Morgunblaðið - 26.11.1999, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ
32 FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1999
Þú kaupir e/nar Weipper
gailabuxur kr. 2A95 og færð
...þúkaupir
einar Wagoner
gallabuxur
kr. 1.995 og jg
færð aðrar m
bæti.
Buxurnar sem fást í kaupbæti eru i sama lit
og sömu stærð og buxurnar sem greitt er fyrir. Tilboððgildir til sunnudags
HAGKAUP ilil
Meira úrval - betri kaup
LISTIR
Gunnar Örn. Örveru verk, olía á léreft, 1999. Ljósmynd/BragiÁsgeirsson
Hátíðar-
sýning’
MYNDLIST
Pakkhúsið — Höfn í
H o r n a f i r ð i
MYNDVERK
SVAVAR GUÐNASON
GUNNAR ÖRN
Opin helgina 27.-28.
nóvember. Aðgangur ókeypis.
FÖSTUDAGINN átjánda nóv-
ember hefði Svavar Guðnason list-
málari orðið níræður og af því til-
efni rumskuðu sveitungar hans í
Höfn í Homaflrði. Menningarmál-
anefnd staðarins, þar sem brim-
brjóturinn Inga Jónsdóttir mynd-
listai'maður er í fyrirsvari um
þessar mundir, hafði gælt við þá
hugmynd að fá Gunnar Órn listmál-
ara til að velja nokkrar myndir eftir
meistarann og sjálfan sig um leið.
Vel til fundið að vissu marki, því
Gunnar Örn telst einn af sporgöng-
umönnum Svavars í listinni, en
minna komið við sögu listaskóla og í
hópi þeirra sem staðfastast hefur
haldið sig við opið og huglægt
myndmál. Einn geira úthverfa inn-
sæisins, þótt sjálfur sé hann til
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
Svavar Guðnason, krítarmynd, óárituð og án ártals.
muna hallari að frjálsu hugarflugi
og draumum á hlutlægum grunni í
margræðum dúkum sínum og smyr
þá aukreitis ekki á jafn efniskennd-
an hátt, notar jafnframt óspart þau
sígildu verkfæri sem Svavar lét
gjarnan mæta afgangi. Ennþá far-
sælla hefði þó verið að mínu mati að
láta þriðja manninn taka þátt í val-
inu á verkum Gunnars Arnar.
Allt á sér upphaf og þannig gaf til
langs tíma vinur og velunnari Svav-
ars í Danmörku, Robert Dahlmann
Olsen, heimabyggð hans hátt á
fjórða tug myndverka fyrir nokkr-
um árum. Ekkja listamannsins,