Morgunblaðið - 05.12.1999, Page 16
16 SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Finnskur
listamaður
í LHÍ
OLA Kolehhmainen myndlistarmað-
ur frá Finnlandi kynnh' verk sín og
sýnir litskyggnur í LHÍ á Laugar-
nesvegi 91, stofu 24, mánudaginn 6.
desember kl.12.30.
Ola vinnur aðallega með innsetn-
ingar. Hann er fæddur í Helsinki ár-
ið 1964 og lauk mastersnámi frá ljós-
myndadeild Listiðnaðarháskólans í
Helsinki. Hann hefur hlotið viður-
kenningar íyrir verk sín.
Ola Kolehhmaine opnar sýningu í
Galleri 1-8 fimmtudaginn 9. desem-
ber.
---♦-♦-4------
Hvar er
Stekkjar-
staur?
MÖGULEIKHÚSIÐ hefur hafið
sýningar á jólaleikritinu Hvar er
Stekkjarstaur? eftir Pétur Eggerz.
Sýningin fer í leik- og grunnskóla á
höfuðborgarsvæðinu, auk þess sem
sýnt verður á Vestur- og Norður-
landi.
Leikritið var frumsýnt fyrir jólin
1996 og hefur síðan verið sýnt fyrir
hver jól.
í leikritinu segir frá því þegar það
gerist eitt sinn fyrir jólin að Halla,
aðalpersóna leikritsins, veitir því at-
hygli að jólasveinninn Stekkjarstaur
kemur ekki á tilsettum tíma til
byggða.
Leikstjóri er Pétur Eggerz, leik-
arar Drífa Arnþórsdóttir og Bjarni
Ingvarsson. Leikmynd og búningar
voru í höndum leikhópsins.
..-♦♦ ♦
Harry Potter
bestur þriðja
anð í roð
BRESKI rithöfundurinn J. K. Rowl-
ing hefur unnið þriðju Smarties-
barnabókaverðlaunin í röð fyrir nýj-
ustu bókina í bókaflokknum um Har-
ry Potter. Bókaflokkurinn nýtur
gífurlegra vinsælda um heim allan
og á Islandi er bókin Harry Potter
og viskusteinninn efst á bóksölulista
fyrir síðustu viku.
Smarties-verðlaunin eru veitt í
Bretlandi. Fyrst eru valdar bækur
og börn í 200 skólabekkjum lesa síð-
an bækurnar og gefa þeim atkvæði.
Undanfarin þrjú ár hafa börnin valið
Harry Potter-bækur og síðasta bók-
in, Harry Potter og fanginn í Azkab-
an, fékk í ár yfir 90% atkvæða les-
enda9-ll ára.
Allar bækumar þrjár, sem komið
hafa út um Harry Potter, hafa náð
efsta sætinu á bóksölulistum í Bret-
landi og Bandaríkjunum.
Nýjar bækur
• LANDNÁMSMENNIRNIR
okkar - víkingar nema land eftir
Stefán Aðalsteinsson er ætlað að
fræða unga lesendur um víkingaöld-
ina ogupphaf byggðar á íslandi. í
bókinni eru sögur af nokkrum for-
feðrum okkar í heimalandi sínu,
Noregi, þar sem þeim þótti þrengt
að sér. Þeim er síðan fylgt yfir hafið
til íslands en hingað fluttu þeir með
sér trúarbrögð og siðvenjur ásamt
hinu foma norræna máli. Rakin er
saga nokkurra landnámsmanna,' lýst
staðháttum og aðstæðum og til skýr-
ingar er fjöldi ljósmynda og landa-
korta.
Höfundurinn hefur áður sent frá
sér bækur, m.a. Húsdýrin okkar,
Fuglarnir okkar og Blómin okkar.
Utgefandi erMál ogmenning.
Anna Cynthia Leplar hannaði útlit
og teiknaði kort. Bókin er 96 bls.,
prentuð í Danmörku. Verð: 2.980 kr.
Ferill Eiríks
Kvöld í hrauni eftir Eirík Smith er meðal verka á
sýningunni í Gerðubergi.
MYNDLIST
Geröiiberg
MÁLVERK
EIRÍKUR SMITH
Sýningin er opin frá 9 til 18 alla
daga.
SJÓNÞINGIN sem Hannes Sig-
urðsson átti ftumkvæði að í Gerðu-
bergi em löngu orðin fastur liður í
myndlistarlífinu og hafa reyndar
nýlega orðið fyrirmynd að sams
konar úttektum á sviði ritlistarinn-
ar. Á Sjónþingi kemur listamaður
fram og rekur feril sinn, ævi og
hugmyndir á svo sem þremur
klukkustundum með aðstoð val-
inna spyrla og áhorfenda. Að sjálf-
sögðu er þessi frásögn svo studd
fjölda mynda og að Sjónþinginu
loknu eru samræðurnar gefnar út
á bók. Sjónþingin eru því mikil-
vægt innlegg í lifandi söguskrán-
ingu myndlistarinnar í landinu og
eftir því sem þeim fjölgar komumst
við nær því að eignast heildstætt
yfírlit yfir líf og verk helstu starf-
andi listamanna. Þá eru yfirlits-
sýningarnar sem Sjónþingunum
fylgja nauðsynlegur þáttur í upp-
rifjuninni.
Ferill Eiríks Smith spannar
reyndar ansi stóran hluta aldarinn-
ar og þar með íslenskrar mynd-
listarsögu. Hann hóf nám fljótlega
eftir síðari heimsstyrjöldina og við
upphaf sjötta áratugarins var hann
búinn að skipa sér í hóp leiðandi
manna í íslenskri myndlist. Á þeim
árum málaði hanns, eins og flestir
aðrir yngri listamenn, í anda hrein-
flatarstefnunnar - geómetrískrar
afstraksjónar - en þótt sumir
tækju þeirri stefnu sem eins konar
trúarbrögðum er óhætt að segja að
Eiríkur hafi aldrei verið ragur við
breyta til og þreifa fyrir sér á nýj-
urn sviðum.
Á sjötta áratugnum þróuðust
myndir Eiríks í átt til expressjón-
isma. Litameðferðin varð frjáls-
legri, drættirnir gi’ófari og túlkun-
in óheftari. Á íyrstu árum sjöunda
áratugarins málaði Eiríkur myndir
í þessum anda sem ótvírætt skip-
uðu honum í hóp með bestu málur-
um sem við höfum átt. Þegar leið
fram undir 1970 fóru málverkin
aftur að breytast og mestallan átt-
unda áratuginn og fram á þann
níunda málaði Eiríkur hlutbundin
eða fígúratíf málverk, vandaðar
raunsæismyndir þar sem fólk og
landslag var í aðalhlutverki þótt oft
brigði fyrir einhvers konar svipum
eða dulrænum verum handan hins
venjulega skynjunarsviðs. Þessar
verur fengu sterkara hlutverk í
landslagsmyndunum þegar þær
fóru að leysast upp aftur í meðför-
um Eiríks og fyrir nokkrum árum
voru myndimar orðnar afstrakt
aftur þótt náttúran sé þar greini-
lega kveikjan og litir og bygging
myndanna sótt til hennar.
Sýningin í Gerðubergi er ágætt
yfirlit yfir þennan langa og fjöl-
breytta feril og er gagnleg þótt
vissulega hafi verið tækifæri á síð-
ustu árum til að skoða lífsstarf Ei-
ríks á ýtarlegri sýningum í Hafnar-
borg, Listasafni íslands og víðar.
En það skemmtilegasta við þetta
allt er auðvitað það að Eiríkur er
enn að og við getum látið okkur
hlakka til nýrra málverka og nýrra
sýninga frá hans hendi.
Jón Proppé
Samkeppni
um út-
varpsþætti
EFNT verður til útvarpsþáttahátíð-
arinnar Útvarp 2000 í Reykjavík
dagana 8.-12. febrúar næstkomandi
og er hátíðin í tengslum við menn-
ingarborgarárið.
Af því tilefni verður efnt til sam-
keppni um gerð útvarpsþátta um
efni að eigin vali og skulu þættirnir
vera 8 til 12 mínútur að lengd.
Bestu þættirnir, að vali þriggja
manna dómnefndar, verða fluttir á
lokadegi hátíðarinnar, sem og í út-
varpi. Fyrstu verðlaun eru ferða-
styrkur á útvarpsþáttahátíðina Prix
Europa árið 2000.
Það eru þeir Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson, Jón Karl Helgason og
Jón Hallur Stefánsson sem standa
að þessari keppni.
Þáttunum skal skila fyrir 20. jan-
úar 2000 og skulu þeir sendast til Út-
varp 2000, Miðstræti 10 í Reykjavík.
Orgeltónleik-
ar í Grensás-
kirkju
ÁRNI Arinbjam-
arson organisti
heldur tónleika í
Grensáskirkju ann-
að kvöld, mánu-
dagskvöld, kl.
20.30.
Ámi leikur org-
elverk eftir J.S.
Bach: Prelúdíu og
fúgu í G dúr, Að-
ventu- og jólasálm-
forleiki úr Orgel-
búchlein eða litlu orgelbókinni og að
lokum Preludíu og fúgu í h-moll.
Afmælisfundur Nordvision
Frá afmælisfundi Nordvision. í fremri röð eru f.v.: Signar á Brúnni
menntamálaráðherra Færeyja, Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra, Sam Nilsson yfirmaður SVT og Markús Örn Antonsson út-
varpsstjóri. í aftari röð eru: Kristian Slotte skrifstofustjóri í finnska
menntamálaráðuneytinu og Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri
Sjónvarpsins.
FULLTRÚAR Nordvision, sam-
taka norrænu ríkisreknu
sjónvarpsstöðvanna, hittust nýlega
í Reykjavík á fundum og stuttri
ráðstefnu í tilefni af 40 ára afmæli
samtakanna á þessu ári.
Á fundinum fluttu erindi Björn
Bjarnason menntamálaráðherra,
Steffen Johanssen framkvæmda-
stjóri Nordvision, Ulf Hansson frá
SVT, sænska sjónvarpinu, og Kent
Nilssen frá NRK, norska sjónvarp-
inu. Danska sjónvarpið DR hafði
umsjón með yfirliti um starfsemi
Nordvision frá stofnun þess 1959
og Astrid Gartz stýrði umræðum í
lok ráðstefnunnar.
Að sögn Bjarna Guðmundssonar
framkvæmdastjóra Sjónvarpsins
tókst fundurinn og ráðstefnan í alla
staði mjög vel og sagði hann eitt
afviðfangsefnum norrænu ríkis-
sjónvarpsstöðvanna vera hvernig
nýta skuli nýja tækni til samstarfs
á nýrri öld. „Þetta snertir ekki ein-
ungis tæknilegu hliðina heldur
einnig dagskrárgerðina en sam-
starfið byggist að miklu leyti á
dagskrárefnisskiptum og samvinnu
um framleiðslu á dagskrárefni."
Aðspurður sagði Bjarni það vera
almenna skoðun stjórnenda nor-
rænu ríkissjónvarpsstöðvanna að
ríkisrekstur þeirra eigi fullan rétt
á sér. „Hlutafélagavæðing þeirra
er eigi að síður framtíðarkostur.
Má þar m.a. horfa til Norðmanna
sem hafa gert NRK að hlutafélagi
sem er þó að fullu í eigu í norska
ríkisins. Virðist það hafa gefist
mjög vel,“ sagði Bjarni Guð-
mundsson.
-----♦
Tónleikar
Tónlistar-
skóla
Akraness
Á JÓLATÓNLEIKUM Tónlistar-
skóla Akraness koma fram nemend-
ur á ýmsum stigum tónlistarnáms-
ins. Tónleikar sem haldnir eru 7., 9.,
15. og 16. desember eru haldnir í sal
Tónlistarskólans og hefjast kl. 20. Þá
mun Skólahljómsveit Akraness
halda tónleika í sal Fjölbrautaskól-
ans laugardaginn 11. desember kl.
15. Þar koma fram A-, B- og C-sveit-
ir undir stjórn Atla Guðlaugssonar
og Heiðrúnar Hámundardóttur.
-♦♦♦-■
Nýjar plötur
• AUÐUR Hafstcinsdóttir fiðla -
GuðríðurSt. Sigurðardóttir píanó
heitir plata þar sem þær flytja m.a.
verk eftir Clöru Schumann, Jean Si-
belius, Edvard Grieg, Maurice Ravel
og Claude Debussy.
í fréttatilkynningu segir að Auður
Hafsteinsdóttir sé einn af stofnend-
um Trio Nordica og leiki einnig með
strengjakvartett og Caput-
kammerhópnum.
Guðríður hefur leikið einleik með
Sinfóníuhljómsveit Islands og leikið
m.a. á vegum Tónlistarfélagsins,
Kammermúsíkklúbbsins, Kammer-
sveitar Reykjavíkur og Gerðubergs.
Útgefandi erJapis með styrk
Hljómdiskasjóðs Félags íslenskra
tónlistarmanna og verslunarínnar
Hjá Hrafnhildi. Upptökur fóru fram
íseptember 1999 í Listasafni Sigur-
jóns Olafssonar. Um hijóðritun og
vinnslu sá Halldór Víkingsson íFer-
mata-hljóðritun. Hönnun: Komdu á
morgun. Verð: 2.199 kr.
Menningarsidður Landsbanka íslands
Styrkir til átta verkefna
MENNINGARSJOÐUR Lands-
banka íslands hf. hefur úthlutað
styrkjum til átta verkefna, en alls
bárust 50 umsóknir um styrki.
Eftirtaldir fengu styrk úr Menn-
ingarsjóðnum: Kristnitökuhátíð ár-
ið 2000, 350.000 þús. kr. vegna
verkefna tengd hátíðarhöldunum
næsta ár; Lars Emil Árnason
200.000 þús. kr. til að skrifa og þróa
handrit að leikinni kvikmynd
byggðri á ævi listmálarans J.S.
Kjarvals; Tinna Traustadóttir og
Haukur Freyr Gylfason 200.000
þús. kr. til rannsóknar á algengi
þunglyndis og þunglyndislyfjanotk-
unar meðal ungs fólks; Steinunn
Birna Ragnarsdóttir, píanóleikari,
150.000 þús. kr. en henni hefur ver-
ið boðið að leika einleik ásamt St.
Christopher-hljómsveitinni í Viln-
ius nú í desember. Efnisskrá tón-
leikanna verður hljóðrituð og gefin
út á geislaplötu árið 2000; Tónlist-
arskóli Árnesinga 150.000 þús. kr.
vegna kaupa á nýjum flygli, en
skólinn er elsti tónlistarskóli Ár-
nessýslu, stofnaður árið 1955;
Vinnuhópur í atvinnumálum fatl-
aðra 100.000 þús. kr. vegna fjög-
urra daga námskeiðs og kynningar
á verkefninu
Vinna með stuðningi og listahá-
tíðin Á seyði 100.000 þús. kr., en há-
tíðin hefur verið haldin sl. fimm
sumur á Seyðisfirði.