Morgunblaðið - 18.11.1999, Page 68

Morgunblaðið - 18.11.1999, Page 68
i 68 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ BRIDS IJmsjón Arnór G. Kagnarsson Bikarkeppni Reykjaness árið 2000 Bikarkeppni Reykjaness árið 2000 er að hefjast og verður fyrsta umferðin spiluð í Hraunholti í Hafn- arfírði 3. des. nk. kl. 18. Þátttaka tilkynnist til Kjartans í síma 421-2287 eða til Sigurjóns í síma 565-1845/898-0970 Spilað er um silfurstig. Þátttöku- gjald er 300 kr. á sveit í hverri um- ferð. Bridsfélag Suðurnesja Hafíð er sveitarokk með þátttöku 16 para og er lokið þremur umferð- . 7 um af fímmtán. Staða efstu para er þessi: Birkir Jónsson - Guðjón Jenssen 60 Oli Þór Kjartansson - Garðar Garðarsson 58 Gunnar Guðbjömsson - Kjartan Ólason 57 Gunnar Guðbjömsson - Amar Arngrímss. 56 Spilaðir eru þrír 8 spila leikir á kvöldi. Félag eldri borgara í Kópavogi Þriðjudaginn 9. nóvember var spilaður eins kvölds Mitchell-tví- menningur með þátttöku 25 para og urðu úrslit þessi í N/S: Albert Þorsteinss. - Bjöm Ámason 388 Eysteinn Einarsson - Magnús Halldórss. 367 Aðalheiður Torfad. - Ragnar Asmundsson 356 Hæsta skor í A/V: f Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddsson 404 Jón Stefánsson - Sæmundur Björnss. 388 Guðm. Magnússon - Kristinn Guðmundss. 354 Föstudaginn 12. nóv. spiluðu 20 pör og þá urðu úrslit þessi í N/S: Lárus Hermannss. - Þórður Jömndss. 259 Ásta Erlingsd. - Sigurður Pálsson 250 Ólafur Ingvarsson - Þórarinn Ámason 239 Hæsta skor í A/V: AlbertÞorsteinss-SæmundurBjörnss. 273 Fróði Pálsson - Þorleifur Þórarinsas. 260 HannesIngibergss.-LárasArnórss. 249 Meðalskor á þriðjudag var 312 en -j 216 á föstudag. Bridsfélag Hreyfils Nú er lokið átta umferðum af ell- efu í aðalsveitakeppninni og hefir sveitin Vinir tekið örugga forystu en staða efstu sveita er nú þessi: Vinir _ 158 Sigurður Ólafsson 146 Friðbjörn Guðmundsson 141 Jóhannes Eiríksson 141 Óskar Sigurðsson 137 Spilað er á mánudagskvöldum í Hreyfilshúsinu. Stórmót Munins í Sandgerði haldið um helgina Stórmót Munins og Samvinnu- ferða fer fram nk. laugardagskvöld. ’ Það stefnir í góða þátttöku eins og undanfarin ár. Spilað er í félagsheimilinu við Sandgerðisveg. Bridsdeild FEBK í Gullsmára Sveitakeppni er spiluð á mánudög- um en tvímenningur á fímmtudögum og hefst spilamennskan kl. 13 í Gull- smára 13. Ellefta nóvember mættu 18 pör og varð röð efstu para þessi: N/S Guðmundur Á Guðmundss. - Jón Andréss. 223 Sigurður Bjömsson - Auðunn Bergsveinss. 193 Guðrún Maríusd. - Sigurður Einarsson 187 A/V Guðmundur Pálss. - Kristinn Guðmundss. 208 Gunnar Gíslason - Sigurberg Gíslason 208 Amdís Magnúsd. - Karl Gunnarsson 190 Bridsfélagið Muninn, Sandgerði Miðvikudaginn 10. nóvember hófst haustsveitakeppni með þátt- töku 8 sveita og er staða efstu sveita þessi eftir 2 umferðir: Sv. Karls G. Karlssonar 49 Sv. Garðars Garðarssonar 34 Sv. Guðjóns Óskarssonar 34 Sv. Ævars Jónassonar 29 Einnig viljum við minna spilara, sem komast ekki, á að útvega aðra spilara til að komast hjá óþægind- um. Einnig viljum við minna á stór- mót félagsins og S/L. Þátttöku má skrá í síma: 423 7628 eða 423 7623, Víðir Jónsson. Og í síma: 421 4648 eða 421 4500, Svala Pálsdóttir. Einnig í síma: 423 7967 eða 422 7444, Ævar Jónsson. Og hjá BSÍ í síma: 587 9360. Fimmtudagar í Þönglabakkanum Fimmtudaginn 4.nóvember mættu 16 pör að spila. Spilaður var mitchell með fjórum spilum á milli para. Miðlungur 168. Lokastaðan varð þessi: NS Gylfi Baldurss. - Jón Steinar Gunnlaugss. 203 Isak Örn Sigurðss. - Hallur Símonarson 196 Alfreð Kristjánss. - Kristjana Steingrímsd. 173 AV Inga Jóna Stefánsd. - Erla Sigurjónsd. 190 Brynjar Jónss. - Nicolai Þorsteinss. 183 Ásmundur ðrnólfss. - Gunnlaugur Karlss. 182 Fimmtudaginn 11. nóvember mættu 13 pör að spila. Spilaður var mitchell með fjórum spilum á milli para. Miðlungur 168. Lokastaðan varð þessi: NS Isak Örn Sigurðss. - Hallur Símonarson 210 Gylfi Baldurss. - Steinberg Ríkarðss. 184 Anna G. Nielsen - Guðmundur Friðbjömss. 175 AV Jóhanna Sigurjónsd. - Una Árnad. 181 Einar Guðmundss. - Ormarr Snæbjömss. 179 Bergur Ingimundars. - Axel Láruss. 175 Baldur Bjartmars - Steindór Ingimundars. 175 ísak og Hallur eru með bestu prósentuskor nóvember-mánaðar sem gefur matarúttekt á Þrjá Frakka, 62,5%. Hæstur í bronsstig- unum sem einnig gefur matarúttekt á Þrjá Frakka er Gylfi Baldursson með 29 stig. I vetur verður spilaður eins kvölds tvímenningur á fimmtudög- um með glæsilegum verðlaunum. Verðlaun fyrir besta árangur hvers mánaðar, úttekt að verðmapti kr. 10.000.00 4., 11., 18. og 25. nóvember telja til verðlaun í nóvembermánuði. Spilað er í húsnæði Bridgesam- bands Islands og byijar spila- mennska kl. 19.30. Keppnisstjóri er Eiríkur Hjaltason. Bridsfélag HafnarQarðar Eftir 6 umferðir af 10 í aðalsveita- keppninni er staðan nú þannig: Sveit Huldu Hjálmarsdóttur 128 sveit Högna Friðþjófsson 122 sveitGuðmundarMagnússonar 94 I fjölsveitaútreikningi eru þessi pör nú efst: (spilaðir leikir í sviga) Friðþj. Einarss. - Guðbrandur Sigurbergss. 20,5 (5) HuldaHjálmarsd.-AndrésÞórarinss. 18,19(4) Björn Arnars. - Halldór Þórólfss. 18,19 (4) Jón N. Gíslas. - Snjólfur Ólafss. 15,71 (6) Pör þurfa að hafa spilað helming þeirra spila, sem lokið er, til að koma til greina við röðun í sæti. Vinalínan er opin á hverju kvöldi frá kl. 20-23 - Úkeypis símaþjónusta -100% trúnaður - sími 800 6464 — Vinalína Rauða krossins þegar þú þarft á uini að halda í DAG VELVAKAJVPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Sekur eða saklaus KONA hafði samband við Velvakanda og vildi koma á framfæri óánægju, fyrir sína hönd og vinkvenna sinna, vegna dóms Hæsta- réttar í máli dóttur gegn föður sínum. Vilja þær lýsa furðu sinni á þessu máli og finnst það allt hið undar- legasta. Þær höfðu lesið grein sem birtist í Morg- unblaðinu 2. nóvember sl. sem heitir: „Sekur - sek- ari“ sem skyldmenni stúlkunnar hafði skrifað. Þeim fannst greinin mjög góð. Vildu þær lýsa furðu sinni á máli þessu hjá Hæstarétti. Lesendur Rangt farið með í Skólaljóðum, kennslubók fyrir grunnskóla, er vit- laust ritað ljóðið hans Jónasar Hallgrímssonar: Réttarvatn. Ljóðið á að vera: Efst á Arnarvatns- hæðum oft hef ég fáki beitt, en í Skólaljóðum er það svona: Efst á Arnar- vatnshæðum oft hef ég klári beitt. Þessu er hér með komið á framfæri. Amma Þakklæti og ábending RAGNHEIÐUR hafði samband við Velvakanda og vildi koma á framfæri þakklæti til Kristjáns Jónssonar, sem skrifaði Viðhorf í Mórgunblaðið þriðjudaginn 16. nóvem- ber sl. Greinin heitir „Raust framtíðarinnar? Fannst henni greinin mjög góð. Einnig vill hún spyrja gatnamálayfirvöld, af hverju auglýsingar um skaðsemi nagladekkja hafi komið svona seint, þegar 65% þjóðarinnar eru á nagladekkjum? Þessi auglýsing hafi kom- ið að minnsta kosti mán- uði of seint. Vildi hún líka benda á, að nagladekkin valda mengun, því þau tæta upp malbikið af göt- unni sem veldur tjöru- mengun. Tapað/fundið Hvar er svarti síðkjóllinn ? ÞIJ, sem ert með svarta síðkjólinn í óskilum síðan á árshátíð Myndlistarskól- ans fyrir nokkrum árum, viltu vera svo góð að hringja í Guðlaugu í síma 554-1858 eða 853-9218. Filma fannst í leigubíl ÞESSI mynd var á filmu sem fannst í leigubíl frá BSR í byrjun nóvember. Þeir sem kannast við myndina geta haft samband í síma 892 8864. Seiko úr SEIKO silfurlitað úr með digital slyá týndist á leið- inni Armúli-Álftamýri. Eigandi úrsins er sjón- skertur og ef ýtt er á takka framan á úrinu segir það tímann á ensku og þýsku. Skilvís finnandi hafi vinsamlegast samband við Auði í síma 568-6415. GSM-sími týndist SVARTUR Panasonic gsm-sími týndist sl. mánudag á Kleppsvegi. Þeir sem hafa orðið varir við símann hafi vinsam- legast samband í síma 551 3103. Dýrahald Hvolpur fæst gefins HVOLPUR 13 vikna, ís- lensk-blandaður og faHeg- ur, fæst gefins. Upplýsing- ar í síma 565 3086. Kettlingur í óskilum UM það bil 5-6 mánaða kettlingur er í óskilum í Breiðholti. Hann er gul- bröndóttur með hvítar lopp- ur og hvítur á bringu. Hann er með rauða hálsól með bjöllu og bleikri tunnu, en ómerktur. Hann fannst við Æsufellsblokkina. Hann er búin að vera hjá Kitty í viku og getur hún gefið upplýs- ingar í síma 567-6367. Morgunblaðið/Ásdís SKAK llmsjón Margeír Pétursson STAÐAN kom upp á minningarmóti um Tsjígórín sem haldið var í Sánkti Pétursborg í haust. A. Shishkov (2300) hafði hvítt og átti leik gegn A. Berelovich (2465) 19._ Rxh3! 20. gxh3 _ Hxf3 21. Del _ Hxh3+ 22. Bxh3 _ Dxh3+ 23. Kgl _ Bg4 24. Rdl _ Bf3 25. Dd2 _ Hf8 og hvítur gafst upp. Víkverji skrifar... U* TLENDINGAR hafa margir hrifist að þeirri stefnu íslend- inga að leitast við að halda tungu- málinu hreinu með nýyrðasmíð og íslenskun orða. Þegar finna þarf upp ný orð koma yfirleitt nokkrar tillögur fram og menn keppast við að halda fram sínu orði, t.d. með skrifum í blöð. Síðan líður nokkur tími og smám saman verður eitt orð ofan á og önnur víkja. Þegar Evrópusambandið ákvað að taka upp sameiginlegan gjaldmiðil var fljótlega gerð tillaga um að gjald- miðillinn héti evró, sem hljómar mjög svipað og enska orðið yfir gjaldmiðilinn. Seðlabankinn vildi að talað yrði um evru. Sem betur fer hefur þetta orð orðið ofan á og nú talar varla nokkur maður um evró sem er ljótt orð sem fellur illa að íslensku máli. Annað dæmi um fyrirbæri sem menn komast varla hjá því að nefna nánast á degi hverjum er það sem í upphafi var kallað Internet. Mörgum var illa við að nota alþjóð- lega heitið. Búið var til hið ágæta orð Alnet. En nú bendir flest til að það orð sem verði ofan á sé hið ein- falda og fallega orð Net. Þetta orð hefur lengst af verið notað á ís- landi til að lýsa verkfæri sem var ómissandi tæki í daglegu lífi lands- manna. Segja má að hin nýja merking orðsins lýsi vel verkfæri sem í dag er ómissandi þáttur í lífi landsmanna. xxx HVAÐ er það sem gefur lífinu gildi? Þetta er sú spurning sem hefur leitað á manninn í gegn- um aldimar. Við spurningunni eru til mörg mismunandi svör, sem er eðlilegt, því lífsviðhorf fólks eru ólík. Að eignast börn og ala þau upp er það verkefni sem margir setja ofarlega á forgangslistann. Sumir telja að Islendingar geri of mikið af því að eignast börn, sér- staklega vegna þess að ekki eru allir jafnduglegir að ala þau upp eins og að búa þau til. Víkverji vill segja stutta dæmisögu af ungum syni sínum, en svör hans gefa sannarlega lífi Vík- verja gildi. Eitt sinn kom sá stutti til pabba síns og bað hann um að lána sér bíllykilinn. Víkverja var illa við að láta barnið týna fyrir sér bíllyklinum og spurði hvort hann gæti ekki leikið sér að lyklinum í klósetthurðinni, sem hann hafði stundum notað í leiki sína. Ekki vildi barnið gera það. „Hvers vegna vilt þú ekki leika þér að klósettlyklinum?“ „Vegna þess að hann er svo van- sæll.“ „Vansæll! Hvers vegna er hann svona vansæll?" spurði Víkverji. „Nú vegna þess að hann er alltaf á klósettinu," svaraði sá stutti eftir stutta umhugsun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.