Morgunblaðið - 30.11.1999, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1999 15
LANDIÐ
OAT*l O
200 ljósa
1.990 kr.
Grýlukertá
Mikið úrval af ljósaseríum,
aðventuljósum og perum
í ýmsum gerðnm
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
s
Attræður
og marka-
glöggur
Borgarnesi - Ásmundur Eysteins-
son frá Högnastöðum í Þverárhlíð
er markaglöggur mjög. Hann hefur
unnið í áratugi sem markaeftirlits-
maður við sláturhúsið í Borgarnesi
og starfaði þar sl. haust. Hann varð
áttræður 23. október sl. og er trú-
Iega með elstu starfsmönnum slát-
urhúsa hér á landi. Ásmundur er
heimilismaður á Dvalarheimili
aldraðra í Borgarnesi. FuIIvíst má
telja að hann mæti í sláturhúsið
næsta haust svo framarlega sem líf
og heilsa leyfir.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Börnin tóku vel á móti kvenfélagskonunum og fögnuðu gjöfinni, Á myndinni eru standandi Eygló Aðal-
steinsdóttir, leikskólastjóri, Iðunn Gísladóttir, Heiðdís Gunnarsdóttir, Alda Alfreðsdóttir, Sandra Silfá
Ragnarsdóttir, Sigríður Rósa Björgvinsdóttir, formaður Kvenfélags Selfoss, og Þórdís Frímannsdóttir.
Kvenfélag Selfoss með gjöf
til fyrsta leikskólans
KVENFÉLAG Selfoss afhenti ný-
lega leikskólanum Glaðheimum á
Selfossi sjónvarpstæki að gjöf.
Kvenfélagið hefur alla tíð stutt við
bakið á öllu því sem lýtur að velferð
barna og unglinga en frá upphafi
byggðar á Selfossi og frá stofnun
félagsins hefur megináhersla þess
Iegið á þessum málaflokki.
Það var Sigurveig Sigurðardótt-
ir, formaður kvenfélagsins til
margra ára, sem afhenti tækið.
Hún hefur einnig verið í for-
ystusveit kvenfélaganna á Suður-
landi. I ávarpi við afliendinguna
rifjaði Sigurveig upp sögu leikskól-
anna á Selfossi og gat þess að í
framhaldi af áherslum félagsins á
leikvelli fyrir börnin hefði komið
fram þörfin á leikskóla. Fyrsti leik-
skólinn sem kvenfélagið beitti sér
fyrir var starfræktur í barnaskól-
anum 1963 með Guðrúnu Erlu
Björgvinsdóttur sem leikskóla-
sljóra.
Þessi starfsemi þótti takast það
vel að farið var að huga að bygg-
ingu leikskóla og árið 1966 var
samþykkt teikning af fyrsta leik-
skólanum. Hann var síðan tekinn í
notkun 1. apríl 1968. Kvenfélagið
átti 15% hlut í húsinu en félagið gaf
öll húsgögn og
leikföng til
starfseminnar.
Félagið annað-
ist síðan rekst-
ur skólans með
bakstuðningi
frá hrepp-
snefnd fram til
ársins 1977 að
sveitarfélagið
tók við rekstr-
inum. Fyrsti
leikskólastjór-
inn í Glaðheim-
um var Heiðdís
Gunnarsdóttir
og með henni
starfaði Iðunn
Gísladóttir sem
leikskólakenn-
Sigurveig Sigurðardóttir með fyrstu leikskólakenn-
urunum í leikskólanum Glaðheimum á Selfossi, Ið-
unni Gísladóttur og Heiðdfsi Gunnarsdóttur, ásamt
Eygló Aðalsteinsdóttur, núverandi leikskólastjóra.
*_
ATVR opnar verslun í Grindavík
Islensk lömb kosta
ekki undir 80 þús.
krónum í Ameríku
Bdk og bjdr í konuríki
Grindavík - ÁTVR opnaði 24.
nóvember verslun í Grindavík í
Eyja- og Miklaholtshreppi - Sauð-
fjársæðingastöð Vestui-lands hélt al-
mennan fund fyrir sauðfjárbændur á
Snæfellsnesi 23. nóvember sl. Ráðu-
nautarnii- Lárus G. Birgisson og Jón
Viðar Jónmundsson kynntu þá hrúta
sem verða til noktunar í vetur.
Ráðunautamir fóru yfir það helsta
sem er að gerast í sauðfjárræktinni
hérlenids, aðallega hvað varðar fram-
farir í ræktun á kjöti sem hentar
markaðnum þ.e. ræktun á sauðfé þar
sem kjötmagn eykst en fitumagn
minnkar.
Einnig var minnst á markaðsmál.
Þar kom m.a. fram að íslenskt sauðfé
í Ameríku er mjög dýrt, venjulegt
lamb á fæti er selt á um 80.000 kr. en
þau dýrustu eru seld á allt að 250.000
ki'. Eru þau dýrustu forystulömb,
móbotnótt og lömb sem eru með
sjaldgæfan lit. Dálítið hefur verið selt
af hrútasæði til Ameríku til að við-
halda og framrækta íslenska stofninn
þar.
Sauðfjársæðingastöð Vesturlands
og Sauðfjársæðingastöð Suðurlands
hafa gefið út í sameiningu veglegt rit
þar sem allir hrútar eru kynntir í máli
og myndum. Er þetta hið glæsileg-
asta rit og mikill fengur í því fyrh' alla
þá sem áhuga hafa á ræktunarstarfi.
Morgunblaðið/Daníel
Sauðfjárbændur á Snæfellsnesi ræða málin.
samvinnu við Bókabúð Grinda-
víkur. Eftir margra ára bið eru
Grindvíkingar komnir með áfeng-
isverslun í bæinn en þessi versl-
un er sú þrítugasta og önnur hjá
ÁTVR.
í „opnunarteiti“ sem haldið var
af þessu tilefni hélt Höskuldur
Jónsson, forstjóri ÁTVR, örlitla
tölu og kom fram í máli hans að
hann er óhress með umræðuna
um þessar mundir um áfengis-
útsölu; að látið sé að því liggja að
hægt sé að aðskilja sölu á léttum
vínum og bjór frá því sterka.
„Það er ekki nema um 10% af
þeim 11 milljón lítrum sem við
áætlum að selja á þessu ári sem
er sterkt vín þannig að ef taka á
bjór og léttvín út úr rekstrinum
er ekki neinn grundvöllur fyrir
þesskonar verslun," sagði Hösk-
uldur. Hann sagði einnig: „Hér
hefur tekist vel til með alla hluti
og vonandi þjónar þessi verslun
Morgunblaðið/Garðar Páll
Höskuldur Jónsson afhenti Helgu Emilsdóttur lyklana að áfengis-
versluninni.
Grindvíkingum vel.“ Helga Em-
ilsdóttir verslunarstjóri þakkaði
hlý orð og sagði jafnframt frá því
að þennan opnunardag væri 15
ára afmæli Bókabúðar Grindavík-
ur. „Þessi búð verður konuríki
því hér ráða konur ríkjum,“ sagði
„ríkisstjórinn", Helga Emilsdótt-
ir, um leið og hún tók við lykla-
völdunum úr hendi Höskuldar.