Morgunblaðið - 28.11.1999, Síða 64

Morgunblaðið - 28.11.1999, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTUÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJfa'MBLIS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK íslendingur á í fyrirtæki í Kísildal Fjárfestar hafa keypt hlut fyrir 1,5 milljarða fjöldann allan af tölvum til að vinna sama verk. Snorri og félagar hans stofnuðu fyrirtækið eftir rannsókn- arstarf við Cornell-háskóla í New York-ríki, þar sem Snorri stundaði doktorsnám. Þeir fluttu fyrirtækið til Silicon Valley sl. vor. Eiga enn meirihluta Fjármögnun hefur gengið vel frá upphafi, en nýlega keypti fyrirtæki áhættufjárfesta hlut í Ensim fyrir 18 milljónir dollara, eða um 1,3 milljarða króna. Þrátt fyrir þá sölu, og fyrri fjármögnun fyrir samtals um 230 milljónir króna, eiga stofn- endurnir fimm enn stærstan hluta fyrirtækisins. ■ Snorri og sýndarvélarnar/Bl ÍSLENSKUR tölvunarfræðingur, Snom Gylfason, er yfirhönnuður og einn fimm aðaleigenda hugbún- aðarfyrirtækisins Ensim í Silicon Valley í Kaliforníu. Fyrirtækið hef- ur vaxið mjög hratt frá því að það var stofnað fyrir hálfu öðru ári; starfsmenn eru nú fjörutíu, sá fjöldi þrefaldast að öllum líkindum á næsta ári og Ensim hefur vakið athygli stórfyi-irtækja á borð við Hewlett-Packard og Intel. Snorri segir að stefnt sé að því að setja fyrirtækið á almennan markað í október á næsta ári. Að sögn Snorra gerir hugbúnað- ur Ensim netþjónustufyrirtækjum kleift að veita betri þjónustu með minni kostnaði, með því að skapa „sýndartölvur“ í stað þess að nota "Nauðsynlegt að meta náttúruna til fjár STÁLE Navrud, einn þekktasti umhverfíshagfræðingur Norður- landa, segir nauðsynlegt að láta meta efnahagslegt gildi náttúrunn- ar áður en ráðist er í óafturkræfar framkvæmdir. Þetta kemur fram í viðtali Morgunblaðsins við Navi-ud um virði náttúruverðmæta og aukna umhverfisvitund almennings. Nánast alltaf vanmetin Navrud segir að aðferðum hag- -Vfræðinnar sem meta efnahagslegt gildi náttúrunnar hafi vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum. Hann segir að náttúran sé nánast alltaf vanmetin sé þessi aðferð ekki notuð. Hvað varðar ísland og umræðu um nýtingu hálendisins segir hann að þrír kostir séu í stöðunni: ,Að halda svæðinu ósnortnu, gera virkjun eða gera þjóðgarð. Þið verðið að gera kostnaðar- og ábata- greiningu fyrh- hvern kost, það er, þið vegið og metið kosti og galla hvers möguleika og takið ákvörðun á þeim forsendum. Eg hef ekki séð áætlaðan kostnað eða hagnað fyrir virkjunina, en þið verðið að meta hagnaðinn sem verður af fram- kvæmdinni á móti þeim verðmæt- um sem fórna þarf í náttúrunni," segir Navrud. ■ Náttúran kostar/10 Morgunblaðið/Kristinn Bað í sólargeislum DAGINN styttir óðum og sól er lágt á lofti. í var staddur í Laugardalslauginni í gærmorgun og skammdeginu getur verið hressandi að fá sér sund- baðaði sig í geislum sólarinnar áður en hann stakk sprett snemma morguns. Þessi sundlaugargestur sér til sunds í heitri lauginni. Leit undir- búin að smábát LEIT var undirbúin að smábát frá Bolungarvík í fyrrakvöld þegar ekki náðist samband við hann. Báturinn skilaði sér sjálfur til hafnar en hann hafði fengið á sig öldu sem braut rúðu og sló út rafmagnið. Farið var að óttast um sex tonna trillu frá Bolungarvík, Pétur Jóhannsson, þegar ekki náðist samband við hana, hvorki úr landi né frá öðrum bátum. Veður var heldur að versna og þegar smábátarnir komu til hafnar ákvað björgun- arsveitin að manna bát til að senda til leitar og fá menn til að ganga út Stigahlíð. Þá sást ljóslaus bátur koma inn úr myrkrinu og reyndist það Pétur Jóhannsson. Hafði báturinn fengið skvettu á rúðu, eins og Jón Guðbjartsson, vai-a- formaður björgunarsveitarinn- ar, orðaði það og rafmagn slegið út á tækjum. Ekkert amaði að mönnunum tveimur um borð. Fjórfalt meiri hlutabréfa- viðskipti í ár en í fyrra VELTA hlutabréfa í félögum sem skráð eru á Verðbréfaþingi íslands er tæplega 100 milljarðar kr. það sem af er ári, fjórfalt meiri en á sama tíma á síðasta ári. Veltuhraði hlutabréfa á markaðnum hefur aukist mikið, sala hlutabréfa nú nemur tæplega 30% af mark- aðsvirði skráða hlutabréfa en var rúm 10% á sama tíma á síðasta ári. Verð hlutabréfa hefur hækkað mjög á árinu, þannig hefur lirvals- vísitalan hækkað um 34%. Velta hlutabréfa í viðskiptakerfi Verðbréfaþings íslands er liðlega 34 milljarðar kr. það sem af er ári. Á sama tíma á síðasta ári höfðu selst hlutabréf fyrir 9,7 milljarða og fyrir 12,5 milljarða á öllu síðasta ári. Velta hlutabréfa í skráðum fé- lögum sem fram fara utan Verð- bréfaþings hefur aukist samsvar- andi og nemur tæpum 66 milljörð- um það sem af er ári. Um það bil tveir þriðju viðskiptanna fara því fram utan þings, eins og raunar á síðasta ári. Stefán Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfaþings Is- lands, segir ánægjulegt að sjá að hlutabréf hreyfist meira á mark- aðnum. Markaðsvirði bréfa í skráð- um félögum er nú um 340 milljarð- ar kr. en var liðlega 230 milljarðar undh- lok nóvember fyrir ári. Sala hlutabréfa það sem af er ári nemur tæplega 30% af markaðsvirði skráðra hlutabréfa og er það tæp- lega þrefalt betra hlutfall en á sama tíma í fyrra. Veltuhraði gefur til kynna hvort fjárfestar geti keypt og seld hlutabréf þegar þeir vilja. „Það hefur orðið talsverð framför þótt við eigum enn langt í land með að ná sama hlutfalli og erlendar kauphallir," segir Stefán. Varað við verðleiðréttingu Verð hlutabréfa hefur hækkað mjög á árinu. Helsta viðmiðun Verðbréfaþingsins, Úrvalsvísitala Aðallista, hefur hækkað frá ára- mótum úr 1.099 stigum í 1.467 stig, eða um tæp 34%. Vísitalan hefur aldrei verið hærri en á föstudag. Hækkunum er þó mjög misskipt milh atvinnugreina. Þannig hefur vísitala olíudreifingar hækkað um rúm 62% og vísitölur fjármála og trygginga og upplýsingatækni um tæp 54%. Aftur á móti hafa vísitöl- ur þjónustu og verslunar og lyfja- greinar aðeins hækkað um nálægt 2% á árinu og visitala sjávarútvegs um tæp 11%. Verðbréfasalar segja að fjárfest- ar séu bjartsýnir á þróun markað- arins. I skýrslu Kaupþings, Þróun og horfur, kemur fram að greining- ardeild félagsins telur þó ólíklegt að miklar hækkanh’ muni verða á innlendum hlutabréfamarkaði það sem eftir lifir árs, þó svo alltaf leynist góð fjárfestingartækifæri á markaðnum, og ef ekki dragi úr verðbólguhraðanum megi búast við nokkurri leiðréttingu á verði fjöl- margra félaga, sér í lagi þeirra sem eru mjög næm fyrir innlendum kostnaðarhækkunum eða vaxta- stigi. Vegna möguleika almennings á skattaafslætti hafa margir keypt hlutabréf í lok ársins og sala hluta- bréfa því verið mikil í desember. Stefán Halldórsson á ekki von á að desember skeri sig mikið úr öðrum mánuðum ársins að þessu sinni. Vekur hann athygli á því að ekki virðist stór útboð framundan og stofnanafjárfestar dreifi fjárfest- ingum sínum yfir árið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.