Morgunblaðið - 12.03.2000, Side 30
30 SUNNUDAGUR 12. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Hjónin Eygló Hjálmarsdóttir og Sigurður Hólm Sigurðsson í verksmiðjusal S. Hólm.
TOLGI
TIL TEKTINA
wstrni/nsmmiF
Á SUNNUDEGI
► Signrður Hólm Sigurðsson, framkvæmdastjóri S. Hólm, fæddist
4. mars 1946 í Hólmavík en ólst upp á Akranesi. Hann stundaði
nám í Iðnskólanum á Sauðárkróki. Síðar fór hann í Stýrimanna-
skólann og lauk þaðan prófi árið 1973. Sigurður starfaði sem stýri-
maður og skipstjóri um árabil, meðal annars hjá útgerðarfélaginu
Miðnesi í tíu ár. Árið 1993 fluttist hann til Afríku og vann sem skip-
stjóri hjá útgerðarfélaginu Seaflowers Wlútefish sem gerði út frá
Namibíu. Eftir heimkomuna, eða um áramótin 1997-’98, stofnaði
hann ásamt eiginkonu sinni fyrirtækið S. Hólm, sem framleiðir
hreinsiefni undir vöruheitinu Undri. Sigurður er kvæntur Eygló
Hjálmarsdóttur sjúkraliða sem starfar nú við bókhald og íjármál
fyrirtækisins. Þau eiga þijú börn sem heita Kristín Ingibjörg, Guð-
jón Hólm og Hjálmar Þór.
Eftir Hildi Einarsdóttur.
Fyrirtækið S. Hólm var
stofnað fyrir tveimur árum
með það að markmiði að
þróa og setja á markað
nýja gerð hreinsiefna sem væru
óskaðleg mönnum, brotnuðu hratt
niður í náttúrunni, væru 100% vist-
væn og stæðust kröfur OECD um
hratt niðurbrot í náttúrunni.
Það sem er sérstætt við þessa
framleiðslu er að efnin eru framleidd
úr kindamör sem er vannýtt nátt-
úruafurð. Vinnslan á efninu fer
þannig fram að úr mömum er brædd
tólg og með efnahvörfum og viðbót-
arefnum er henni breytt í efni sem
virka afar vel á fitu, olíu og tjöru.
Frá því að fyrirtækið var stofnað
hefur.ált sér stað vöruþróun og nú
eru þar framleiddar fjórar tegundir
hreinsiefna undir vöruheitinu Undri;
tjöruhreinsir, penslasápa, línusápa
og alhliða hreinsiefni.
Efnin hafa verið prófuð hér á landi
og víðar og reynst einstaklega vel, að
sögn Sigurðar Hólm Sigurðssonar,
framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
Þegar er farið að selja vörurnar í
verslunum og á bensínstöðvum og
fer salan vaxandi, að sögn framleið-
andans.
Byrjaði sem evrópskt verkefni
Hver er aðdragandinn að fram-
leiðslu Undra?
„Sagan hefst í raun með evrópsku
verkefni sem Iðntæknistofnun Is-
lands tók þátt í og nefndist Sub-
sprint," segir Sigurður. „Verkefnið
fólst í því að innleiða notkun á svo-
kölluðum jurtahreinsum fyrir prent-
iðnað í staðinn fyrir rokgjörn, lífræn
efni. Þessir jurtahreinsar eru svo-
kallaðir esterar af jurtaolíum sem
eru fengnir með því að hvarfa jurta-
olíu við alkóhól. Jurtahreinsirinn
skilar hlutverki sínu allvel og er gott
leysiefni fyrir olíu og fítuleysanleg
efni. Dr. Ragnar Jóhannsson, sem þá
var deildarstjóri hjá Iðntæknistofn-
un íslands og starfar nú sem for-
stöðumaður efnagreininga í Keldna-
holti, var verkefnastjóri hér á ís-
landi. Hann tók eftir því að jurta-
hreinsamir og sérstaklega einstakar
gerðir þeirra vora mjög kraftmikil
hreinsiefni og leystu þau jafnvel upp
lakkið af prenturanum. En hægt er
að stilla hreinsikraftinn með ákveðn-
um aðferðum.
Dr. Ragnar fékk þá hugmynd
hvort ekki væri hægt að nota mör,
sem er venjulega urðaður, til að
vinna úr honum hreinsiefni sem
hægt væri að nota í iðnaði og til að
hreinsa bfla í vetrartíð. Var stótt um
styrk hjá Rannís til að þróa hreinsi-
efni sem hægt væri að nota í þessu
skynij" segir Sigurður.
Sápu verksmiðjurnar
höfðu ekki áhuga
„Prófaðar vora ýmsar gerðir af
hvarfefnum til að fá fram réttu eigin-
leikana. Blöndumar vora síðan
reyndar og þá kom í ljós að það var
sérstaklega ein tegund sem var
hentug til að búa til úr henni hreinsi-
efni. Þegar komin var formúla að
efninu var nokkram sápuverksmiðj-
um sem hér starfa boðið að nýta sér
hana en engin þeirra sýndi því
áhuga.
Síðan gerðist það að ég kom heim
frá Afríku, þar sem ég hafði verið
skipstjóri á togara sem var gerður út
frá Namibíu. Þar eð ég hafði ekki
áhuga á að vera á sjónum lengur fór
ég að leita fyrir mér að öðram starfs-
vettvangi. Eg hafði mestan áhuga á
að vinna sjálfstætt. Þess vegna fór
ég á námskeið hjá Iðntæknistofnun
Islands í stofnun og rekstri fyrir-
tækja. Þar frétti ég af efninu og fékk
áhuga á að stofna fyrirtæki í kring-
um viðskiptahugmyndina. Ég fékk
formúluna hjá Iðntæknistofnun og
öll yfirráð yfir henni. Nú hefur verið
sótt um einkaleyfi á hreinsiefnun-
um.“
Fann tólgina í Bárðardalnum
Sigurður segir að næsta skref hafi
verið að finna góða tólg í framleiðsl-
una. Hafi hann verið búinn að leita
nokkuð fyrir sér að tólg þegar hann
prófaði framleiðslu Garðars Jóns-
sonar, bónda á Stóravöllum í Bárð-
ardal, Norður-Þingeyjarsýslu. Garð-
ar er með verksmiðju heima hjá sér
þar sem hann býr til hamsatólg og
tólgarkerti en hráefnið bræðir hann
úr kindamör. „Ég prófaði tólgina frá
honum og var hún frábærlega vel
unnin. Við höfum notað þessa tólg
síðan í framleiðslu okkar.
Það er þónokkuð mál að framleiða
tólg, eins og kom í ljós í tilraunaferl-
inu hjá Iðntæknistofnun þegar gerð
var tilraun til að bræða tólgina til að
mæla hversu vel afurðin nýttist og
var það hið óþrifalegasta mál auk
þess sem vond lykt er af bræddum
mör og mér skilst að dr. Ragnar hafi
ekki verið mjög vinsæll hjá stofnun-
inni meðan á tilrauninni stóð,“ segir
Sigurður og hlær.
Setti upp tilraunaverksmiðju
„Ég byrjaði íyrirtækið á því að
setja upp litla tilraunaverksmiðju
hérna í Reykjanesbæ. Þar prófaði ég
mig áfram með að hvarfa efnið og
framleiða úr því hreinsiefni," heldur
Sigurður áfram frásögn sinni.
„Framleiðsla og sala á efninu hófst
svo sumarið 1998 með framleiðslu
tjörahreinsis undir nafninu Undri.
Hugmyndin að nafninu fæddist í
samræðum okkar við starfsmenn
SR-mjöls í Helguvík sem höfðu verið
að nota alhliða hreinsiefnið frá okkur
og varð tíðrætt um hvflíkt undraefni
það væri.
Þegar ég sá að framleiðslan
reyndist vel og viðtökur vora góðar
ákvað ég að byggja yfir starfsem-
ina.“
Sigurður segir að fyrsta skóflu-
stungan að nýja húsnæðinu, sem er
500 fm stálgrindarhús, hafi verið
tekin fyrir 8 mánuðum og framleiðsl-
an hófst 1. febrúar síðastliðinn.
Framleiðslan á Undra-hreinsiefnun-
um er í helmingi húsnæðisins og þar
starfa 4 starfsmenn, 2 í fullu starfi,
þ.e. Sigurður og eiginkona hans,
Eygló Hjálmarsdóttir, og 2 í hluta-
starfi.
Undri skal hann heita
„Fyrsta hreinsiefnið sem við sett-
um á markað var Undra-tjörahreins-
ir en hann er notaður til að hreinsa
tjöra og önr.ur óhreinindi af bifreið-
um, vélum og tækjum,“ segir Sigurð-
ur. „Tjörahreinsirinn er í raun al-
hliða hreinsiefni, sápa og bón.
Tjörahreinsinum er úðað á bflinn.
Efnið er látið verka í nokkrar mínút-
ur áður en það er þvegið af með
vatni. Fyrst þegar efnið kom á mark-
að þótti hreinsieiginleiki þess mjög
góður en lyktin að sama skapi ekki
nógu góð en af því var kindalykt og
það líkaði ekki vel. Einnig þurfti að
gera efnið kuldaþolnara. Það kom í
ljós þegar farið var að nota hreinsi-
efnið að í kulda þykknaði vökvinn
ótæpilega. Þetta stafaði af því að
sápuefnið sem var notað í blönduna
storknaði við of hátt hitastig. Með
breyttu efnisvali á sápuefni fékkst
fram afurð sem er mun betri.
Þegar bót hafði verið ráðin á þessu
var tjöruhreinsirinn settur í nýjar
umbúðir og útlit vörunnar var end-
urhannað.“
100% vistvæn afurð
Sigurður segir að Undra-tjöra-
hreinsir innihaldi ekki ýmis efni sem
era í öðram tjörahreinsum, efni eins
og White Spirit, sem er bannað í
nágrannalöndunum, auk þess sem
sýrastigið sé 7, 7, sem þýði að þetta
sé ekki basískt hreinsiefni sem fer
illa með lökk og málma. Efnið má
einnig fara í öll niðurföll í litlum mæli
vegna þess að það er 100% vistvænt
en það brotnar niður á 90 dögum.
Undra-tjörahreinsir fer því vel með
lakkið á bifreiðinni, notandann og
náttúrana. Hreinsiefnin uppíylla því
kröfur norræna umhverfismerkis-
ins, hvíta svansins. Sótt hefur verið
um að fá þetta merki á framleiðsl-
una.
,Áður en við settum Undra-tjöra-
hreinsinn á markað fékk ég reynda
bflaþvottamenn til að prófa hann,
þar á meðal þá sem reka SS bflaleigu
hér á Suðurnesjum, og hafa þeir ekki
notað annan tjörahreinsi síðan,“ seg-
ir Sigurður. „Þeir hafa einnig þvegið
bflana að innan með efninu, hvort
sem það er plastefni eða áklæði.
Vinnur vel á olíu, fítu og tjöru
Fleiri gerðir hreinsiefna era
komnar á markað sem hafa reynst
vel, eins og penslasápan sem hentar
vel við þrif á öllum gerðum málning-
aráhalda," segir hann. „Sápan vinn-
ur vel á olíu, fitu og tjöra og þar af
leiðandi á olíumálningu og kítti.
Einnig er vitað til að hún hafi verið
notuð til þvotta á lopapeysum, gólf-
teppum og fatnaði sem hefur fengið í
sig t.d. olíumálningu, tyggigúmmí og
kertavax, sem reynist oft erfitt að ná
úr fötum. Þreifingar era hafnar
varðandi útflutning og sendar hafa
verið út prafur sem hafa líkað mjög
vel.
Fljótlega settum við Undra-
hreinsilög á markað en hann er ætl-
aður til almennrar notkunar bæði til
sjós og lands. Eins og hin hreinsiefn-
in vinnur hann vel á olíu, fitu og tjöra
og lítið blandaður skilur hann eftir
bónhúð. Hefur þessu efni verið tekið
opnum örmum af vélstjóram og mat-
vælafyrirtækjum. Lögurinn vinnur
sérstaklega vel á skán sem sest
gjarnan á færibönd og ýmsan búnað
í fiskvinnslu, en þessi skán er með
svokölluðum sykurpróteinum sem
bakteríur mynda sér til varnar til að
lifa af þvott og þrif. Þessi himna sest
sem gul slikja eða skán ó búnaðinn.
Mikilvægt er að þessi skán myndist
ekki og sé fjarlægð sem fyrst ef hún
verður til.
Vökvi og kvoða
Einnig má nota hreinsilöginn til
hreingeminga heima fyrir. Hann
hentar til dæmis mjög vel til hreins-
unar á flísum sem hafa gulnað vegna
fitu sem hefur sest á þær.
Prófað hefur verið að nota hreinsi-
löginn til að þrífa bakarofna að innan
og reyndist hann vel. Annars höfum
við áhuga á að þróa sérstakt hreinsi-
efni til þeirra nota,“ segir Sigurður.
Hægt er að fá alhliða hreinsiefnið í
vökvaformi og sem kvoðu. Segir Sig-
urður að kvoðan henti til dæmis bet-
ur þar sem efnið þarf að standa leng-
ur á veggnum til að vinna á óhrein-
indunum. „Kvoðuefnið hefur verið
notað til þrifa í frystihúsi Norður-
garðs í Keflavík og að sögn Kristins