Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000 79 JVjBÉ SpilSp _ Þórarinn Magnússon og Anna Ólafsdóttir Kveðja heim Þá er Almanak Þjóðvina félagsins komið út Frá Þórarni Magnússyni og Onnu Ólafsdóttur: I TILEFNI árþúsundaskiptanna langar okkur hjónin að senda kveðju til ættingja og vina. Þegar þetta er skrifað, 28. desem- ber, eram við á siglingu í Karíbahaf- inu á leið til Höfðaborgar í Suður- Afríku. A gamlái'skvöld reiknast mér til að við verðum undan norðurströnd Brasilíu, um 300 mílur norðaustur af ósum Amazon-fljótsins. Klukkan hér um borð verður þá þremur tímum á eftir ykkar heima, syo um klukkan þrjú að íslenskum tíma höldum við upp á okkar árþús- undamót. Þetta skip er bandarískt oliuflutn- ingaskip og heith' „Chevron South America“ og er eitt tíu stærstu skipa veraldar. Fulllestaðir flytjum við um fjögur hundrað og átta þúsund tonn af hráolíu, en þessi olía er lestuð í Sádi-Arabíu í Persaflóanum. Svona til að gefa smáhugmynd um stærð þessa skips er það um þrjú hundruð og sjötíu metrar á lengd og um sjötíu metrar á breidd; ef menn ímynda sér fjóra fótboltavelli setta saman er það ekki ósvipað flatarmáli þessa ferlíkis. Fulllestaðir ristum við rúma 23 metra í sjó, það svarar til níu til tíu hæða húss, en þetta er það sem er undir sjávarmáli. Eg kom um borð undan strönd Los Angeles um miðjan september, en þar var verið að losa farminn um borð í minni skip um tvö hundruð roflur undan ströndum Kaliforníu. meðan við sigldum hjá. Þaðan lá leið- in til Mexíkóflóa þar sem við losuð- um olíuna í minni skip um 30 mflur undan strönd Mississippi-ríkis. Þessi losun tók um tvær vikur og þar kom konan mín, Anna Ólafsdóttir, um borð. Meiningin er að við förum í frí um miðjan janúar, eða þegar við komum til Höfðaborgar aftur. Við eram annars fjóra mánuði um borð í hvert sinn og fáum nítján daga frí fyrir hvern mánuð um borð. Okkur hjónin langar annars til að biðja fyrir ái'þúsundaskiptakveðjur til sonar okkar Ólafs og tengdadótt- ur okkar Evu og litlu prinsanna þeirra Magnúsar og Karls, en þau búa í Arósum Danmörku; til foreldra okkar Magnúsar Þórarinssonar og Vilborgar Guðbergsdóttur til heimil- is á Bergstaðastræti 11 í Reykjavík og Ólafs Brandssonar og Fanneyjar Magnúsdóttur til heimilis á Mosa- barði 5 í Hafnarfirði; til heimilis- fólksins á Sléttahrauni 17 í Hafnar- firði og til allra okkar systkina, ættingja og vina heima á Fróni. Eg sendi þetta, ásamt smámynd sem tekin var í gær, með tölvupósti í gegnum gervihnött, en það er mikið notað hér um borð. Við viljum nota tækifærið til að óska ykkur öllum á blaðinu gleðilegs og ábatasams árs. Með bestu kveðjum. Skrifað á sjó 28. desember 1999. ÞÓRARINN MAGNÚSSON, ANNA ÓLAFSDÓTTIR, „Chevron South America". Frá Auðuni Braga Sveinssyni: JAFNAN bíð ég með óþreyju eftir því, að Almanak Þjóðvinafélagsins komi út. Ég keypti strax sem ungl- ingur bækur Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins. Þá sameinuðust þessi félög um útgáfu bóka, sem al- menningur keypti við vægu verði. Mörg heimili eignuðust góðan bóka- kost vegna framtaks þessara félaga. Þjóðvinafélagið er enn við lýði, góðu heilli, og gefur út Almanakið og Andvara, þó að Menningarsjóði væri ekki ætluð frekari útgáfustarfsemi. Er illt til þess að vita. Nú er Almanakið fyrir árið 2000 komið út, fullt af fróðleik af ýmsum toga. Þar ber að sjálfsögðu hátt dagatalið. Næsta ár verður hlaupár, og er fimmta ár eftir sumarauka. Ekki verðui' tímanum hnikað hið minnsta. Hann heldui' sína leið. í honum hræramst við - og deyjum. ,Árbók Islands" hefur verið fastur liður í Almanakinu frá öndverðu, en þetta er 126. árgangur þess. Hér er um 212 bls. bók að ræða. Skemmti- legt er til þess að vita, að Almanakið skuli hafa verið í sama broti víst lengst af frá upphafi. En eins og kunnugt er hafa ýmis rit breytt broti sínu, sum oftar en einu sinni. Árbókin er skráð af Heimi S. Þor- leifssyni menntaskólakennara. Tók hann við af Ólafi Hanssyni prófessor og fyrrverandi samkennara Heimis við Menntaskólann í Reykjavík um langt árabil. Ólafur skráði fyrst Ar- bók fyrir árið 1940, er birtist í næsta árgangi almanaksins. Síðasta Árbók- in, sem hann gekk frá, var fyrir árið 1980. Eljumaður hefur Ólafur verið, og verður sá enda að vera, sem tekur að sér slíkt verk. Þarna var vel unnið um fulla fjóra áratugi. Heimir tók við að skrá Árbókina í Almanakið fyrir árið 1981, og hefur gert síðan, eða í 18 ár. Það var ráð Ölafs og ósk, að Heimir tæki við rit- un Árbókarinnar eftir að sín missti við, en hann lést 18. des. 1981, 72 ára að aldri. Einu sinni birtust í Almanakinu nöfn flestra, ef ekki allra, er létust á landi hér. Slíkt tók orðið það mikið rúm, að hætt var um tíma við að geta um nokkur dánardægur. En þegar Heimir tók við ritinu tók hann að geta nokkurra úr hópi látinna, aðal- lega þeirra er nafnkunn gátu talist. Þetta gagnrýndi ég eitthvað, er Heimir birti sína fyrstu skrá í Al- manakinu, fyrii' árið 1984. Fannst, að vafi gæti á því leikið að tína vissa menn, konur og karla, út úr röð hinna látnu, jafnvel þó nöfn þeirra hefðu verið eitthvað kunn. Síðan hef ég vanist þessu, en get þó ekki varist þvi að hugleiða vanda þann, sem rit- ara hlýtur að vera á höndum: að velja oghafna. I Árbókinni fyrir næsta ár er getið um 90 einstaklinga, sem létust á ár- inu 1998 (af. 1.823 alls). Flestir létust á aldrinum sjötíu til níutíu ára. Tvö létust sem fæddust á liðinni öld. Á árinu 1998 önduðust Halldór Lax- ness skáld og Guðrún Katrín Þor- bergsdóttir foi'setafrá, og era mynd- ir frá útforam þeirra. Venja hefur verið að birta mynd frá útför ein- hvers merks manns í hverri Árbók, síðan Heimir tók við henni. Nöfn þeirra, sem háskólaprófi hafa lokið, hafa jafnan birst í Árbókinni og með- aleinkunnir fylgt með, en nú bregður svo við, að þeim er algjörlega sleppt. Ég er þó engan veginn óhress með það, því að hvaða tilgangi þjónar slíkt? Annaðhvort nær fólk prófi eða það fellur hreinlega. Tvær villur hefí ég rekist á í kaflanum „Mannalát“. Haraldur Bjarni Bjamason, bygg- ingameistari í Goða, var fæddur 1909 (ekki 1907), og Gunnar Bjarnason, hrossai'æktarráðunautur, var fædd- ur 1915 (ekki 1913). En þetta voru smámunir. Gífurleg vinna liggur að^ baki riti sem þessu. Mér hefur dval- ist mest við að segja frá Árbókinni í Almanakinu, þó að þar sé margt ann- að og merkilegt að skoða. Almanak Þjóðvinafélagins er í góðum höndum. Þorsteinn Sæmundsson, stjömu- fræðingur og Ph.d., og Heimir Þor- leifsson sagnfræðingur sjá um það. Með þökk fyrir birtinguna. AUÐUNN BRAGISVEINSSON, Hjarðai-haga 28, Reykjavík. Leikfimi í Breiðagerðisskóla SHressandi leikfimi fyrir konur á öllum aldri hefst þriðjudaginn 4. janúar. Skráning og/eða upplýsingar í síma 554 2982. Arna Kristmannsdóttir, íþróttakennari. A námskeiðinu kynnast þátttakendur: • Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum • Hvernig má greina og skilja samskipti • Hvernig ráða má við gagnrýni • Hvernig finna má lausnir í árekstrum • Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir _______Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal Innritun og nánari upplýsingar í símum Sálfræðistöðvarinnar 562 3075 og 552 1110 frá kl. 11-12 Síðan var siglt þvert yfir Kyrra- hafið til Filippseyja og þar á milli eyjanna til Singapúr, þar sem teknar V01'u vistir. Síðan lá leið suður fyrh' Indland eða Sri Lanka og inn í Persaflóa til Sádi-Arabíu, þar sem við lestuðum. Fulllestaðir sigldum við síðan suð- ur fyrir Afríku með viðkomu í Höfða- oorg þar sem þyrlur komu með vistir Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Nýbýlavegi 12, sími 5544433 Yfir 1.500 notendur KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 •Sími 568 8055 Social Foxtrot - það nyiasta Þú verður fær um aó dansa við 90% af öllum lögum sem leikin eru á venjulegum dansleik eftir 6 tima 43. starfsár Samkvæmisdansar - barnadcmsar Áratuga reynsla okkar og þekking tryggir þér bestu fáanlegu kennslu 14 vikna námskeið fyrir fullorðna ..iMMiiiiíiiímy iim v 11 vikna námskeió fyrir börn Línudans Auðveldir, skemmtilegir og með fylgir bók með lýsingu á dönsunum Natasha Royal hefur kennt og þjálfað íslandsmeistarana 6 tíma námskeið 6 tima námskeið Gömlu dansarnir KeDDnisdansar 6 tíma námskeið og þú lærir ótrúlega mikið Svanhildur Sigurðardóttir og Ingibjörg Róbertsdóttir frábærir þjálfarar í keppnisdönsum Salsa 14 vikna námskeið - Mæting lx, 2x eða 3x í viku Freestyle Dansinn sem fer sigurför um heiminn Natasha Royal kennir 6 tíma námskeið 6 tíma námskeið Híd Hod eða Riverdance UDDrífiunartímar UUa Essendrop gestakennari Ekki bara falleg, heldur frábær dansari Þjálfaði Danmerkurmeistarana í Hip Hop Einn tími á sunnudögum Einn dans tekinn fyrir i hvert skipti Viku námskeið Dans ársins Mambo no. 5 Innritun fer fram í síma 552 0345 milli kl. 16 og 20 daglega til 9. janúar www.islandia.is/kerfisthroun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.