Morgunblaðið - 18.11.1999, Side 54

Morgunblaðið - 18.11.1999, Side 54
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Börn með fátíðar fatlanir ÞEGAR fötlun greinist hjá böm- un er nauðsynlegt að foreldrar séu vel upplýstir um helstu einkenni fötlunarinnar og með hvaða hætti best sé að koma á þjálfun á þeim sviðum þar sem hún er möguleg. Slíkar upplýsingar eru í flestum tilfellum að- gengilegar og ekki síst hjá þeim félagasam- tökum sem tengjast hinum ýmsu fötlunum og sjúkdómum. Félög njem þessi eru meðal annars stofnuð til þess að auka upplýsinga- flæði hvort sem er til almennings eða aðst- andenda. Að almenn- ingur sé vel upplýstur um mismunandi fatl- anir og sjúkdóma hefur gert þeim einstaklingum sem málið snertir lífíð auðveldara og ekki síst hafa fordómar minnkað. Einnig er mjög mikilvægt að koma á tengingu milli foreldra sem eiga börn með sam- bærilega fötlun, að geta rætt við aðra for- eldra sem hafa gengið í gegnum svipaða reynslu er ómetanlegt. Þegar börn eru greind með svokallað fátíðar fatlanir er mál- ið vandasamara. Oft er aðeins um örfá tilfelli að ræða hér á landi og jafnvel er fötlunin svo fátíð að hún er ekki þekkt hjá öðrum í ver- öldinni. Skilgreiningin á fá- tíðri fötlun er í Dan- mörku þannig að ef færri en 500 einstakl- ingar hafa hana í land- inu, þá telst hún fátíð. Þúsundir mismunandi fátíðra fatlana eru til og oft eru þær tengd- Fötlun Þegar börn eru greind með svokallað fátíðar fatlanir er málið vanda- samara, segir Anna Kristinsdóttir. Oft er aðeins um örfá tilfelli að ræða hér á landi. ar litningagöllum og heilkennum. það sem er oft sammerkt með for- eldrum þessara barna er það að erf- iðlega gengur að fá upplýsingar sem tengjast fötluninni. Þó hafa orðið miklar breytingar á því með almennri notkun internetsins. Það kemur þó aldrei í stað þess að geta skipst á skoðunum við aðra for- eldra. I maí s.l. hittust foreldrar nokk- urra bama með fátíðar fatlanir í húsnæði þroskahjálpar. Þar var flutt erindi um heimsókn foreldra til Noregs til þess að fræðast um fá- gæta fötlun. I framhaldi fóru síðan fram almennt spjall. Þó þarna væri um einstaklinga með ólíkar fatlanir að ræða var ótrúlega margt sem þessir aðilar áttu sameiginlegt. Ekki síst var það dýrmætt að hitta þarna foreldra sem áttu eldri börn og gátu leiðbeint okkur hinum sem styttra voru á veg komin. Laugardaginn 20. nóvember kl 14.00 ætla foreldrar barna með fá- gætar fatlanir að hittast aftur. Að þessu sinni ætlum við að hittast með bömin með okkur. Við ætlum að hittast á Lyngási, Safamýri 5, fá okkur kaffi saman og skiptast á skoðunum. Með þessari grein vill ég vekja athygli foreldra barna með fágætar fatlanir á þessu málefni um leið og ég hvet sem flesta sem málið varðar að mæta. Frekari upplýsingar er hægt að fá skrifstofu þroskahjálpar ísími 588 9390 Höfundur er foreldri barns með fá- tíða fötlun. Betri föt efif Klæðskeraverksfæði Pantið aldamótafatnaðinn núna! Sími 557 8700 BASTA* BASTA basta de-icer IJMnM rwt r. fTKnstwre- lif*1** ,. w*t b$STa I Jupone 5trft/sticki ekkert hrím á rúðum engar frosnar læsingar engar frosnar hurðir auðveld gangsetning í kuldanum rakavörn fyrir rafkerfið I fJWíjjf I **“*2?££ Olíufélagið hf Anna Kristinsdóttir Athugasemd sem snertir Ríkisútvarpið BLAÐAMENN Morgunblaðsins kunna ekki frönsku. Þetta er ósatt, svara menn hjá Morgun- blaðinu. Hjá blaðinu vinna nokkrir blaða- menn sem eru vel fær- ir í frönsku. Eg veit það, enda meinti ég ekki alla blaðamenn Morgunblaðsins, held- ur bara suma þeirra. Aftur svara Morgun- blaðsmenn því til að það sé ekki nóg að segja blaðamenn og meina bara suma þeirra, það að sleppa óákveðnu fornafni valdi misskiln- ingi. Menn haldi að enginn blaða- maður Morgunblaðsins kunni frönsku, ef ég haldi fast við að orða þetta svona. Jæja þá, SUMIR blaðamenn Morgunblaðsins kunna frönsku. „Starfsmenn Ríkisútvarpsins hafa lagt til að Ríkisútvarpinu verði breytt í Ríkisútvarpið hf.“ Þetta segir Morgunblaðið á blaðsíðu 25 sunnudaginn 7. nóvember og það er ósatt. Líkt og í dæminu hér á undan veldur vöntun á óákveðnu fornafni því að þessi fullyrðing um starfs- menn Ríkisútvarpsins er alröng. Réttara væri að segja „Nokkrir yf- irmenn Ríkisútvarpsins vilja að því verði breytt í hlutafélag." Saga þessarar tillögu örfári’a nú- verandi starfsmanna (7 af 370) að breyta fyrirtækinu í hlutafélag skýrir það hversu fáir aðrir starfs- menn hafa sýnt henni áhuga. I júní 1996 skipaði Heimir Steinsson þá- verandi útvarpsstjóri sjö manna starfshóp sem átti að gera sér grein fyrir tækniþróun komandi ára og hvemig Ríidsútvarpið gæti nýtt sér þá þróun. í samræmi við erindis- bréfið skipaði Heimir formann hópsins Eyjólf Valdimarsson, þá- verandi framkvæmdastjóra Ríkis- útvarpsins, það er að segja hópur- inn fjallaði ekkert um aðalviðfangsefni Ríkisútvarpsins - dagskrá og dagskrárgerð. Bara um tækniþróun. Reyndar bætti hópur- inn við bollaleggingum um breyt- ingu á rekstrarformi fyrirtækisins. I því sambandi er rétt að hafa í huga að á landsfundum árin 1993 og 1996 ályktaði Sjálfstæðisflokk- urinn að huga þyrfti að breytingu á rekstrarformi Ríkis- útvarpsins, svo og að síðustu árum, breyt- ing í hlutafélag og einkavæðing. Bogi Ágústsson fréttastjóri Sjónvar- psins var einn af þátt- takendum í ofan- gi'eindum starfshóp Heimis Steinssonar. Bogi hefur sjálfur sagt frá því að það hafí ver- ið hann sem fékk hóp- inn til þess að mæla með breytingu í hluta- félag. Höfuðröksemd- ir voru þær að við há- effun næðist fram „breyttur hugsunarháttur yfir- manna og starfsmanna í fyrirtæki sem býr við sömu skilyrði og einka- fyrirtæki", ennfremur yrði „auð- veldari aðlögun að síbreytilegum Hlutafélög Tillögurnar um breyt- ingu Ríkisútvarpsins í hlutafélag eru, að mati Jóns Asgeirs Sigurðssonar, vanhugs- aðar og reistar á vondum rökum. markaðsaðstæðum" fyrir Ríkisútv- arpið. Með öðrum orðum, Ríkisútv- arpinu færi best að starfa eins og hvert annað einkafyrirtæki á ljós- vakamarkaði. Ef þessar tillögur næðu fram að ganga, þá væri eðlilegt að taka und- ir með Pétri Blöndal alþingismanni og spyrja: Af hverju stendur ríkis- sjóður Islands bara í útvarps- og sjónvarpsrekstri? Af hverju gefur hann ekki líka út dagblað og sér um internetið? Breyting Ríkisútvar- psins í þá veru að það sé eins og hver annar einkarekstur, skapar þegar allt kemur til alls forsendur íyrir því að leggja það niður. Þegar búið væri að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag, yrði næsta skref aug- ljóslega það að selja hlutabréfin á opnum markaði og breyta því þar- með í venjulegt einkafyrirtæki. Jón Ásgeir Sigurðsson GRAND HÓTEL REYKJAVÍK býður til jólahátíðar með sérstakri hátíðarstemningu og ilmandi jólahlaðborði. Við bjóðum glæsileg salarkynni fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Hljómsveitin GRAND BAND leikur fyrir dansi föstudaga og laugardaga. Gunnar Páll leikur borðtónhst allar helgar. Glæsilegt og ilmandi jólahlaðborð í anda íslenskra jóla. GRAND JÓL - Föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld og í hádeginu á föstudögum. HOTEL REYKJAVÍK OPNUM FYIIl OEAMD JJÓL föstudaginn 26. nóvember. imhíi iiiiiiWí||'twrn W • • •' '■ ... •sssSSt ■ — p rtLJLJiH • r 0 r/! J

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.