Morgunblaðið - 16.12.1999, Síða 14

Morgunblaðið - 16.12.1999, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjarskiptamál undir Eyjafjöllum í athugun hjá almannavarnanefnd Ein aðaltalstöð til viðbótar talin æskileg FJARSKIPTAMÁL almannavarnanefndar Rangárvallasýslu eru til athugunar hjá nefndinni en íbúar á tveimur stöðum undir Eyjafjallajökli, sem er vaktaður vegna mögulegs eldgoss, hafa kvartað undan ástandi og eftirliti með aðaltal- stöðvum sem eru í Nýja-Bæ í Vestur-Eyjafjalia- hreppi og í byggðakjarnanum í Skógum í Austur- Eyjafjallahreppi. Að sögn Olgeirs Engilbertssonar, umsjónar- manns fjarskiptamála hjá almannavarnanefnd, ætti að bæta við einni aðaltalstöð Almannavarna í Austur-Eyjafjallahreppi. I Skógum er aðaltalstöð almannavarnanefndar í húsi Framaldsskólans í Skógum sem hættur er starfsemi. Samkvæmt upplýsingum íbúa í Skóg- um var talstöðin biluð vegna brotins loftnets og var þess óskað á borgarafundi með jarðvísinda- mönnum í fyrradag að henni yrði valinn annar staður en í Skógum í ljósi breyttra aðstæðna. Spurður um þetta segir Olgeir Engilbertsson að við prófun í gær hafi talstöðin reynst í lagi þótt samband hafi verið stirt vegna vegna truflana á endurvarpi Almannavarna á Háfelli fyrir austan Vík í Mýrdal. Olgeir tekur hins vegar undir þau sjónarmið að fjarskiptasamband sé lélegt í Skógum, einkum vegna skorts á farsímasambandi, sem heimamenn í Skógum hafa lengi knúið á um breytingar á. Olgeir segir aðspurður hvort færa ætti aðal- talstöðina frá Skógum að ýmis rök hnígi að því að hafa hana á sínum stað þar sem byggðakjarninn í Skógum sé skilgreindur sem fjöldahjálparstöð. Setja ætti hins vegar upp aðra talstöð til viðbótar t.d. á bænum Hrútafelli sem er nær þjóðveginum en skólabyggingin. Búnaður til þess er til og segir Olgeir ennfremur að gott talsöðvarsamband hafi verið sannreynt þar. Ekki kunnugt um reglur um ábyrgð Honum er hins vegar ekki kunnugt um að til séu reglur um skiptingu ábyrgðar milli heima- manna og almannavarnanefnda í héraði að því er viðkemur rekstri aðaltalstöðvanna sem almanna- varnanefnd setur upp hjá heimafólki. Þannig sé t.d. ekki skýrt hvort ábúendur á Nýja-Bæ eigi að standa straum af rekstri aðaltalstöðvar almanna- varnanefndar ef sú staða kæmi upp að í raf- magnsleysi þyrfti að grípa til notkunar olíuknú- innar vararafstöðvar á bænum, sem hugsuð er til notkunar við heimilishald og búrekstur. Viður- kenndu líkams- árás og rán TVEIR karlmenn á þrítugs- aldri hafa viðurkennt við yfir- heyrslur hjá lögreglu að hafa ráðist að manni á Eiríksgötu snemma morguns síðastliðinn laugardag og rænt hann veski sínu. Veskið er fundið en maður- inn hlaut minniháttar áverka við árásina. Mennirnir tveir hafa ekki áður komið við sögu mála hjá lögreglu. Að sögn lögreglunnar verður málið fljótlega sent ákæruvald- inu til ákvörðunar en brot sem þetta getur varðað þungum við- uilögum. Hópur Flugleiða- starfsfólks með háreysti í flugi Agavið- urlögum verður beitt ÓSÆMILEG hegðun nokk- urra starfsmanna í flugi Flug- leiða til Baltimore 5. desem- ber sl. er til athugunar hjá Flugleiðum. Að sögn Einars Sigurðs- sonar, framkvæmdastjóra hjá Flugleiðum, var níu manna hópur fólks með töluvert mikla háreysti um borð í vél- inni. Hluti hópsins var starfs- menn Flugleiða sem ferðaðist á afsláttarmiðum frá félaginu og lét hópurinn sér ekki segj- ast þrátt fyrir ítrekuð tilmæli. „Framkoman sem aðrir far- þegar mættu þarna er ekki í samræmi við það sem félagið vill sýna. Við teljum að hún hafi verið blettur á félaginu og á öðrum starfsmönnum sem eru á þriðja þúsund og eru að öllu jöfnu félaginu til sóma. Við erum að fara ofan í saumana á þessu máli og það hefur væntanlega einhverjar afleiðingar í för með sér," segir Einar. Hann segir að kannað verði hve mikinn hlut að máli starfsmenn Flugleiða áttu í málinu en háreysti hópsins stöfuðu meðal annars af óhóflegri áfengisnotkun. Flugleiðir biðja farþega afsökunar Einar segir að skýrar hegð- unarreglur gildi hjá félaginu og komi í ljós að um sé að ræða brot á þeim þurfi að grípa til agaviðurlaga. Ekki hafi þó verið tekin ákvörðun um hvaða viðurlögum verði beitt, en til greina komi að víkja fólki frá störfum, eftir því hve alvarleg brotin eru. Flugleiðir vilja að sögn Einars koma á framfæri af- sökunarbeiðni til allra þeirra farþega sem urðu fyrir ónæði af völdum hópsins í fyrr- nefndu flugi. Félagið hefur ekki tök á því að senda form- lega afsökunarbeiðni til allra því heimilisföng sumra far- þega sem um borð voru eru ekki til hjá félaginu. Morgunblaðið/Kristinn Leiðir til að fullnægja neysluvatns- þörf Vestmannaeyinga Unnið að gerð neyðaráætlunar BÆJARVEITAN í Vestmannaeyj- um vinnur nú að gerð neyðaráætlunar sem leggja á fyrir Almannavaina- nefnd bæjarins í næstu viku þar sem m.a. er fjallað um leiðir til að full- nægja neysluvatnsþörf bæjarbúa ef Eyjafjallajökull færi að gjósa með þeim afleiðingum að neysluvatn, sem leitt er úr lokuðu vatnsbóli í nágrenni jökulsins, myndi spillast af snefilefn- um úr gjósku goss úr jöklinum. Veitustjórinn í Vestamannaeyjum segir að grípa verði til þess ráðs að flytja neysluvatn frá landi til Eyja með Heijólfi ef neysluvatn spillist, en ekki hafi þó verið gerðar ítarlegar ráðstafanir enn þar að lútandi. Fari svo að loka þurfi fyrir vatns- veitu vegna gosmengunar er unnt að grípa til varavatnsbirgða í 5 þúsund rúmmetra vatnstanki sem endast í tvo til fjóra daga án skömmtunar. Ekki hefur verið gerð áætlun um hvemig standa eigi að vatnsflutning- um með Heijólfi milli lands og Eyja, en Friðrik Friðriksson veitustjóri segir að ef loka þyrfti fyrh- vatnsveitu vegna mengunar hefðu menn um fjóra daga upp á að hlaupa til að hefja vatnsflutninga með Herjólfi. Hann segir að vel kæmi til greina að flytja neysluvatn í tönkum mjólkurbíla frá Mjólkurbúi Flóamanna og í slökkvi- bílum annars staðar frá og telur lík- legt að útvega mætti slíka vatns- geyma með tiltölulega skömmum fyrirvara ef í harðbakkann slær. Vatninu yrði síðan komið fyrir í hin- um 5000 rúmmetra birgðatanki í Eyj- um og dreift. til heimila. Heimilin njóti forgangs Meðalvatnsnotkun í Eyjum er 24 lítrar á sekúndu og er þá bæði tekið tillit til vatnsnotkunar iðnaðarins og heimilanna. Starfsemi iðnaðarins er mun vatnsfrekari en heimilanna og útheimtir tvo þriðju af vatninu. Heild- arvatnsnotkun { Eyjum sveiflast frá 15 lítrum á sekúndu að nóttu til allt upp í 50 lítra á sekúndu að degi til og segir veitustjóri Ijóst, að heimilin nytu forgangs ef grípa þyrfti til þess að skammta vatn við neyðaraðstæður. Sleðaferð í skammdeginu SNJÓNUM fylgir slabb og ófærð scm margir myndu helst vilja vera lausir við. Aðrir eru hinir ánægð- ustu þegar snjóa tekur á veturna og ber þar helst að nefna smáfólkið. Þeir Atli og Albert eru í þeirra hópi en þeir skcmmtu sér konunglega þar sem þeir renndu sér niður brekku við Miklubraut í Reykjavík í gær. Skýrsla um stefnumótun í ferðamálum Hveragerði verði heilsubær EFTIR aldarfjórðung geta tekjur íslendinga af ferðaþjónustu orðið jafn miklar og tekjur af sjávarútveg- inum en munurinn á milli þessara at- vinnugreina er um 36% nú. Þetta kom fram í máli Rögnvalds Guðmundssonar, ferðamálaráðgjafa hjá Rannsóknum og ráðgjöf ferða- þjónustunnar, á fundi í Hveragerði þar sem kynnt var skýrsla um stefnumótun í ferðaþjónustu í Hveragerði á árunum 1999-2003. Hveragerði er meðal fjölsóttustu ferðamannastaða landsins, að sögn Rögnvalds, og voru heimsóknir þangað á bilinu 750-900 þúsund á síðasta ári og skildu gestir eftir sig 800-1.000 milljónir kr. í bænum. Tilgangur stefnumótunar er, að sögn Rögnvalds, m.a. að fjölga árs- verkum og aukja tekjur af ferðamál- um, efla starfandi fyrirtæki og laða að ný auk þess að stuðla að skilvirk- ari uppbyggingu ferðamála. Unnið hefur verið að stefnumót- uninni síðan í apríl 1997 enda sagði Magnús Á. Magnússon, formaður at- vinnu- og markaðsnefndar í Hvera- gerði, að brýnt væri vegna harðn- andi samkeppni í ferðaþjónustu að móta stefnu bæjarins í ferðamálum. I skýrslunni er m.a. sett fram til- laga þess efnis að Hveragerði skipi sér í fremstu röð á íslandi hvað varð- ar heilsutengda ferðaþjónustu og leiti eftir að ná alþjóðlegri viður- kenningu á Hveragerði sem heilsu- bæ.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.