Morgunblaðið - 22.12.1999, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. DBSEMBER 1999 27
ERLENT
Kampa-
vínið
rennur út
UNDIRBÚNINGUR hátíða-
halda vegna árþúsundamót-
anna hefur valdið því að út-
flutningur á frönskum mat- og
drykkjarvörum hefur aukist
stórlega, samkvæmt upplýsing-
um frá franska landbúnaðar-
ráðuneytinu.
Aukningin nemur um 24% í
desember, miðað við sama
mánuð í fyrra, og er samkvæmt
tölum ráðuneytisins einkum að
þakka stórauknum útflutningi
á kampavíni. Aftur á móti hefui-
útflutningur á koníaki dregist
saman um 13% miðað við des-
ember á síðasta ári.
Talið er að fréttirnar muni
valda vonbrigðum í Bretlandi
þar sem reynt hefur verið að fá
neytendur til að hunsa franskar
vörur vegna innflutningsbanns
Frakka á bresku nautakjöti.
Afmælis
Stalíns
minnst
UM FIMMTÍU manns lögðu
blóm á grafhýsi Jósefs Stalíns,
fyrrverandi leiðtoga Sovétríkj-
anna, á Rauða torginu í Moskvu
í gær til að minnast þess að þá
voru 120 ár liðin frá fæðingu
hans. Hópurinn, sem núverandi
leiðtogi rússneskra kommún-
ista, Gennady Zjúganov, fór
fyrir, hampaði myndum af hin-
um látna leiðtoga. Zjúganov
sagði að Stalín hefði tekið við
völdum þegar þjóðin hefði þurft
að samhæfa krafta sína og að
hann hefði skapað öflugasta
ríki á jörðinni.
Stalín var Georgíumaður og
stundaði um tíma nám í guð-
fræði. Samkvæmt skoðana-
könnun sem birt var á mánu-
dag telja 32% Rússa að Stalín
hafi verið grimmur harðstjóri
sem hafi borið ábyrgð á dauða
milljóna manna en 21% telur
hann hafa verið vitran leiðtoga
sem hafi gert landi sínu gagn.
Komið í veg
fyrir hryðju-
verk
SPÆNSKA lögi-eglan stöðvaði
í gær flutningabíl á leið til höf-
uðborgarinnai' Madríd þar sem
tonn af sprengiefni fannst.
Ökumaður bílsins var handtek-
inn grunaður um að ganga er-
inda skæruliðasamtaka bask-
neskra aðskilnaðarsinna
(ETA). Samtökin era grunuð
um að hafa ætlað að fremja
hryðjuverk í höfuðborginni um
árþúsundamótin.
Lögregla stöðvaði bílinn
vegna brota á umferðarreglum
en við leit fannst sprengiefnið.
Bruni í Norð-
ur-Rússlandi
AÐ MINNSTA kosti 16 létust
þegar eldur kom upp á geð-
sjúkrahúsi í Norður-Rússlandi
snemma á þriðjudag. Fjórir
voru fluttir á sjúkrahús með
brunasár.
Eldurinn kviknaði í einni af
fimm viðarbyggingum sjúkra-
hússins í bænum Primorsk ná-
lægt Sankti Pétursborg. Elds-
upptök voru enn ókunn
síðdegis í gær en unnið var að
rannsókn málsins.
Hafna fullyrðing-
um um bin Laden
London, Islamabad. AP, AFP.
RÍKISSTJÓRN Talebana í Af-
ghanistan hafnaði í gær fullyrðing-
um Bandaríkjamanna um að meint-
ur forsprakki hryðjuverkasamtaka
sem dvelur í landinu hafi lagt á
ráðin um morð á bandarískum
þegnum um áramótin. Sendiherra
Afghanistan í Pakistan sagði á
fréttamannafundi í gær að Sádi-
Arabinn Osama bin Laden hefði
ekki aðgang að fjarskiptatækjum
svo að hann hefði ekki tök á því að
stýra hryðjuverkum um áramót.
Hann sagði að stjórnvöld í Afghan-
istan hefðu afráðið að banna hon-
um að nota fjarskiptatæki „til að
friða alþjóðasamfélagið fyrir
áhyggjum".
Bandaríkjamenn hafa farið fram
á að bin Laden verði framseldur
vegna gruns um að hann hafi staðið
að baki mannskæðum sprengingum
í bandarískum sendiráðum í Afríku
á síðasta ári. Talebanar hafa neitað
að verða við beiðninni og segja að
það sé andstætt siðum landsins að
selja gesti í hendur óvinum þeirra.
SendiheiTann sagði í gær að Ta-
lebanar hefðu boðist til að réttað
yrði yfir bin Laden í sérstökum ís-
lömskum dómstól þar sem dómar-
arnir yrðu þrír frá jafn mörgum
múslímskum ríkjum. Þeirri beiðni
hafi Bandaríkjamenn af einhverj-
um ástæðum hafnað. Sameinuðu
þjóðirnar samþykktu í síðasta
mánuði refsiaðgerðir gegn Afghan-
istan vegna synjunar stjórnvalda
þar á framsalsbeiðninni.
Bjóða milligöngu
Innanríkisráðherra Pakistans
sagði í gær að stjórnvöld þar í landi
væru reiðubúin að hafa milligöngu
um lausn málsins og aðstoða við að
koma á viðræðum milli Afghana og
Bandaríkjamanna.
íslamskur kennimaður, búsettur
í London, Omar Abu Omar, neitaði
í gær að hann hefði nokkur tengsl
við hóp meintra hryðjuverkamanna
sem handteknir voru í Jórdaníu í
síðustu viku. Jórdönsk yfirvöld
hafa haldið því fram að Omar sé
forsprakki hópsins sem hafi ætlað
að myrða bandaríska þegna í Jord-
aníu um áramótin. Maðurinn er
einnig sagður vera hægri hönd Os-
ama bin Ladens.
Stjórnvöld í Jórdaníu segja að
hann sé eftirlýstur þar í landi fyrir
aðild að sprengitilræðum árið 1998.
Þau halda því einnig fram að Omar,
sem einnig gangi undir nafninu
Abu Kutada, hafi komið til Bret-
lands með falskt vegabréf og hafi
beitt brögðum til að fá þar pólitískt
hæli.
KNORR Grand BOUILLON
Kraftur íalla rétti...
...beint úr bauknum
<
Q
Q
>•