Morgunblaðið - 16.03.2000, Síða 31

Morgunblaðið - 16.03.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 31 Heimsókn varnarmálaráðherra Bandaríkjanna til Víetnams * AP William Cohen, varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, ræðir við Tran Dud Luong, forsætisráð- herra Víetnams, við stóra styttu af Ho Chi Minh, fyrrverandi leiðtoga landsins, í forsetahöllinni í Ho Chi Minh-borg, sem hét áður Saigon. I anda „friðar og vináttu“ Ho Chi Minh-borg. AFP, AP. SÖGULEGRI heimsókn Williams Cohens, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, til Víetnams lauk í gær. Ráðherrann ræddi við embætt- ismenn víetnömsku kommúnista- stjómarinnar sem fullvissuðu hann um að hún vildi nánara samstarf við Bandaríkin og leggja fjandskapinn vegna Víetnamstríðsins til hliðar. „Heimsókn þín markar tímamót í samskiptum ríkjanna tveggja í mín- um huga,“ sagði Vo Viet Thanh, for- seti borgarstjórnar Ho Chi Minh. Borgin hét Saigon þar til hersveitir Norður-Víetnama sigruðu hersveitir Bandaríkjanna og Suður-Víetnama í apríl 1975 og sameinuðu landið undir stjórn kommúnista. Thanh sagði að Víetnamar og Bandaríkjamenn vildu að samskipti landanna yrðu „í anda friðar, vináttu og samvinnu“. Cohen er fyrsti vamarmálaráð- hema Bandaríkjanna sem heimsæk- ir Víetnam frá því stríðinu lauk fyrir 25 ámm. Ríkin komu á stjórnmála- sambandi sín á milli fyrir fimm ár- um. Cohen skoðaði meðal annars flug- völl í Ho Chi Minh sem var aðal- bækistöð bandarísku hersveitanna í stríðinu. Hann ræddi þar við Phan TVung Kien undirhershöfðingja, sem var í sérsveit hersins í Saigon í stríð- inu. „Við eram ánægðir með þá stefnu ríkjanna tveggja að leggja fortíðina til hliðar og einbeita okkur að framtíðinni," sagði Kien. Rúmar þrjár milljónir Víetnama féllu í stríðinu, þar af tvær milljónir óbreyttra borgara. Kien sagði að rúmlega 300.000 Víetnama sem börðust í stríðinu væri enn saknað og margir þjáðust enn vegna eiturefna í illgresiseyði sem bandarísku her- sveitirnar úðuðu. Að sögn Kiens hafa jarðsprengjur frá stríðinu einnig kostað mörg mannslíf og Cohen kvaðst hafa óskað eftir því að Víetn- amar sendu lista yfir tæki sem þeir gætu notað til leit- ar að sprengjun- um. Cohen kvaðst hafa rætt við víetn- amska embættis- menn um hvernig ríkin gætu aukið samstarf sitt í her- málum. Samstarfið hefur hingað til nær eingöngu snúist um að leita að líkamsleifum bandarískra her- manna sem féllu í stríðinu. Cohen lagði til að fulltrúar herja ríkjanna kæmu oft- ar saman og að rik- in hæfu samstarf um að fjarlægja jarðsprengjur, hreinsa umhverfið og koma upp bún- aði til varnar flóð- um. Hann kvaðst vonast til þess að bandarísk herskip gætu farið í heim- sóknir til hafna í Víetnam og að tengslin þróuðust smám saman í fullt samstarf á sviði öryggismála. Málaferli gegn Rauðu khmerunum í Kambódíu Phnom Penh. AFP. Reynt að leysa deilu um skipun dómara AFP. JL SAMEINUÐU þjóðimar skýrðu frá því í gær að háttsettir embættismenn samtakanna myndu fara til Kambód- íu í dag til að reyna að ná samkomu- lagi við þarlend stjómvöld um hvem- ig haga ætti réttarhöldum yfir fyrrverandi leiðtogum Rauðu khmer- anna, sem era sakaðir um að hafa orð- ið allt að tveimur milljónum Kambód- íumanna að bana á árunum 1975-79. Deilt er um hvort Saméinuðu þjóð- irnar eða Kambódíumenn eigi að stjóma réttarhöldunum og hvorki hefur gengið né rekið í samningavið- ræðum um málið sem staðið hafa í nokkra mánuði. Hun Sen, forsætisráðherra Kamb- ódíu, vill að Sameinuðu þjóðimar taki þátt í réttarhöldunum til að tryggja að þau fái alþjóðlega viðurkenningu. Hann hefur hins vegar hafnað þeirri kröfu Sameinuðu þjóðanna að sam- tökin skipi meirihluta dómaranna og saksóknara dómstólsins. Kambódíska stjórnin hefur lagt til að deilan verði leyst með því að skip- aðir verði tveir saksóknarar, annar kambódískur og hinn erlendur, og að þeir gefi ákærumar út sameiginlega. Stjómin mun einnig vilja fá að velja á milli þeirra sem Sameinuðu þjóðimar tilnefna í dómstólinn. Lögfræðingar Sameinuðu þjóð- anna hafa ekki viljað fallast á þessa tillögu þar sem þeir óttast að mark- mið kambódísku stjómarinnar sé að hindra ákærur á hendur fyrrverandi leiðtogum Rauðu khmeranna, sem bundu enda á borgarastyrjöldina í Kambódíu með því að ganga til liðs við stjómina. Lögfræðingar Sameinuðu þjóð- anna vantreysta réttarkerfinu í Kambódíu og Hun Sen hefur sakað þá um hroka. Hann segir þá hafa meiri áhuga á „nornaveiðum“ en sátt- um og friði í Kambódíu. Breskt kraftaverkabarn Utanlegsfóstri bjarg- að með aðgerð London. Morgunblaðið. KRAFTAVE RKAB ARNIÐ kallar The Times stúlkuna, sem í móður- kviði var utanlegsfóstur og þroskað- ist alla meðgönguna við fitulag utan á þörmunum. Þrátt fyrir margar myndatökur á meðgöngunni, en móðirin er 42 ára, komust læknar aldrei að hinu sanna um legu fóstursins. Töldu þeir það allan tímann vera á réttum stað, en legið sjálft töldu þeir vera góðkynja æxli á leghálsinum. Barnið var tekið með keisaraskurði og gripu lækn- arnir til þess ráðs vegna minni hátt- ar vandamála samfara stellingu fóst- ursins. Þegar í ljós kom, hvers kyns var, kölluðu menn til skurðlækni til að aðstoða við að losa fylgjuna frá þörmunum og var það mikil og erfið aðgerð, sem gekk nærri móðurinni. The Times hefur eftir talsmanni sjúkrahússins, að líkurnar á því að barnið lifði aðgerðina af hefðu aðeins verið 5% og líkurnar á því að móðirin lifði ekki af hefðu verið einn á móti tíu. Hann sagði, að í stað þess að fara í legið hefði fósturvísirinn fundið sér leið gegnum skaddaðan eggjaleiðara inn í kríðarholið. Fóstrið hefði síðan þroskast í fitu- lagi utan á þörmunum og fengið það- an næringu gegnum naflastrenginn. Hann sagði að stöðug hætta hefði verið á þrí að fóstrið skaddaði móð- urina innvortis. Hefði lega þess upp- götvast í upphafi meðgöngunnar hefði verið gripið til fóstureyðingar vegna þeirrar hættu, sem móðirin var í. En eins og mál þróuðust mætti svo sannarlega tala um kraftaverk. Barninu heilsaðist strax vel og móðirin, sem var eftir sig eftir fæð- inguna, komst fljótt á bataveg. ^mb l.i is ALLTAF= e/TTH\AAÐ NÝTl Hj V *! fjk 1 IT i*'.. ‘ . . .* Elizabeth Arden kynning í Hygea, Kringlunni, fimmtudag (í dag), föstudag og laugardag. Kynntur verður nýi varaliturinn LIP LIP HOORAY. Ath. Glafelegur kaupauki að verðmæti 4.000 kr. ii 0 Lína.net

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.