Morgunblaðið - 18.11.1999, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 18.11.1999, Qupperneq 62
« 62 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 f----------------------------- MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Faðir okkar, + EIRÍKUR KETILSSON stórkaupmaður, er látinn. Ásgeir Hannes Eiríksson, Guðrún Birna Eiríksdóttir, Dagmar Jóhanna Eiríksdóttir. + Eiginmaður minn og faðir okkar, ÞÓRARINN GUÐLAUGSSON, Fellskoti, Biskupstungum, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands að morgni mið- vikudagsins 17. nóvember. Katrín Þorsteinsdóttir og börn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdafaðir og afi, HALLDÓR INGIBERG ARNARSON, Drekahlíð 5, Sauðárkróki, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánudaginn 15. nóvember. Jarðsungið verður frá Sauðárkrókskirkju laugar- daginn 20. nóvember kl. 14.00. Ólöf Konráðsdóttir, Örn Sölvi Halldórsson, Elva Ösp Ólafsdóttir, Halldór Heiðar Halldórsson, Erla Ásgrímsdóttir, Andrea Anna Arnardóttir og aðrir aðstandendur. + Ástkær móðir okkar, GUÐLAUG HELGADÓTTIR frá Baldursheimi, Norðurgötu 56, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 22. nóvember kl 13.30. Jarðsett verður í Möðruvallakirkjugarði. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknastofnanir. Hulda Aðalsteinsdóttir, Aðalheiður Aðalsteinsdóttir Jón Aðalsteinsson, Helgi Aðalsteinsson, Þorlákur Aðalsteinsson, Jónína Aðalsteinsdóttir, Baldvin Aðalsteinsson og fjölskyldur. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, KRISTÍN G. FENGER, Lynghaga 7, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 19. nóvember kl. 10.30. Geir U. Fenger, Pétur U. Fenger, Sigrún Guðmundsdóttir Fenger, Anna Kristín Fenger, Steinar Jónsson, Ida Hildur Fenger, Skafti Jóhannsson og barnabörn. Útfararstofan annast meginhluta allra útfara ó höfuðborgarsvæðinu. Þarstarfa nú 15 manns við útfararþjónustu og kistuframleiðslu. AlúSleg þjónusta sem byggir á langri reynslu * Utfararstofa Kirkjugarðanna ehf. Vesturhlíð 2-Fossvogi-Sími 551 1266-www.utfarastofa.com ■J y KRISTÍN ÞORBERGSDÓTTIR + Kristín Þor- bergsdóttir fæddist 9. desember 1915 á Helgustöðum í Fljótum í Skaga- firði. Hún lést 26. október í Reykjavik. títför Krisfínar fór fram frá Áskirkju 1. nóvember sl. Nú er komið að kveðjustund. Stína amma er dáin. Það er mikill söknuður í hjarta að vita að við eigum ekki eftir að fara í heimsókn til hennar inn á Dalbraut oftar og fá hlýju móttök- umar hennar. En minninguna um hana geymum við í hjarta okkar. Fráfall Stínu ömmu er okkur öll- um sem hana þekktum erfitt. En kannski er það erfiðast fyrir yngstu langömmubörnin að skilja að það verður ekki hægt að fara oftar til Stínu langömmu til að leika, fá eitt- hvað gott í gogginn eða finna fyrir hennar miklu hlýju sem alltaf var til staðar og vera leyst út með kossi og kannski einhverju góðgæti. Stína amma var mikil og hjartagóð mann- eskja, hún hafði fengið að kynnast erfiðleik- um lífsins en tók því eins og öllu öðru með brosi á vör og þannig minnumst við hennar eins og kannski flest allir aðrir, það er alltaf brosandi. Þrátt fyrir sín veik- indi var hún alltaf ósérhlífin sem sést best á þeirri handa- vinnu sem eftir hana liggur. A okkar heimili eru margir hlutir eftir hana sem fegra og verða ómetanlegir í minn- ingunni þegar fram líða stundir. Stína amma hugsaði alltaf vel um sitt fólk en ætlaðist ekki til neins í staðinn. Hún var alltaf jákvæð sama hvað á gekk þrátt fyrir þau áföll og mótbárur sem á henni dundu í lífinu. Hún hafði mikið yndi af því að fara norður á heimaslóðir sínar til að hitta þar ættingja og vini. Reyndi hún að komast norður í það minnsta einu sinni á ári og stundum oftar og í sumar urðu + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN SNORRI BERGSSON, Karlstad, Svíþjóð, lést mánudaginn 15. nóvember. Hann verður jarðsunginn í Karlstad mið- vikudaginn 24. nóvember. Birgit Bergsson, Bergur Jónsson, Þuríður Guðný Sigurðardóttir, Hafsteinn Jónsson, María Haglund, Agnar Már Jónsson, Soffía Dóra Sigurðardóttir og barnabörn. + Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, SIGURLAUG ÞORLEIFSDÓTTIR, Fannborg 7, Kópavogi, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 16. nóv- wjtrnm. ember. 'S~ ' r<> /j,-/1 y Valgeir Viihelmsson „«t /y v- og synir. + Elskulegur sambýlismaður minn, fóstri okkar og bróðir, JAKOBJÓNSSON, Faxabraut 17, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstu- daginn 19. nóvember kl. 14.00. Kristín Gestsdóttir, Hílmar Bjarnason, Svavar Bjarnason, Richard D. Woodhead og systkini hins látna. + Útför, EYRÚNAR GUNNARSDÓTTUR, Ásgarði 3, fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 19. nóv- ember kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Gilwellskólann, Úlfljótsvatni, beinist til Skátafélagsins, Snorra- braut 60. Eyjólfur Arthúrsson, Hrefna Svava Þorsteinsdóttir, Guðrún Gerður Eyjólfsdóttir, Gunnar L. Benediktsson og systkini. norðurferðirnai- þrjár. Hún var heiðursfélagi í kvenfélaginu í Fljót- um og einn af stofnendum þess en ein ferðin í sumar var einmitt í tengslum við 60 ára afmæli kvenfé- lagsins. Með trega í brjósti horfum við á eftir ömmu fara yfir móðuna miklu. Hennar verður sárt saknað en minningin um hana er ljós í lífi okk- ar. Er það einlæg von okkar að nú séu amma og afi sameinuð á ný og við vitum að loksins fékk hún lang- þráða hvíld eftir erfið veikindi. Vottum við öðrum ættingjum sem og vinum og kunningjum hennar okkar dýpstu samúð og megi góður guð styrkja þau í sorginni. Ámi Sveinn Pálsson, Stefanía Dögg Hauksdóttir, Stella Karen Amadóttir. AFMÆLIS- OG MINN- INGAR- GREINAR MIKILL fjöldi minningar- greina birtist daglega í Morg- unblaðinu. Til leiðbeiningar fyrir greinahöfunda skal eftir- farandi tekið fram um lengd greina, frágang og skilatíma: Lengd greina Um hvern einstakling birt- ist ein uppistöðugrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar minningargreinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línu- lengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetrar í blaðinu). Til- vitnanir í sálma eða ljóð takm- arkast við eitt til þrjú erindi. Formáli Æskilegt er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fædd- ur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálfum. Undirskrift Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Frágangur og móttaka Mikil áherzla er lögð á að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverkn- að. Þá er ennfremur unnt að senda greinar í símbréfi - 569 1115 - og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Skilafrestur Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast íyrir hádegi á föstudag. I miðvikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir há- degi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Þar sem pláss er takmarkað, getur þurft að íresta birtingu minn- ingargreina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.