Morgunblaðið - 18.01.2000, Síða 10

Morgunblaðið - 18.01.2000, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tfðni sjálfsvfga hefur aukist hér eins og annars staðar á Vesturlöndum Virkt for- varnarstarf mikilvægt Tíðni sjálfsvíga hefur aukist hér á landi á árunum eftir stríð eins og annars staðar á Vesturlöndum og þegar á heildina er litið eru dauðsföll vegna þeirra hér fjórð- ungi fleiri en dauðsföll af völdum umferðarslysa. Sigurður Páll Pálsson geðlæknir segir virkt forvarnar- starf mikilvægt í þessum efnum og taka þurfí heild- stætt á ólíkum þáttum þessara mála til að trygg;ja sem bestan árangur forvarnarstarfsins. Morgunblaðið/Þorkell Signrður Páll Pálsson, geðlæknir á geðdeild Landspítalans. TÍÐNI skráðra sjálfsvíga á íslandi er svipuð og í mörgum öðrum vestrænum löndum, en ef Norðurlöndin eru skoðuð sérstaklega er tíðni sjálfsvíga lægst hér á landi, að því er fram kem- ur í skýrslu nefndar sem kannaði tíðni og or- sakir sjálfsvíga á íslandi, en nefndin skilaði af sér skýrslu og tillögum til úrbóta síðla árs 1996. Þar kemur ennfremur fram að tíðni sjálfsvíga hefur aukist hér á landi á eftirstríðsárunum og þegar á heildina sé litið séu þau fjórðungi fleiri en dauðsföll af völdum umferðarslysa. Skráð sjálfsvíg séu 324 á árunum 1980-90, en á sama tíma hafi 247 látist af völdum umferðarslysa. A þessu tímabili séu dauðsföll karla 2,8% af völd- um sjálfsvíga en 0,1% allra dauðsfalla kvenna. Sé litið á öll árin 1950-1990 séu skráð sjálfsvíg 914 talsins eða að meðaltali um 22 á ári. Flókið samspil I skýrslunni segir að orsakir sjálfsvígs séu flókið samspil geðrænna, sálrænna, lífeðlis- fræði- og félagslegra þátta. Beinar orsakir sjálfsvígs verði ekki raktar, en greina megi áhættuþætti og atferli sem stuðlað geti að því. Afgerandi tengsl við sjálfsvíg og sjálfsvígstil- raunir hafí þættir eins og þunglyndi, misnotkun áfengis og fíkniefna, tilfinningaleg vandamál, vonleysi, bjargarleysi, félagsleg sefjun og slæm eða lítil tengsl ungs fólks við foreldra sína og jafnaldra svo dæmi séu tekin. Þá séu einnig tengsl á milli sjálfsvíga og þjóðfélagsbreytinga, breytinga á stöðu kynjanna og atvinnubreyt- inga. Þá kemur fram að fjölgun hafi orðið á sjálfs- vígum ungra karlmanna á aldrinum 15-24 ára á undanfömum áratugum. Af 106 dauðsföllum á árabilinu 1990-94 hafi 51 verið vegna slysa 37 vegna sjálfsvíga og 18 vegna sjúkdóma. Af þessum 37 voru 23 á árunum 1990-91, en 14 dreifðust nokkuð jafnt á hin þrjú árin. A sama tímabili létust 24 konur á sama aldursbili og létust þrjár af þeim vegna sjálfsvígs. í skýrsl- unni segir að af þessu sjáist að um mikinn kynjamun sé að ræða í þessum efnum bæði hvað varði heildarfjölda dauðsfalla og orsakir þeirra. Tölurnar sýni einnig sveiflur í tíðni sjálfsvíga, en engar skýringar hafi fundist á reglubundnum sveiflum sem hafi verið á tíðni sjálfsvíga hér á landi. Þá kemur fram að aukn- ing hafi einnig orðið í tíðni sjálfsvíga kvenna á aldrinum 55-64 ára á síðari árum en engar við- hlítandi skýringar séu á því hvers vegna svo sé. Forvarnir þurfa að ná til sem flestra áhættuþátta Sigurður Páll Pálsson, geðlæknir á geðdeild Landspítalans, sem unnið hefur að rannsókn- um á þessu sviði á íslandi, segir að miklu nýrri tölur um tíðni sjálfsvíga hér á landi en að ofan greinir séu ekki fyrirliggjandi ennþá vegna þess að Hagstofan sé að endurskoða skráning- arkerfi sitt að þessu leyti í samræmi við al- þjóðlega staðla þar að lútandi. Hann leggur áherslu á hversu flóknai- orsakir sjálfsvíga séu og þó greina megi ákveðna áhættuþætti í því sambandi segi þeir samt ekki nema hluta sög- unnar, því sjálfsvíg séu í sjálfu sér óskiljanleg. Aldrei sé hægt að spá fyrir um sjálfsvíg í ein- staka tilvikum. Forvamir þurfi því að ná til sem flestra þeirra áhættuþátta sem um sé að ræða ef vel eigi að vera og þá sé hægt að vera von- góður um að þær skili verulegum árangri. Þannig hafi sænski læknirinn Jan Beskow sem hafi náð góðum árangri í forvörnum á þessu sviði áætlað að hægt væri að fækka sjálfsvígum enn um 20-30% sé vel að forvörnum staðið. Sigurður Páll segir að það séu nokkrir lykil- þættir sem skipti máli í þessum efnum. I fyrsta lagi fræðslu-, uppeldis- og menntakerfið í sam- félaginu, sem þurfi að efla einstaklingsvitund og samkennd þjóðfélagsþegnanna og búa ung- menni þannig undir lífið að þau séu í stakk búin til þess að takast á við vandamálin þegar þau láti á sér kræla. Þarna séu óteljandi margir þættir sem huga þurfi að. Svo dæmi sé tekið geti verðlagning á tómstundastarfi barna og unglinga skipt máli í þessu sambandi, því verði það of dýrt fyrir fátækari fjölskyldur kunni það að koma fram í aukningu vandamála síðar meir. Það hafi nefnilega sýnt sig að tómstundastarf eins og íþróttaiðkun skipti afar miklu máli fyrir félagslegan þroska og samband við jafnaldra og það starf sem þarna sé unnið sé því óhemju mikilvægt fyrir þroska einstaklingsins. Þarna sé um að ræða forvarnir á fyrsta stigi sem hann vilji nefna svo, því það starf sem unnið sé á þessum árum æviskeiðsins styrki vamir ein- staklingsins og möguleika hans til að glíma við vandamálin síðar meir I öðru lagi skipti máli að heilbrigðiskerfið sé öllum aðgengilegt. Þjónusta vegna vandamála af þessu tagi þurfi að vera sem víðast fyrir hendi til að hægt sé að bregðast fljótt og mark- visst við, því lausnin hljóti að vera persónuleg fyrir hvem og einn einstakling. Of mikil sam- þjöppun þjónustu vegna geðrænna vandamála sé þess vegna mjög varasöm. Þá sé uppfræðsla heilbrigðisstarfsfólks mjög mikilvæg og að það sé vel meðvitað um skilmerki sjálfsvígshugs- ana. Það þurfi að hafa hugfast að mikilvægt sé að grafast fyrir um það hvort sjálfsvígshugsan- ir leiti á þá sem líði illa og komi af einhverjum orsökum á heilbrigðisstofnanir til að leita sér hjálpar. Af þessum sökum hafi kennsla og fræðsla í þessum efnum verið aukin á geðdeild- um undanfarin ár og nauðsynlegt sé að halda áft-am á þeirri braut og útvíkka fræðsluna til annarra sviða heilbrigðisþjónustunnar. „Það er viss hætta á því að fólk sem á við erf- iðleika að glíma sé aldrei spurt um þessa þætti vegna þess að fólk veigrar sér við að ræða um efnið. Það er ekkert sem bendir til þess að það auki hættuna á sjálfsvígi að spurja, en það hlýt- ur að skipta mjög miklu máli að átta sig á ástandinu, því það er hægt að gera svo margt til að hrekja þennan vágest á braut,“ segir Sigurð- ur Páll. Hann segir að allir heilbrigðisstarfsmenn, hvort sem það séu geðlæknar, hjúkrunarfræð- ingar, heilsugæslulæknar eða lyflæknar, þurfi að temja sér það að velta þessari hlið mála fyrir sér varðandi þá einstaklinga sem séu til með- ferðar hjá þeim. Það sé ekki hluti af venju- bundnum spurningum að spurja út í þessa hluti, en það þurfi að vera og geti verið mikil- vægur þáttur þess að koma í veg fyrir og fækka sjálfsvígum. I þriðja lagi þuifi síðan félagslega kerfið í samfélaginu að vera undir það búið að taka við fólki þegar meðferð lýkur eftir sjálfsvígstilraun og að það sé aðstoðað við að komast á rétta braut, því annars kunni það starf sem unnið hafi verið með einstaklinginn áður að vera unn- ið fyrir gýg. Þannig þurfi allir þessir þættir að vinna saman og vera í lagi til þess að árang- urinn af forvarnarstarfinu verði sem bestur. Vekja upp sterkar tilfínningar Sigurður Páll segir að fátt sé eins ógnvekj- andi og sjálfsvíg og þau veki upp sterkar til- finningar, ekki bara hjá þeim sem eigi um sárt að binda heldur einnig hjá heilbrigðisstarfs- fólki. Það sé ekki hægt að sætta sig við að líf glatist með þessum hætti, sérstaklega þegar ungir einstaklingar eigi í hlut. Hann bætir við að kannski sé dauðinn fjar- lægari nútímanninum en áður hafi verið. Fólk sé almennt ekki í nánum tengslum við hann þar sem algengast sé að fólk á deyi á sjúkrahúsum. Sumir hafi jafnvel upphafið hann og gert hann draumkenndan og það kunni að eiga þátt í þeirri aukningu sem orðið hafi á sjálfsvígum á Vesturlöndum á síðustu áratugum. Fólk beri ekki nægilega virðingu fyrir dauðanum og hversu skelfilegur hann sé. Dauðinn sé aldrei lausn á einu eða neinu og kenna þurfi fólki að meta gildi lífsins. „Sjálfsvíg kemur í rauninni inn á ótal þætti í mannlegu eðli og samspili þess við umhverfið. Þau eru óskiljanleg í sjálfu sér, en vitað er að margir þættii’ skipta máli í þeim efnum. Þó vitað sé að flestú’ þeirra sem fremja sjálfsvíg eigi við geðræna sjúkdóma að glíma af einhverju tagi, þá er það samt ekki skýringin í öllum tilvikum, því þegar allt kemur til alls þá snýst þetta líka um persónuleika þess sem í hlut á og óteljandi þætti í umhverfinu og sam- spili þessara þátta,“ segir Sigurður Páll. Hann segir að það sé samvinnuverkefni magra aðila að ná árangri í þessum efnum og þar gegni fjölskyldan, skólamir og heilbrigðis- þjónustan lykilhlutverki. Það sé mikilvægt að búa ungt fólk sem best úr garði þannig að það sé heilsteypt og í stakk búið til þess að mæta áföll- um lífsins á annan hátt en sækja í einhvem flótta i og uppgjöf. Færa megi rök að því að þjóðfélags- j breytingar undanfai'andi áratuga og rótleysið : sem þeim hafi verið samfara sé veigamikill or- sakaþáttur í aukinni tíðni sjálfsvíga. Dæmi um það sé há tíðni sjálfsvíga á Grænlandi, þar sem þjóðfélagið sé í upplausn vegna árekstra menn- ingarhefðar eskimóanna og vestrænnar menn- ingai’. Til samanburðar séu Færeyingar þar sem tíðni sjálfsvíga sé einna lægst í heiminum. Hann bætir við að þetta sýni með öðru að gríðarlega flókið samspil margra ólíka þátta hafi áhrif á sjálfsvíg og tíðni þeirra í einstökum löndum. Þar sé bæði um persónulega þætti að ræða, sálræna, félagslega og menningarlega, sem allir geti haft áhrif. Forvarnir þurfi að taka á öllum þessum þáttum ef vel eigi að vera og bestar og öflugastar séu þær foi-varnir sem taki á vandamálunum áður en þau komi upp. Til við- bótar þurfi síðan að koma öflug þjónusta til að bregðast við þeim vandamálum sem upp komi og þar verði allar stofnanir þjóðfélagsins að koma að málum hver með sínum hætti, heil- brigðisstofnanir, meðferðarstofnanir, kirkjan og félagslegt kerfi þjóðfélagsins í heild sinni, því það kunni að koma fyrir lítið að hjálpa ein- staklingi inni á stofnunum ef hann sé síðan sett- ur á guð og gaddinn eftir að meðferðinni ljúki. Varaforseti Landssambands íslenskra akstursfélaga Stjórnsýslukæra byggð á röngum forsendum ÞÓRHALLUR Jósepsson, varafor- seti Landssambands íslenskra akst- ursfélaga, LÍA, segir stjórnsýslu- kæru Jeppaklúbbs Reykjavíkur og Bílaklúbbs Akureyrar á hendur LÍA byggða á röngum forsendum og að villur séu í öllum þremur kæruatrið- um. Kveðst Þórhallur ekki sjá hvem- ig hægt sé að krefja dómsmálayfir- völd um það að taka ráðin af löglega kjörinni stjórn í lýðræðislegum sam- tökum vegna þess að einhverjir menn séu óánægðir, kannski ein- göngu vegna þess að þeir séu í minnihluta í samtökunum. LÍA er kært til dómsmálaráðu- neytisins vegna framkvæmdar á sviði akstursíþrótta og er kæran 1 þremur liðum. Sambandið er kært fyrir þá ákvörðun að útiloka Jeppa- klúbb Reykjavíkur og Bflaklúbb Ak- ureyrar frá keppnishaldi á þessu ári, þá ákvörðun að fela Keppnishaldsfé- lagi LIA, KLÍA, keppnishald og eða yfirstjórn á keppnishaldi á aksturs- íþróttum, og að síðustu framsal LIA á ákvörðunum um keppnishald til KLÍA. Um fyrsta lið kærannar segir Þór- hallur að það sé einfaldlega rangt að sú ákvörðun liggi fyrir að útiloka eigi Jeppaklúbb Reykjavíkur og Bfla- klúbb Akureyrar frá keppnishaldi á árinu. Ekki sé búið að gefa út keppn- isdagatal og þó að undanfarna mán- uði hafi verið unnið að drögum að slíku keppnisdagatali þá hafi ýmsar útgáfur af því litið dagsins ljós og það hafi þess vegna ekkert gildi. Hafa kærendur, að sögn Þórhalls, enga ástæðu til að halda að útiloka eigi þá frá keppnishaldi, þeim hafi margoft verið boðið að ganga til sam- starfs við LIA og viðræðna um hugs- anleg ágreiningsatriði. Fyrirkomulag sem ákveðið var á aðalfundi LIA Um annan og þriðja lið kærunnar segir Þórhallur það ekki rétt að LIA hafi ákveðið að fela KLIA, keppnis- hald og eða yfirstjórn á keppnishaldi á akstursíþróttum, né hafi samband- ið framselt ákvarðanir um keppnis- hald til KLÍA. Þótt KLÍA sé verk- taki við keppnir þá muni keppnishald áfram verða í höndum þeirra akstursklúbba, sem hafa til þess leyfi. Verksvið KLÍA sé hins vegar víð- tækara, því sé ætlað að reka stjórn- stöð, sjá um aðgöngumiðasölu þar sem það á við, reka hljóm- og tölvu- kerfi, veita upplýsingagjöf vegna keppna og þar fram eftir götunum. Þetta fyrirkomulag var ákveðið á lýðræðislegan hátt á aðalfundi LÍA í fyrra, að sögn Þórhalls. Jafnframt var ákveðið að endunneta síðan þetta fyrirkomulag í Ijósi reynslunn- ai’ að afloknu keppnistímabUinu í ár. Tilraun hafi verið gerð til að endur- skoða fyrirkomulagið á fundi í haust en þeirri umræðu hafi ekki lokið þá. Hins vegar megi gera ráð fyrir að hún muni fara fram áður en nokkrar ákvarðanir um keppnishald í ár verði teknar. Þórhallur leggur því áherslu á að aðeins sé um það að ræða að LÍA framfylgi ákvörðunum sem aðal- fundur sambandsins hafi tekið. „Kjarninn er sá,“ segir Þórhallur, „að við lítum svo á að það sé skylda okkar að framfylgja aðalfundarsam- þykktum og ef menn vilja breyta þeim þá gerist það á næsta aðal- fundi. Það gerist ekki með því að vera með einhvern skæruhernað á milli aðalfunda."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.