Alþýðublaðið - 10.01.1921, Blaðsíða 1
O-efiÖ tit mi .áLlþýðraflolkkrai&m.
1921
Mánudaginn 10 janúar.
6. tölubl.
€rleni simskeyli.
Khöfn, 9. jan.
Heðai við nantpeningsbei'kluni.
Caimette, aðstoðarforstjóri Pas-
teurstofnunarinnar í París, skýrir
frá tilraunum sínum í síðustu 34
mánuði, og er svo að sjá af þeim,
að hann geti gert kýr ómóttæki-
legar fyrir berkla, með því að
sprauta inn í hálsæðarnar 20
milligrömmum af nautpenings
berkiagerlum, sem ræktaðir hafa
verið í glycerin og gallblönduðum
kjötsafa.
Valera og Lloyd George.
Símað er frá London að Lloyd
George hafi boðið Valera á fund
með sér. Sinn Feinar gruna Breta-
stjórn um það, að hún búi yfir
svikráðum við Valera.
Hermonnum fækkað.
Símað er frá Washington að
hermálanefnd Senatsins ieggi til
að hermönnum verði fækkað nið-
ur f 159,000.
Gjaldþrot Austurríkis.
Símað er frá Vín, að búist sé
við ríkisgjaldþroti Austurríkis, þar
eð útgjöldin vaxi stöðugt.
Fundið áhurðarefni,
Fundist hafa 1000 hellar, sem
hafa að geyma miljarða króna
virði af fosiorsýruáburðarefni. [Af
skeytinu verður ekki séð hvar
þetta hefir tundistj.
Erlend mynt.
Khöfn, 9. jan.
Pund sterling (1) kr. 21,88
Dollar (1) kr. 5,94
Þýzk mörk (100) — 8,55
Jarðarför Markúsar sonar okkar fer fram á rnorgun, þriðjudag
II. þ. m. kl. I. 0. h., frá heimili okkar Laugaveg 43 B.
Jakobina Torfadóttir. Friöfinnur Guðjónsson.
Íslanðsbanka-Vísir.
Loksins er kominn fram á sjón-
arsvið maður, sem yfirstfgur Vel-
Iýgna Bjarna í grobbi, um það
geta menn sannfærst með því að
iesa íslandsbanka Vfsi
Fyrst fræðir hann lesendur sfna
um það, að ritstjóri Alþbl. og
Jón Baldvinsson, hafi „frá upp-
hafi" fylgt núverandi stjórn að
málurn, því næst segir hann að
Alþfl hafi boðið Jóni Magnússyni
fylgi móti Möller og næsta stig
er það, að enginn geti boðið sig
fram til þings lengur, nema hann
sé á sama máli og Vísis Möller!
Heyr á endemil Og hann segir,
að Alþbl. hafi horn í síðu séra
Magnúsar Jónssonar af því hann
sé prestur! Hvar er hann prestur?
Hjá Vfsi? í stuttu máli, það er
ómögulegt að lesa íslandsbanka-
Vísi svo, að maður veitist ekki
um af hlátri, yfir grobbi ritstjór-
ans. Við eplin, sögðu o. s. frv.
Eg, sem hefi alia menn í vasa
mínum, og er sjálfur í vasa ís-
landsbanka, segir ritstjóri íslands-
banka-Vísis; eg er sú pólitíska
sól, sem alt og allir snúast uml
Gerir Vellýgni Bjarni beturl
Pðrir.
3 xj arstj örnarkosning
fór fram á Seyðisfirði á laugar-
daginn. Úr bæjarstjórn gengu: Sig-
urður Jónsson verzlunarstjóri, Eyj-
ólfur Jónsson bankastjóri og Stefán
Th. Jónsson konsúil.
Kosið var um þessa 4 lista:
A-lista: Eyjólfur Jónsson, St.
Th. Jónson og Sigurður Jónsson.
Blista: Sigurður Jónsson, Gísli
Lárusson, símritari og Þorsteinn
Gíslason, aðstoðarstöðvarstjóri.
C-lista (verkamanna): Sigurður
Baldvisson póstmeistari, Karl Jó-
hansson verkam. og Jón Sigurðs-
son kennari.
D-Iista (klofningslista): Jón Sig
urðson kennari, Karl Jóhannsson
og Hallbjörn Þórarinsson tré-
smiður.
Kosnir voru: Sigurður Jónsson
verzlunarstjóri, Sigurður Baldvins-
son póstmeistari og Eyjólíur Jóns-
son bankastjóri.
jfýjnsfn simskeyfi.
Khöfn, 9. jan.
Deilur Frakka og Pjóðverja.
Frá Berlín er símað, að fulltrú-
ar Þjóðverja hafi neitað að semja
við Frakka um endurnýjun Spa-
samningsins.
Nýr Indlandsjarl.
Sfmskeyti frá London hermir,
að Reading lávarður, sem nú er
dómsmálaráðherra, sé settur jarl
yfir Indlandi.
Nikita fyrverandi konnngur
og Svartfellingar.
Símað er frá London, að agi-
tationsskrifstofa Nikita fyrv. Svart-
fellingakonungs haldi fram rétti
hans til konungsstóls f Svartfjaila-
Iandi. Einnig hefir hann neitað
að taka við eftirlaunum þeim, sem
þing Jugoslavíu f Belgrad hefir
látið honum f té.
[Eins og kunnugt er, var Nikita
konungur Svartfjallalands (Monte-
negro, Tsernagora, fyrra nafnið er
ítalskt, en hið sfðara hið eiginlega