Morgunblaðið - 10.03.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. MARS 2000 39
LISTIR
Brúðurnar í Snædrottningunni eru gerðar úr ýmsuni hlutum.
Finnskt brúðuleikhús
Snæ-
drottning-
in í Hafn-
arfirði
FINNSKA brúðuleikhúsið Vihrea
omena eða Græna eplið sýnir
Snædrottninguna í Ilafnarfjarðar-
leikhúsinu laugardaginn 11. mars
kl. 14 og aftur kl 16. Fjórir leikar-
ar ásamt tveimur tónlistarmönnum
taka þátt í sýningunni.
Leikritið er byggt á hinni sigildu
sögu danska ævintýraskáldsins H.C
Andersen þar sem segir frá drengn-
um Kai, en Snædrottningin leggur
á hann álög sem verða til þess til-
finningar hans fijósa. Besti vinur
hans, Gerda, er sú eina sem getur
bjargað honum og brætt ísinn með
afli ástarinnar. Gerda fer í langa
ferð til að finna Kai og tekur ferðin
mörg ár eða frá bernsku til fullorð-
insára.
I sýningunni er leitað nýrra leiða
við að sýna brúðuleikhús á sjónræn-
an hátt þar sem leikarar, brúður og
tónlistarmenn koma við sögu.
Leikgerðin af Snædrottningunni
var skrifuð og leikstýrð af Luis
Zornoza Boy sem kemur frá
Norwich-brúðuleikhúsinu
Sýningar hans hafa vakið atyglii
fyrir nýstárlega efnistök og skapar
hann brúðurnar með innblæstri frá
grískum styttum. Efnið sem brúð-
urnar eru unnar úr er fengið úr
ýmsum áttum og ekki alltaf hefð-
bundið.Brúðuleikhúsið Græna epl-
ið er elsta leikhús sinnar tegundar
í Finnlandi eða frá 1971.
Leikhúsið leggur áherslu á sígild
ævintýri og þjóðsögur í bland við
ný leikrit fyrir brúður. Arlega
koma um 30-40.000 áhorfendur á
sýningar þeirra. Snædrottningin
var frumsýnd 6. febrúar sl. í Finn-
landi með styrk frá Ilelsinki menn-
ingarborg árið 2000 í samvinnu við
leikhúsakadenu'una í Finnlandi og
Assitej - Finnland / Bravo. Sýning-
in er styrkt af Norrænu leiklistar-
og dansnefndinni.
Framkvæmdaraðili sýningarinn-
ar hér á íslandi er íslandsdeild
Assitej með styrk frá Reykjavík
menningarborg Evrópu árið 2000
og Norrænu leiklistar- og dans-
nefndinni.
Að auki má geta þess að um
menningarskipti er að ræða hjá
Menningarborgunum Reykjavík og
Helsinki, því héðan fer íslenska
leiksýningin „Júlíus" á barnaleik-
listarhátið í Helsinki síðar á þessu
ári.
Það er Hafnarfjarðarleikhúsið í
samvinnu við íslcnska leikhúsið
sem stendur að þeirri sýningu en
hún verður frumsýnd 18. mars
næstkomandi.
Tíminn og trúin
MYJVDLIST
Vfdalínskirkja
SJÖ LISTAKONUR -
BLANDAÐEFNI
Sýningunni er lokið í Vídalíns-
kirkju en verður í ýmsum kirkjum
landsins fram í nóvember
á þessu ári.
SJÖ listakonur hafa sett saman
sýningu um trúarleg viðfangsefni.
Þetta er farandsýning sem mun
verða sett upp í kirkjum víða um land
og fara á milli þeiiTa út árið. Lista-
konumar sjö eru ólíkar en þemað
tengir verk þeirra saman og umgjörð
sýningarinnar, kirkjurnar, undir-
stiikar inntakið á afar skemmtilegan
hátt. Það er sérstakt að sjá sýningu
setta upp í kirkju innan um þau
kröftugu tákn sem þar er að fínna og
hugmyndin að sýningunni er nokkuð
djörf en gengur vel upp.
Listakonurnar eru þær Alda Ár-
manna Sveinsdóttir, Auður Ólafs-
dóttir, Gerður Guðmundsdóttir,
Guðfinna Anna Hjálmarsdóttir, Kri-
stín Arngrímsdóttir, Soffía Árna-
dótth- og Æja, eða Þórey Magnús-
dóttir. Á sýningunni eru bæði
málverk og höggmyndir og munu öll
verkin unnin sérstaklega fyrir þetta
verkefni. Flest verkin taka mið af
kirkjuhefðinni, unnið er með tákn-
myndir kristninnar og trúarlífsins.
Hefðbundnasta dæmið um þetta er
líklega mynd Öldu Ármönnu af Ma-
ríu guðsmóður með hinn unga Krist í
fanginu, en táknin eru víðar, guðs-
lambið í málverki Gerðar, þríeinn
kross í höggmynd Guðfinnu Önnu, og
þrenningin í verki Æju þar sem þrjár
verur standa utan um ljómandi gyllt-
an hálfhnött. Auður beitir líka fín-
legri táknfræði í málverki sínu “Blóð
Krists - Bikar lífsins“ þar sem blóð-
dropi fellur á altari í mynd sem er
þrískipt eins og sterk hefð er fyrir í
altaristöflum. Kristín Amgrímsdótt-
ir beitir ekki táknmyndum í málverki
sínu heldur hreinlega skrifar á strig-
ann upphafið að sögunni um týnda
soninn sem alikálfinum var slátrað
fyrir þegar hann sneri aftur heim,
bróður hans til mikillar armæðu.
Loks er að nefna verk Soffíu Ama-
dóttur sem unnið er í gler. Soffía not-
ar hér sem oftast áður letur, en hún
er óumdeilanlega einn færasti lista-
maður okkar á sviði leturlistar.
Verkið nefnir hún “Ljós heimsins"
og í því skrifar hún með listilega út-
færðu únsúal-letri, en rannsóknir
hennar undanfarin ár hafa einkum
beinst að þessari fallegu en vand-
meðförnu stafagerð sem er upprann-
ið í Evrópu á tímum Karlamagnúsar.
Sýning þessi er frísklegt framlag
til þeirra hátíðahalda sem nú fara
fram í tilefni af afmæli kristnitök-
unnar á Islandi og á eftir að lífga upp
á kirkjur landsins það sem eftir er af
árinu.
Jón Proppé
Afkastamiklir ofnar á mj
góðu verði. 5 ára ábyrgc
Vottað af R.b
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Caradon Henrad
■
• Hágæða glerjungur
• Auðveldar þrif ([ceramicplus
• Alltaf eins og nýbónað ~.- Miw&Bwh
Opiö öll kvöld til kl. 21
JIHkMETRO
Skeifan 7 • Simi 525 0800
Fiat Marea Weekend VW Passat Station Daewoo Nubira Station Toyota Avensis Station
Loftpúðar 4 4 2 4
ABS hemlar Já Já Já Já
Vél / hestöfl 1.6 16v /103 hö 1.6 8v/100 hö 1.6 16v/106 hö 1.6 16v/110 hö
5 x 3punkta belti Já Já Nei Já
Stærð LxBxH 4.49x1.74x1.51 4.67x1.74x1.49 4.55x1.72x1.43 4.57 x 1.71 x 1.50
Faranqursrými. 500/1550 495/1600 410/1450 530/1480
Geislaspilari Já Nei Já Nei
Tvfskiptur afturhleri Já Nei Nei Nei
Verð 1.495.000 1.790.000 1.490.000 1.739.000
■jSSSéí-
1899 Wm 1999
Á íslandi frá 1925
MAREA WEEKEND
Fallegur ítalskur eðalskutbíll á einstaklega góðu verði.
Öryggisbúnaður fyrir fjölskylduna er eins og best gerist.
Komdu í reynsluakstur og upplifðu alvöru akstursánœgju.
8ára ábyrgö á
gegnumtæringu.
Galvanhúðaður
TVlSKIPTUR AFTURHLERI
SMIÐSBÚÐ 2 - GARÐABÆ - SlMI 5400 800
Opiö á laugardögum frá kl. 13 -17