Morgunblaðið - 24.02.2000, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2000 B 7
BÖRN OG UNGLINGAR
Fjörá
fimleika-
LÍF og fjör í Kaplakrika þegar mótið íslenski fimleikastiginn var
haldið af Fimleikasambandi íslands fyrir stuttu. Keppt var í bæði
pilta- og stúlknaflokki og komu keppendur frá Fimleikadeildum Ár-
manns, Fylkis, Gerplu, Keflavíkur, KR og Stjörnunnar, Fimleikaráði
Akureyrar og Fimleikafélaginu Björk en alls voru þátttakendur tæp-
lega 200 talsins, á aldrinum níu til sextán ára.
Sesselja
Dagbjört
Gunnarsdóttir
skrifar
Af þessu má sjá að miMl gróska
er í fimleikum og því miður
komust færri að en vildu. Hróður
þeirra eldri, sem eru
farin að tróna á
verðlaunapöllum á
erlendum mótum,
hefur aukið áhuga á
fimleikum. Athygli vakti hvað marg-
ir erlendir þjálfarar fylgdu liðunum
og gaman að vera vitni af jafn já-
kvæðri stemmningu og aga sem ríkti
á þessu móti. Þátttakendur sýndu
glæsileg tilþrif og Ijóst er að í þess-
um fríða og föngulega hópi munu
margir láta til sín taka í framtíðinni.
Mikil skemmtun
Stöllurnar Bergþóra Gná Hann-
esdóttir og Andrea Yr Gústavsdóttir
úr Fimleikafélaginu Björk, ásamt
vinkonum sínum, Unni Osk Rúnars-
dóttur og Kristjönu Sæunni Olafs-
dóttur úr Fimleikadeild Gerplu voru
sammála um að fimleikar væru mjög
skemmtileg íþrótt. Þær kepptu allar
í aldurshópi 9-
10 ára. Þær
lögðu sig mik-
ið fram og
ekkert var
gefið eftir.
Bergþóra Gná
sagðist vera
búin að æfa
fimleika í þrjú
ár. „Eg reyndi
eitt sinn frjáls-
íþróttir, en
fannst
skemmtilegra
í fimleikum.“
Kristjana
Sæunn hefur
æft í tvö og
hálft ár. „Mér
finnst fimleik-
ar spennandi
íþrótt - valdi
þá frekar en
knattspyrnu
og jassball-
ett.“
Stelpurnar
fjórar voru Fimleikastelpur
einnig sam-
mála um að æf-
ingar á tvíslánni væru skemmtileg-
astar, en þær áttu einnig sitt upp-
áhalds áhald - nefndu einnig stökk
og gólfæfingar.
Langt f erðalag
Fimmtán manna stúlknahópur
ásamt þjálfurum kom frá Akureyri
til að taka þátt í keppninni. Þar í
flokki voru vinkonurnar Kristín
Hólm Reynisdóttir, Björk Óðins-
dóttir og Sunna Lind Pétursdóttir
glaðar á svip - sögðu að þetta væri í
þriðja skipti sem þær hafi komið
suður til að keppa. Kristín, sem hef-
ur æft fimleika í átta ár, sagði að
þær hefðu komið allar saman í lítilli
rútu og gist væri í júdósal Gerplu-
hússins á meðan mótið stæði yfir. Að
sögn Bjarkar, sem hefur æft fim-
leika í fjögur ár, komu eingöngu
stúlkur frá Akureyri að keppa þar
sem strákar væru nýbyrjaðir að æfa
fimleika á Akureyri. Sunna, sem
hefur æft í þrjú og hálft ár, fmnst
mjög gaman á mótinu og stemmn-
ingin góð. „Ég hef alltaf teMð með
mér lukkudýr á mót sem þetta, en
því miður gleymdi ég þvi heima í
þetta sinn.“
Strákaíþrótt
Fjórir vaskir strákar í Gerplu
tóku á honum stóra sínum og sýndu
mikin keppnishug. Þeir Davíð Örn
Eiríksson, ívar Örn Hákonarson,
Hlynur Kristjánsson og Ólafur
Gunnarsson eru sammála um að fim-
leikar séu jafnt strákaíþrótt eins og
knattspyi-na, en munurinn sé að fim-
leikarnir séu einfaldlega miklu
skemmtilegri. Strákarnir eru á aldr-
inum 9-12 ára og hafa æft af kappi í
fjögur til sjö ár. „Ég byrjaði í fim-
leikum þar sem systir mín og
mamma voru að æfa fimleika. Ég er
hrifnari af fimleikum heldur en
knattspyrnunni,11 sagði Ólafur. í
piltafimleikum eru stökk og hringir
vinsælastir, en í þeim greinum þarf
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Tinna Rún Svansdóttir, Anna Rún Jóhannsdóttir og Halidís Thoroddsen ásamt þjálfara sínum,
írisi Dröfn Halldórsdóttur.
búin að prófa sund og leikfimina í
skólanum. Það kom að því að ég vildi
reyna eitthvað nýtt og fimleikar
urðu fyrir valinu,“ segir Tinna Rún.
Þær vinkonurnar eru á sama máli að
öll áhöldin séu skemmtileg, en á mis-
munandi vegu - þar af leiðandi er
allt gaman í fimleikum. „Vinkona
mín var í fimleikum og því ákvað ég
að slá til og prófa í eitt skipti - til að
sjá hvernig mér fyndist. Fimleikarn-
ir voru miMu skemmtilegri en ég
reiknaði með, sem sést best á því að
ég hef verið á fullu í fimleikunum
síðan að ég reyndi fyrir mér,“ sagði
Halldís Skúladóttir.
Morgunblaðið/Kristj án
frá Akureyri; Sunna Lind Pétursdóttir, Björk Óðinsdóttir og
Kristín Hólm Reynisdóttir.
að æfa vel og reglulega til að árang-
ur náist. „Rúnar Alexandersson er
langbesti fimleikakappinn," segja
ívar Örn og Davíð Örn. Hlynur er
ekM á sama máli og strákarnir og
segir engan vafa leika á því að Dýri
bróðir sinn sé langbestur.
Efnilegar í Keflavík
Fimleikaíþróttin hefur náð vax-
andi áhuga víðs vegar um landið og
hafa til dæmis fimleikastúlkur frá
Keflavík verið áberandi á mótum
undanfarin ár. Við ræddum við þrjár
efnilegar stúlkur þaðan - Önnu Rún
Jóhannsdóttur, Halldísi Skúladóttur
og Tinnu Rún Svansdóttur. „Við höf-
um oft teMð þátt í mótum á höfuð-
borgarsvæðinu. Við gistum þó
aldrei, heldur höldum heim á leið
eftir hvern keppnisdag," sögðu þær
vinkonur, sem hafa mikinn áhuga á
fimleikum og hafa æft í fjögur ár, en
þær eru á ellefta aldursári. „Ég var
Morgunblaðið/Kristinn
Aðaibjörg Guðmundsdóttir úr Björk f æfingu á slá.
Hulda Magnúsdóttir úr Björk.
Morgunblaðið/Kristinn
móti í
Firðinum