar. Pétur Pétursson, prófessor. María Ágústsdóttir, héraðsprestur. Sigurjón Árni Eyjólfsson, dr., héraðsprestur. Æskulýds- og f jölskylduhátíð í kirkjunni laugardaginn 20. nóvember kl. 17.00. Hátíðarguðsþjónusta kl. 11.00 sunnu- daginn 21. nóvember. Hádegisverður á Hótel Borg að lokinni guðsþjónustu. Hátíðartónleikar kl. 20.00 í kirkjunni. Flutt verður „Missa Celensis" eftir Joseph Haydn. Fríkirkjufólk og fríkirkjuvinir eru hvattirtil að fjölmenna. Safnaðarstjórn. AUGLÝSINGA Háskóli íslands Fyrirlestur um hafréttarmál Prófessor John Norton Moore flytur fyrirlestur um nýjustu stefnur og atburði í hafréttarmál- um á morgun, föstudaginn 19. nóvember, í Hátíðasal Háskólans. Fyrirlesturinn hefst kl. 12.15 og er öllum opinn. Prófessor Moore er forstöðumaður Center for Oceans Laws and Policy við hálskólann í Virginíu í Bandaríkjunum og einn þekktasti fræðimaður Bandaríkjanna á sínu sviði. Að fyrirlestrinum loknum verða fyrirspurnir. Hafréttarstofnun íslands. Orator, félag laganema. FÉLAGSSTARF Y Aðalfundur Kjördæmisráðs sjálfstæðisfélagannat á Vesturlandi verður haldinn í Hótel Borgarnesi sunnudaginn 21. nóvember nk. kl. 14.00. Efni fundarins: Venjuleg aðalfundarstörf: Gestur fundarins: Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra. Áfundinn koma Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, og Guðjón Guðmundsson, alþingismaður Stjórnin Félag sjálfstæðismanna í Háaleitishverfi heldur aðalfund sinn i Valhöll miðvikudaginn 24. nóvember kl. 20.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin. NAUÐUNGARSALA Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Miðstræti 18, Neskaupstað, mánudaginn 22. nóvember 1999 kl. 14.00 á eftirfarandi eignum: Strandgata 43, Neskaupstað, þingl. eig. Byggðastofnun, gerðarbeið- andi Fjarðabyggð. Strandgáta 45, Neskaupstað, þingl. eig. Byggðastofnun, gerðarbeið- andi Fjarðabyggð. Sýslumaðurinn í Neskaupstað, 17. nóvember 1999. ÝMISLEGT Mömmur athugið ef barnið pissar undir Undraverður árangur með nýrri uppgötvun í óhefðbundnum aðferðum. Ekki söluvörur. Sigurður Guðleifsson, svæðanuddfræðingur, ilmolíu- fræðingur og reikimeistari, sími 587 1164. \ --7 / KFUM V Aðaldeild KFUM, Holtavegi Fundur í kvöld kl. 20.00. Umbrot ■ Kötlu. Umsjón: Páll Einarsson. Upphafsorð: Hörður Geirlaugs- son. Hugleiðing: Sr. Lárus Hall- dórsson. Allir karlmenn velkomnir. FÉLAGSLÍF Landsst. 5999111818 IX kl. 18.00 I.O.O.F. 11 - 18011188'/. - E.T.1 Kl. 20.30 Samkoma. Majóramir Turid og Knut Gamst stjórna og tala. mbl.is / v \
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.