Morgunblaðið - 18.11.1999, Page 66

Morgunblaðið - 18.11.1999, Page 66
66 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Svo við lðgðum Hvemig vissirðu Einhver sagði upp í vesturátt. að það var vestur? að sólin settist í vestri. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Við erum líka til Frá leiðbeinendum á leikskólanum Sæborg: Á UNDANFÖRNUM vikum og mánuðum hefur mikið verið rætt og ritað um leikskólamál í höfuð- borginni, manneklu og kjaramál leikskólakennara. I þessari um- ræðu hefur hins vegar lítið farið fyrir stöðu ófaglærðra, þ.e. leið- beinenda á leikskólum borgarinn- ar. Við erum hvorki meira né minna en 60% af starfsfólkinu. Þeir sem þekkja til segja að ástandið á leikskólunum hafi aldrei verið jafnslæmt og núna í haust. Byrjunarlaun leiðbeinenda eru um 70 þúsund krónur á mánuði og þessi lágu laun eru aðalástæðan fyrir þeirri manneklu sem hefur verið í leikskólum borgarinnar. Á meðan þensla er í þjóðfélaginu eiga leikskólar erfiðara með að keppa um starfsfólk við aðra vinnustaði sem bjóða hærri laun. Við, sem störfum á leikskólum, höfum ekki orðið varar við hið margumtalaða góðæri sem ríkis- stjórnin er alltaf að tala um. Ráðamenn þjóðarinnar virðast ekki gera sér grein fyrir hve gífur- lega krefjandi og mikilvægt starf það er að vinna með litlum börnum allan daginn. Það hlýtur að segja manni eitthvað um viðhorf til starfsins að launin skuli ekki vera hærri en raun ber vitni. Þrátt fyrir að launin hafi staðið í stað, miðað við þá þróun sem hefur verið á hinum almenna markaði, eru sífellt að aukast kröfumar til okkar sem gegnum uppeldisstörf- um í þjóðfélaginu. Þetta fer ekki saman! í starfsmannastefnu Reykjavík- urborgar segir að borgin stefni að því að taka meira tillit til ábyrgð- ar, frammistöðu og árangurs við ákvörðun kjara til þess að laða að sem hæfast starfsfólk og halda því. Spurning er hvort hæfasta starfs- fólkið geti sætt sig við 70-80 þús. krónur á mánuði í laun til lengdar! Til þess að bæta ástandið þarf að hækka launin verulega og láta leikskólana njóta meiri virðingar, þannig að starfið verði eftirsótt- ara. Því það er gaman að vinna með börnum, bæði gefandi og skapandi. Þessi mannekla hefur kannski ekki bitnað hvað harðast á okkar leikskóla en samt höfum við orðið varar við aukið álag. Foreldrum er væntanlega ekki sama hvers konar fólk annast börn þeirra. Það verður að vera hlýlegt og ábyrgt. Því skiptir það miklu máli að fá gott starfsfólk til starfa því fyrstu árin leggja granninn að öllu lífinu. Yfirvöld verða að fara að taka sig á og hækka laun okkar sem störfum í leikskólunum. Þá mun ekki verða vandamál að fá fólk til starfa. Nýlega gripu borgaryfirvöld til þess ráðs að greiða viðbótarfjár- veitingu til leikskólanna. Að nafn- inu til á þetta að ganga jafnt yfir alla. Samt var leikskólastjórum fyrirskipað að fyrsta greiðsla færi beint í vasa deildarstjóranna. Samkvæmt okkar heimildum er misjafnt hvernig að því var staðið og starfsmaður hjá Eflingu tjáði okkur að símalínur væru rauð- glóandi vegna almennrar óánægju leiðbeinenda. Þetta hefur leitt tU þess að skapast hefur kergja milli starfsmanna innbyrðis og á milli leikskóla. Er víst að þetta sé leið til að laða að nýtt starfsfólk og halda í það sem fyrir er? Hefði ekki verið nær að hækka launin í stað þess að pukrast svona með þessa fjármuni? Að lokum viljum við hvetja leið- beinendur á öðrum leikskólum hjá Eflingu til að láta í sér heyra. Varla eru þeir, fremur en við, ánægðir með launin og stöðu mála. EYDÍS MIKAELSDÓTTIR, HRAFNHILDUR ÖRLYGSDÓTTIR, SIGRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR, RAKEL J. SIGURSTEINSDÓTTIR, leiðbeinendur á leikskólanum Sæborg. • • Oryrkjar í skugga ljóssins hátíðar Frá Margréti Guðmundsdóttur: SENN líður að jólum og við gleðj- umst yfir fæðingu Frelsarans. Gleðjumst yfir þeim kærleika, þeirri miskunn og náð sem Hann einn er megnugur að veita. En hvað, eru ekki allir glaðir? Þeir sem það þekkja vita hvaða skuggi fylgir ljóssins hátíð. Skuggi fátæktar. Þann skugga þekkja öryrkjar vel og þær sorglegu afleiðingar sem honum fylgja svo oft. Árviss betliganga öryrkja milli góðgerðastofnana fyrir jólahaldinu er senn að hefjast. Niðurlæging og stöðug áminning um að öryrkjar eru ekki hluti af íslensku samfélagi, heldur óþægilegur baggi. Það getur ekki talist eðlilegt að hundruð Islendinga þurfi að reiða sig á matarúttektarmiða í Bónus frá Mæðrastyrksnefnd og Hjálpar- stofnun kirkjunnar. Eða er kannski einhver sem hagnast á þessu ást- andi? Er ekki kominn tími til að þessar tölur hækki: Örorkulífeyrir 16.829 kr. pr. mán. Tekjutrygging 29.747.- pr. mán. Heimilisuppbót 13.836.pr. mán. og sérstaka heimilisuppbótin 6.767.kr. pr. mán. Þetta eru stríp- aðar örorkubætur. Ætla stjórnvöld að halda áfram að telja þjóðinni trú um að ef þessar tölur hækki þá fari af stað óöld í ís- lensku efnahagslífi? Eru öryrkjar burðarstólpar velferðarríkisins Is- lands? Það er ekkert sem réttlætir svona meðferð á manneskjum sem búa við skerta starfsorku. MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, skrifstofumaður hjá Háskóla Islands og öryrki. AUt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.