Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 63
J MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000 63,, dag að ég gæti verið meira eins og hann og mun gera mitt besta í fram- tíðmni til að líkjast honum. Ég minnist einnig þolinmæði hans gagnvart mér. Hann fékk víst að reyna í nokkur skipti hversu mikil handfylli ég gat verið þegar þannig lá á mér. Elsku Magga, Stebbi, Arnar og Brynjar. Megi Guð almáttugur gefa ykkur, sem og öðrum aðstandend- um, styrk til að halda áfram. Loks er dagsins önn á enda, úti birtan dvín. Byrgðu fyrir blökkum skugga björtu augun þín. Eg skal þerra tár þíns trega, tendra falinn eld, svo við getum saman vinur syrgt og glaðst í kveld. Lífið hefur hendur kaldar, hjartaljúfur minn. Allir bera sorg í sefa, sárin blæða inn. Tárin falla heit í hljóði, heimur ei þau sér. Sofna, vinur, svefnljóð meðansyngégyfirþér. Þreyttir hvílast, þögla nóttin þaggar dagsins Iwein. Felur brátt í faðmi sínum fagureygðan svein. Eins og hljóður engill friðar yfirjörðufer. Sofþúværan,vinur, ég skal vaka yfir þér. (Kristján frá Djúpalæk) Hinrik. „Ekkert mál, ekkert mál,“ sagði Stefán gjarnan þegar hann var beð- inn um eitthvað, enda maðurinn sérstaklega bóngóður og vildi hvers manns vanda leysa. Stefán er einn af þeim mönnum sem skilja eftir sig ótrúlega stórt skarð því hann kunni þá list, öðrum fremur, að láta fólki líða vel í návist sinni. Það er dapur- leg tilhugsun að hann eigi aldrei eft- ir að bh-tast í dyrum skrifstofu minnar og segja hæ, sterkum rómi. Síðustu slíka heimsókn fékk ég í vikunni áður en hann lést og þá var svo sannarlega ekki á honum að sjá að endalokin væru framundan svo skjótt sem raun ber vitni. Eftir á að hyggja vildi ég að ég hefði gefíð mér meiri tíma til þess að ræða við Stef- án vin minn þennan desemberdag, en eins og svo oft var í mörg horn að líta og Stefáni efst í huga að hyggja að því sem ég hafði beðið hann að gera, en hann og starfsfélagar hans voru ávallt kallaðir til ef eitthvað þurfti að gera við og lagfæra í húsa- kynnum Umferðarráðs. En það er ekki aðeins á þessu sviði sem ég mun sakna Stefáns. Lögin góðu sem við sungum oft saman munu nú hljóma öðruvísi þegar Stefáns nýtur ekki lengur við. Sérlega ánægjulegt var að skemmta sér með þeim Stebba og Möggu og margar áttum við stundirnar saman í Rjúpufellinu hjá Herdísi og Adda. Nú eru þeir báðir farnir í ferðina löngu Addi og Stefán og ég sé þá fyrir mér syngja saman Efst á Arn- arvatnsheiðum og hver veit nema þeir stilli nú saman strengi, handan lífsgátunnar miklu, og kyrji Kátir voru karlar frá Akranesi. Fyrsta dag ársins 2000 ætluðum við að eiga sérstaka gleðistund sam- an. Jonni bróðir minn er staddur hér á landi um jól og áramót, ásamt Gauju konu sinni, en þau hafa um árabil verið góðir vinir Stebba og Möggu. Stefán vann hjá Jonna við trésmíðar í Svíþjóð um margra ára skeið og tilhlökkunin var mikil að eiga hér saman ánægjulegan tíma, þar á meðal nýárskvöld í Broadway. En enginn veit sína ævina og nýárs- kvöldið mikið öðruvísi en að var stefnt. Elsku Maggá, Stefán yngri, Arn- ar, Brynjar og fjölskyldan öll. Við Þurý og Gauja og Jonni sendum ykkur einlægar samúðarkveðjur vegna þessa mjög svo ótímabæra fráfalls drengsins góða, Stefáns O. Stefánssonar. Minning hans er í huga okkar blessuð að eilífu. Engin orð megna að tjá huga okkar á þess- ari stundu. En lífið heldur áfram, það eitt er víst. _ Óli H. Þórðarson. Kveðja frá Félagi húseigenda á Spáni Fyrii' hönd stjómar og félaga í Fé- lagi húseigenda á Spáni vil ég með nokkrum orðum minnast Stefáns Ó. Stefánssonar sem lést langt um aldur fram. Það kom okkur mjög á óvart en dauðinn er viss og óviss í senn. Öll vitum við að hann kemur en hvenær vita víst fæstir. Stefán var mjög virkur félagi í okk- ar félagsskap, starfaði í stjóm, var varaformaður og nú síðast formaður frá 1. febrúar 1997. Hann var mjög glaðvær og hress, drífandi í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur, frá- sagnargleðin í fyrirrúmi og stutt í húmorinn. Oft var hlegið bæði á stjómarfúndum og við undirbúning grísaveislu félagsins. Hann var alltaf til í eitthvað nýtt og er þá skemmst að minnast þess er stjómin dansaði „zorba“ á síðustu árshátíð við góðar undirtektir viðstaddra. Já, það var aldrei nein lognmolla í kringum Stef- án. Hann hafði góða framtíðarsýn og var opinn fyrir nýjungum. Stefán átti þátt í mörgum af helstu framfara- skrefum félagsins og undir hans stjórn efldist og dafnaði félagið sem aldrei fyrr. Þegar við nú kveðjum góðan vin, þökkum við honum fyrir mjög vel unnin störf fyrir félagið. Eiginkonu hans, Margréti, sonunum Stefáni Helga, Arnari og Brynjari, foreldr- um, tengdaforeldrum og ættingjum vottum við okkar dýpstu samúð og biðjum þeim Guðs blessunar um ókomin ár. Blessuð sé minning Stefáns Ó. Stefánssonar. Ari Ólafsson varaformaður. Oft kemur reiðarslagið þegar minnst varir. Þegai' við félagarnir vorum að halda jólahátíð bárust okkur þær sorgarfréttir að Stefán, fyrrverandi Round Table-félagi, hefði andast. Það er sorglegt að horfa á eftir góðum félaga í blóma lífsins. Stefán var virkur Round Ta- ble-félagi í mörg ár. Formlega hætti hann fertugur eins og allir aðrir fé- lagar en það var bara formlega. Ste- fán var virkur áfram og lét sig ekki vanta á uppákomur hreyfingarinn- ar, alltaf jafn hress, hvort sem um var að ræða árshátíð eða útilegur. Við sem störfuðum með Stefáni munum ætíð minnast hans sem glaðlynds félaga sem var áberandi og vann ætíð að því að allir hefðu það jafn gaman og hann, hvort sem um var að ræða félaga eða börn þeirra, en Stefán var duglegur að leika við börnin í útilegum hreyfing- arinnar. Við vitum að margir munu sakna þessa léttlynda félaga en þó er missirinn hvergi eins mikill og hjá Margréti og börnum þeirra. Guð veri með ykkur og veiti ykkur styrk í gegnum þessar sorgarstundir. Ste- fán, við vitum að þú ert í góðum höndum og erum alveg vissir um að þú átt eftir að veita öðrum jafn glað- ar stundir á þeim stað sem þú ert nú og þú veittir okkur. Félagar í Round Table Island. Ástkær faðir okkar, + INGIMUNDUR PÉTURSSON frá Látrum í Aðalvík, lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 30. desem- ber. Steinvör Esther Ingimundardóttir, Guðrún Eva Ingimundardóttir, Hrólfur G. Ingimundarson. t Hjartkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR INGI GUÐMUNDSSON bifreiðastjóri, Stekkjarflöt 2, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Garðakirkju miðviku- daginn 5. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans, er bent á að láta hjúkrunarþjónustu Karitas njóta þess. Anna Þorláksdóttir, Axel Ström Óskarsson, Þóra Sigurðardóttir, Herdís Óskarsdóttir, Aldís Óskarsdóttir, Guðný M. Óskarsdóttir, K. Linda Óskarsdóttir, Unnur E. Óskarsdóttir, Hjalti Hjaltason, Finnbjörn A. Hermannsson, Hannes Jónsson, Garðar S. Vestfjörð, Einar Á. Sigurjónsson, Elma Ósk Óskarsdóttir, V. Þröstur Hjálmarsson, Ester Inga Óskarsdóttir, Magnús Guðbjartsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Okkar kæri eiginmaður, sonur, faðir og afi, HERMANN FRIÐRIKSSON múrarameistari, Bleikjukvísl 8, Reykjavík, sem varð bráðkvaddur þriðjudaginn 28. des- ember, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 7. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd og Barnaspítala Hringsins. Agnes Einarsdóttir, Halldóra Margrét Hermannsdóttir, Stefán Haukur Jóhannesson, Einar Már Hermannsson, Maren Junge, Baldur Hermannsson, Ása Valgerður Sigurðardóttir, Friðrik Ásgeir Hermannsson, Kristín Crosbie, Einar Kristján Hermannsson, Guðrún Sigurðardóttir og barnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÁLL HRÓAR JÓNASSON frá Hróarsdal, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju vikudaginn 5. janúar kl. 13.30. Jónas Pálsson, Lilja Pálsdóttir, Sigríður Pálsdóttir, Hróar Pálsson, Heiðbjört Pálsdóttir, Hallfríður Pálsdóttir, Árni Þórður Jónsson, barnabörn og langafabörn. Þórunn Skaftadóttir, Pétur Ársælsson, Reynir Sigurðsson, Kristín Guðmundsdóttir, t Eiginmaður minn, HERMUNDUR ÞORSTEINSSON bóndi, Egilsstaðakoti, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands föstudaginn 31. desember. Laufey Guðmundsdóttir. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR OTTESEN ÁMUNDASON vörubílstjóri, Skúlagötu 40a, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 5. janúar kl. 15.00. Gunnar Már Pétursson, Enika Kristjánsdóttir, Fanney Edda Pétursdóttir, Þóra Pétursdóttir, Reynir Hlíðar Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, HULDA KOLBRÚN FINNBOGADÓTTIR, Lágholti 8, Mosfellsbæ, er lést á líknardeild Landspítaians mánudaginn 27. desember, verður jarðsungin frá Bústaða- kirkju fimmtudaginn 6. janúar kl. 15.00. Davíð B. Sigurðsson, Sveinbjörg Davíðsdóttir, Svanur H. Magnússon, Kolbrún Ósk Svansdóttir, Davfð H. Svansson, Magnea Rós Svansdóttir. + Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar, STEFÁN Ó. STEFÁNSSON húsasmíðameistari, Bollagörðum 103, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju í dag, þriðjudaginn 4. janúar, kl. 13.30. Fyrir hönd foreldra, systkina, tengdaforeldra og annarra ástvina, Margrét Elín Ragnheiðardóttir, Stefán Helgi, Arnar og Brynjar Stefánssynir. + Bróðir okkar, VILHJÁLMUR TRYGGVI EINARSSON frá Gerðum, Stokkseyri, verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju miðvikudaginn 5. janúar kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Guðmundur Einarsson, Kristbjörg Einarsdóttir. |ð 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.