Alþýðublaðið - 08.01.1921, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 08.01.1921, Qupperneq 1
öeíið H.t g&f JLl|>ý<Ö'aA-®olxlÆsi^iaci>, 1921 Laugardagínn 8, janúar. 5. tölubl. losningar á ísajlrSi. Verkamenn sigra. Frá ísaGrði barst blaðinu í gær avohljóðandi símskeyti: Verkamenn sigruðu við kosa- ingarnar f dag. Verkamannalistinn, sern var B- listi, fékk 185 atkvæði og kom að "tveim mönnum: Magnúsi Ólafssyni prentara og Jóni H. Sigmunds- syni trésmið. A-listinn (brennivfnslistinn) fékk 163 atkvseði og kora að einum mann<: Eiríki Kjerulf lækni. C listinn (viastrimanna) fékk 80 atkvæði, en kom engum að. Efst- ur á þeim lista var Sigurður Jóns- son skólastjóri. Óaýt atkvæði voru i2o(I). ASIs voru greidd hálft sjötta liundrað atkvæði. Jhríf vtnban>sins. Altaf klingir það við bjá and- banningum, að aðflutningsbannið liafi ekkert gagn gert, að það hafi sniklu frekar gert ógagn, með því að koma siðspillandi hugsunarhætti inn hjá almenningi. Þessar fullyrðmgar væru all óá- litlegar fyrir bannið, ef þær væru á nokkrum rökum bygðar. Ef það væri rétt, að bannið ætti sök á liugsunarhætti þeim, sem á að vera otðinn svo mjög ríkjandi meðal manna. En þær eru eðlilega ekkert nems. illkvitnislegar getsakir óhlut- vandra og eigingjarnra manna, sem ekki skirrast við að nota tivaða meðal sem er, til þess að vinna illum málstað fylgi, ef unt væri. Þeir sem veitt hafa alþýðufólki athygli fyrir og eftir aðflutnings- bannið sjá fljótt, að bannið eitt hefir haft stórkostlegar bætur í för með sér. Fátækir verkamenn, sem áð- ur eýddu svo að segja hverjum eyri í áfengi, eyða nú engu í siíka hluti, heldur nota þeir fé sitt til þess að fæáa og klæða fjöl- skyldu sína. Út um sveitir og í kaupstöðum víða um land er drykkjuskapur horfinn, nema þá helzt á þeim stöðum þar sem gróðasjúkir menn hafa sezt að, til þess að reka lyfjaverzlun. Sparisjóðsinnstæður almennings hafa margfaldast síðan bannið kornst á, og má vsfalaust þakka því drjúgan skerf af þeirri aukn- ingu. Það liggur Ifka í hlutarins eðli, að almenningur er ekki að leggja á sig erfiði til þess að drekka frá sér vitið, það eru aðeins einstakir ólánsmenn og iðjuleysingjar sem leggja slíkt fyrir sig að staðaldri Og ýmsir stefnulitlir unglingar leiðast af rangli út í það að fá sér sopa, vegna þess hve létt er tekið á þvf, þó þeir spilii ró manna og heimski sjálfa sig — með öðr- um orðum vegna þess, að lögregl- an f landinu er verri en ekki neitt, og þó höfuðin — lögreglu- stjórarnir — duglausastir. Þetta má ekki svo til ganga. Stjórnin, sem á að Ifta eftir þvf, að iögum landsins sé framfylgt af umboðs- mönnum sfnum, á að krefjast þess, að þeir standi annað hvort eins og heiðvirðum mönnum sæmir f stöðu sinni, eða þá að reka þá frá embættunum. Þjóðin kreíst þess, að embættismeanirnir — þjónar hennar — geri skyldu sfna, hvort sem þeim Ifkar betur eða ver. Duglaus vesalmenni hafa ekk- ert að gera í embættum. Og gagns- laus yfirvöld eru verri en engin yfirvöld. Talandi vottur um það, að að- flutningsbannið er þjóðinni til bless- unar, eru hagskýrslunnar. Saka- málum hefír fækkað sem hér segir: Þau eru 1904—06 72, 1907—09 82, 1910—12 82, 1913—15 58 og 1916—18 aðeins 41. Eru með öðrum orðum helmingi færri 1916 —18 ea 1910—12 Vaíalaust má þakka banninu þetta að nokkru leyti, en þó er fækkun almennra íögreglumála enn þá betri sönnun. Almenn lögreglumál koma fyrir árin 1904—06 898, 1907—09910, 1910—12 594, 1913—15 660 og að eins 491 árin 1916—18. Meira en helmingur máianna 1916—18 koma fyrir hér í Reykjavík. Næst- ur er ísafjörður og þá Vestmanna- eyjar. En í Þingeyjarsýslu, Stranda- sýsla og Skaítafellssýslu hefir ekk- ert slíkt mál komið fyrir. Menn athugi það, að höfuðstað- urinn, sem að ýmsra dómi hefir bezta aðstöðu eins og nú er á- statt til þess að selja vín ólög- lega, er efstur á blaði með laga- brotin og næstur kemur ísafjörð- ur, sem kunnugt er um að hefir haft óvenju receptaliðugum lækni á að skipa, og Vestmannaeyjar, sem margir þekkja, eru næstar. Væri nu gerð gangskör að þvf, af heudi lögreglunnar, að uppræta þann ósóma, sem á sér stað bæði hér og vfðar, og ef landsstjórnin hefði vit á því, að ganga ekki á undan með illu fordæmi (sbr. 500 lítra innfiutningsleyfið, sem áður hefir verið bent á í Aiþb!.), þá er mjög sennilegt, að lögreglumál- unum fækkaði enn meira, En þetta verður aldrei gert fyr en bannmenn taka til sinna ráða og gerast starfandi menn á því sviði að fylgja fram banniögunum og auka þekkingu aimennings á málinu frá öllum hliðum. Þetta er mjög auðvelt, ef æðstu menn Góð- templarareglunnar kasta frá sér þeirri hálfvelgju og hugsunarleysi, sem alt of mjög hefir ríkt meðal þeirra að þessu. Ef þeir væru f sannleika trúir þvf starfi, sem þeim hefir verið trúað fyrir, mundi þá ekki skorta stuðning til fram- kvæmda. Ingölýur Jónsson.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.