Morgunblaðið - 30.11.1999, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1999
MORGUNBL AÐIÐ
J ólasveina-
fjölskylda
Pilkingtons
FYRSTI jólasveinn-
inn birtist á baksíðu
Morgunblaðsins á
morgun og hefst þá
jafnframt niðurtaln-
ing til jóla. Einn jóla-
sveinn mun birtast á
hverjum degi fram
að aðfangadegi jóla
en teikningarnar eru
eftir hinn land-
skunna teiknara Bri-
an Pilkington. Brian,
sem hefur búið á Isl-
andi í 22 ár og er ís-
Ienskur ríkisborgari,
er afkastamikill
teiknari og hefur myndskreytt
fjölda bóka og bókakápa í gegn-
um tíðina.
Hann segir að jólasveinarnir
sínir séu ekki hinir dæmigerðu
gömlu, íslensku jólasveinar. Þeir
séu of gráir yfirlitum
fyrir sinn smekk og
ekkert sérstaklega
jólalegir. Hann kjósi
að nota dálítið meira
af rauðum lit í jóla-
sveinana til að gera
þá jólalegri.
Brian segir að hann
hafi engar sérstakar
fyrirmyndir að jóla-
sveinunum sínum.
Þeir eru alfarið hans
eigin hugarsmíð sem
hann hefur lengi
skemmt sér við að
teikna. Þeir birtast
einnig á póstkortum frá SÍBS og
Rauða krossi íslands. Brian hefur
auk hinna þrettán jólasveina
teiknað eina fjölskyldumynd af
jólasveinunum, Grýlu og Leppa-
lúða, sem birt er í dag.
Ný lög um dýralæknaþ,]ónustu taka gildi 1. desember
Dýralæknar leggja áherslu á
að markmiðum verði framfylgt
NOKKUR óánægja er meðal dýra-
lækna með fyrirhugaða framkvæmd
nýrra laga um dýralæknaþjónustu en
nú er rætt um að til greina komi að
ráða dýralækna í hálft starf við eftirlit
á vegum hins opinbera, en að þeir
vinni þar fyrir utan við almennar
dýralækningar. Halldór Runólfsson
yfirdýralæknir segir hins vegar að
þetta feli alls ekki í sér að horfið sé frá
því markmiði að aðskilja eftirlit og
þjónustu í starfi dýralækna heldur sé
einfaldlega verið að leita leiða til að
leysa málin á farsælan hátt takist ekki
að ráða eftirlitsdýralækna í fullt starf.
Nýju lögin um dýralæknaþjónustu
taka gildi 1. desember næstkomandi
en þau voru gerð að beiðni dýralækna
og samþykkt á Alþingi á síðasta þingi.
Miða lögin fyrst og fremst að því að-
skilja hin opinberu eftirhtsstörf dýra-
lækna og almenna dýralæknaþjón-
ustu. Sigurður Ingi Jóhannsson,
dýralæknir á Flúðum, sagði í samtali
við Morgunblaðið að í nútíma
stjómsýslu væri sú krafa skýlaus að
menn sætu ekki báðum megin borðs-
ins, og vísar hann í þessu sambandi
m.a. til kampýlóbaktersmits í sumar
þar sem sú staða kom upp að héraðs-
dýralæknir hafði eftirlitsskyldu með
búi sem hann hafði jafnframt gert
þjónustusamning við.
„Ekki það að hann hafi ekki staðið
sig. En hans staða var óumræðilega
óþolandi. Það á ekki samkvæmt
stjómsýslulögum að setja nokkum
starfsmann ríkisins í svona stöðu,“
segir Sigurður Ingi.
Samkvæmt nýjum lögum á mest
breyting að verða hjá embættum hér-
aðsdýralækna í Gullbringu- og Kjós-
arumdæmi, Suðurlandsumdæmi og
Skagafjarðar- og Eyjafjarðamm-
dæmi. Þar verður héraðsdýralækn-
um fækkað mjög og ennfremur eiga
héraðsdýralæknar þar eingöngu að
sinna lögbundnum eftirlitsstörfum,
verða eins konai' embættismenn rík-
isins.
Jafnframt er stefnt að því að ráða 1
nokkur stöðugildi eftirlitsdýralækna
á hverjum stað en þeir yrðu aðstoðar-
menn héraðsdýralæknanna og ynnu
við dagbundin eftirlitsstörf, t.d. kjöt-
skoðun og fjósaskoðun. Kæmu önnur
verkefni upp ætti hins vegar að kaupa
þjónustu af starfandi dýralæknum
eftir atvikum og nefnir Sigurður Ingi
tímabundið verkefni eins og sauðfjár-
slátrun í þessu sambandi. Ekki hefði
átt að blanda inn í þetta starfsleyfis-
veitingum til matvælavinnslubúa eða
öðru eftirliti.
Sigurður Ingi segir hins vegar að í
síðustu viku hafi verið farið að ræða
um það í landbúnaðarráðuneytinu að
ráða fólk í 50% starf eftirlitsdýra-
lækna og skipta því þannig upp á milli
fleiri aðila.
Halldór Runólfsson yfirdýralæknir
sagði í samtali við Morgunblaðið að
hér væri einhver misskilningur á
ferðinni því áfram væri miðað við að
ráða eftirlitsdýralækna í heilt starf.
Flestir samningar lausir um
miðjan febrúar og í lok október
MJÖG er mismunandi hvenær
kjarasamningar einstakra stéttarfé-
laga verða lausir á næsta ári og
dreifist það á nánast allt árið eða frá
því að samningar eru lausir 15. febr-
úar og allt fram til áramóta 2000/
2001 þegar síðustu samningarnir eru
lausir. Þó eru flestir samninganna
lausir í upphafi tímabilsins, þ.e.a.s.
15. febrúar, og er þar um að ræða fé-
lög innan Alþýðusambands íslands
og síðan um haustið í lok október-
mánaðar þegar mjög mörg félög op-
inberra starfsmanna eru með lausa
samninga.
Þetta á í það minnsta við um þá
kjarasamninga sem gerðir voru á
vegum embættis ríkissáttasemjara,
en auk þeirra gekk nokkur hluti
stéttarfélaga frá samningum án til-
hlutan hans, sem eru í flestum tilvik-
um með svipaðan gildistíma og þeir
samningar sem gerðir voru hjá
sáttasemjara.
Þegar yfirlit um þetta er skoðað
kemur fram að samningar Verka-
mannasambands íslands, Lands-
sambands iðnverkafólks, Landssam-
bands íslenskra verslunarmanna,
Rafiðnaðarsambands Islands, Dags-
brúnar og Framsóknar, Samiðnar,
Verslunarmannafélags Reykjavíkur,
Maður handtekinn vegna
fíkniefna á Siglufirði
LÖGREGLAN á Siglufirði
handtók einn mann aðfaranótt
sunnudags vegna gruns um
fíkniefnamisferli. Borist höfðu
ábendingar til lögreglunnar um
hugsanlega fíkniefnaneyslu í til-
teknu húsi í bænum og var því
ákveðið að fara í húsrannsókn. Í
húsinu fundust síðan 12 grömm
af kókaíni og 7 grömm af mar-
ijúana. Einnig fannst við húsleit-
ina loftskammbyssa ásamt kúl-
um og þrýstihylkjum fyrir
byssuna.
Maðurinn sem handtekinn var
í tengslum við málið játaði við
yfirheyrslu að eiga efnið og telst
málið að fullu upplýst.
Við rannsóknina var notaður
leitarhundur frá lögreglunni í
Reykjavík og einnig naut lög-
reglan á Siglufirði aðstoðar toll-
yfirvalda, ríkislögreglustjóra og
lögreglunnar á Sauðárkróki.
Sjómannasambandsins, Farmanna-
og fiskimannasambandsins, Vél-
stjórafélags Islands, Alþýðusam-
bands Vestfjarða og ýmisSa verka-
lýðsfélaga út um land við
Vinnuveitendasambandið og Vinnu-
málasambandið eru lausir um miðj-
an febrúar. Sama gildir um samn-
inga mjólkurfræðinga, flugvirkja,
flugfreyja, bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis, Félags starfsfólks í veit-
ingahúsum og fleiri aðila.
Ymsir smærri samningar margra
þessara sömu aðila við til dæmis
fjármálaráðherra eða Reykjavíkur-
borg eru lausir síðar um veturinn
eða vorið allt fram til loka maímán-
aðar, en flugmenn eru með lausa
samninga um miðjan marsmánuð. I
lok októbermánaðar koma hins veg-
ar fjöldi félaga innan Bandalags
starfsmanna ríkis og bæja og
Bandalags háskólamanna. Það gildir
um kennara, lögreglumenn, lækna,
iðjuþjálfa, Félag íslenskra náttúru-
fræðinga, Ijósmæður, tollverði og
fleiri aðila.
Samningar ISAL eru lausir í lok
nóvember og í lok ársins eru Félag
íslenskra símamanna og Póstmanna-
félag íslands með lausa samninga
svo nokkur dæmi séu tekin.
Fjalla um
úrskurðinn
á morgun
STJÓRN Flutningsjöfnunar-
sjóðs olíuvara kemur saman á
morgun og fjallar þá um
úrskurð Héraðsdóms Reykja-
víkur um að viðurkenna bæri
olíuhöfnina Krossanes við Ak-
ureyri sem innflutnings-
birgðastöð á gasolíu um leið
og fyrsti beini innflutningur-
inn væri kominn í tanka
stöðvarinnar.
Georg Ólafsson, formaður
stjórnar Flutningsjöfunar-
sjóðs, segir dóminn engu
breyta efnislega. Að öðru
leyti vildi hann ekki tjá sig
um málið að svo stöddu.
Hefur borgað nær tvöfalt
kaupverð fyrir notaðan bíl
SUBARU-bifreið árgerð 1996 sem
maður nokkur keypti á bílasölunni
Bílatorgi í september 1997 hefur
reynst kaupanda nokkuð dýr. Hef-
ur hún kostað hann hálfa fjórðu
milljón króna.
Kaupandinn borgaði 1,9 milljón-
ir fyrir bifreiðina, þar af galt hann
500 þúsund með eldri bifreið og 1,4
milljónir í peningum. Rúmu hálfu
ári seinna leysti hann og til sín
veðskuldabréf í eigu Glitnis hf.
með veði í bifreiðinni, sem seljandi
hafði svikist um að flytja af henni.
Nam innlausnarverð þess 1,4 millj-
ónum.
Kaupandinn kærði meint svik í
viðskiptunum og var eigandi Bíla-
torgs sakfelldur með dómi héraðs-
dóms í janúar sl. og Hæstaréttar í
maí sl.
Freistaði kaupandi bifreiðarinn-
ar síðan að fá Glitni til að bæta sér
hið fjárhagslega tjón sem hlaust af
því að innleysa veðskuldabréfið.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði
hins vegar fjármögnunarfyrirtækið
af kröfunni í gær og dæmdi kaup-
andann til að greiða Glitni 180.000
krónur í málskostnað. Er kostnað-
ur hans við Subaru-bílinn sem
hann keypti í september 1997
því orðinn 3,5 milljónir króna.