Morgunblaðið - 19.03.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.03.2000, Blaðsíða 2
2 B SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Tom Cruise; 20 milljónir dollara. Harrison Ford; 20 milljónir dollara. Will Smith; 20 milljónir dollara. Jim Carrey; 20 milljónir dollara. B , IOMYNDIRNAR í Holly- wood eru sífellt að verða dýrari í framleiðslu og eitt af þvi sem hefur hækkað hvað mest eru laun kvikmynda- stjarnanna. Allt upp í þriðjungur kostnaðar við bíómynd getur falist í launum til aðalleikarans þ.e.a.s. ef hann heitir Mel Gibson. Nýjasta myndin hans er Föðurlandsvinurinn eða „The Patriot" og fyrir leik sinn í myndinni fær Gibson 25 milljónir dollara eða rúmlega 1,8 milljarða ís- lenskra króna. Hann hefur þar með sett met í verðlagningu á stjörnun- um vestanhafs. Engum hefur áður verið greitt svo mikið fyrir að koma fram í bíómynd. Er hann þess virði? Svarið er í rauninni einfalt en svarar kannski ekki spurning- unni til fulls: Gibson er jafnmikils virði og fram- leiðendurnir eru tilbúnir að greiða fyrir hann. Gibson launahæstur Það kemur auðvitað áhorfendum ekkert við hvað bíómyndir kosta eða hvað stjörnur þeirra fá í laun. Það eina sem áhorf- andann varðar um er að hann fari ekki erindisleysu í bíó, að myndin geii hon- um eitthvað sem honum finnst virði að borga fyrir sex hundruð og fimmtíu kall. Hins vegar hafa um- ræður um bruðlið í Holly- wood og svimandi háar launagreiðslur til stór- stjarnanna verið viðloð- andi Hollywood-myndirn- ar frá því Charlie Chaplin var og hét og verður svo enn um sinn. Bandaríska skemmtanatímaritið Ent- ertainment Weekly tók nýlega saman athyglis- verðan lista yfir þá leikara sem fá mest borgað fyrir bíómyndaleikinn og spáir í hvort öllum peningunum sé skynsamlega varið í menn eins og Harrison Ford eða Tom Cruise eða Juliu Roberts. Við skulum skoða hvað þar er að finna. Gibson trónir efst á list- anum og tímaritið segir að þrátt fyrir allt sé hann tæpra tveggja milljarða króna virði því myndir hans ganga vel þótt þær séu ekki endilega góðar. Og ekki aðeins í Bandaríkjunum heldur um heim allan svoleiðis að það er nokkuð tryggt að fjárfesting- in skili sér. Gibson tekur ekki alltaf þennan pening fyrir leikinn. Hann fer með hlutverk í nýrri og hræó- dýrri mynd Wim Wenders, „The Million Dollar Hotel“, sem frumsýnd verður vestra í vor, og tekur varla nema smáaura fyrir; síð- ar mun hann leika í gamanmyndinni „What Women Want“ á móti Helen Hunt. Leonardo DiCaprio fer fram á 20 milljónir dollara fyrir hverja mynd eða um einn og hálfan milljarð króna. Barist var um hann eftir Tit- anic og Fox-kvikmyndaverið hreppti hann og setti í Ströndina eða „The Beach“. Áhugi á myndinni vestra var minni en búist hafði verið við. Unglingafansinn sem hann heillaði í Titanic virtist ekki ætla að fylgja honum hvert á land sem er. Hann mun á næstunni leika í mynd Hvers virði eru slj örnurnar ? Kvikmyndastjörnurnar fá óhemju fjárhæðir fyrir að leika í bíómyndum, að sögn Arnaldar Indriðasonar sem kynnti sér hvaða leikarar fá hæstu launin í draumaverksmiðjunni. Julia Roberts; 20 milljónir dollara. Jodie Foster; 15 milljónir dollara. Leonardo DiCaprio; 20 milljónir dollara. Mel Gibson; 25 milljónir dollara. Martins Scorseses, „Gangs of New York“, en gældi lengi við þá hug- mynd að fara með hlutverk annað hvort billjónerans Howards Hughes eða djassistans Chets Bakers áður en Scorsese tældi hann til sín. Er hann þess virði? Allar myndir sem hann leikur í hljóta geysilegt umtal og auglýsingu en þær sem hann vill helst leika í (eins og mynd Scorses- es) eru ekki endilega hágróðamynd- ir, stendur þar. Grínleikarinn Jim Carrey vill einnig 20 milljónir dollara. IVisvar sinnum í röð hefur Óskarsakadem- ían litið fram hjá honum í fyrra skiptið eftir frábæra frammistöðu í Truman-þættinum og nú síðast var hann ekki tilnefndur fyrir „Man on the Moon“. Þetta eru að vísu ekki dæmigerðar Carrey-myndir eins og sú sem hann mun leika í næst en það er nýjasta gamanmynd Farrelly- bræðra geðklofagamanið, Eg, ég sjálfur og Irene. Búast má við að Keanu Reeves; 15 milljónir dollara. hún verði einn af sumarsmellunum þetta árið og það hefur sýnt sig að þegar Carrey er í essinu sínu er hann hverrar krónu virði. Cruise tryggir aðsókn Tom Cruise er einnig í 20 millj- ónadollara klúbbnum. Enginn velur sér leikstjóra af meiri kostgæfni (hann hefur starfað með Kubrick, Scorsese, Coppola, Levinson, Stone og De Palma) og mun Cruise á næst- unni ætla sér í samstarf við Steven Spielberg um gerð vísindatryllisins „Minority Report“. Hann fékk John Woo til þess að gera fyrir sig fram- haldsmyndina, „Mission: Impossible 2“, sem vonir standa til að raki inn milljörðunum í sumar. Hann er sagður peninganna virði. Nafn hans tryggi góða aðsókn hvar sem er í heiminum. Hann hefur leikið í 21 bíómynd á tveimur áratugum og samanlagt hafa þær náð inn meira en einum milljarði dollara - og geri Bruce Willis; 20 milljónir dollara. margir menntaskólar betur. Þá fer kempan Harrison Ford fram á 20 milljónir dollara jafnvel þótt myndum hans hafi ekki vegnað sérlega vel eins og „Random Hearts“ í fyrra. Hann gæti náð sér hratt með næstu mynd en henni er lýst sem yfirnáttúrulegum trylli og heitir „What Lies Beneath“. DreamWorks framleiðir en Michelle Pfeiffer er mótleikkona hans. Hann mun á næstunni sjást í ódýrri mynd eftir Steven Soderbergh sem heitir „Traffic". Ford hefur leikið í vinsæl- ustu kvikmyndum sögunnar og ef hann leikur í myndum sem ekki heita „Sabrina" eða þá „Random Hearts“ heldur Indiana Jones og týnda borgin Atlantis eða eitthvað þvíumlíkt er hann í raun ómetanleg- ur. Af leikkonum er Julia Roberts sú eina sem stendur jafnfætis áður- nefndum körlum í launum. Hún tek- ur 20 milljónir fyrir stórmynd enda virðist hún skipta miklu máli fyrir aðsóknina. Það sýna myndii- eins og „My Best Friend’s Wedding“, „Notting Hill“ og „Runaway Bride“. Næsta mynd hennar er „Erin Brockovich" þar sem hún er í alvar- legu hlutverki. Roberts er óhemju vinsæl leikkona nú um stundir og mun vel að 20 milljónum dollara komin. Will Smith þiggur 20 milljónir dollara í laun og svo virðist sem skellinum Villta, villta vestið hafi ekki tekist að draga neitt úr vin- sældum hans. Smith var í tveimur sumarsmellum í röð, Þjóðhátíðar- degi og Mönnum í svörtu, auk þess sem honum vegnaði ágætlega í Óvini ríkisins en myndir þessar gerðu hann að súperstjörnu. Hann leikur á næstunni á móti Matt Damon í „The Legend of Bagger Vance“. Hann íhugar einnig að leika á móti Robin Willi- ams í endurgerðinni „Kind Hearts and Coronets" sem Mike Nichols ætlar að leikstýra. Sagt er að hann sé einn fárra leikara úr hópi svertingja sem er vin- sæll hvar sem er á jarð- arkringlunni og það ráði miklu um greiðslur til hans. Bruce Willis fær einnig 20 milljónir á mynd. Hann er fyrst og síðast hasar- hetja eins og Stallone og Schwarzenegger en velur rétt þegar hann bregður sér úr hlutverkinu eins og sýndi sig þegar hann setti traust sitt á ungan og óþekktan leikstjóra af ind- verskum ættum og lék í Sjötta skilningarvitinu. Hann ætlar einnig að leika í næstu mynd M. Night Shyamalan, sem heitir „Unbreakable“. Tuttugu milljónunum er ekki kast- að á glæ í hans tilfelli. Síð- ustu tvær myndir hans á undan þeirri nýjustu („The Whole Nine Yards“) tóku inn 500 milljónir doll- ara. Ekki slæm fjárfesting það. Jodie Foster þiggur enn 15 milljónir dollara í laun jafnvel eftir að hún fór með aðalhlutverkið í Önnu og kónginum. Hún hefur eftirlátið Julianne Moore hlutverk Clarice Starling í fram- haldi myndarinnar Lömbin þagna enda tekin að snúa sér í auknum mæli að því að gera sjálf bíómyndir. Þá er nefndur til sögunnar Keanu Reeves og er við hæfi að enda þessa upptalningu á honum. Stjarna hans hefur risið mjög með „The Matrix“ en næsta haust hefjast tökur á mynd tvö og þrjú í flokknum með honum í aðalhlutverkinu. Hann mun taka þrjátíu milljónir dollara samanlagt fyrir að leika í myndunum tveimur og að auki fær hann hluta af gróðan- um en algengt er að stórstjörnur fórni einhverju í launum í von um ágóða síðar meir (þannig mun Tom Hanks hafa grætt 60 milljónir doll- ara á Forrest Gump). Reeves hefur leikið í mjög vondum myndum á sín- um ferli og fengið vel borgað („Cha- in Reaction“ er ein) en á meðan hann leikur í snilldarverkum eins og „The Matrix“ er óhætt að borga honum óheyrilegar summur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.