Morgunblaðið - 30.11.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1999 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Jólaljósin tendr-
uð á Laugavegi
Miðbær
Samkomulag um bætur
vegna Laugavegar 53b
Laugavegur
MIÐBÆR Reykjavíkur setti
upp jólasvip um helgina,
borgarbúum, ungum sem
öldnum, til mikillar ánægju.
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri tendraði
jólaljósin sem skreyta mið-
bæinn, síðdegis á laugar-
dag. Þá hélt skrúðganga
niður Laugaveg með lúðra-
blæstri og söng, þar sem
börn og fullorðnir virtu
fyrir sér skreyttar göturn-
ar, húsin og gluggana.
A aðventunni munu
Laugavegssamtökin standa
fyrir uppákomum af ýmsu
tagi til að gleðja fólk í jóla-
ösinni og munu kaupmenn
leggja sitt af mörkum til að
jólastemmningin í miðbæn-
um verði sem skemmtileg-
ust. Ymislegt verður um að
vera, lúðrasveitir og fleiri
hljóðfæraleikarar verða á
ferð, kórar og annað söng-
fólk, sem og alls kyns
óvæntar uppákomur. Þjóð-
leikhúsið mun leggja sitt af
mörkum til að skemmta
vegfarendum og að sjálf-
sögðu má búast við að jóla-
sveinarnir gefi sér tima til
að koma við, þrátt fyrir allt
annríkið.
Dagskrá Laugavegssam-
takanna lýkur svo með frið-
argöngunni sem fer frá
Hlemmi að Ingólfstorgi sí-
ðdegis á Þorláksmessu.
BORGARLÖGMAÐUR hef-
ur náð samkomulagi við bygg-
ingaraðila hins umdeilda húss
að Laugavegi 53b, þar sem
byggingarleyfi hefur tvívegis
verið fellt úr gildi, um greiðslu
bóta vegna tafa á fram-
kvæmdum.
íbúar nærliggjandi húsa
hafa tvívegis kært útgefið
byggingarleyfi vegna þessa
verslunarhúss og í bæði skipt-
in hefur leyfið verið fellt úr
gildi.
Að sögn Hjörleifs Kvaran
borgarlögmanns hefur náðst
samkomulag um að borgin
greiði byggingaraðilanum
10,8 milljónir króna í bætur
vegna tafanna.
Borgin mun þó alls greiða
byggingaraðilanum 24,5 mil-
ljónir króna, þar sem jafn-
framt bótagreiðslunum hefur
verið gerður samningur um
greiðslu 13,7 milljóna króna
vegna kvaðar sem sett hefur
verið á lóðina 53b, samkvæmt
nýju deiliskipulagi, vegna
húss sem gert er ráð fyrir að
byggt verði á Laugavegi 55.
Kvöðin gerir ráð fyrir því
að aðkoma að bílageymslukj-
allara væntanlegs húss á
Laugavegi 55 verði um bíla-
kjallarann við Laugaveg 53b.
Hjörleifur sagði að með
þessu væri eignarréttur á
Laugavegi 53b skertur og
verið væri að borga fyrir þá
skerðingu núna en á móti
mundi borgin innheimta þetta
fé af væntanlegum bygginga-
raðila að Laugavegi 55, þegar
og ef að því kemur að byggja
það hús.
Hjörleifur sagði að verk-
fræðingar hefðu verið látnir
meta tjónið og hefði niður-
staðan orðið sú að 13,7 mil-
ljónir væru sannvirði fyrir
þessa kvöð.
Eftir að byggingarleyfi
hússins að Laugavegi 53b var
fellt úr gildi öðru sinni var
gert nýtt deiliskipulag fyrir
svæðið og hefur það verið
samþykkt og auglýst í stjórn-
artíðindum. Hjörleifur kvaðst
gera ráð fyrir því að nýjar
teikningar af hinu umdeilda
húsi færu fyrir næsta fund
byggingarnefndar.
Borgarráð hefur fjallað um
og samþykkt bréf borgarlög-
manns vegna málsins.
Morgunblaðið/Kristinn
Haraldur Sigurðsson skemmtikraftur-
leiðir hestvagn niður ljósum prýddan
Laugaveg á laugardag.
Börn héldu á
Ijósum og sungu
jólasöngva í mið-
bæ Reykjavíku-
um helgina.
Breytingar
á reglum um
niðurgreiðslu á
dagvist barna
Hafnarfjörður
UNGIR foreldrar, átján
ára og yngri, njóta nú
sömu réttinda og einstæðir
foreldrar varðandi niður-
greiðslu á dagvist, hvort
sem þeir eru í sambúð eða
ekki. Þetta var samþykkt
með öllum greiddum at-'
kvæðum á fundi félagsmál-
aráðs í Hafnarfirði fyrir
skömmu.
Einnig var samþykkt,
með öllum greiddum at-
kvæðum, tillaga um niður-
greiðslu á dagvistargjöld-
um til foreldra sem eru í
námi. Þegar báðir foreldr-
ar barns eru í námi og barn
er hjá dagmóður eiga þeir
nú rétt á sambærilegri nið-
urgreiðslu og væri barnið á
leikskóla og gildir þetta frá
tveggja ára aldri barnsins.
Niðurgreiðsla á dagvistun
barna hjá dagmæðrum fer
eftir tímafjölda og er jafn
há niðurgreiðslu á leik-
skólagjöldum sem einnig
fer eftir tímafjölda.
Ámi Þór Hilmarsson,
forstöðumaður fjölskyldu-
sviðs Hafnarfjarðarbæjar,
segir það hafa verið talið
réttlætismál að gera þessa
breytingu og að mikilvægt
hafi þótt að fólki yrði ekki
mismunað eftir því hvort
börnin væru á leikskóla
eða hjá dagmömmu.
Kaffíhús klæðist
vetrarbúningi
Nauthólsvík
KAFFIHÚSIÐ Kaffi Naut-
hóll var opnað í Nauthólsvík
í sumar og var vel þegin
nýjung í kaffihúsaflóru
Reykjavíkur. Víðsvegar um
landið hafa verið opnuð lítil
kaffihús á fallegum og jafn-
vel afskekktum stöðum og
núna er eitt slíkt einnig að
finna í miðri Reykjavík.
Kaffi Nauthóll stendur
svolítið afskekkt, en samt
ekki of langt frá miðbænum
og er tilbreyting fólgin í því
fjrir borgarbúa að vera á
kaffihúsi en samt í nánd við
náttúruna.
Skyndiákvörðun að
fara í rekstur
Húsið var byggt með það
sérstaklega í huga að þar
yrði starfrækt kaffihús.
María Björnsdóttir, einn
eigenda Kaffi Nauthóls, er
þaulreynd kaffihúsakona en
hún rak kaffihúsið Café au
lait í Hafnarstræti í mörg
ár. Hún segist hafa tekið al-
gjöra skyndiákvörðun um
það að hella sér út í kaffi-
hússreksturinn í Nauthóls-
vík, en mágur hennar hafði
fest kaup á húsinu og bauð
henni að taka þátt í því að
búa þar til kaffihús. Hún lét
slag standa og nú er þetta
orðið sannkallað fjölskyldu-
fyrirtæki, því hinir eigend-
urnir eru móðir hennar og
systir.
Farið úr strandstemmn-
ingunni í vetrarklæðin
í sumar sátu gestir kaffi-
hússins bæði inni og úti og
segir María að oft og tíðum
hafi ríkt sannkölluð strand-
stemmning á pallinum hjá
þeim. Fólk sem var að baða
sig í Nauthólsvíkinni kom
hlaupandi í sundfötunum og
fékk sér hressingu úti í sól-
inni. Setið var úti fram eftir
hausti og vetri og segir
María að þeir allra hörðustu
hafi bara klætt sig í snjóg-
alla og ekkert látið kuldann
á sig fá.
En nú er kaffihúsið komið
í vetrarklæðin og segir Ma-
ría vetrarstemmninguna þar
ekki síður skemmtilega.
Fólk sem sé á gangi í Öskju-
hlíðinni eða nágrenni komi
inn í hlýjuna og fái sér kaffi-
eða kakóbolla og einnig sé
nokkuð um að gönguklúbbar
eða hlaupahópar eigi þar
stefnumót.
María segir rómantískt og
rólegt andrúmsloft ríkja á
kaffihúsinu og margir kjósi
það að koma þangað á
stefnumót. Enda sé lítið sem
trufli, hvorki umferð né önn-
ur læti, og því tilvalið fyrir
þau sem vilja vera út af fyr-
ir sig og eingöngu einbeita
sér að þeirri manneskju sem
þeir eru með. Margir komi
þangað einnig til að halda
fundi af ýmsu tagi.
Myndlistarsýning prýðir
yfirleitt veggi kaffihússins
og er skipt um sýningu á
mánaðarfresti. Nú á aðvent-
unni fær jólaskrautið hins
vegar að njóta sín og einnig
má búast við tónlistarflutn-
ingi og upplestri úr nýjum
bókum einhver kvöld nú fyr-
ir jólin.
Á daginn tekur jólasveinn
á móti hópum úr leikskólum
sem þangað tilkynna komu
sína, enda auðvelt að ím-
ynda sér að jólasveinar búi
einmitt í timburhúsum af
svipaðri gerð og þeirri sem
hýsir Kaffi Nauthól.
María Björnsdóttir, einn eigenda Kaffi Nauthóls.
Morgunblaðið/Golli
Kaffi Nauthóll í Nauthólsvík er komið í vetrarskrúðann og skrýtið að hugsa til þess að fólk
hafi setið þar úti á palli í sundfötum í sumar.