Morgunblaðið - 30.11.1999, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1999 65
BRIDS
llmsjón Giirtmiiiidur
1‘áll Arnarson
ÞEIR sem kannast við
Kanadamanninn Eric
Kokish eiga erfltt með að
trúa því að hann hafi setið í
vestur í spili dagsins. En
Kokish var einu sinni ungur
eins og aðrir, og þetta spil
erfrá 1981:
Ausur gefur; NS á hættu.
Norður
* K843
V DG2
* Á3
* ÁG109
Austur
* D62
V K7654
♦ 1097
*K4
Suður
* Á7
V Á9
* KDG6542
*D3
Vestur Norður Austur Suður
- Pass 1 tígull
Dobl!! Redobl 2h)örtu 3hjörtu
Pass 3spaðar Pass 3grönd
Pass 4 lauf Pass 6 tíglar
Pass 7tíglar Dobl Allirpass
Spilið er frá fyrsta
Sunday Times-mótinu, sem
ekki var Sunday Times-
mót! Þetta hljómar ein-
kennilega, en á 17 ára tíma-
bili, frá 1963-1980, var hald-
ið veglegt boðsmót í London
í janúarmánuði „í boði“
Sunday Times. Árið 1981
hætti Sunday Times stuðn-
ingi við mótið, og í tvö ár fór
það fram í nafni annarra
kostara. Þeir fengu þó litla
kynningu, því í hugum
bridsspilara var orðið úti-
lokað að tengja þennan við-
burð við annað fyrirtæki.
Mótið lagðist af á tímabilinu
frá 1983-1990, en var þá
endurreist með stuðningi
viskíframleiðandans Macall-
an og auðvitað Sunday
Times. En nokkru síðar
hætti Sunday Times aftur
að styrkja mótið og á und-
anförnum árum hafa verið
spiluð nokkur ekki-Sunday
Times-mót í boði annarra.
En þetta var sögulegur
útúrdúr. Erie Kokish var
glaðbeittur á þessum árum
og eftir pass makkers í upp-
hafi ákvað hann að grugga
vatnið með nokkuð „iéttu“
opnunardobli. í NS voru
Silverman og Granovetter
og þeir létu doblið sem vind
um eyru þjóta og keyrðu í
alslemmu. En þá doblaði
austur, sem átti tvo kónga
og eina drottningu og
makker hafði opnunardo-
blað. Auðvitað grunaði aust-
ur að opnun makkers væri í
léttara lagi, en samt..;
Hvað um það. Útspilið
yar spaðagosi og Silverman
ákvað að svína fyrir lauf-
kóng og fór einn niður. En
hann var fijótur að benda á
að slemmuna mætti vinna ef
gert væri ráð fyrir báðum
kóngunum í austur. Það
skoðum við betur á morgun.
morgunblaðið
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
fveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja af-
mælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Póik getur hringt í
síma 569-1100, Sent í
bréfsíma 569-1329,
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
Vestur
♦ G1095
»1083
♦ 8
* 87652
í DAG
Árnað heilla
Q p' ÁRA afmæli. Á
O O morgun, miðvikudag-
inn 1. desember, verður
áttatíu og fimm ára Herdís
Steinsdóttir, Akurgerði 44,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar var Baldur Jónsson
frá Söndum, Miðfirði, V-
Hún. Hann lést árið 1995.
Herdís tekur á móti ætt-
ingjum og vinum á heimili
sínu frá kl. 15-22 á afmælis-
daginn.
Barna- og fjölskylduljósmyndir,
BRÚÐKAUP Gefin voru
saman 20. mars sl. í Lága-
fellskirkju af sr. Jóni Þor-
steinssyni Valborg Ólafs-
dóttir og Elías Pélursson.
Heimili þeirra er á Stóra-
tegi 18, Mosfellsbæ.
^/\ÁRA afmæli. í dag,
I V/ þríðjudaginn 30. nóv-
ember, verður sjötug Mál-
fríður Guðmundsdóttir,
Barmahlið 39. Hún tekur á
móti gestum í dag kl. 17 í
Akoges-salnum, Sóitúni 3.
Barna- & fjölskylduljósmyndir.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 26. júní í Grensás-
kirkju af sr. Óiafi Jóhanns-
syni Árni Pétur Reynisson
og Erla Sigurðardóttir.
Heimili þeirra er í Drápu-
hlíð 15, Reykjavík.
Barna- & fjölskylduljósmyndir.
BRÚÐKAUP. Gefín voru saman 7. ágúst í Kálfatjarnar-
kirkju af sr. Þóreyju Guðmundsdóttur hálfbræðurnir og
systurnar Árni Björnsson og Sigríður Hinriksdóttir. Þau
eru til heimilis í Dalseli 17, Reykjavík; og Bergur Hólm Að-
alsteinsson og Svanbjörg Gróa Hinriksdóttir. Heimili
þeirra er á Kleppsvegi 2, Reykjavík.
UOÐABROT
í VORÞEYNUM
Á meðan brimið þvær hin skreipu sker
og skýjaflotar sigla yfir lönd
þá spyrja dægrin: Hvers vegna ertu hér,
hafrekið sprek á annarlegri strönd?
Það krækilyng sem eitt sinn óx við klett
og átti að vinum gamburmosa og stein,
er illa rætt og undarlega sett
hjá aldintré með þunga og frjóa grein.
Hinn rammi safi rennur frjáls í gegn
um rót er stóð í sinni moldu kyr,
en öðrum finnst sig vanta vaxtarmegn
þótt vorið fljúgi í lofti hraðan byr.
Drýpur af hússins upsum erlent regn,
ókunnir vindar kveina þar við dyr.
Jón Helgason.
STJORJYUSPA
pftir Rraupos II «• ;i k e
BOGMAÐUR
Aímælisbarn dagsins: Að
skipuieggja hlutina er þín
sterka hlið og þú hefur næm-
an skilning á þörfum annarra.
Þú ert ávalit reiðubúinn.
Hrútur -
(21. mars -19. apríl)
Vertu ekki niðurdreginn þótt
ekki sértu að fást við
skemmtilegustu hluti í heimi.
Það auðveldar allt að sjá mál-
in í víðara samhengi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Eyddu ekki orku þinni í að
hugsa um það neikvæða.
Farðu út og njóttu þess sem
lífið hefúr upp á að bjóða og
einhvers sem gefur sanna lífs-
fyllingu.
Tvíburar ^
(21. maí - 20. júní) AÁ
Það veldur bara misskilningi
að tala í hálfum hljóðum. Fólk
kann miklu betur að meta það
að þú komir þér beint að efn-
inu og þá er hægt að ræða
málin.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
Vefjist eitthvað fyrir þér
skaltu skoða hvort þú hafir
ekk einblínt á aðalatriðin og
látið smáatriðin fram hjá þér
fara. Þar gæti svarið verið að
finna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu ekki hugfallast þótt
endar nái ekki saman heldur
farðu yfir öll reikningsyfiriit
og þá sérðu hvert peningarnir
hafa farið. Gerðu svo betur
næst.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (SÍL
Árangur þinn í starfi fer nú
ekki lengur framhja yfir-
mönnum þínum svo þú mátt
eiga von á umbun í einhverri
mynd. Gerðu þér samt ekki of
miklar vonir.
(23. sept. - 22. október) m
Hlustaðu á röddina innra með
þér sem segir að tími sé kom-
inn til að slaka á. Skoðirðu
stöðu þína frá öðrum sjónar-
hóli muntu skilja málið betur.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Bjóddu þeim nú aðstoð þína
sem hafa hjálpað þér. Þeir
verða alsælir en þú manna
ánægðastur með að geta loks-
ins launað þeim greiðann.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) ít-f
Það hafa verið erfiðir tímar á
vinnustað og þú efast um að
þú sért metinn að verðleikum.
Skoðaðu stöðuna vandlega áð-
ur en þú ákveður að breyta
til.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) /K
Ef þú ert einmana skaltu hafa
samband við fólk sem þér
þykir vænt um og hefur sakn-
að í langan tíma.Ef þú getur
ekki hringt skaltu bara senda
bréf.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar)
Vertu á verði gagnvart
tungulipru fólki og mundu að
ekki er það alltaf sannleikur-
inn sem hrýtur af munni þess.
Ilæmdu aldrei það sem þú
þekkir ekki.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Hafðu ekki áhyggjur af því sem
aðrir eiga að sjá um og haltu
bara vel utan um þitt því þótt þú
sjáir það ekki fyrir mun allt
falla saman á endanum.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
gninni vísindalegra staðreynda.
Jólafötin komin!
Kjólar, jakkar, buxur, blússur
Munið 10% staðgreiðsluafsláttinn!
/a/vsa/% f úf'S'/a/'oe/v/
Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.
/ llmvatnspennar, englakerti, ^
englaspeglar.
Glæsilegir jólatréstoppar.
Jólaqjöfin fœst i Kitju!
Kitja
Háaleitisbraut 58—60,
sími 553 5230.
Álfhólsvegur - sérhæð
Falleg 130 fm sérhæö á 1. hæð f þríbýli ásamt 25 fm upp-
hituðum bílskúr. 3 svefnherbergi (voru upprunalega 4), flísa-
lagt baðherb., sérþvottahús og búr innaf eldhúsi og stofa
með glæsilegu útsýni til norðurs. Frábær staðsetning,
nálægt skólum, t.d. fyrir barnafólk. Verð 13,8 millj.
Séreign, fasteignasala,
Skólavörðustíg 41, sími 552 9077.
Selsklnn
natur - svart - litað
L7r
LEÐURVÖRUDEILD
BYGGGARÐAR 7 • 170 SELTJARNARNES • S. 561 2141 • FAX 561 2140
Ný
sending
af sparifatnaði
Hverfisgötu 78,
sími 552 8980