Morgunblaðið - 12.02.2000, Síða 22

Morgunblaðið - 12.02.2000, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ F erli skráningar og útboðs hlutabréfa á bandarískum hlutabréfamarkaði Sala bréfa bönnuð í sex mánuði eftir skráningu Verður deCODE genetics, móðurfélag Islenskrar erfðagreiningar, fyrsta íslenska fyrirtækið sem skráir hlutabréf sín á er- lendan verðbréfamarkað? Fyrirtæki sem vilja skrá hlutabréf sín á almennan hluta- bréfamarkað í Bandaríkjunum þurfa að fara í gegnum ákveðið ferli skráningar og útboðs, sem hér er rakið. Þegar forsvarsmenn fyrir- tækis hafa tekið ákvörðun um að fara á almennan hlutabréfamarkað í Banda- ríkjunum hefst ákveðið ferli sem stendur fram að skráningu hluta- bréfa fyrirtækisins. Þetta er það sem á ensku er kallað IPO Process (IPO = Initial Public Offering) og verður hér kallað útboðsferli í viðleitni til þess að veita nokkra yfirsýn yfir það. Umsjónaraðilar útboðs Fyrsta skrefið sem fyrirtækið þarf að taka, eftir að ákveðið hefur verið að fara á markað, er að velja yfir- umsjónaraðila útboðsins sem tekur að sér að sjá um framvindu ferlisins fyrir hönd fyrirtækisins. Venjulega er um fjárfestingarfélag að ræða og er hlutverk hans jafnan þríþætt. I fyrsta lagi veitir yfirumsjónaraðiiinn fyrirtækinu ráðgjöf hvað varðar þætti á borð við starfshætti, reglu- gerðir og fjármál. í annan stað kaup- ir hann jafnan þau hlutabréf sem bjóða á út og verður þannig fjárhags- lega ábyrgur fyrir útboðinu. í þriðja lagi sér hann um endursölu bréfanna til fjárfesta. Ekki er þó algilt að um- sjónaraðilinn kaupi bréfin og selji þau áfram. Þegar hætta er á að bréf- in seljist ekki, setur hann skilyrði um að geta dregið útboðið til baka ef ekki tekst að selja hlutabréfin. Það er hins vegar fremur sjaldgæft. Þegar fyrirtækið sem hyggur á út- boð velur sér yfirumsjónaraðila þarf það einnig að velja endurskoðendur og lögfræðiskrifstofu sem eiga að starfa með umsjónaraðilanum. Hóp- urinn hittist svo u.þ.b. 6-8 vikum áð- ur en leggja á inn umsókn um skrán- ingu, setur saman tímaáætlun fyrir útboðið og hefur vinnu við útboðslýs- ingu fyrirtækisins. Greinargóð útboðslýsing er mikilvæg Útboðslýsingin (e. prospectus), sem er eins konar upplýsingabækl- ingur um fyrirtækið, er einmitt mik- iivægasta og tímafrekasta verkefni hópsins. Þessi bæklingur þarf að kynna fyrirtækið eins vel og mögu- legt er þar sem því er ekki leyfilegt að gefa upp aðrar upplýsingar en þar koma fram eftir að sótt hefur verið um skráningu. Útboðslýsingin hefur að geyma greinargóðar og nákvæm- ar upplýsingar um fyrirtækið fyrir fjárfesta, s.s. allar fjárhagsupplýs- ingar fyrirtækisins, stjómun þess og lýsingar á markmiðum, keppinaut- um og vaxtarstefnu. Hún fer svo til samþykktar hjá bandarísku verðbréfaeftirlitsnefnd- inni SEC, sem er lögum samkvæmt falið að annast framkvæmd laga og reglna um verðbréfamarkaði. Meg- inhlutverk nefndarinnar er því að stuðla að óskoraðri birtingu upplýs- inga og að vemda almenning, sem fjárfestir í verðbréfum, fyrir sviksa- mlegum eða villandi viðskiptaháttum á verðbréfamörkuðum. Þegar fyrirtækið leggur út- boðslýsingu og önnur skráningar- gögn fyrir eftirlitsnefndina til sam- þykktar þá telst það umsókn um skráningu á hlutabréfamarkað. Um- sóknin til SEC þarf að vera afar ítar- leg þar sem m.a. er gerð grein fyrir fjárrnögnuninni, viðskiptaáætlunum og sögu fyrirtækisins. Um leið og umsóknin er lögð inn tekur við svokallað þagnartímabil þar sem fyrirtækið má aðeins ræða það sem fram kemur í útboðslýsingu þess. Þetta tímabil stendur allt út- boðsferlið og þar til 25 dögum eftir að farið er að versla með hlutabréfin á markaði. Eftirlitsnefndin fer yfir umsókn- ina og sendir oft fyrirtækinu ábend- ingar um breytingar. Fyrirtækið lagfærir það sem þarf og sendir um- sóknina inn aftur. Þannig getur hún gengið fram og tilbaka nokkrum sinnum áður en hún er samþykkt. Þá getur fyrirtækið gefið út endanlega útboðslýsingu og er því skylt að senda hana til allra fjárfesta sem hafa áður fengið upplýsingar um út- boðið. A meðan umsóknin er til umfjöll- unar hjá eftirlitsnefndinni myndar yfirumsjónaraðilinn oft nokkurs kon- ar sölu- eða fjármögnunarsamtök með öðrum verðbréfamiðlurum sem eru tilbúnir til að taka þátt í að selja hlutabréf fyrirtækisins. Þessir aðilar verða einnig umsjónaraðiiar í útboð- inu en lúta þó stjóm yfirumsjónarað- ilans. Hver aðili um sig safnar svo saman yfirlýsingum um áhuga frá fjárfestum til að kanna hver áhugi fjárfesta er á bréfunum og hver eftir- spumin muni verða. Markmiðið er að finna nægilega marga fjárfesta til að kaupa öll hlutabréfin. Ákvörðun gengis Til að ýta enn frekar undir áhuga á útboðinu halda umsjónaraðilarnir og stjómendur fyrirtækisins formlega lokaða kynningarfundi fyrir fagfjár- festa og verðbréfamiðlara. Oft og tíð- um bókstaflega ferðast þeir um land- ið með þessa fundi í nokkrar vikrn- og því hefúr þetta skref í ferlinu jafnan verið kallað farandsýningin (e. Road Show). Að lokinni kynningu á fyrirtækinu og eftir að endanleg útboðslýsing hefur verið gefin út og dreift til fjár- festa, koma stjómendur fyrirtækis- ins og umsjónaraðilinn sér saman um útboðsverð og magn bréfa. Hinn síð- amefndi reynir að leggja til raun- hæft verð miðað við væntanlega eft- irspurn og ýmis markaðsskilyrði. Fyrirtækið sjálft vill hins vegar oft hafa verðið hærra. Umsjónaraðilinn á hins vegar á hættu að lenda í erfið- leikum með að selja bréfin ef verð þeirra er of hátt. Venjulega er reynt að verðleggja bréfin þannig að opn- unarþóknunin, þ.e. hækkun bréf- anna eftir opnun, verði um 15%. Dagurinn áður en opnað er fyrir viðskipti með bréfin á markaði er jafnan mikilvægur því að það er sjaldnast fyrr en þá sem endanlegt verð og fjöldi hlutabréfanna í útboð- inu er ákveðinn þrátt fyrir að hvort tveggja hafi verið áætlað fyrr í ferl- inu. Þegar endanleg ákvörðun liggur fyrir þurfa söluaðilamir að útvega formlegar skuldbindingar frá þeim fjárfestum sem sýndu bréfunum áhuga. Þar sem þetta gerist daginn áður en hlutabréfin fara á markað er fjár- festi nánast ómögulegt að vita fyrr en á síðustu stundu hvort hann fær hlutabréf í útboðinu. Reyndar er mjög erfitt fyrir hinn almenna fjár- festi að komast að í svona útboði því fyrirtækin vilja gjaman hleypa stór- um og mikilvægum fjárfestum að fyrst. Því er jafnvel haldið fram að meginreglan sé sú að ef almennur fjárfestir kemst að í slíku útboði þá hljóti eitthvað að vera að, þ.e. enginn annar hafi áhuga og bréfin lækki í verði um leið og opnað er fyrir við- skipti með þau. Bannað að selja í 180 daga Þegar endanlegt verð hefur verið ákveðið og a.m.k. tveimur dögum eft- ir að fjárfestar fá endanlega út- boðslýsingu, er tilkynnt um að útboð hlutabréfanna sé hafið. Þetta gerist venjulega eftir að mörkuðum hefur verið lokað til þess að viðskipti geti hafist með hin nýju hlutabréf við upphaf næsta dags auk þess sem þetta gefur umsjónaraðilum tæki- færi tii að styrkja pantanalistann hjá sér. Útboði er ekki lokið fyrr en gengið hefur verið frá öllum viðskiptum þess og þau hafa verið gerð opinber. Það er venjulega fimm til sjö dögum eftir að viðskipti með bréfin hefjast. Stundum er hægt að draga útboðið til baka ef salan gengur illa og þá fá fjárfestar endurgreitt en það gerist afar sjaldan. Eftir útboð tekur svo venjulega við u.þ.b. 180 daga tímabil sem sett er af umsjónaraðilanum þar sem fyrrverandi hluthöfum í fyrirtækinu er bannað að selja bréf sín á markaði. Samkvæmt framangreindu ferli þá gæti deCODE verið búið að sækja um skráningu og því bundið þagnar- skyldu um starfsemina og útboð hlutabréfa félagsins. Heyrst hefur að unnið hafi verið að því um nokkurt skeið að vekja áhuga fjárfesta á út- boði hlutabréfanna. Því gæti verið að farið sé að styttast í að umsóknin verði samþykkt og viðskipti hefjist með bréfin og þá væntanlega á Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum. Kröfur Nasdaq Samtök verðbréfafyrirtækja í Bandaríkjunum, NASD, annast eft- irlit með verðbréfafyrirtækjum og setja reglur um starfsemi Nasdaq- hlutabréfamarkaðarins, sem byggir fyrst og íremst á tæknifyrirtækjum. Hann skiptist í tvö lög, Nasdaq Nat- ional-markaðinn og Nasdaq Small- Cap-markaðinn. Hvor um sig hefur eigin skilyrði um fjárhagsstöðu, stjómun o.þ.h. sem fyrirtæki þurfa að uppfylla til að fá bréf sín skráð líkt og á Aðallista og Vaxtarlista Verð- bréfaþings íslands. Á Nasdaq National-markaðinum eru yfir 3.000 hlutafélög sem sótt um skráningu og staðist strangar kröfur um fjárhag og stjórnsýslu. Við skráningu er þess t.d. krafist að áþreifanlegar eignir félagsins eða rekstrartekjur þess nemi verulegum upphæðum, það hafi a.m.k. 1,1 millj- ón hluti á almennum markaði sem dreifist á ekki færri en 400 hluthafa og séu seljanlegir á a.m.k. fimm dali. Kröfumar eru nokkuð minni á Nasdaq SmallCap-markaðnum en samt sem áður mjög stífar og aðeins á færi sterkra fyrirtækja að uppfylla þær. AÐALFUNDUR FBA 23. FEBRÚAR 2000 Aðalfundur Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. verður haldinn miðvikudaginn 23. febrúar 2000 kl. 16.00 í Borgarleikhúsinu. Dagskrá fundarins er þessi: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins s.l. starfsár 2. Staðfesting ársreiknings félagsins fyrir liðið starfsár 3. Stofnun styrktar- og menningarsjóðs FBA 4. Meðferð hagnaðar 5. Breyting á samþykktum félagsins 6. Kosning stjórnar og varastjórnar 7. Kosning endurskoðanda 8. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins fyrir næstkomandi kjörtímabil 9. Heimild til að kaupa eigin hlutabréf og taka að veði 10. Heimild til að gera kaupréttarsamninga við starfsmenn félagsins og dótturfélaga 11. önnurmál Gögn sem lögð verða fyrir fundinn munu liggja ffammi á skrifstofu félagsins að Ármúla 13a, Reykjavík ffá og með mánudeginum 14. febrúar 2000. Einnig má nálgast gögn á www.fba.is. Stjórn FBA riuk. iuii NÝ HUGSUN, NÝJAR LEIÐIR www.fba.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.