Morgunblaðið - 05.12.1999, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1999 23
Morgunblaóió/Sverrir
Guúmundur og Reynir Böðvarssynir.
Túlka til að skilja
Reynir Böövarsson.
mæla þar sem enginn vill hafa
þennan úrgang nálægt sér.“
En hvernig eru önnur lönd
sett íþessum efnum?
„Þetta er alls staðar vanda-
mál og sums staðar mikið
vandamál, þess vegna er
grannt fylgst með okkur.
Þetta er mjög stórt mál, því
það blasir við að kjarnorka er
augljóslega einn aðalorkugjafi
framtíðarinnai’. Samt er það
nú svo, að sumar þjóðir virð-
ast hvergi hafa aðstæður til að
urða úrganginn og eru engan
veginn komnar af stað með
prógram tO að sjá fyrir því. Þá
er því bara hent í sjóinn, eins
og gert hefur verið t.d. í Rúss-
landi. Þar verðum við bara að
bíða og vona að hættu stafi
ekki af ef úrgangur fer að
leka. Og er ekki kjarnorkuúr-
gangur frá Sellafield á leiðinni
til Islands með hafstraumum?
Það mætti kannski hugsa sér
að urðun á geislavirkum úr-
gangi gæti orðið að einshvers
konar byggðastefnu í löndum
þar sem slíkt er við lýði, t.d. í
Svíþjóð og Finnlandi. Það eru
peningar í kring um þetta og
ef hægt er að sýna fram á að
hættan sé lítil eða engin, hví
mætti þá ekki hugsa sér þetta
þannig? Þetta hefur verið
kannað í Svíþjóð og Finnlandi,
og þó nokkrar sýslur og þorp
hafa boðið sig fram. Það er
þegar upp er staðið erfitt að
spá 100 þúsund ár fram í tím-
ann,“ segir Guðmundur og
heldur áfram:
„Það hafa orðið hræðileg
slys og geislavirkur úrgangur
hefur farið í allar áttir og gert
usla. Það þarf að rannsaka
hversu hratt það fer. í Rúss-
landi eru mai’gir snjallir vís-
indamenn en lítið af pening-
um. Það er nú hafið samstarf
milli Rússa og Bandaríkja-
manna til þess að byrja að ná
utan um vandann í Rússlandi.
Bandaríkin munu leggja fram
peninga og báðar þjóðirnar
vísindamenn.“
Þú talaðir um urðun kjarn-
orkuúrgangs í tengslum við
byggðastefnu. Telur þú að ís-
lendingar ættu að íhuga málið?
„Já og nei, en líklega meira
já. Reyndar er Island kannski
ekki heppilegt að því leyti að
það er jarðskjálfta- og eld-
gosaland, en samt eru þar stór
óbyggð svæði þar sem hugs-
ast gæti að heppilegt væri að
urða slíkan úrgang. Þetta er
ekki svo mikið pláss sem þarf,
Yucca Mountain-svæðið sem
við erum að undirbúa er ekki
nema 2x5 kílómetrar. Hins
vegar er vatnshraði í dýpri
lögum líklega allt of hár til að
þetta geymist í fleiri þúsund
ár. En þessi mál eru öll í mót-
un, sumar þjóðir hafa lýst yfir
að þær muni aldrei taka við
frá öðrum. Aðrar, t.d. Sviss,
hafa kannski ekki bolmagn til
að kosta urðun af þessu tagi.
Enn aðrar, eins og Þýskaland,
hafa einfaldlega sagst ekki
ráða við vandamálið."
Reynir segist hafa verið
latur í skóla, en tækni-
mál hafi vakið áhuga
sinn. Hann fór til náms í
Bandaríkjunum líkt og Guð-
mundur bróðir hans og nam
þar m.a. stærðfræði og eðlis-
fræði í Nýju-Mexíkó, og síðan
rafmagnsverkfræði í Norður-
Karólínu, einnig líkt og litli
bróðir. Þaðan lá leiðin hins
vegar til Uppsalaháskóla í
Svíþjóð þar sem hann nam
fyrst rafmagns- og tölvufræði,
en útskrifaðist síðan sem
verkfræðingur. Hann nældi
sér í vísindastyrk til að rann-
saka þróun á tölvustýrðum
mælitækjum. Síðan hefur
hann rekið eigin rannsóknar-
verkefni sem snúast um að-
ferðarþróun við gagnasöfnun í
sambandi við jarðskjálfta-
rannsóknir. Árin 1987-1992
veitti hann forstöðu norrænu
verkefni um jarðskjálftarann-
sóknir í samvinnu við Ragnar
Stefánsson jarðskjálftafræð-
ing og fleiri, m.a. sænska
doktorinn Ragnar Slunga.
Reynir var gerður ábyrgur
fyrir allri hönnun rannsókn-
anna. Síðustu árin hafa rann-
sóknirnar haldið áfram, m.a.
með fjármagni frá EB. Hafa
Reynir og félagar m.a. komið
upp mjög svo víðfeðmu neti
jarðskjálftamæla sem teygir
arma sína víða um land, en er
þó auðvitað þéttast á virkustu
jarðskjálftasvæðum landsins,
Suðui'landi, Reykjanesi,
Hengli og Oxarfirði.
„Við stefnum að því að geta
sagt fyrir um jarðskjálfta og
hversu stórir þeir verða. Við
höfum farið inn á nýjar braut>
ir og reynum að túlka þau
gögn sem fást til þess að skilja
betur eðli jarðskjálfta," segir
Reynir.
En í hverju liggur þessi
nýja skoðun?
„Við beinum sjónum okkar
mjög sterkt að hinu mjög
smáa. Það hefur sýnt sig að
það gefur mjög góða mynd af
ástandinu. Við erum með
mælitæki sem mæla 0,01 mm
hreyfingu á 5 kílómetra dýpi.
Jarðskjálfti er hreyfing á
brotafleti í jarðskorpunni sem
gefur frá sér mismunandi
sterkar bylgjur í ólíkar áttir
eftir því í hvaða átt brothreyf-
ingin er. Þetta nýtum við okk-
ur og hefur gefist gífurlega
vel og er það ekki síst fyrir að
þakka hlut samstarfsmanns
okkar sem lést nýlega í
bílslysi, Sigurðar Th. Rögn-
valdssonar hjá Veðurstofunni.
Hann var nánasti samstarfs-
maður minn og tengiliður.
Sérlega fær ungur maður og
hans er sárt saknað."
Hvað fæst með þessum ran-
sóknum?
Við viljum geta sagt fyrir
um jarðskjálfta og styi’k þeirra
eins og ég gat um áðan. Við
getum það ekki enn sem komið
er, en rannsóknir okkar benda
eindregið til þess að við getum
verið bjai-tsýnir á árangur,
innan áratugar eða svo. Við
þykjumst sjá þegar breytingar
verða á brotflatarstefnum og
það hefur með breytingu á
spennusviðum að gera. Við
reynum að skilja þennan feril
til að túlka hann. Við getum
orðað það svo á mjög einfaldan
máta, að bylgjur fá á sig
breytta mynd.“
Menn eru nú eitthvað að
spá fyrir um jarðskjálfta nú
þcgar, er það ekki?
„Það hafa margir verið
duglegir að spá skjálftum eft-
ir að þeir verða, en ég ítreka,
að við getum ekki gert það út
frá vísindalegum gögnum
ennþá. Hitt er svo annað mál,
að sögulegar heimildir gera
okkur kleift að spá í líklega
farvegi sem jarðhræringar
geta farið í og þannig spár
hafa heyrst, en ævinlega með
fyrirvörum.“
Hvað segja þessar rann-
sóknir ykkar um meint tengsl
stórra jarðskjálfta vítt um
hnöttinn?
„Já, þessar kenningar eru
fyrir hendi og mönnum þykir
með ólíkindum að stundum sé
engu líkara en að keðjuverk-
un jarðhræringa fari í gang. Á
þessu ári hafa menn spáð
nokkuð í þetta þar sem hver
mannskæður skjálftinn rak
annan á tiltölulega stuttum
tíma. En það verður að segj-
ast eins og er, að þrátt fyrir
hvaða ályktanir menn vilja
draga af svona þá hafa alls
ekki orðið meiri jarðhræring-
ar á jörðinni á þessu ári held-
ur en vænta mátti og ef við lít-
um á jarðskjálftann í Tyrk-
landi í ágúst, þá var kominn
tími á hann, rétt eins og menn
tala um að kominn sé tími á
Suðurlandsskjálfta hjá okkur
á Islandi. Varðandi Tyrk-
landsskjálftann má því segja
að það hefði mátt búast við
honum, en alla nákvæmni
vantaði. Það er slík nákvæmni
sem við erum að leita að og
vegna þess hve við erum á
góðri leið er mjög fylgst með
okkur. Þannig var verkefnið í
byrjun norrænt, en fleiri þjóð-
ir koma nú að því. Það vill svo
til, að aðstæður til að vinna að
þessum rannsóknum eru afar
góðai- hér á landi. Þetta net
okkar er upp á 35 mæla og
vonandi að við getum bætt við
það á næstu árum. Þá fer
senn af stað jarðskjálftaverk-
efni í Svíþjóð sem byggist á
verkefni okkar hér á landi.
Svíþjóð er að vísu ekki þekkt
jarðskjálftaland, en það þarf
að læra um brotahreyfingar
af öðrum toga en hér þekkist.
Þessar rannsóknir eru meðal
annars tengdar rannsóknum
sem varða kjarorkuúrgang
sem bróðir minn dundar við.“
Pú nefndir Suðurlands-
skjálfta, erum við tilbúin?
„Því verða byggingarverk-
fræðingai'nir að svara.
Stærstu kippir á Islandi verða
einmitt á Suðurlandi, rétt nim-
lega 7 stiga skjálftar á Richter.
Stærstir á Hengilsvæðinu
verða þeir 5 til 5,5 stig og upp í
6 stig á Reykjanesi og í Blá-
fjöllum. Hvað ólík svæði geta
borið stóra skjálfta fer eftir
þykktinni á skorpunni, því
þykkari sem hún er, þeim mun
harðari skjálfti getur orðið.
Það er sagt að byggingar á ís-
landi séu byggðar til að stand-
ast sterka jarðskjálfta. Hér á
landi séu staðlar góðir. Þess
má geta, að í Tyrklandi eru
staðlar einnig góðir, en menn
muna hvernig fór þar á dögun-
um. Það er annar stjórnar-
fars“kúltúr“ í sumum af þess-
um löndum og alls ekki í takt
við það sem við þekkjum. Ef
byggingarmeistari er með
hagstætt tilboð í tvö hús, reyn-
ir hann að byggja það þriðja
innan peningarammans og fyr-
ir vikið er einhverju ábótavant
í öllum húsunum. Á meðan
svoleiðis vinnubrögð tíðkast
munu staðlai’ litlu skipta, en
spái’ geta ekki annað en valdið
straumhvörfum í sambýli við
náttúi’uöfl á borð við jarð-
skjálfta.“
N&RTEL
NETWORKS
NÝHERJI
Skaftahlíð 24 ■ S:569 7700
www.nyherji.is
30%
endurgreiðsla frá framleiðanda af Nortel*
leiðarstjórum (routerum).
Tilboðið gildir aðeins til 9. dGSGITlbGr svo hafa þarf skjót viðbrögð.
* Gildir ekki fyrir Nautica og Clam leiðarstjóra