Morgunblaðið - 03.12.1999, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.12.1999, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Hitaveita Suðurnesja opnar Gjána í kynningarhúsi sínu Tækmvæddasta sýning landsins Grindavík - Hitaveita Suðurnesja opnaði Gjána í mötuneytis- og kynn- ingarhúsi sínu Eldborg laugardaginn 27. nóvember. Gjáin, sem er í kjall- ara Eldborgar, er svar HS við þeirri þörf sem stjórnendur HS hafa orðið varir við þegar hinir ýmsu hópar eru að koma í heimsókn í hitaveituna. í Gjánni er sýning sem er jafnt fyrir fræðimenn og leikmenn sem viljakynna sér jarðfræði jarðarinnar í gegnum jarðfræði íslands og þá sérstaklega jarðfræðina hér í Svart- sengi. Hægt er að kynna sér sögu hitaveitunnar, skýrð er vinnslan á orkunni og jafnvel er hægt að kynna sér sveitarfélögin á Reykjanesi svo fátt eitt sé nefnt. Það er varla til orð til að lýsa Gjánni og gildir hér að sjón er sögu ríkari. Gjáin er eins og áður sagði í kjallara Eldborgar og er um að ræða 30 metra löng göng sem eru 2 metra breið nema þar sem komið er úr lyftunni, þar er tölu- vert breiðara. Lýsingin er lítil sakir þeirra sýninga sem eru í gangi. Öll tækni sem til er í dag er notuð til að gera sýninguna sem mest lifandi, þarna má verða fyrir hljóðhrifum frá jarðskjálfta sem lýsti sér helst sem herflugvél flygi rétt yfir höfð- um gestanna. Mörg myndbönd eru í gangi m.a. gosið í Surtsey og margt fleira því alls eru 18 stöðvar í Gjánni. Grindvíkingar á Ieið til Evrópu Nafnið á Gjánni kemur til vegna skírskotunar í það að við erum á plötumótum jarðskorpunnar og er því land að reka í sundur. Gjáin er gerð að táknmynd þessara hreyf- inga eða eins og Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitunnar, orðaði það: „Grindvíkingar eru á leiðinni til Evrópu á Evrópuflekanum en önn- ur sveitarfélög á Suðurnesjum á leiðinni til Ameríku í Ameríkuflek- anum. Margir hafa komið að þessu verki og kom fram í máli Júlíusar að arkitektar hússins hefðu hlotið menningarverðlaun DV fyrir þessa hönnun og þá fyrir það hve vel hús- ið félli að náttúrunni. „Það þótti mörgum nóg um sérviskuna að vera að setja hraunhellur hér á bretti og geyma, en svona viljum við hafa þetta. Það er vel hægt að vinna með náttúrunni þó hún sé nýtt eins og Hitaveita Suðurnesja gerir,“ sagði Júlíus. Ljóst er að hérna er frábært tækifæri fyrir allt skólafólk að nýta sér þessa kynningu í Gjánni enda var skólafólki á svæðinu boðið sér- staklega til þessarar opnunar og var að heyra á því að þetta félli vel að kennslunni. Slíttu út SKGNUM, ekkí líkaraanum. lUýtt líf ! Margeir Viljálmsson framkvæmdastjóri GR: „Ég er búinn að taka NATEN SPORT EXTREME i einn mánuð og ég er allt annar upp á morgnanna, hef næga orku til að sinna löngum vinnudegi, sykurþörf nánast horfin og borða mun minna. Að taka inn NATEN SPORT EXTREME með hreyfingu hefur sýnt framúrskarandi árangur á skömmum tíma." Aukin brennsla ! Hrefna Halldórsdóttir Technosport: „Frá því að ég byrjaði að taka inn NATEN SPORT EXTREME hefur brennslan aukist um 40% á mjög skömmum tíma, ég hef mun meiri orku, meira þol og aukinn styrk." m Aukin orka! Börkur Birgisson Málaraverktaki: „Fyrir mánuði síðan byrjaði ég að taka NATEN SPORT EXTREME. Á þessum skamma tima hef ég fundið fyrir aukinní orku, vakna hress á morgnanna, finn fyrir andlegu jafnvægi og vellíðan, þarf minni svefn og löngunin fyrir þvi að leggja mig eftir mat er farin og ég finn mikið öryggi í því að taka NATEN sem er hundrað prósent náttúrulegt." Meira þrek yfir daginn ! Hulda D. Lárusdóttir Erobik kennari „Ég finn mikinn mun á mér eftir að ég fór að taka inn NATEN SPORT EXTREME. Ég hef meira þrek yfir daginn og meiri einbeitingu. Ég finn fyrir stórkostlegri vellíðan i öllum likamanum. Þetta er einfaldelga það sem virkar og á náttúrulegan hátt. Þetta er engin spurning fyrir fyrir fólk sem vill ná árangri í einu og öllu." Nýtt Þá Waten fyrir. ætla sér mexra sem í tilefni 5 ára afmælis Naten á íslandi, bjóöum við í því tilefni 20% afslátt á Naten Sport Extreme á eftirtöldum útsölustöðum^ Akraness Ápótek Apótek Austurlands Apótek Blönduóss Apótek Garðabæjar Apótek Húsavíkur Apótek Keflavíkur Apólek Ólafsvíkur Apótek Raufarhafnar Apótek Suðurnesja Apótek Vestmannaeyja Árbæjarapótek ,'Árnes Apótek Betrunarhúsið Blómaval Borgar Apótek Borgarness Apótek Dalvikur Apótek Fjarðarkaupsapótek G. Á. Pétursson Heilsulindin Ketiavik Hornabær Hreysti Hringbrautar Apótek Intersport K - Sport Keflavík K.B. Borgarnesi Laugarnesapótek Laugavegs Apótek Lífstfll Keflavík Likamsræktarstdðin Hress Lyf&heilsa UIÍI 5ll 51* é-ÍHt & Lyf & heilsa Kringlunnl 1. hæð Lyf & heilsa Krlnglunní 3. hæð Lyf & heílsa Glæsibæ Lyf & heilsa Hafnarstæti, Akureyri Lyf S heilsa Hveragerði Lyf & heilsa Selfossi LYFJA Lyfja Egilsstöðum Lyfja Grindavík Lyfja Hafnarfirði Lyfja Kópavogi Lyfja Lágmúla Lyfsalan Patreksfirði Lyfsatan Vopnafirðí Ólafsfjarðar Apótek Perlan Kefiavík Rima Apótek Skagfirðingabúð Sauðátkrók Sportbúð Kópavogs Sporthöllin Studio Dan ísafirði Studio Huldu Keflavik Stykkishólmsapótek Sundlaug Kópavogs Technosport World Class 20% <*fmælfs dfsláftur 2 tltiyar ef tfr ! I I NATEN ár á Islandi . Morgunblaðið/Garðar Páll Gestir við opnun Gjárinnar. Frá vinstri: Guðjón Kristjánsson, skólastjóri í Sandgerði, Gunnlaugur Dan Ólafsson, skólastjóri í Grindavík og Hallgrírn- ur Bogason, bæjarstjórnarmaður í Grindavík. Miklar umræður á aðalfundi Afls Reyðarfirði - Samtökin Afl fyrir Austurland héldu sinn fyrsta aðal- fund í Félagslundi Reyðarfirði laugardaginn 28. nóvember sl. Þar tóku til máls fulltrúar stjórnar samtakanna, Fjarðabyggðar og unga fólksins á Austurlandi. Fram kom í máli þeirra að ekki er nóg að vera á móti Fljótsdals- virkjun til að geta kallast umhverf- issinni eins og ætla mætti af um- fjöllun í fjölmiðlum. Það er gaman að vera ungur, ríkur og frægur, geta miðlað af gáfum og hugsjón til almennings og í leiðinni selt sínar bækur, plötur og myndir. Jafnvel haft vit fyrir norsku ríkisstjórn- inni. Það er nauðsynlegt að virkja í Fljótsdal og byggja álver í Reyðar- firði til þess að halda fjórðungnum í byggð. Austfirðingar vilja byggja upp gott, fjölbreytt og arðsamt samfélag. í álverum starfar fólk við hátæknistörf og í þessum fyrir- tækjum fær ófaglært fólk greidd mun hærri laun en í öðrum fyrir- tækjum á Islandi, þar er mun styttri vinnutími og vel búið að starfsfólki. Reynslan hefur sýnt að 10 manns sækja um hvert starf í ál- veri á íslandi. Heimurinn er ekki að stoppa nú þegar 21. öldin gengur í garð held- ur krefst hann vistvænni efna og þar er ál framtíðin. Stjórnin var endurkjörin, for- maður Einar Rafn Haraldsson Eg- ilsstöðum, aðrir í stjórn eru Theodór Blöndal Seyðisfirði, Eirík- ur Ólafsson Fáskrúðsfirði, Jóhanna Hallgrímsdóttir Reyðarfirði og Agúst Armann Neskaupstað. Eftirfarandi ályktun var sam- þykkt: „Aðalfundur samtakanna Afl fyr- ir Austurland, haldinn í Félags- lundi, Reyðarfirði, sunnudaginn 28. nóv. 1999, fagnar þeirri málsmeð- ferð sem málefni Fljótsdalsvirkjun- ar hafa hlotið á hinu háa Alþingi. Fundurinn hvetur stjórnvöld til að hvika í engu frá þeirri fyrirætl- an sinni að hefja að nýju fram- kvæmdir við Fljótsdalsvirkjun strax á næsta ári og byggingu ál- vers í Reyðarfirði árið 2001. Alver í Reyðarfirði nýtir vistvæna inn- lenda orku og styrkir stoðir ís- lensks efnahagslífs. Þessar fram- kvæmdir eru þjóðinni allri til heilla.“ Morgunblaðið/Hallfríður Bjamadóttir Fundargestir á fundinum Afl fyrir Austurland. Bergstaðastræti — 4ra herb. — útsýni yfir Tjörnina Vorum að fá í sölu 4ra herb. íbúð á efstu hæð (4. hæð) í vönduðu fjórbýlishúsi. Suðursvalir. 2 svefnherb., 2 stofúr. Frábært sjávarútsýni og yfir Tjörnina. Sami eigandi frá upphafi. Um er að ræða mjög skemmtilega og sérstaka íbúð. Tiivalin eign fýrir listamann. Laus fljótlega. Verð 11,4 millj. Valhöll fasteignasala, sími 588 4477.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.